Morgunblaðið - 18.08.1999, Page 6

Morgunblaðið - 18.08.1999, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjópróf fara fram á fímmtudag vegna vólarvana hjólabáts Annar bátanna ekki með leyfísskírteini til farþegaflutninga Morgunblaðið/Ásdís Þorgeir Pálsson flugraálastjóri, Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra og Páll Sigurjónsson, forstjóri Istaks, iradirrita samning um framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli. 1,5 milljarðar í uppbyggingu á Reykjavíkurflugvelli Ekki tjaldað til einnar nætur SJÓPRÓF fara fram í Héraðsdómi Suðurlands á fímmtudag vegna hjólabáts sem varð vélarvana fyrir utan Vík sl. föstudag með 20 farþega um borð. Skýrslur verða þá m.a. teknar af skipstjórum hjólabátanna í Vík, m.a. Gísla Reynissyni sem og kæranda, Herði Erlingssyni, eig- anda Ferðaskrifstofu Harðar Erl- ingssonar. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær rak umræddan bát í átt að Reynisdröngum þegar tókst að koma taug yfir í hann, frá öðrum hjólabáti, og draga hann að landi. Hörður Erlingsson lítur svo á að far- þegar bátsins hafi verið í hættu á meðan bátinn rak í átt að klettunum en Gísli Reynisson, rekstraraðili hjólabátanna í Vík, þvertekur fyrir það og segir farþegana ekki hafa verið í neinni hættu. Samkvæmt upplýsingum frá Sigl- ingastofnun íslands eiga bátar sem flytja farþega í atvinnuskyni að hafa bæði haffærisskírteini og leyfisskír- teini til farþegaflutninga og segir Guðmundur Guðmundsson, yfirmað- ur skoðunarsviðs hjá Siglingastofn- un, að í því felist m.a. að bátarnir séu skoðaðir einu sinni á ári. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins virðist hins vegar sem annar hjólabátanna tveggja, sem voru í íorum fyrir utan Vík sl. fostudag, hafi af einhverjum ástæðum ekki haft slíkt leyfisskír- teini. Gísli Reynisson segir það hafa komið sér á óvart, þegar hann hafi fengið upplýsingar um það frá Sigl- ingastofnun í fyrradag að annar bát- anna væri án leyfisskírteinis og kveðst ekki hafa vitað betur en að báðir bátamir væru með umrædd leyfisskírteini. Hann hafi verið með bátana í farþegaflutningum í mörg ár og að þeir hafi ávallt verið skoðað- ir af fulltrúum Siglingastofnunar sem slíkir. Auk þess teldi hann sig hafa greitt reikninga fyrir tvö slík leyfi frá Siglingastofnun. Þegar Gísli er spurður að því hvor bátanna sé sagður án leyfisskírteinis segir hann að það sé sá bátur sem ekki varð vél- arvana sl. fostudag. Annað sinn á tólf árum í sjóprófum mun væntanlega koma fram hvort öryggi farþeganna hafi verið ábótavant í þeim hjólabáti sem varð vélarvana. Eitt af því sem Hörður Erlingsson hefur gagnrýnt er að flotgalli, sem hann var í þegar umrætt atvik átti sér stað, hafi ekki blásið upp, eins og við mátti búast, þegar Idppt var í svokallaðar kol- sýrusprautur á gallanum. Gísli segir þessa gagnrýni Harðar byggða á misskilningi. Umræddir gallar, sem nokkrir farþeganna hafi verið í, hafi ekki þjónað þeim tilgangi að vera björgunargallar heldur regngallar. í bátnum hafi hins vegar verið að- gangur að björgunarvestum eins og reglur kveði á um. „Okkur fannst hins vegar engin ástæða til að rífa fólkið úr regngöllunum í rigningu til þess að láta það fara í í björgunar- vestin. Fólkið var aldrei í neinni hættu,“ fullyrðir Gísli ennfremur. Guðmundur, hjá Siglingastofnun ís- lands, staðfestir í samtali við Morg- unblaðið að ekki sé gerð krafa um björgunargalla heldur einungis að um borð sé aðgangur að björgunar- vestum. Að sögn Gísla er þetta í annað sinn sem bátur á hans vegum hefur orðið vélarvana frá því hann hóf að stunda farþegasiglingar fyrir um það bil tólf árum. Þá hafi um sama bát verið að ræða en ólíkt því sem nú gerðist hafi orðið bilun í skrúfu. Nú hafi sjálf vélin bilað. „Þessi bil- un nú kom mér mjög á óvart enda var ég nýbúinn að setja vél