Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
IÍR kaffístofu Sigurðar Ágústssonar í Stykkishólmi árið 1957.
HJÓNIN Sesselja Konráðsdóttir og Jón kaupmaður Eyjólfsson 1
Jónskjöri.
allt fór vel, en ákvarðanir lækna á
fólk ekki að vefengja.
Verslunin Vísir hefír verið rekin
á sama stað frá stofnun hennar,
snemma á öldinni og allt til þessa
dags. Á árunum um 1960 var form
matvöruverslana sem óðast að
breytast yfir í það kjörbúðaríyrir-
komulag, sem síðar varð allsráð-
andi. En Vísir var enn með gamla
laginu, einnig verslun Silla og
Valda í Aðalstræti og nokkrar aðr-
ar sem voru einskonar sýnishorn af
gömlu Reykjavikurbúðunum.
Þegar inn í Vísi kom tóku við
búðarborð á þrjá vegu, fyrir miðju
og til beggja handa. Borðplöturnar
voru að hluta til úr gleri, en þar
undir var raðað ýmsum smávarn-
ingi. Á veggjum voru þrælsterkar
tréhillur, líkari opnum skápum,
sem rúmuðu býsnin öll af niður-
suðuvöru, pakkavöru, osti, kaffí,
kertum og konfekti. Það var mikið
lagt uppúr sölu á ferskum ávöxtum
í Vísi. Bananar, vínber, melónur,
epli og appelsínur voru í opnum
ílátum á búðarborðinu, ávaxtailm-
inn lagði um allt, ásamt sterkum og
ljúfum ilm af nýbrenndu og möluðu
kaffi, en fjöldi verslana og fyrir-
tækja í nágrenninu byrjuðu daginn
á að kaupa sjóðheitt Vísiskaffí í
glærum sellófanpokum.
Vísiskaffi var frægt um alla
Reykjavík. Það var á árum áður að
Vísir auglýsti kaffi sitt í dagblöðum
á þessa leið: „Vísiskaffi gerir alla
glaða.“ Einhverjir dónar komust í
auglýsinguna, breyttu henni, og þá
stóð á prenti: „Vísiskaffi gerir alla
graða.“ Eftir þessa breytingu varð
Vísir að hætta að auglýsa vegna
þess að kaffisalan óx svo gríðar-
lega, að verslunin annaði alls ekki
eftirspurn.
Eiginmenn sem ekki þorðu að
láta það sjást, að þeir keyptu Vísis-
kaffi sendu konur sínar eftir smá-
skammti. Til þess var tekið, hve
léttstígar, glaðar og eftirvænting-
arfullar þær voru á svipinn, þegar
þær skokkuðu heim með skammt-
inn handa bónda sínum. Nú var
það sem sé orðið mitt hlutskipti, að
byrja hvern dag á að mala og
pakka Vísiskaffí, með ófyrirséðum
afleiðingum.
Það kom á daginn, að þarna á
horni Bankastrætis, Skólavörðu-
stígs og Laugavegs varð til
skemmtilegt samfélag þegar fólk
streymdi til vinnu sinnar í verslan-
ir og fyrirtæki á morgnana. Flestir
vissu deili hver á öðrum og vinnu-
stað viðkomandi og fjölmargir áttu
það sameiginlegt, að vera við-
skiptavinir Vísis, þegar gosflösku,
tóbak, kex og kaffi vantaði á kaffi-
stofuna. Og þeir, sem vildu fá sér
eitthvað staðgott og saðsamt í
magann í hádeginu litu í gluggana
á kjötverslun Tómasar, þar sem
nýsoðnir og ilmandi sviðakjammar
horfðu skælbrosandi á vegfarend-
ur.
Á þessum nýja vinnustað sá ég
næstum daglega einstaklinga sem
settu svip sinn á umhverfið. Upp í
hugann koma Lárus Blöndal bók-
sali, frískur og léttur kaupmaður,
Eyjólfur Eyfells listmálari, silfur-
hærður öldungur, Andrés klæð-
skeri, glæsilegur eldri borgaiá sem
þá rak virtustu karlmannafata-
verslun borgarinnar, Karl Bartels
úrsmiður, skemmtilegur karl, sem
byrjaði alla daga á að kaupa tvær
flöskur af Pepsi Cola, Magnús í
Pfaff, Guðsteinn Eyjólfsson fata-
kaupmaður og Sigfús Halldórsson
tónskáld, sem reykti stóra vindla á
vinnustað sínum, Skattstofunni, en
Kron sjálfan sá ég aldrei.
