Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 37^
KRISTJAN
BJÖRNSSON
+ Kristján Björns-
son, Heiðar-
gerði 2c, Húsavík,
fæddist á Húsavík
6. febrúar 1927.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Þingeyinga 11.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Krist-
jáns voru Björn Kri-
stjánsson, bátafor-
maður á Húsavík,
og kona hans, Sig-
ríður Helgadóttir.
Börn Björns og Sig-
ríðar eni í aldurs-
röð: Fanney, hús-
móðir í Hveragerði, f. 4.10.
1924, gift Hauki Sigurjónssyni,
Kristján sem hér er minnst;
Þuríður, f. 14.05. 1931, d. 4.11.
1931, Guðjón, skipsljóri á Húsa-
vík, f. 12.4. 1934, kvæntur Þór-
veigu Kristjánsdóttur, Sigfús,
bakari á Húsavík, f. 28.5. 1936,
d. 27.11. 1965, kvæntur Þórunni
Birnu Jónsdóttur.
30. desember 1955 kvæntist
Kristján Kristínu Sigurbjörgu
Jónsdóttur frá Setbergi á
Húsavík f. 6. febrú-
ar 1936 og lifir hún
mann sinn. For-
eldrar hennar voru
Guðbjörg Jóhanns-
dóttir og Jón Sör-
ensson bátaformað-
ur á Húsavík. Þau
eignuðust einn son,
Jón, sem er skip-
stjóri í Sandgerði.
Kona hans er Svan-
hvít S. Jóhanns-
dóttir og eiga þau
eina dóttur, Krist-
ínu.
Áður átti Svan-
hvít þrjá syni. Kristján stund-
aði nám við Vélstjóraskóla Is-
lands og lauk vélstjóraprófí
1950. Hann fór ungur til sjós
og stundaði sjómennsku og út-
gerð lengst af. Síðar á
starfsævinni gerðist hann vél-
gæslumaður við Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur og vann þar þar
til hann hætti störfum.
Kristján verður jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Þeir kveðja nú margir frændur,
vinir og nágrannar frá því ég var
búsettur á Húsavík. Kristján
frændi minn eða Stjáni í Rauðhól
eins og hann var oftast kallaðir af
frændum sínum hafði um nokkurt
skeið háð harða baráttu við þann
illvíga sjúkdóm krabbameinið.
Hann barðist til síðustu stundar en
varð þó að láta í minni pokann.
Þegar ég heimsótti hann í síðasta
mánuði þótti mér sýnt að hverju
stefndi en hann lét engan bilbug á
sér finna. Ég var þess fullviss þá
að hann vissi að skammt væri eftir
en hann vildi ekki íþyngja öðrum
með tali um veikindi sín.
Kristján var kenndur við Rauð-
hól á Húsavík (nú Túngata 18). Á
þeim árum sem hann var að alast
upp báru íbúðarhús nöfn en ekki
númer enda ekki komin heiti á göt-
ur. Foreldar Kristjáns bjuggu í
Rauðhóli og þar ólst barnahópur-
inn upp. Rauðhóll er í Suðurbæn-
um og þar bjuggu einnig bræður
Björns, Arnór og Ásgeir. Lífið á
Stangarbakkanum, en svo nefnist
hluti af Suðurbænum er í minning-
unni mjög skemmtilegt, þegar við
vorum að alast þar upp. Mikill
samgangur var á milli Rauðhóls,
Steinholts, þar sem foreldrar mín-
ir bjuggu, Ásgeirshúss, þar sem
Ásgeir bjó, og svo Helgastaða þar
sem móðurafi og amma Kristjáns
bjuggu, þau Helgi Flóventsson og
Jóhanna Jóhannsdóttir. Þar
bjuggu einnig tvö móðursystkini
Kristjáns, Hallmar og Jónína, með
sínum fjölskyldum. Frændgarður-
inn á þessum slóðum var því fjöl-
mennur. I þennan hóp bættust svo
strákarnir í Grafarbakka Bjarna-
synir en Kristjana móðir þeirra
var frá Helgastöðum, systir Sig-
ríðar móður Kristjáns. Einn þess-
ara Grafarbakkabræðra, Helgi
Bjarnason, hefur nú nýlega kvatt
og margir hafa orðið til að minnast
hans.
