Morgunblaðið - 18.08.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 23
LISTIR
Fyrirlestur 1 Snorrastofu í kvöld
Snorri er þekktasti
rithöfundur Islendinga
Nýjar bækur
• ÍSLENSKA steinabókin er
eftir Kristján Sæmundsson og
Einar Gunnlaugsson. Ljós-
myndir eru eftir Grétar Ei-
ríksson.
I formála höfunda segir
m.a.: „Bók sú sem hér liggur
fyrir fjallar eingöngu um ís-
lenska steina. I henni er lýst
helstu steindum og bergteg-
undum sem hér finnast og að
auki ýmsum afbrigðum þeirra.
Bókin miðast einkum við þarfir
áhugafólks sem vill læra að
þekkja hið algengasta og auð-
sæilega í hinu fasta bergi lands
okkar. Jarðfræði landsins er
lýst í ágripi þar sem stærstu
drættirnir í byggingu þess eru
dregnir fram og helstu berg-
myndanirnai' útskýrðar."
Ljósmyndir eru af fjölda
bergtegunda og steinda og lýst
er öllum helstu atriðum sem
hafa þarf í huga við greiningu
þeirra. Skýr grein er gerð fyrir
myndunarskilyrðum, bæði
bergtegunda og holufyllinga.
Kristján Sæmundsson er
jarðfræðingur og starfar á
Orkustofnun. Hann hefur víða
unnið að jarðfræðikortlagningu
og j arðhitarannsóknum. E inar
Gunnlaugsson er jarðefnafræð-
ingur og starfar hjá Orkuveitu
Reykjavíkur við jarðhitarann-
sóknir. Grétar Eiríksson er
tæknifræðingur og þekktur
fyrir ljósmyndir úr náttúru
landsins.
Útgefandi er Mál og menn-
ing. Islenska steinabókin er
233 bls., íhandhægu broti.
Bókin er unnin í Prentsmiðj-
unni Odda hf. Kápuna hannaði
auglýsingastofan Næst hf.
Verð: 4.480 kr.
NÆSTA viðfangsefni Snorrastofu
í Reykholti er opinn fyrirlestur um
áhuga Svía á Snorra í gegnum ald-
irnar. í kvöld, miðvikudagskvöld,
kl. 21, mun Karl Gunnar Johans-
son, handritafræðingur við Háskól-
ann í Gautaborg og þýðandi fornís-
lenskra bókmennta, halda fyrir-
lestur er ber heitið „Snorri og göt-
icismen“. Erindið, sem flutt verður
á íslensku, er liður í röð fyrirlestra
er nefnist „Fyrirlestrar í héraði",
en nú þegar hafa fimm slíkir verið
haldnir.
Vagga norrænnar menningar
I Svíþjóð er gjarnan litið á Is-
land sem vöggu norrænnar menn-
ingar eða „Grikkland norðursins".
Þar sé uppspretta hins norræna
goðsagnaheims, norrænnar sögu
og norrænnar tungu. Undir þessa
hugmynd er tekið í sænskum
kennslubókum, þar sem hin
sænska bókmenntasaga hefst ætíð
á umfjöllun um rúnaristur og eddu-
kvæði, eins og þau hafa varðveist á
íslandi, og í kjölfar þess er sagt frá
Islendingasögunum. Sama gildir
auðvitað um bókmenntasögu Norð-
manna og Dana. Sem dæmi um
áhuga Svía á íslenskri menningu er
fjöldi umsókna ár hvert um að fá
að stunda nám í íslensku við Há-
skólann í Gautaborg, en dæmi er
um að yfir 300 hafi sótt um. Norð-
menn, Svíar og Danir hafa því
flestir einhverjar mótaðar hug-
myndir um íslenska þjóðmenningu
í farteskinu við komuna til Islands.
Skandinavar koma því ekki einung-
is til þess að kynnast þjóðmenn-
ingu Islendinga, heldur einnig mik-
ilvægum þætti í eigin menningu.
Þetta vill oft gleymast.
Það er því í sjálfu sér ekkert
undarlegt að ný þýðing á
Heimskringlu frá árunum 1991-93
skuli hafa selst í um 28.000 eintök-
um í Svíþjóð og ný þýðing á Snorra
Eddu, sem út kom fyrir rúmu ári, í
tæplega 10.000. Þetta er mjög mik-
ið á sænskan mælikvarða. Þýðend-
ur þessara verka eru Johansson,
fyrirlesari Snorrastofu, og Mats
Malm, sem þýddi Snorra Eddu í fé-
lagi við Johansson. Johansson hef-
ur að auki þýtt Eglu og skrifað
doktorsritgerð um 14. aldar hand-
ritið Codex Wormianus, en það
handrit inniheldur meðal annars
eina gerð Snorra Eddu. Ritgerðina
varði Johansson við Háskólann í
Gautaborg árið 1997.
Snorri þekktasti höfundurinn
Karl Gunnar Johansson segir að
mikill og vaxandi áhugi sé á Snorra
og íslenskum fornbókmenntum í
Svíþjóð. Að hans mati er um vissa
endurreisn að ræða á þessari öld
en fyrstu þýðingarnar birtust þeg-
ar á þriðja áratugnum í Svíþjóð.
Mikill áhugi væri reyndar á mið-
öldum meðal Svía og Snorri væri
einna mikilvægastur hvað þær
varðaði og líka skemmtilegastur.
Snorri og Svíþjóð tengjast bönd-
um?
„Já, það er ekki síst goðafræðin,
Ynglingasagan og svo var Sighvat-
ur skáld líka í Svíþjóð. Frásagnir
Snorra eru lifandi bókmenntir."