Einn viðskiptavina Vísis var
landsfrægur. Hann var svo frægur,
að hvert mannsbarn vissi hver
hann var. Þetta var Jóhannes
Kjarval, meistarinn sjálfur. Hann
var stór og mikilúðlegur maður,
sem klæddist eftir eigin tísku og
smekk, stundum sérkennilegur í
tilsvörum, stundum torskilinn,
stundum bráðskemmtilegur og
fyndinn. Það kom oftar en ekki fyr-
ir að Jóhannes Kjarval kom með
sérkennilega förunauta með sér í
búðina. Þetta voru útigangsmenn
sem hann undantekningalaust gaf
ávexti eða annað ætilegt í bréfpoka
og sagði við þá djúpum rómi:
„Njóttu þess góði - njóttu þess
góði.“
Nú voru alþingiskosningar í
nánd og loftið gerðist lævi blandið.
Árið 1959 var kosið tvisvar til
þings. I íyrra sinnið um sumarið,
en þá hafði ég ekki öðlast kosn-
ingarétt, en um haustið var kosið á
ný og hafði ég þá náð kosningaaldri
í millitíðinni. Eg hafði ekki áhuga á
stjórnmálum og þaðan af síður beið
ég kosninganna með eftirvæntingu.
Líklega hef ég hvorki verið fugl né
fiskur í pólitískum skilningi. En
eftir að hann Gaui á Höfðanum
hafði bent mér á nauðsyn þess að
maður tæki sínar ákvarðanir í
tíma, hafði það svo sem hvarflað að
mér hvar ég ætti að skipa mér á
bekk í pólitíkinni. Ég fór að velta
fyrir mér ýmsum möguleikum,
skoðaði þá kosti sem í boði voru og
lagði fyrir mig áleitnar spurningar:
Ætti ég að gerast framsóknarmað-
ur? Frammari? Almáttugur. Mér
hefur alltaf þótt þeir eitthvað svo
pokalegir. Nei, ski'attakornið. Það
er ekki hættandi á að gerast
frammari. í þeim flokki er sagt að
heymæði sé landlæg og égg er víst
alveg nógu andstuttur eins og ég
er. En hvað með íhaldið? Ætti ég
að gerast feitur íhaldspungur, með
hvítt um hálsinn alla daga og alltaf
að græða á aumingjunum? Það er
nú það. Hvernig gæti ég farið að
græða á aumingjum, maður sem
ekkert mátti aumt sjá, varla snjó-
tittling einan og yfirgefinn, hvað þá
eitthvað miklu stærra og slappara?
Nei. Ekki ætlaði þetta að ganga
með íhaldið. En kommi? Harður al-
vöru kommi? Heyrðu? Vora það
ekki kommarnir sem vora alltaf
grenjandi yfir því hvað allir aðrir
en þeir væru að gara það gott? Æ,
það ætti nú ekld við mig að vera
baðaður í öfundartáram alla daga.
Nei, ég hef aldrei verið mikið fyrir
bleytuna, hvorki útvortis né inn-
vortis. En krati? Krati? Ojbara.
Ég var ráðþrota og leist ekkert á
það sem í boði var, var þó svona
nokkurnveginn búinn að ákveða
það, að kjósa ekki neitt eða skila
auðu og hugsa minn gang fram að
næstu kosningum. En það átti ekki
fyrir mér að liggja, að fá að vera í
friði.
Bláókunnugir menn fór að
hringja í mig í tíma og ótíma, aðal-
lega í vinnuna. Þeir vora allir uppá
spjall og spurðu mig hvernig mér
liði, hvort ég væri nokkuð haldinn
heimþrá og hvort ég væri búinn að
kjósa. Til að byrja með varð ég yfir
mig hrifinn og hugsaði að það væri
engin lygi sem sagt var um
Reykvíkinga, að þeir væra dæma-
laust gestrisnir og elskulegt fólk,
sem allt vildu gera fyrir sveita-
menn. En brátt kom á daginn að
þessi símtöl komu ekki frá neinum
venjulegum Reykvíkingum. Þau
komu öll frá kosningaskrifstofu
Framsóknarflokksins, en ekki
heyrðist hósti né stuna í kommum,
íhaldi eða krötum. Meira að segja
hann Árni minn Helgason í Hólm-
inum, sem aldrei hefur mátt sjá
unga menn fara í hundana af völd-
um áfengis eða stjórnmála, lét ekki
í sér heyra. Eftir því sem styttist í
kosningarnar gerðust mennirnir í
símanum ýtnir og frekir og vildu
helst tafarlaust draga mig niður í
Fiskifélagshús við Skúlagötuna,
þar sem utankjörfundarkosning
fór fram. En ég var tregari í taumi
en skrattinn sjálfur.
Föstudagskvöldið fyrir kosning-
ar dró til tíðinda. Þann dag var
mikið að gera í Vísi og varla tími til
að setjast niður frá átta um morg-
uninn og til klukkan sjö um kvöld-
ið. Það var tilhlökkunarefni að
komast heim til hennar systur
minnar á Suðurlandsbrautinni, þar
sem ég var til húsa og ekki dró það
úr, að ég vissi að það var saltkjöt
og baunir í kvöldmatinn. Maturinn
var á borðum þegar ég kom heim
og baunailminn lagði um allt hús.