Allt þetta fólk lifði af sjó-
mennsku að meira eða minna leyti.
En félagsmál voru þeim bræðrum
Kristjánssonum mjög hugleikin og
voru þeir í forystu í verkalýðsmál-
um í áratugi. Þannig voru þeir allir
Kristjánssynirnir föðurbræður
Kristjáns sem búsettir voru á
Húsavík í stjórn verkalýðsfélags-
ins og Björn, Arnór og Ásgeir for-
menn til fjölda ára. Páll og Þráinn
voru einnig í stjórn. Við krakkarn-
ir í þessum systkinahópi urðum
okkur því fljótlega meðvitandi um
félagsmál einkum verkalýðsmál og
stjórnmál. Björn faðir Kristjáns
var til fjölda ára forystumaður í
málefnum sjómanna. Það var því
ekki furða þótt Kristján legði fyrir
sig sjómennsku en hann lét öðrum
frændum sínum eftir afskipti af fé-
lagsmálum. Hann var snemma
mjög duglegur að vinna og vorum
við yngri strákanir oft minntir á
dugnað Kristjáns þegar við vorum
brýndir til verka. Kristján var ekki
stór maður vexti en ákaflega
snarpur til vinnu. Hann var innan
fermingar byrjaður að sækja sjó-
inn með föður sínum sem þótti
annálaður dugnaðarmaður. Krist-
ján sem að eðlisfari var fremur
hlédrægur bjó yfir miklum metn-
aði og lét ekki sitt eftir liggja. En
hann var líka vinsæll og efirsóttur
til vinnu. Hann var mikill
húmoristi eins og hann átti kyn til
þótt hann flíkaði því minna en
ýmsir frændur hans. Líktist hann
þar í mörgu móður sinni sem var
afar skemmtileg kona og með ein-
dæmum lúmskfyndin. Þessa nut-
um við systkinin í Steinholti sem
voru daglegir heimagangar í
Rauðhóli.
Þar sem Kristján hafði gert sjó-
mennsku að ævistarfi sínu vildi
hann afla sér menntunar til þeirra
starfa. Hann dreif sig þá í Vél-
stjóraskólann og lauk þaðan vél-
stjóraprófi 1950. Ég var þá við
nám í Reykjavík og höfðum við
mikil samskipti þann tíma. Þá
kynntist ég þessum frænda mínum
enn betur og vissi hve ágætan
mann hann hafði að geyma. Hann
var afskaplega samviskusamur og
réttsýnn. Hann gekk aldrei á hlut
nokkur manns og tók oft í kyrrþey
á sig verk annarra til að forðast
deilur. Þegar við fórum út saman
þennan vetur að skemmta okkur
var óhemjugaman að vera með
Stjána, hann var svo bráðfyndinn.
Um margra ára skeið voru þeir
saman um útgerð Kristján, Guðjón
bróðir hans og Hörður bróðir
minn. Þeir áttu saman vélbátinn
Þengil og gerðu hann út frá Húsa-
vík. Þetta var farsæl útgerð þar
sem Guðjón var skipstjórinn, Kri-
stján vélstjóri og Hörður eins kon-
ar útgerðarstjóri með sjómennsk-
unni. Þeir frændur minnast þessa
tíma með mikilli ánægju og ekki
hvað síst verunnar með Kristjáni
sem alltaf létti undir með sínu
góða skapi. Þegar þessari útgerð
lauk réð Kristján sig til Fiskiðju-
samlags Húsavíkur sem íyrr segir.
Ái-ið 1955, nánar tiltekið 30. des-
ember, kvæntist Kristján Kristínu
Sigurbjörgu Jónsdóttur eða Stínu
Boggu eins og hún var ætíð kölluð.
