Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 B 13 ekki þau sömu og víða annars staðar, að sögn Olafar. Hún hefur æft og leikið knattspyrnu með liði Grindvík- inga, en í Latacunga var henni mein- að að stunda íþróttina. „Eg mátti ekki spila fótbolta. Kvenmenn gera það ekki þarna og mér var hótað brottrekstri úr skólanum fyrir. Einn íyrsta skóladaginn kom ég að strák- unum í fótbolta og spurði í sakleysi mínu hvort ég mætti ekki vera með. Þeir urðu hálfundarlegir; spurningin virtist vekja mikla athygli. Skóla- stjórinn frétti af þessu og varð alveg vitlaus; hann hafði reyndar upphaf- lega ekki viljað hleypa mér inn í skólann, ég væri of ung, að hans mati, til að vera skiptinemi og í þokkabót væri ég ekki kaþólsk. Hann var sjálfur strangtráaðm’ kaþ- ólikki, ítalskur prestur. Þegar ég kom spurði hann mig hvort ég kynni eitthvað í spænsku og verð að viður- kenna að ég sagði ekki alveg satt - sagðist kunna svolítið, en skildi ekki orð. Þegar að umræddu samtali kom skildi ég þó það sem hann vildi koma á framfæri: að ég spilaði ekki fótbola meðan ég væri í skólanum hans!“ Þegar Olöf Daðey hóf nám í skól- anum fór hún í vhðtal við áðurnefnd- an skólastjóra. „Eg skildi ekkert og sagði yfirleitt já við öllu sem hann spurði. Seinna sá ég svo skjölin um mig og komst þá að því að hann hafði spurt mig hvort pabbi minn væri for- seti! Þá upplýsti ég hann um að ekki hefði víst alit verið satt,.sem ég sagði honum í viðtalinu. Þá kvaðst hann aldrei hefðu tekið mig inn í skólann á sínum tíma ef hann hefði gert sér grein fyrir því.“ Hún segir útlendinga almennt illa liðna í Ekvador; „segja má að þeir séu hataðir. Þegar ástandið var sem verst mátti maður helst ekki láta sjá sig, og þegar ég fór út var ég með húfu; það er ekki heppilegt að vera ljóshærður þarna! Indíánarnir telja útlendinga eiga mikla peninga, telja okkur koma þarna til að reyna að græða á landinu þeirra og þannig fannst mér líka oft litið á okkur í skólanum, sérstaklega af kennurun- um en krakkarnir voru aftur á móti frábærir. Þeir sögðu reyndar að fyrst eftir að við komum hefði þeim þótt slæmt hve við fengum mikla at- hygli. Það var kannski ekki skrýtið, í bænum hafði aðeins verið einn skiptinemi áður, strákur frá Banda- ríkjunum sem okkur var sagt að hefði ekki einu sinni látið sjá sig í skólanum. Við vorum sjö, útskrifuð- umst öll úr skólanum og athyglin var öll á okkur. Það var ekki talað um annað í byrjun, og bekkjarsystkinin sögðust hreint og beint hafa hatað okkur. En úr því rættist og við eign- uðumst góða vini.“ Langaði í ævintýri Ævintýraþrá varð til þess að Ólöf Daðey ákvað á sínum tíma að fara til Ekvador. „Mig langaði til að verða skiptinemi og langaði að læra spænsku. Það er ekki hægt að fara til Spánar og niðurstaða mín varð sú að fara eitthvert sem litlar líkur væru á að ég/æri aftur. Mig langaði í ævin- týri. Eg vissi ekkert um landið þegar ég fór út og kunni ekkert í spænsku“. Olöf Daðey segir að AFS-skrifstofan hafí mælt með Ekvador vegna þess að starf samtakanna þar væri gott, og það hafi reynst orð að sönnu. Hún segir skiptinemana í Latacunga hafa talsvert velt því fyrir sér, meðan ástandið var sem verst í borginni, „hvernig fréttaflutningur- inn af atburðunum væri í heimalönd- um okkar - því þarna var allt brjálað. En svo kom í ljós að ekkert hafði ver- ið sýnt og enginn heyrt neitt. Engar fréttir bárust nema þegai- eitthvað gerðist í höfuðborginni. Okkur fannst það gott, en þó ekki. Eg sagði pabba og mömmu að