í bátinn sem átti að vera í fullkomnu lagi,“ segir Gísli og bætir við að allur vél- búnaður geti náttúrulega bilað eins og dæmin sanna. Ekki liggur enn ljóst fyrir, að sögn Gísla, hvað olli vélarbiluninni. SAMNINGUR milli samgöngumála- ráðuneytis, Flugmálastjórnar og ístaks hf. um endurbætur á Reykja- víkurflugvelli var undirritaður í gær á flugvellinum. Samningurinn hljóð- ar upp á 1.075 milljónir króna en heildarkostnaður við verkið er áætl- aður 1.505 milljónir. Samninginn undirrituðu Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra, Þorgeir Pálsson flugmálastjóri og Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks, á kynningarfundi í flugskýli Flugmála- stjómar á Reykjavíkurflugvelli í gærdag. Verkinu lokið á íjórum árum Að sögn Þorgeirs Pálssonar hefj- ast framkvæmdir þegar í lok mánað- ar. „Við væntum þess að fá fram- kvæmdaleyfi í næstu viku og þá verður byijað á undirbúningsverk- um sem meðal annars felast í því að taka fyrir frárennslislagnir. Ýmis- legt annað í efnisvinnslu fer í gang en hin eiginlega framkvæmd við flugbrautir hefst síðan á vordögum, sennilega í mars,“ segir Þorgeir. Gert er ráð fyrir því verkið verði unnið á fjórum árum. Á þessu ári verður byrjað á lagnakerfi og á því næsta verður austur-vestur brautin (14-32) endurbyggð, eins og áður segir, svo og brautamót við hinar tvær brautirnar. Seinni árin tvö verður „braut 02-20 endurbyggð, lokið við aðlögun og yfirlögn á braut 07-25, ný akbraut byggð og flughlað við skýli 1 endurbyggt“. Fyrihugaðar endurbætur munu vera í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur eftir breytingu á því sem samþykkt var í skipulags- og umferðarnefnd 14. júní sl. og stað- fest í borgarráði 15. júní. Þær eru einnig í samræmi við endurskoðað deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar. Skýrsla um frummat á umhverfis- áhrifum framkvæmdanna, frá því í febrúar á þessu ári, hefur verið kynnt Reykjavíkurborg og skipu- lagsstjóri hefur með úrskurði 28. apríl sl. fallist á framkvæmdirnar. Úrskurður skipulagsstjóra var kærður til umhverfisráðherra sem staðfesti hann 13. ágúst sl. Sturla Böðvarsson samgöngu- málaráðherra kveðst ánægður með samninginn og fyrirhugaða endur- byggingu flugvallarins. „Þetta skipt- ir auðvitað miklu máli því að flugvöll- urinn er orðinn lúinn eftir mikla notkun og lítið viðhald. Þetta er í samræmi við þá ákvörðun borgaryf- irvalda að flugvöllurinn verði hér og samgöngumálaráðuneytið og flug- málastjórn munu leggjast á eitt um að ljúka þessum framkvæmdum á eins skömmum tíma og kostur er,“ segir Sturla. En þýða fyrirhugaðar fram- kvæmdir að flugvöllurinn verði í Vatnsmýrinni um ókomna tíð? „Ekki skal ég nú segja um það. Hann verður hér að minnsta kosti það skipulagstímabil sem um ræðir. Það er auðvitað alveg ljóst að við er- um að fara hér í framkvæmdir upp á einn og hálfan milljarð; það er ekki tjaldað til einnar nætur þegar lagt er af stað með slíkar framkvæmdir. Ég ítreka að völlurinn er endurbyggður í fullri sátt við borgaryfirvöld,“ segir Sturla. Fjarvinnsla víða á landsbyggðinni á í miklum erfíðleikum vegna hárra símreikninga Samgönguráðherra kann- ar hátt gjald á leigulínum STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra leggur áherslu á það að gagnaflutningur og fjarvinnsla úti á landi verði möguleg áfram. For- svarsmenn íslenskrar miðlunar, sem rekur fjarvinnslu á Raufarhöfn, telja hátt gjald vegna leigulína hjá Landssímanum standa starfsemi af þessu tagi fyrir þrifum. Svavar Kristinsson, fram- kvæmdastjóri íslenskrar miðlunar, segir að reikningur fyrir mánaðar- leigu á ATM-tengingu hafi hljóðað upp á 600 þúsund krónur. Reikning- urinn hafi sett skrekk í íslenska miðlun og sveitarstjórnina á Raufar- höfn því í minni byggðarlögunum hafi menn gert sér vonir um at- vinnuuppbyggingu af þessu