Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 19 VIÐSKIPTI Metafkoma hjá Marel-samstæðunni á fyrri árshelmingi Hagnaðurinn 225 milljónir króna HAGNAÐUR Marel-samstæðunn- ar á fyrstu sex mánuðum þessa árs var 225 milljónir króna og hefur ekki verið meiri í sögu fyrirtækis- ins. Á sama tímabili í fyrra var 77 milljóna króna tap af rekstrinum. Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrri hluta ársins námu rúmum 2,7 milljörðum króna'og hafa aukist um rúman milljarð milli ára, eða 60%. Rekstrargjöld námu rúmum 2,4 milljörðum og hækkuðu um 37% milli ára. Vegna hagstæðrar geng- isþróunar voru fjármunatekjur samstæðunnar alls 17 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins en til samanburðar greiddi félagið 34 milljónir í fjármagnsgjöld á fyrri hluta síðasta árs. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 323 millj- ónum króna en á sama tíma í fyrra var 90 milljóna króna tap af reglu- legri starfsemi. Þakkar starfsmönnum góðan árangur Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri Marel, vill einkum þakka starfs- mönnum þann góða árangur sem náðst hefur í rekstri það sem af er árinu. „Einnig hafa fjárfestingar í fiskiðnaði verið að taka við sér að nýju eftir að hafa víða legið niðri um skeið vegna samdráttar. Þessu til viðbótar hefur okkur gengið mjög vel að selja framleiðslu okkar fyrir kjöt- og kjúklingaiðnað og því má Rekstrartekjur hafa aukist um rúman milljarð króna milli ára segja að margt leggist á eitt við að skapa þessa góðu afkomu.“ Hlutfall framleiðsluvara Marel sem fara á markaði erlendis hefur vaxið á þessu ári, er nú 95% en var 86% allt árið í fyrra. Geir segir að salan dreifist nokkuð jafnt milli landa en stór hluti fari á markaði í Norður-Ameríku. „Noregur er líka og hefur verið mikilvægur markað- ur fyrir okkur og Evrópa hefur vax- andi þýðingu sem markaður fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins." Bjarni Adolfsson, sérfræðingur hjá Islandsbanka-F&M, segir að árangur Marel verði að teljast mjög góður og ætla megi að gengi hluta- bréfa muni halda áfram að hækka. „Athygli vekur að framlegð félags- ins er nú um 13% en hefur verið á bilinu 4-9% og rekstrartekjur aukast um 60% frá sama tíma í fyrra. Þær aðgerðir sem tekið var til í kjölfar slakrar afkomu í fyrra virðast hafa skilað sér og reikna má með að afkoma á seinni hluta ársins verði svipuð, enda biðlistar eftir framleiðsluvörum fyrirtækisins. Ef áfram verður lögð aukin áhersla á sölu- og kynningarstarf samhliða þróunarstarfi, ætti framtíð fyrir- tækisins að vera björt til lengri tíma litið,“ segir Bjami. Rekstrartekjur Carnitech aukast um 36% Marel rekur sex dótturfyrirtæki erlendis: Marel Equipment Inc. í Kanada, Marel Europe A/S í Dan- mörku, Marel France SA, Marel Seattle Inc., Marel USA Inc. og Marel UK Ltd. Þessi fyrirtæki gegna öll mikilvægu hlutverki í sölu-, markaðs- og þjónustumálum móðurfélagsins og hafa náð góðum árangri að undanfömu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Rekstrartekjur móðurfélagsins og þessara sölufyrirtækja hafa þannig aukist um 78% frá fyrri hluta síð- asta árs. Marel rekur einnig dótturfyrir- tækið Carnitech, sem hefur starfs- aðstöðu í Danmörku og á sjálft dótturfyrirtæki í Seattle og Nor- egi. Rekstrartekjur Carnitech- samstæðunnar jukust um 36% á fyrri hluta ársins samanborið við í fyrra og var hagnaður eftir skatta 104 milljónir króna. Samhliða auk- inni sölu tækja og búnaðar til vinnlu á rækju og öðrum sjávaraf- urðum hefur sala á tækjabúnaði til nota í kjötiðnaði farið vaxandi á ár- inu og einnig til vinnslu á laxi. Marel og Carnitech starfa náið Úr samstæðureikningi Mare,s hf- timabiliö ianúar-iúní 1999 UULLzJJVzU 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir kr. 2.764,6 1.731,8 +59,6% Rekstrargjöld 2.458,2 1.788,0 +37,5% Rekstrarhagnaður/(-tap) 306,4 (56,3) Fjármunatekjur/(-gjöld) 16,8 (33,8) Hagnaður/(tap) fyrir skatta 323,1 (90,1) Reiknaðir skattar (99,0) 31,6 Aðrar tekjur og (gjöld) 1,2 (18,6) Hagnaður/(tap) tímabilsins 225,3 (77,1) 1999 1998 Breyting Eignir 3.195,5 2.584,4 +23,7% Skuldir 2.489,3 2.180,0 +14,2% Eigiðfé 706,3 404,4 +74,7% 1999 1998 Breyting Veltufé frá rekstri 298,8 (47,0) Eiginfjárhlutfall 22,1% 15,6% Veltufjárhlutfall 1,9 1,8 saman við framleiðslu og markaðs- setningu. Carniteeh gekk