Þau keyptu þá Rauðhól af foreldr-
um Kristjáns. Síðar fluttu þau að
Heiðargerði 2c. Hjónaband þeirra
var farsælt enda mikil samstaða
um að skapa fallegt heimili. Krist-
ín var uppalin á sjómannsheimili
en Jón Sörensson, faðir hennar,
var annálaður aflamaður á Húsa-
vík. Þau höfðu því alist upp í svipð-
uð umhverfi og kannski engin
furða að einkasonur þeirra skyldi
leggja fyrir sig sjómennsku en
hann er skipstjóri búsettur í Sand-
gerði. Fyrir sex árum varð Kristín
fyrir því áfalli að fá heilablóðfall og
lamast. Hún var þó heima og ann-
aðist Kristján hana. Hann hætti þá
störfum til að geta sinnt Kristínu
sem best. Það vakti aðdáun hve
natinn hann var og umhyggjusam-
ur og kom sér þá vel hversu lipur
hann var í öllum heimilisstörfum
og hversu tilbúinn hann hafði alltaf
verið að ganga í öll störf. Missir
Kristínar er því mjög mikill en hún
má líka vera þakklát fyrir að hafa
eignast svo ágætan mann og góðan
félaga.
Það eru menn af þeirri gerð sem
Kristján var sem eru hið raun-
verulega jafnvægi samfélagins.
Menn sem vinna þau verk sem
þarf af samviskusemi og án há-
vaða. Menn sem uppfylla skyldur
sínar við samfélagið og láta ekki
standa upp á sig með neitt. Þannig
var þessi ágæti frændi minn sem
ég kveð með söknuði. Við Ingi-
björg færum Kristínu, Jóni og fjöl-
skyldu hans svo og systkinum Kri-
stjáns og öðrum ættingjum inni-
legustu samúðarkveðjur.
Kári Arnórsson.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sími 565 5892
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen,
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
IJað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
8lÖg. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
LEGSTEINAR
íslensk framleiðsla
Vönduð vinna, gott verð
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
TÓMAS JÓNSSON,
Brekkugötu 28,
Þingeyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði sunnu-
daginn 15. ágúst.
Jarðsett verður frá Þingeyrarkirkju laugar-
daginn 21. ágúst kl. 14.00.
Sigríður Steinþórsdóttir,
Jón Júlíus Tómasson, María Ólafsdóttir,
Valgerður Tómasdóttir, Grétar Ingi Símonarson,
Steinþór Vigfús Tómasson, Ýlfa Proppé Einarsdóttir,
Elísabet Árný Tómasdóttir, Skarphéðinn Garðarsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
PÉTUR AXELSSON,
Lambhaga 17,
Bessastaðahreppi,
verður jarðsunginn frá Bessastaðakirkju
fimmtudaginn 19. ágúst kl. 13.30.
Kolbrún Jónsdóttir,
Birna Lísa Jensdóttir, Kjartan H. Grétarsson,
Frank Axel Axelsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkaerrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
MÁLFRÍÐAR LÁRU JÓHANNSDÓTTUR
frá Lárusarhúsi, Hellissandi,
Langeyrarvegi 20,
Hafnarfirði.
Sverrir Örn Valdimarsson,
Guðmundur Ingvi Sverrisson, Kristín Karlsdóttir,
Valdimar Örn Sverrisson, Ingunn Hauksdóttir,
Þórður Sverrisson, Lilja Héðinsdóttir,
Lára B. Sverrisdóttir Borthne, Roald Borthne,
Vilborg Sverrisdóttir, Guðmundur Rúnar Guðmundsson,
Aðalsteinn Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur ómetanlega vináttu, hlýhug og samúð
við andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður og ömmu,
SIGURLÍNU ERLU KRISTINSDÓTTUR,
Vallarbraut 13,
Akranesi.
Ykkar vinátta er okkur mikill styrkur.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Kristín Jónsdóttir, Daníel Friðrik Haraldsson,
Lovísa Vilhelmína Jónsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Jón Bjarni Jónsson, Eyrún Signý Gunnarsdóttir,
Erlingur Jónsson, Hrafnhildur Erlingsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNU GUÐRÚNAR BJARNADÓTTUR,
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður til heimilis á Holtsgötu 34.
Guðmundur Jónsson, Elín Þórisdóttir,
Ásdís Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.