Hér heima má sjá þess merki að
rithöfundar leita til fornbókmennt-
anna. Er svipað á döfínni í Svíþjóð?
„Já, í Svíþjóð og alls staðar á
Norðurlöndum. Mystík miðalda
hrífur fólk og má nefna sem dæmi
víkingasýningu í Kaupmannahöfn
og það að víkingabyggðir eru að
myndast við strendur Svíþjóðar og
á Gotlandi. Snorri er mjög þekktur
í Svíþjóð, kannski þekktasti ís-
lenski rithöfundurinn, en Laxness
kannast menn vitanlega líka við.“
Karl Gunnar var inntur eftir því
sem oft heyrist að sögurnar séu
sameiginlegur norrænn arfur og
sagði hann að þær væru norrænar
í þeim skilningi að þær sæktu efni
til Norðurlanda en íslenskur upp-
runi þeirra væri óumdeilanlegur.
Þær væru íslenskar þótt efnið sé
stundum frá öðrum löndum.
Áheyrendur í Reykholti fá að
kynnast mati á sögunum frá
sænskum sjónarhóli, en þær hafa
verið á dagskrá í Svíþjóð síðan á
sautjándu öld. Fyrsti þýðandinn
var reyndar íslenskur, Jonas Rug-
Morgunblaðið/ Sverrir
Karl Gunnar Johansson segir
að áhugi fari vaxandi á Snorra
og mystík miðalda.
man, sem var kyrrsettur í Svíþjóð
á leið til Kaupmannahafnar fyrr á
öldum.
Þýðing Snorra Eddu var mikið
verk enda naut Johansson fullting-
is Mats Malm. Hann segir að úti-
lokað sé að færri en tveir fáist við
slíka iðju. Næst hyggst hann þýða
skáldasögur ef tóm gefst. Þess má
geta að hann tekur þátt í
vinnufundi í Reykholti ásamt fjöru-
tiu öðrum fræðimönnum.
Eftir Johansson ér auk margs
annars þýðing á Hávamálum sem
fáanleg er í bókaverslunum hér. Úr
því og fleiru vill hann þó ekki mikið
gera, en lýsir yfir ánægju sinni
með að tala um Snorra í Reykholti.
Fyrirlesturinn verður sem fyrr
segir fluttur á íslensku n.k. mið-
vikudag kl. 21 og fundarstaður
verður Safnaðarheimili Reykholts-
kirkju. Aðgangseyrir er 400 krón-
ur.
Biskupsvísitasía 1999
Múlaprófastsdæmi
Biskup (slands, Karl Sigurbjörnsson, vísiterar
Múlaprófastsdæmi 17.-27. ágúst 1999. Guðsþjónustur verða
í öllum kirkjum prófastsdæmisins. Heimamenn sem og
ferðamenn eru velkomnir til þessara athafna.
Guðsþjónustur verða sem hér segir:
Þriðjudagur 17. ágúst
20.00 Möðrudalskirkja á Efra Fjalli: Guðsþjónusta
Miðvikudagur 18. ágúst
13.00 Guðsþjónusta í Hofskirkju.
20.00 Vopnafjarðarkirkja: Messa
Fimmtudagur 19. ágúst
14.00 Guðsþjónusta í Kirkjubæjarkirkju
17.00 Guðsþjónusta í Hjaltastaðakirkju
20.30 Eiðakirkja: Messa
Föstudagur 20. ágúst
10.30 Kirkjuskoðun og síðan guðsþjónusta í Húsavík
15.00 Guðsþjónusta á Klyppstað
20.00 Bakkagerðiskirkja: Messa
Laugardagur 21. ágúst
14.00 Skeggjastaðakirkja: Messa
Sunnudagur 22. ágúst
14.00 Þórshöfn: Kirkjuvígsla
Mánudagur 23. ágúst
10.00 Elliheimilið Vopnafirði: Helgistund
13.00 Sleðbrjótskirkja: Guðsþjónusta
17.30 Eiríksstaðakirkja: Guðsþjónusta
21.00 Hofteigskirkja: Guðsþjónusta
Þriðjudagur 24. ágúst
14.00 Áskirkja: Guðsþjónusta
20.00 Valþjófsstaðarkirkja: Messa
Miðvikudagur 25. ágúst
15.30 Egilsstaðir, sjúkrahús: Helgistund
20.30 Egilsstaðakirkja: Messa
Fimmtudagur 26. ágúst
17.00 Þingmúli: Guðsþjónusta
20.00 Vallanes: Guðsþjónusta
Föstudagur 27. ágúst
14.30 Helgistund á sjúkrahúsinu
20.00 Seyðisfjarðarkirkja: Messa
Embætti biskups íslands
Flymo Turbo
Compact E330
Létt loftpúðavél með
grassafnara.
1400 w rafmótor.
Verð kr. 25.941,-
Husqvarna
245R vélorf
Atvinnutæki sem slær kanta,
grasbrúska og illgresi. 2.7
hp bensínmótor, 8.6 kg.
Sláttuhaus og diskur fylgja.
Verð kr3&4$ff
E330 Turbo Light
Létt loftpúðavél fyrir litlar lóðir.
1150W rafmótor.
Verð kr.
MTD GE45
4 hp B&S bensínmótor.
Sláttubreidd 45 sm.
80 lítra safnkassi.
Verð kr.^9v25?;-
Flymo L47
Létt loftpúðavél. Notuð af
atvinnumönnum. Hentug
fyrir brekkur, stórar lóðir
og erfiðar aðstæður.
4 hp tvígengismótor. m
Verð kr.JiíéW^- m