nýlega frá samn- ingi við danskt verktakafyrirtæki um byggingu á nýju verksmiðju- og skrifstofuhúsnæði fyiir fyrirtækið. Nýju höfuðstöðvarnar verða reistar á Jótlandi, skammt sunnan við Ála- borg, og er reiknað með að heildar- kostnaður muni nema um 600 millj- ónum króna. Megintilgangurinn með byggingu hússins er að mæta auknum umsvifum fyrirtækisins og styrkja samkeppnisstöðu þess með bættri og hagkvæmari aðstöðu. Geir A. Gunnlaugsson segir að fyr- irhugaðar byggingarframkvæmdir hafi verið í athugun í nokkurn tíma því þröngt hafi verið orðið um starf- semi Carnitech í Danmörku. Að sögn hans munu framkvæmdimar ekki hafa nein áhrif á áform um að byggja hús undir starfsemi Marel hér á landi, enda sé um tvö óskild mál að ræða. Hann segir ennfremur að horfur í rekstri Marel og Carni- tech á síðari hluta þessa árs séu bjartar og að verkefnastaðan sé góð. Heildareignir Marel-samstæð- unnar námu tæpum 3,2 milljörðum í lok júní 1999 og hafa aukist um 24% frá því í júní í fyrra. Bókfært eigið fé nam 706 milljónum og var eigin- fjárhlutfallið 22,1%. Skuldir nema alls tæpum 2,5 milljörðum. Eignarhaldsfélagið Alþýðubanki hf. stofnar Alþjóðafjárfestingarsamlag Mun sinna fjár- festingum fyrir stofnanafj árfesta EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Al- þýðubanki hf. (EFA) tilkynnti í gær stofnun Alþjóðafjárfestingarsamlags sem ætlað er að standa fyrir áhættu- fjárfestingum í óskráðum erlendum fyrirtækjum. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri EFA og fram- kvæmdastjóri hins nýja samlags, sagði á fjölmiðlafundi í gær að inn- lendum stofnanafjárfestum verði boðið að leggja fé til samlagsins og verða þeir aðilar með takmarkaða ábyrgð. Ráðandi eigandi samlagsins verður nýstofnað dótturfélag EFA, EFA félagar ehf., með 1% af stofn- fjárframlagi. Ætlunin er að safna framlagi frá meðeigendum að lágmarki milljarði króna, en þremur milljörðum að há- marki. Er markmiðið að ávöxtun fjármuna verði yfir meðallagi fyrir meðeigendm- samlagsins. Hið nýja samlag, sem er lokaður hlutabréfasjóður, mun standa fyrir fjárfestingum í fyrirtækjum á sviði ferliiðnaðar, en dæmi um slík fyrir- tæki eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufrekur iðnaður, efna- og efna- vinnsluiðnaður, auk fyrirtækja í upp- lýsingatækni, en einnig í innlendum félögum sem hyggja á útrás. Gylfi sagði einnig að þetta væri í fyrsta sinn sem stofnað væri til samlags hér á landi í þessum tilgangi. íslandsbanki F&M og Burnham International á íslandi hf. munu annast útboð meðal fjárfesta vegna Aþjóðafjárfestingarsamlagsins. Heiðar Guðjónsson frá Islandsbanka F&M sagði á fjölmiðlafundinum að með því að stofna tii samlags um fjárfestingar mætti bæta áhættu- dreifingu. Guðmundur Pálmason, framkvæmdastjóri Burnham International á íslandi, sagði að samlagsformið væri algengasta fé- lagsformið í samstarfi um fjárfest- ingar í Bandaríkjunum, og að hlut- deild aðaleiganda í hagnaði væri af- kastahvetjandi, sem væri öðrum þátttakendum hagstætt. ------------------- Planet Holly- wood í mikl- um vanda Reuters VEITINGASTAÐAKEÐJAN Planet Hollywood, sem rekur 80 veitinga- staði og matstaði og státar meðal annars af kvikmyndastjörnunum Sylvester Stallone og Arnold Schwartzenegger meðal hluthafa, hefur óskað eftir greiðslustöðvun, en veitingastaðakeðjan reynir nú að vinna úr miklum rekstrarerfiðleikum. Robert Earl, forstjóri og stofnandi veitingastaðakeðjunnar, segir að til standi að reyna samninga við lána- drottna. Einnig hefur hópur fjár- festa, þar á meðal tveir af núverandi hluthöfum keðjunnar, sádi-arabíski fjárfestirinn Prins Alwaleed Bin Talal og milljarðamæringurinn Ong Beng Seng frá Singapúr samþykkt að leggja til um 2,2 milljarða af nýju hlutafé gegn 70% eignarhlut, ef lánar- drottnar samþykkja nauðasamninga. 1 ' Ertu aö byggja? • Viltu breyta? • Þarftu að bæta? ^ W W «gá StéVUlSdm 15-70% afsláttur oleum ngartilboð Cíól ýlfflísar - Útiflísar JYIo 20-42% frá kr. 10 Dr.m2 stœrðir tilboðsverði Veg ittu inn - það hefur ávallt autlistar Crensásvegi 18. Sími 581 2444. Opið: Mánudaga til föstudaga kl. 9 til 18. Laugardaga frá kl. 10 tll 16. Sunnudaga frá kl. 12 til 16 (Malningadeild). Takið málin með það flýtir afgreiðslu! e: Góð greiðslukjör! Raðgrelðslur tll allt að 36mánaða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.