Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 17
LANDIÐ
Átthagafélag
boðar til alda-
mótahátíðar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Ellert Kristinsson, formaður byggingarnefndar nýju sundiaugarinnar,
afhendir Ólafi Hilmari Sverrissyni lyklana að nýju sundlaugarmann-
virkjunum við vígsluna.
Sundlaugin í
Stykkishólmi
formlega vígð
Húsavík - Átthagafélag Torgara
hefur boðað til aldamótahátíðar um
næstu helgi og verður þai- margt til
gamans gert.
Hátíðin hefst föstudagskvöldið 20.
ágúst með blysför um Rauða torgið
og upp á Skógargerðismel þar sem
Torgarakórinn mun syngja við und-
irleik snjallra hljóðfæraleikara.
Aðalhátíðin verður laugardaginn
21. ágúst og hefst kl. 17 með ýmsum
skemmtiatriðum þai‘ sem Torgarar
etja m.a. kappi við bæjarstjórn í
Torgaraslagbolta. Sameiginlegur
kvöldverður verður kl. 19 og verður
grillað við Vilpu og eftir góða máltíð
verður hátíðarsamkoma fram eftir
kvöldi í rjóðrinu fyrir ofan Kvía-
bekk.
Undirbúningsnefnd hátíðarinnar
boðaði tO blaðamannafundar þar
sem hún tOkynnti dagskrá hátíðar-
innar á viðeigandi hátt. Hafði Þor-
kell Bjömsson orð fyrir undirbún-
Geitagerði - Á myndinni er Lag-
arfljótsormurinn II sem hóf sigl-
ingar á Fljótinu milli Egilsstaða
og Atlavíkur í júní sl. Myndin er
tekin frá Geitagerði, frá strand-
stað gamla Lagarfljótsormsins
og sér yfir til Hallormsstaðar.
Lagarfljótsormurinn var í förum
ingsnefndinni og sagði að dagskráin
gæti breyst, því Torgarar væru óút-
reiknanlegh- og hver og einn gæti
átt óvænta innkomu þegar minnst
varði og raskað þar með fyrirhug-
aðri dagská, enda væri hún sem slík
ekki aðalatriðið. Maður væri manns
gaman og aðalatriðið væri að Torg-
arar hittust og ættu skemmtOega
samverustund og skemmtan með
því að rifja upp gömul kynni.
Torgarar nefnast þeir sem búið
hafa og búa á Rauða torginu sem af-
markast af svæðinu austan Garð-
arsbrautar, sunnan Búðarár, að
Skógargerðismel svo það innlimar
skrúðgarðinn.
Undirbúningsnefnd tók fram að
aOir bæjarbúar væru velkomnir á
hátíðina því þeir væru ekki í stríði
við aðra „þjóðflokka" í bænum, þeir
vOdu frið við alla og væntu þess því
að menn fjölmenntu á þessa fyrstu
aldamótahátíð.
á Fljótinu á tímabilinu 1905-
1918, en hann varð vélarvana í
stórviðri og rak upp í stórgrýti
og brotnaði þar. Mannbjörg varð.
Báturinn var með fyrstu vél sem
kom á Fljótsdalshérað af Dan-
gerð. Vélin er nú að hluta til á
Minjasafninu á Egilsstöðum.
Stykkishólmi - Nýju sundlaugar-
mannvirkin í Stykkishólmi voru
formlega vígð á föstudaginn, 13.
ágúst, en þau voru tekin í notkun
íyrir 4 vikum. Athöfnin hófst á því að
Ellert Kristinsson, formaður bygg-
ingamefndar sundlaugarinnar, flutti
ræðu og rakti byggingarsöguna.
Sóknarpresturinn, Gunnar Eiríkur
Hauksson, blessaði mannvirkin,
barnakór söng og ávörp voru flutt.
