Morgunblaðið - 18.08.1999, Side 56
Heimavörn
Sími: 580 7000
Drögum næst
24. ágúst
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MORGUNBLAÐJÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Hægt er að kaupa aflaheimildir án þess að eiga skip
Kvóti vistaður á skipum
þótt hann tilheyri vinnslu
FISKVINNSLAN Fjölnir hf. á
Þingeyri ætlar ekki að fjárfesta í
skipi en ráðgerir að kaupa kvóta og
er gert ráð fyrir að hagnaður fyrir-
tækisins verði notaður til frekari
kaupa á veiðiheimildum. Ekkert
virðist mæla þessu mót þó að í lögum
um stjórn fiskveiða sé kveðið á um
að veiðiheimildum skuli úthlutað til
einstakra skipa. Ljóst er að hægt er
að kaupa kvóta án þess að eiga skip
,m,og að kvóti er í einhverjum tilfeilum
vistaður á skip, þótt hann sé í eigu
fiskvinnslu.
Eins og greint hefur verið frá var
fiskvinnslufyrirtækið Fiskvinnslan
Fjölnir hf. stofnað á Þingeyri um
helgina. Helstu forsendur stofnunar-
innar voru að hlutaféð yrði a.m.k.
400 milljónir króna, fyrirtækið fengi
ráðstöfunarrétt yfir tæplega 400
tonna byggðakvóta ísafjarðarbæjar
á ári næstu fimm árin og það hefði
yfir að ráða a.m.k. 1.000 tonna
þorskkvóta. Ekki er gert ráð fyrir að
fyrirtækið fjárfesti í skipi til útgerð-
ar heldur er gerður samningur við
Vísi hf. í Grindavík þess efnis að Vís-
ir landi að minnsta kosti 2.000 tonn-
um á Þingeyri á ári. Þessi afli á að
samanstanda af 1.000 tonnum frá
Vísi, byggðakvótanum og 600 tonn-
um sem Fjölnir hyggst kaupa.
Samkvæmt 7. grein laga um
stjórn fiskveiða skal veiðiheimildum
á þeim tegundum, sem heildarafli er
takmarkaður _af, úthlutað til ein-
stakra skipa. I lögum um veð kemur
einnig fram að ekki má flytja kvóta
af skipi án þess að fyrir liggi leyfi
veðhafa.
Væntanlega skoðað í tengslum
við endurskoðun á lögunum
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir að upphaflega hafi
hugmyndin með lögunum verið sú
að skrá allan kvóta á skip, að hann
tengdist fiskveiðunum frekar en
fiskvinnslunni. Hins vegar séu út-
gerð og vinnsla oft mjög tengd en
lögin hafi skapað ákveðin vandamál
hjá fiskvinnslum sem ekki væru
jafnframt í útgerð og þess væru
dæmi að kvóti væri vistaður á skip-
um þótt hann tilheyrði vinnslu í
raun.
I tillögum tvíhöfðanefndar hefði
verið gert ráð fyrir að fiskvinnslan
sjálf gæti átt kvóta. Lagafrumvarpið
hafi ekki verið samþykkt á Alþingi
en síðan hafi þetta verið talsvert í
umræðunni. „Þótt ég hafi ekki skoð-
að það sérstaklega er Fjölnismálið
hugsanlega dæmi um það að þegar
menn vilja gera tiltekna hluti finna
þeir leið til þess, leið sem ekki er
beinlínis ólögleg eða refsiverð, þótt
lögin hafi ekki verið samþykkt með
hana í huga,“ segir Árni. „Líklegt er
að þetta verði eitt af þeim málum
sem verða skoðuð í sambandi við
endurskoðun á lögum um stjórn fisk-
veiða.“
Samkvæmt þessu virðist sem
hver sem er geti keypt kvóta nái
hann samningum um skrásetningu
hans á skip. Spurður um réttar-
stöðu kvótakaupenda í slíku tilfelli
bendir Arnór Halldórsson, lögfræð-
ingur í sjávarútvegsráðuneytinu, á
að litið sé á umráðamann skips sem
rétthafa aflaheimildanna sem hann
má ráðstafa að vild sé ekki upplýst
um annað, t.d. með þinglýsingu
kvaðar.
Spurður um hvaða úrræði séu
nægileg í þessu sambandi færist
Arnór undan því að svara þar sem
það sé ekki hlutverk ráðuneytisins
að segja fyrirfram til um það með al-
mennum hætti.
Heims-
kringla vin-
sæl í Svíþjóð
NÝ SÆNSK þýðing á
Heimskringlu Snorra Sturlu-
sonar hefur selst í 28.000 ein-
tökum í Svíþjóð sem telst
mjög mikið á þarlendan mæli-
kvarða. Að sögn sænska
handritafræðingsins og þýð-
anda verksins, Karls Gunnars
Johansson, er Snorri Sturlu-
son vinsæll í Svíþjóð. Hann er
þekktasti rithöfundur Islend-
inga þar í landi.
Ný þýðing Johansson og
Mats Malm á Snorra-Eddu,
sem út kom fyrir rúmu ári,
hefur og notið mikilla vin-
sælda og selst í tæplega
10.000 eintökum.
Karl Gunnar Johansson
segir að mikill og vaxandi
áhugi sé á Snorra og íslensk-
um fombókmenntum í Sví-
þjóð. Snorri telst ekki einung-
is merkilegur sagnaritari í
Svíþjóð heldur og mjög
skemmtilegur höfundur.