það væru smálæti! Varð að segja þeim hvernig var, því það var að styttast í að ég ætti að fara heim og ég var ekki viss um að ég kæmist á réttum tíma. Astandið kom líka í veg fyrir að við kæmumst í áætlaða ferð út í frumskóg, sem átti að vera hluti af dagskrá okkar sem skiptinema. En áður höfðum við farið út í Galapagos-eyjar“. Góður stuðningur AFS Ólöf Daðey segir starfsfólk AFS hafa stutt skiptinemana mjög vel og þeim hafí liðið vel þrátt fyrir ótryggt ástand í landinu. „Það var hringt í okkur daglega til að fylgjast með, þegar ástandið var sem verst. Bæði fulltrúar AFS í höfuðborginni og eins fólk hjá AFS hér heima á ís- Ólöf Daðey ásamt öðrum skiptinema, bandarískri vin- konu sinni, í skólabúningnum sem þær klæddust alla skóla- daga í Latacunga. Á miðju jarðar. Miðbaugur liggur gegnum Ekvador og svæðið þar sem baugurinn fer gegnum höfuðborgina Quito er fjölsótt af ferðamönnum. Ólöf Daðey situr hér á gulu línunni, sem máluð er á miðbauginn, og tekur mynd af eigin fótum, eins og stúlkan fyrir framan hana virðist vera að gera. landi. Pabbi og mamma höfðu áhyggjur og voru í sambandi við AFS hér og í Quito. Þar á bæ hafði fólk reyndar ekki hugmynd um hve ástandið var slæmt í Latacunga fyrst eftir að það versnaði aftur, í júlí. Kom af fjöllum þegar hringt var frá skrifstofu AFS á íslandi til að spyrj- ast fyrir! Það var nefnilega ekki hægt að hringja frá Latacunga, að- eins innanbæjar og til bæjarins, og ekkert var um þetta í sjónvarpinu." Vegna þess að Ólöf Daðey varð vitni að atburðum eins og þeim þeg- ar indíánarnir þrír voru drepnii- ræddi sálfræðingur við hana og aðra sem lent höfðu í svipaðri lífsreynslu. „Einhverra hluta vegna tók ég þeim atburði ekki mjög illa - sagði strax við sjálfa mig að ég yrði að komast yfir þetta, og gerði það. Ég var hrædd iyrst en það hjálpaði mér mikið að tala við AFS og það var líka gott að létta á sér gegnum símann við mömmu og pabba þegar þau hringdu í mig.“ 1990 Mosfellsbær 1994 Verður þinn bær næstur? Tuttugasta og fjórða Landsmót UMFÍ verður haldið í júlí árið 2004. Ungmennafélag íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum og sveitarstjórnum um að taka að sér undirbúning ogframkvæmd 24. Landsmóts UMFÍ. Á Landsmótum UMFÍ er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þarsem öllfjölskyldangeturverðsaman. Aukin áhersla hefurverið lögð á þátttöku almenn- ings í ýmsum íþróttagreinum á síðari árum. Umsóknum um að halda 24. Landsmót UMFÍ 2004 skal skilað á þjónustumiðstöð UMFf að Fellsmúla 26,108 Reykjavík fyrir 31. desember 1999. UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS Fyrsta Landsmót UMFÍ fórfram á Akureyri 1909 en Landsmótin eru orðin tuttugu ogtvö talsins. Síðasta Landsmót var haldið í Borgarnesi 1997. Næsta Landsmót UMFÍ verður haldið á EgiLsstöð- um 12.-15. júlí 2001. Landsmót UMFÍ hafa jafnan verið mikil lyftistöng fyrir byggðarlögin þar sem þau hafa verið haldin. Kröftug uppbygging íþróttamannvirkja hefur átt sér stað og starf ungmenna- og íþróttafélaga eflsL Landsmót UMFÍ eru stærstu íþrótta- og menning- arhátíðir sem haldnar eru hér á landi og vekja þjóðarathygli. Á Landsmótinu sem haldið verður 2004 má gera ráðfyriralltaðtvö þúsund þátttak- endum sem keppa í um tuttugu íþróttagreinum. Þar mun fremsta íþróttafólk landsins keppa í flestum greinum íþrótta en auk þess verður keppt í starfsíþróttum eins ogtd. pönnukökubakstri, dráttavélaakstri og línubeitingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.