Morgunblaðið - 18.08.1999, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í DAG
Sjósókn og
sjávarbúar
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur íyrir gönguferð í kvöld, mið-
vikudagskvöld, frá Hafnarhúsinu að
vestanverðu (Miðbakkamegin) kl. 20.
Farið verður út í Suðurbugt og
Ægisgötu upp á Landakotshæð.
Þaðan niður í Víkurgarð og Grófina
út á Miðbakka. Síðan farið út á
Faxagarð og með ströndinni og upp
á Vitastíg. Gömlu alfaraleiðinni verð-
ur síðan fylgt í Grófína. Gönguferð-
inni lýkur við Hafnarhúsið.
Á leiðinni verður litið inn hjá
Gunnari Marel um borð í langskip-
inu íslendingi. Á Miðbakka verður
litið á myndir eftir Bjami Jónsson
listmálari af gömlum verstöðvum og
ýmsum gerðum árabóta. Um borð í
Nýjar
haustvörur
á hverjum
degi
yf
Teg. Andiamo.
Verð kr. 6.995.
Litur: Svartur.
Stærðir: 36-41.
Teg. Nancy.
Verð kr. 5.495.
Litir: Svartur/brúnn.
Stærðir: 36-41.
Teg. Sabu.
Verð kr. 5.495.
Litur: Svartur.
Stærðir: 36-41.
Teg. Eden.
Verð kr. 5.995.
Litir: Svartur/brúnn
Stærðir: 36-41.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Jt
DOMUS MEDICA
vií Snorrobraut - Reykjavík
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjovík
Sími 551 8519
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STADGRE!DSLUAF,$LATTUR.
hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni við Faxagarð mun Jón
Jónsson fiskifræðingur segja í stuttu
máli sögur fiskveiða og hafrann-
sókna hér við land.
Allir eru velkomnir.
Landsmót
hagyrðinga á
Laugalandi
HIÐ árlega landsmót hagyrðinga
verður haldið á Laugalandi í Holtum
laugardagskvöldið 21. ágúst og hefst
kl. 20.
Þar verður ort, sungið, kveðið, etið
og dansað við harmonikuleik Aðal-
steins Isfjörð. Heiðursgestur kvölds-
ins verður Kristrún Matthíasdóttir á
Fossi, en veislustjóri Guðmundur
Stefánsson í Hraungerði.
Mótið hefst kvöldið áður, en þá
verður gestum m.a. kennt að kveða
stemmur. Um hádegi á laugardag
verður lagt upp í ferð um Njáluslóðir
með Sigurði dýralækni, Gunnari org-
anista og Ragnari Böðvarssyni.
Mótið á Laugalandi verður hið ell-
efta í röðinni. Sérstök stökuefni
verða: Eyjafjallajökull og á
Njáluslóð.
Námskeið í
blóma-
skreytingum
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, verður með nám-
skeið á næstunni fyrir fagfólk í
blómaskreytingum sem nefnist
hlutateikning. Leiðbeinandi verður
Helga Júlíusdóttir, myndlistarmaður
og kennari við Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands.
Námskeiðið tekur fjögur kvöld og
verður þriðjudagskvöldin 24. og 31.
ágúst og 7. og 14. september, frá kl.
20-23 öll kvöldin í húsnæði Land-
græðslusjóðs, Suðurhlíð 38, Reykja-
vík.
Markmið námskeiðsins er að þátt-
takendur læri grunnatriði í teikn-
ingu og geti síðan nýtt sér þá þekk-
ingu við að teikna upp skissur að
hugmyndum fyrir viðskiptavini sína,
að koma hugmyndum sínum á blað.
Fjöldi þátttakenda í námskeiðinu er
takmarkaður. Skráning og nánari
upplýsingar fást hjá endurmenntun-
arstjóra Garðyrkjuskólans.
Safnaðarstarf
Silcox í heim-
sókn hjá
Krossinum
PRÉDIKARINN og íslandsvinur-
inn Curtis Silcox er í heimsókn hjá
Krossinum í Kópavogi þessa dagana.
Með honum er sönghópurinn NIV
(The New International Version).
Þau munu þjóna á samkomum
þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagskvöld kl. 20.30, öll kvöld-
in.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10
í safnaðarheimilinu. Orgelleikur á
undan. Léttur málsverður á eftir.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrir-
bænir kl. 18.
Laugameskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.05.
Seltjaraarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu á eftir.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar ld.
10-12.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10.
VELVAKAJMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir fyrir
frábæran dag
ÞAÐ VAR opið hús hjá
Vatnsveitu Reykjavíkur sl.
laugardag í tilefni 90 ára
afmælis Vatnsveitunnar.
Öllum var boðið að koma
og skoða Gvendarbrunna.
Við hjónin þáðum boðið og
viljum þakka fyrir frábær-
an dag sem við áttum
þama. Við tókum þátt í
skemmtiskokkinu og nut-
um fallegrar náttúru Heið-
merkunnar. Við þáðum
góðar veitingar og skoðuð-
um stórbrotin mannvirki
Vatnsveitunnar. Við gefum
starfsfólki og öllum sem að
þessu komu fullt hús
stjama.
Ánægður gestur.
Þakkir fyrir
veitta aðstoð
LAUGARDAGINN 14.
ágúst sl. varð ég fyrir því
óhappi að aka á ljósastaur
á Seljabraut. Það kom
ungur maður á vettvang
og aðstoðaði mig. Hann
gaf sér tíma til að vera
mér til halds og trausts
eins lengi og ég þurfti á því
að halda. Þarna kom vel í
Ijós hvað unga fólkið getur
verið hjálpsamt og sýnt
mikla tillitssemi. Eg vil
koma á framfæri kæru
þakklæti til hans.
Sigrún.
Tapað/fundið
Rautt kvenreiðhjól
týndist
GAMALT kvenreiðhjól,
Philis, rautt með hvítum
brettum og hvítum barna-
stól af Hamars-gerð að aft-
an, týndist frá Lindar-
byggð 13, Mosfellsbæ. Þeir
sem hafa orðið varir við
hjólið hafi samband í síma
566 8443.
Poki týndist
í Kringlunni
POKI merktur Pennanum
týndist í Kringlunni sl.
fóstudag, líklega á borði
við ísbúðina. I pokanum
voru skólavömr. Þeir sem
kannast við að hafa séð
pokann hafi samband í
síma 554 2488. Fundar-
laun.
Kassi fannst
á Höfðabakka
SÁ sem missti kassa úr bíl
sl. föstudag í Höfðabakka
má hafa samband í síma
566 7457. Friðrik.
Blátt hjól týndist
frá Hvassaleiti
BLÁTT hjól með gulum
dempurum að framan
týndist frá Hvassaleiti 34
fyrir mánuði síðan. Þeir
sem hafa orðið hjólsins
varir láti lögregluna vita
eða skili því þangað.
Dýrahald
Gulbröndótt
læða týndist
GULBRÖNDÓTT læða,
ómerkt, týndist 12. ágúst
frá Logafold. Gæti hafa
farið með bíl til Selfoss.
Upplýsingar í síma
586 1044.
Kettlingur í
óskilum í Kópavogi
HÁLFSTÁLPAÐUR kett-
lingur er í óskilum í aust-
urbæ Kópavogs. Grár og
gulbröndóttur með bláa
hálsól. Upplýsingar ísíma
554 3451.
Páfagaukur í
óskilum í Kópavogi
STÓR páfagaukur, grænn
með rauðan haus og blátt í
stéli, er í óskilum í Kópa-
vogi. Hefur verið þar í
viku. Þeir sem kannast við
fuglinn hafi samband í
síma 863 3947. Hjördís.
Kettlingur óskar
eftír heimili
HÁLFSTÁLPAÐUR kett-
lingur þarfnast nýs heimil-
is. Er mjög kelinn og fjör-
ugur. Upplýsingar í síma
551 8391 eða 862 8174.
Kettlingur
fæst gefins
GULUR kettlingur fæst
gefms. Upplýsingar í síma
587 7252.
SKÁK
llm.vjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp á úr-
slitamóti VISA bikarkeppn-
innar sem nú stendur yfir í
Danmörku. Hclgi Ólafsson
(2.494) var með hvitt, en
Norðmaðurinn Simen Ag-
destein (2.580) hafði svart
og átti leik: 32. - Hxg3+ 33.
hxg3 - Dxg3+ 34.
Kfl - Df3+ 35.
Kgl - Dg3+ 36.
Kfl - Hf4+ 37.
Dxf4 - Dxf4+ 38.
Ke2 - Dh2+ 39.
Kfl - Df4+ 40.
Ke2 - Bf3+ 41.
Kd2 - Dxb4+ og
hvítur gafst upp.
Staðan á mótinu
var þessi þegar
tefldar höfðu verið
níu umferðir af
þrettán: 1.
Hillarp-Persson,
Svíþjóð 7 v. 2.-3.