■ Snorri er/23
’ Marel skilar 225
milljóna hagnaði
MAREL skilaði metafkomu á fyrri
hluta þessa árs en heildarhagnaður
nam rúmum 225 milljónum króna, en
77 milljóna króna tap var á fyrstu
sex mánuðum síðasta árs. Geir A.
Gunniaugsson forstjóri segir að góða
afkomu megi þakka samstilltu átaki
starfsmanna og aukinni sölu á fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins. Rekstr-
artekjur jukust um nálega 60% milli
i^ára en um 95% af sölu fyrirtækisins
fara nú á markaði erlendis.
Hæsta gildi úrvalsvísitölu
frá upphafi
Úrvalsvísitala Aðallista náði sínu
hæsta gildi frá upphafi í gær í kjölfar
þess að milliuppgjör Marels var birt.
Hún hækkaði um 1,62% og var í lok
dagsins 1.288,5 stig. Hæst hefur úr-
valsvísitalan farið í 1.277,9 stig, 7.
maí 1997. Hlutabréfaviðskipti á
Verðbréfaþingi Islands námu 501
milljón í gær og var dagurinn sá
annar stærsti frá upphafi en 1. janú-
ar síðastliðinn námu viðskipti 502
milljónum.
Mest voru viðskipti með hlutabréf
Marels eða fyrir 129 milljónir króna.
Gengi hlutabréfa í félaginu hækkaði
um 25,5%, sem var mesta hækkun
dagsins og var lokagengið 31. Gengi
hlutabréfa Eimskipafélagsins hækk-
aði um 1,8% og námu viðskipti með
bréf þess 73,2 milljónum króna.
Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfastofunnar hf., segir hækk-
unina skýrast af því að afkoma fyrh--
tækja sé mun betri en menn áttu von
á. „Þessi hækkun á úrvaisvísitölu
sýnir mikla grósku á hlutabréfa-
markaði og trú manna á áframhald-
andi góða afkomu fyrirtækja." Jafet
segir milliuppgjör fyrirtækja eiga
sinn þátt í auknum hlutabréfavið-
skiptum þar sem mörg fyrirtæki
sýni góða afkomu og í gær hafi Mar-
el kynnt mjög gott uppgjör enda hafi
viðskipti með bréf þess numið 129
milljónum. „Ég held samt sem áður
að það komi ró á markaðinn strax
eftir milliuppgjör en búast má við líf-
legum hlutabréfaviðskiptum í
haust,“ segir Jafet.
■ Hagnaður/19
Stafkirkja reist á Stöng
AUSTAN við þjóðveldisbæinn í
Þjórsárdal hefur risið stafkirkja
með torfveggjum og torfi á þaki
að fornri fyrirmynd. Þessir
menn unnu við að hlaða hring-
laga vegg úr torfi í kringum
kirkjugarðinn þegar ljósmynd-
ara bar að.
Á fyrstu öld kristni stóð
kirkja við bæinn á Stöng, sem
stóð skammt fyrir innan Þjóð-
veldisbæinn en talið er að hún
hafi verið aftekin um svipað
leyti og bærinn fór í eyði, þ.e.
skömmu eftir 1100. Um þessar
mundir er unnið að því að setja
kirkjuna upp við Þjóðveldisbæ-
inn, en Gunnar Bjarnason húsa-
smiðameistari smíðaði hana eft-
ir forsögn Hjörleifs Stefánsson-
ar arkitekts við Þjóðminjasafn
Islands. Auk kirkju stóðu áður
Morgunblaðið/Einar Falur
við Stöng smiðja, fjós og hlaða en
ekki er vist hvort ráðist verði í
byggingu þeirra.
Morgunblaðið/Kristinn
Lundapysja á Seltjarnarnesi
GUÐMUNDUR Þorsteinsson,
íbúi við Eiðismýri á Selljarnar-
nesi, gómaði lundapysju í gær-
kvöldi er hún kom hlaupandi
eftir götunni. „Ég var að mála
húsið ásamt tveimur félögum
mínum þegar pysjan birtist.
Okkur félögum varð á orði í
gríni, enda allir miklir KR-ing-
ar, að við ættum að geyma hana
þangað til á næsta leik milli KR
og IBV,“ sagði Guðmundur sem
var ekki frá því að heimsókn
pysjunnar væri fyrirboði Is-
landsmeistaratitils KR-inga í ár.
Að sögn Kristins Skarphéð-
inssonar fuglafræðings eru
heimsóknir pysja í Reykjavík
ekki algengar en þó árviss við-
burður um þetta leyti árs.
„Pysjurnar eru að fara í sitt
fyrsta flug úr holunni um þetta
leyti, þegar foreldrarnir hætta
að fæða þær. Flestar kunna fót-
um sínum forráð en sumar vill-
ast af leið,“ segir Kristinn sem
telur pysjuna að öllum likindum
úr Akurey þar sem talsvert
lundavarp er og stutt til
Reykjavíkur.
Kristinn sagði Reykvíkinga
ekki jafnvana því að bjarga pysj-
um og Vestmannaeyingar eru en
þar eru börn iðin við það. „Það
er best að fara með pysjurnar
niður á strönd og sleppa þeim
þar,“ segir Kristinn. Guðmundur
fór að orðum Kristins, en nú er
að sjá hvort pysjan reynist rétt-
ur fyrirboði í fótboltanum.