I ræðu Ellerts kom fram að for-
senda fyrir þessum framkvæmdum
var að heitt vatn fannst fyrir ofan
Stykkishólm og þá vöknuðu vonir
um að hægt væri að byggja nýja
útisundlaug. byggingarnefnd var
skipuð 7. nóvember 1996. Fyrsta
skóflustungan var tekin 19. septem-
ber 1997 og tók verkið því 22 mán-
uði.
Arkitekt nýju sundlaugarinnar er
Omar Þór Guðmundsson og sjást
verk hans víða hér í bæ. Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen sá um
tæknivinnu og hafði umsjón með
verkinu. Helstu verktakar við sund-
laugina voru Kolli ehf. sem sá um
jarðvinnu og Nes hf. og síðar Skipa-
vík hf. í Stykkishólmi sem annaðist
alla byggingavinnu, ásamt undir-
verktökum.
57 metra löng rennibraut
Nýja útisundlaugin er 25 metra
löng og 12,5 m breið. Dýptin er 1
metri til 1,80 metrar. Innisundlaug-
in er 12 metra löng og 7 metra
breið. Þar er dýptin frá 85 sentí-
metrum og upp í 1,40 metra. Vað-
laug er við sundlaugina og tveir
heitir pottar með efnaríku vatni,
heilsupottar. Rennibrautin er 57
metra löng og er lengsta rennibraut
á landsbyggðinni. Það kom fram í
máli Ellerts að kostnaðaráætlun
sem gerð var fyrir 2 árum hljóðaði
upp á 170 milljónir króna. Nú þegar
verkinu öllu er lokið er kostnaður-
inn 175,4 milljónir króna.
Nýja sundlaugin hefur notið mik-
illa vinsælda bæjarbúa og ferða-
manna. Á fyrstu 4 vikum eftir að
sundlaugin var tekin í notkun hafa
komið um 10.000 gestir í laugina.
Það samsvarar að hver íbúi í Stykk-
ishólmi hafi farið tvisvar sinnum í
viku í sundlaugina.
Il^iöuöifeiyi sn* * Nýtt i
STORUTSALA
10-60%
R0ÍÐHJÓL . fí
SPORTFATNAÐUR 1
ÚTIVISTARFATNAÐUR
GOLFFATNAÐUR
ogIcvíí^ ^ ^
SUNDFATNAÐUR
ÍÞRÓTTASKÓR
GÖNCUSKÓR
RÓLUR
: afsL af öllum vörum
SPEEDO
l^ccboK
FILA
^ í KBfti
i RHoiuson
adidas <3ÐN
Ármúla 40,
símar 553 5320,
568 8860.
EIN STÆRSTA SPORTVORUVERSLUN LANDSINS
wmmam
|lferslunin|
7M4RKID
ÞETTAER
MÁLIÐ !
400 LEO Celeron
400Mhz Celeron
8,4Gb Harðurdiskur LEO
64Mb Vinnsluminni
17" Skjár
8Mb skjákort
16 bita hljóðkort
40x Geisladrif
Hátalarar CSW020
56k modem
4mánaða Internetáskrift
Windows98 h...
Lyklaborð & mús
Norton AntiVirus
99.9
iTi
LEO Plll
450Mhz Pentium III LEO
8,4Gb Harðurdiskur
128Mb Vinnsluminni
17" Skjár
16Mb TNT Skjákort
Sound Blaster Live
5x DVD Geisladrif
4 point hátalarar m/bassaboxi
56k modem
4 mánaða Internetáskrift
Windows 98
Lyklaborð & mús
Norton AntiVirus
SoftPC-DVD, Unreal
139.900
450 LE0 Plll
%
LEO
450Mhz Pentium III
13Gb Harðurdiskur
128Mb Vinnsluminni
17" Skjár
32Mb Savage4 skjákort
Sound Blaster Live
5x DVD Geisladrif
4 point hátalarar m/bassaboxi
56k modem
4 mánaða Internetáskrift
Windows 98
Lyklaborð & mús
Norton AntiVirus
Unreal
■ 69.9
i - i
aco
PC / skipholti 17
sími / 530 1800
www.aco.is