tagi í framtíðinni. Fyrri mánaðarreikning- ur hljóðaði upp á 300 þúsund krónur og segir Svavar að menn hefðu kyngt því vegna þess að þeir vissu að verið væri að vinna að endurskoð- un gjaldskrárinnar. „Við vorum með tilboð upp á 300 þúsund krónur, eins og fyrri reikn- ingurinn hljóðaði upp á. Við höfum ekki fengið svör við því hvers vegna reikningurinn hækkaði svo mikið,“ segir Svavar. Hann segir að vissu leyti hafi menn vitað að hverju þeir gengu en rætt hafi verið um breytingar á gjaldskránni en þær hafi ekki verið framkvæmdar enn. Hann segir svo háa reikninga rýra möguleikana til fjarvinnslu. Á Raufarhöfn hafi verið ýmiss konar gagnavinnsla og gagna- flutningur og þarna hafa verið sköp- uð þrettán störf. Gengur ekki upp sé dæmið rétt „Málið þarf að taka til skoðunar vegna þeirrar byggðaþróunar sem það felur í sér. Þetta rýrir mögu- leika Raufarhafnar og örugglega fleiri byggðarlaga í landinu til þess að taka þátt í fjarvinnslu og nýta sér þau tækifæri. Gjaldskrármál vegna leigulína er ákveðinn flöskuháls í framgangi fjarvinnslu. Þetta er mál sem þarf að laga og koma í þann far- veg að fjarvinnsla sé raunhæfur kostur fyrir alla,“ segir Svavar. Samgönguráðherra hefur átt fund með sveitarstjóra Raufarhafnar vegna þessa máls. Hann segir að Ijóst sé að fjarvinnsla úti í landi gangi ekki upp ef þetta dæmi um símreikn- ing Islenskrar miðlunar á Raufar- höfn er rétt. Hann kveðst munu beita sér fyi-ir lausn þessa máls. „Ég mun kanna hvað þarna er á ferðinni og á von á fulltrúum frá Raufarhöfn á minn fund,“ segir Sturla. Hann bendir á að verið sé að skoða fjarskiptalögin og gagnaflutn- ingar verða inni í þeirri endurskoð- un. „Ég legg mikla áherslu á það að það verði sköpuð skilyrði til þess að fyrirtæki á landsbyggðinni geti keppt á jafnréttisgrundvelli í þess- ari grein,“ segir Sturla. Hann segir að það sé fyrst og fremst lagaramminn sem hann muni hafa afskipti af. Ólafur Stephensen, forstöðumað- ur upplýsinga- og kynningarmála hjá Landssímanum, dregur enga dul á það að kostnaður við leigulínur er ekki lengur í samræmi við raun- kostnað. Lengi hafi staðið vilji til þess af hálfu fyrirtækisins að breyta gjaldskránni. Enn séu í gangi við- ræður milli Landssímans og Póst- og fjarskiptastofnunar um hvernig standa skuli að endurskoðuninni. „Það ferli hefur tekið alltof langan tíma og við bíðum eftir endanlegu svari frá stofnuninni. Við vonumst því til að geta breytt gjaldskránni á næstunni. Endurskoðunin mun leiða til þess að gjald vegna lengri lína lækkar en gjald vegna styttri lína í þéttbýli hækkar líklega eitthvað," segir Ólafur. Hann segir að símreikningur ís- lenskrar miðlunar hefði ekki átt að koma forsvarsmönnum fyrirtækis- ins á óvart. Þegar starfsemin var sett upp á sínum tíma hefði þeim átt að vera ljóst hver kostnaðurinn væri miðað við núgildandi verðskrá. Hann segir jafnframt ólíku saman að jafna þjónustu við fyrirtæki í strjálbýli og þéttbýli. Samkvæmt reglum Evrópska efnahagssvæðis- ins eigi gjaldtaka fyrir leigulínur að taka mið af raunkostnaði við rekstur þeiira og fjárfestingu. Það gefi augaleið að lengdin á línunni vegi mjög þungt í þeim kostnaði. I öllum Evrópulöndum sé tekið mismunandi gjald eftir lengd. Ólafur segir að í fyrri áfanga ATM-kerfisins séu fimm tengi- punktar á landsbyggðinni. I næsta áfanga, sem vonir standa til að verði tilbúinn í byrjun næsta árs, bætast ellefu við. Þá verður kominn tengi- punktur á Húsavík og þar af leið- andi styttri leigulína á Raufarhöfn. „Þá verða 90% fyrirtækja á landinu í innan við þriggja km fjarlægð frá tengipunkti. En við erum að leggja í mun meiri kostnað við að byggja þessa þjónustu upp á landsbyggð- inni en í Reykjavík og það er óhjá- kvæmilegt að það komi fram í verð- lagningunni," segir Ólafur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.