Við settumst til borðs en um leið og
heitur og rjúkandi baunadiskurinn
var réttur að mér, þá hringdi sím-
inn.
Og auðvitað var síminn til mín.
Ég stóð seinlega upp, tók símann
og sagði halló. Maðurinn í síman-
um sagðist vera á vegum Fram-
sóknarflokksins og þannig stæði á,
að hann væri að koma í nágrennið
til að sækja tvo menn utan af landi
sem væra að fara að kjósa og nú
væri upplagt fyrir mig að slást í
hópinn.
Ég hugsaði með mér að þessum
skratta yrði að linna og sagðist
koma. Þetta var sársaukafull
ákvörðun. Enginn tími til að borða
og eins víst að Ragnar systursonur
minn, þetta líka voðalega matar-
gat, yrði búinn að aféta mig þegar
ég kæmi til baka, og engar baunir
að hafa.
Æpandi gulur Chevrolet Bel Air,
módel ‘57, beið mín við húsdyrnar.
Bílstjórinn kynnti sig en tvö at-
kvæði sátu í aftursætinu og rædd-
ust við. Ég lagði við hlustirnar.
Annað atkvæðið var úr Húnavatns-
sýslunni og greinilega eitthvað bil-
að. Það þrástagaðist á því að það
hefði aldrei getað fyrirgefið afa
sínum það, að þegar amma þess
fauk í bæjarlækinn og drakknaði í
norðanhvellinum 1927, þá hafi af-
inn ekki gert nokkra tilraun til
bjargar, og þar hafi farið góð fram-
sóknarkona fyrir lítið.
Hitt atkvæðið hafði komið aust-
an úr Flóa og í bæinn, gagngert til
þess að deyja, deyja á Landakoti,
skildist mér, en svo hafi það ákveð-
ið að fresta því að deyja fram yfirþ-
kosningar. „Já, minna mátti það nú
ekki vera, ekki veitti flokknum af
hverju atkvæði, og víst yrði Landa-
kot á sínum stað eftir kosningar.
Engin hætta á öðru.“
Mér var steinhætt að lítast á
blikuna. Þarna sat ég saman-
krepptur í framsæti þessa fyrrver-
andi nevjorktaxa, hélt dauðahaldi í
rúðuhalarann, starði eins og stein-
ranninn út um bílgluggann og
skoðaði Esjuna hátt og lágt, hvern
krók og kima, á meðan við ókum
Skúlagötuna og nálguðumst óðum
kosningastaðinn og mér fannst ein-
hvern veginn að ég væri um það bil
að selja sál mína. En nú fór að
hljóma setning í höfði mínu sem
gerðist æ háværari. Þetta var
reglulega ljót setning sem ég
skammaðist mín fyrir, en það var
alveg sama hvernig ég kreppti
tærnar í skónum og reyndi að
hugsa fallegar hugsanir, þær ein-
hvem veginn gufuðu upp jafnharð-
an, en eftir stóð þetta: „Þessa
andsk... skal ég aldrei kjósa ...
þessa andsk. skal ég aldrei
kjósa..En þegar neyð mín var
stærst og ég allt í senn, ráðvilltur,
hræddur og full, þá gerðist krafta-
verkið. Allt í einu mundi ég hvað
það var sem vinir mínir í Hólmin-
um kusu. Þeir kusu allir íhaldið, og
fyrst þeir kusu íhaldið, þá hlaut
mér að vera óhætt að gera það líka.
Við vorum komnir á leiðarenda. Ég
snaraðist út úr bílnum og dró djúpt
andann og var þess albúinn að ráð-
ast inn í Fiskifélagshúsið.
Bílstjórinn lék á als oddi þegar
hann sá hve áfjáður ég virtist vera
í það að kjósa Framsóknarflokk-
inn. Næst man ég eftir mér inni í
kjörklefanum, þar sem ég setti ,
stóran og feitan kross við íhaldið,
og fór strax að líða betur.
Að sjálfsögðu var okkur ,;fram-
sóknarmönnum“ ekið heim. Á Suð-
urlandsbrautinni kvaddi ég Fram-
sóknarflokkinn endanlega.
Höfundur er gjaldkeri lijá
Sýslumanninum í Borgamesi.
Nú er rétti tíminn til að krækja sér í tjaldvagn eða fellihýsi
fyrir næsta sumar! Sölumenn okkar eru óvenju liprir í samningum
þessa dagana. Komdu strax því birgðinar eru mjög takmarkaðar!
h/okktrir
&
lyóikýií
[Q^]
oj {jöylitr AkÍÍc(Ík« {zdikýsi
CÍSLJ JÓNSSONehf
Bíldshöfða 14, 112 Reykjavík, sími 587 6644.