Agdestein og Sune
Berg-Hansen, Danmörku
6*/2 v., 4.-5. Einar Gausel,
Noregi og Helgi Áss Grét-
arsson 5'h v., 6.-7. Helgi
Ólafsson og Jonny Hector,
Svíþjóð 5 v., 8.-9. Ralf
Ákesson, Sviþjóð og Jón
Viktor Gunnarsson 4'/2 v.,
10.—11. Heikki Westerinen,
Finnlandi og Lars Schand-
orff, Danmörku 4 v., 12.
Nikolaj Borge, Danmörku
2'h v., 13. Torbjörn Hansen,
Noregi Vh v. og 14. Heini
Olsen, Færeyjum 1 v.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
MIKIL alda mótmæla hefur nú
risið meðal borgarbúa gegn
fyrirhuguðum byggingum í
austasta hluta Laugardals. Víst eru
slík áform nokkuð glannaleg að sjá
og því ekki að undra þótt margir
vilji að hér sé staldrað við. Víkverji
er nokkuð á báðum áttum í þessu
máli en hallast þó fremur að því að
þess verði freistað að hlífa svæðinu
við frekari byggingum.
Forsagan skiptir litlu máli, hvort
einhver flokkur eða stjómmála-
maður hefur einhvem tíma haft þá
skoðun að þarna mætti svo sem
reisa hús.
Og það skiptir líka litlu máli hvort
bent er á fordæmi, úr þvi að aðrir
reistu hús undir mótmælum þá
leyfist mér það líka. Hér er verið að
fjalla um Laugardalinn eins og
hann er nú og hefur þróast síðustu
árin og þá starfsemi sem þar er og
verður næstu áratugina. Að þessum
reit má því helst ekki þrengja með
nýjum byggingum. Taka verður til
endurskoðunar fyrri áform og
reyna að finna þeim, sem hafa feng-
ið loforð eða ádrátt um lóðir, annan
stað. Það hlýtur að takast með góð-
um skilningi viðkomandi. Hér er nú
einu sinni fullorðið fólk sem er að
ráða málum.
xxx
HÖFUÐBORGIN á afmæli í dag
og þótt ekki séu alltaf stórhá-
tíðir eða stórafmæli er þessara
tímamóta minnst með einum og öðr-
um hætti. Menningamótt hefur
þróast síðustu árin og er skemmti-
legt tiltæki. Þá verður eins konar
17. júní stemmning í borginni þegar
þúsundir borgarbúa og gesta sækja
hina ýmsu dagskrárliði sem boðið
er upp á, líta inn í veitingahúsin og
staldra við og spjalla við kunningj-
ana. Menningamótt hefur fest sig í
sessi og ekki sakar að vel viðri til að
gestir og gangandi njót hennar enn
betur. Vonandi lifir menningarnótt
því góðu lífi með endumýjuðum til-
brigðum á ári hverju.
xxx
BIÐ eftir tíma hjá læknum er
misjöfn. Þannig veit Víkverji af
stúlku sem bíða verður í nokkrar
vikur eftir að komast að hjá sér-
fræðingi á ákveðnu sviði bama-
lækninga og þessi vandi er uppi á
teningnum á öðmm sérfræðisviðum
líka. Er virkilega ekki hægt að
koma því svo fyrir hjá læknum í
mjög afmörkuðum sérgreinum að
þeir fari ekki frá stofum símum á
sama tíma? Skilji menn ekki eftir
bjargarlausa ef eitthvað kemur upp
á. Þetta getur varla kostað annað en
nokkrar hringingar og smávegis
skipulag. Kannski líka hliðmn á
sumarfríi. Trúlega er það kjarni
málsins.
xxx
KARL Sigurbjömsson biskup
fer lítt troðnar slóðir (það er að
minnsta kosti langt síðan þær vom
troðnar) þegar hann efnir til messu-
gjörðar í Suðurárbotnum í útjaðri
Ódáðahrauns. Segist hann með
þessu bæði vera að minna á hina
gömlu þjóðleið kirkjunnar manna
og annarra milli landshluta og
minna á sköpunina og náttúrana, að
við ræðum um hana, hvemig ber að
umgangast hana og nota. Fagna ber
þeirri stefnu sem í þessu felst hjá
biskupi og hvetja tH áframhalds í
þessum efnum. Kirkjunni eru flest
mannleg mál viðkomandi og hún á
að láta heyra í sér varðandi þau fyr-
ir utan hina daglegu prédikun.