Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 B 27
hlustað á Heimi að Heimir væri
besti karlakór sem hefði komið til
Færeyja. Þama var einnig lögþings-
maðurinn og bæjarstjórinn í
Klakksvík, Jögvan ví Keldu, kór-
stjóri með meiru, og það leyndi sér
ekkert hrifning hans þótt Færeying-
ar séu yfirleitt ekki að flíka slíku.
Tónleikarnir voru í skólanum í
Klakksvík í ágætum sal, en eftir tón-
leikana heimsóttum við Christians-
kirkjuna í Klakksvík sem var byggð
1963 og býr yfir einstökum hljóm-
burði. I kirkjunni eru um 1.000 sæti,
en þagar hún var vígð 1963 voru
2.000 kirkjugestir innan dyra.
Heimismenn sungu í kirkjunni og
nutu hins magnaða tónflæðis, en
gallinn við það að halda tónleika í
kirkjum Færeyja er sá að það má
ekki klappa í kirkjunum og ekki
heldur selja aðgang en hvort
tveggja er nú oft nauðsynlegur hluti
af tónleikahaldi.
Norðurlandahúsið í Þórshöfn er
stórglæsilegt og þar var troðfullt í
stóra salnum á tónleikum Heimis,
á 5. hundrað manns og menn höfðu
á orði fleiri en einn og fleiri en
tveir að heimsókn Islensku óper-
unnar og karlakórsins Heimis
Á hamraströndinni við Voga á Suðurey. Það er aldrei hægt að líta langt í Færeyjum án þess að sjá bát, enda
eiga þeir orðtakið: Bundinn er bátlaus maður.
kojs í Smyrli og gert klárt fyrir sigl-
ingu til Þórshafnar næsta dag.
Þannig gekk nú lífið fyrir sig í
leiðangrinum þeim. Heimismenn og
fylgifiskar skoðuðu söfn og kynntu
sér bæjarbraginn á hverjumn stað,
nutu gestrisni og velvildar Færey-
inga og ekki lét Páll Mohr, ræðis*-
maður íslands í Færeyjum, sig
muna um að bjóða öllum hópnum
heim eftir tónleikana í Norðurlanda-
húsinu. Þar var glatt á hjalla og
sungið og trallað og eldhuginn Páll
var aldeilis í essinu sínu, eins og heil
herfylking.
Geisladiskar Karlakórsins Heimis
hafa selst vel í Færeyjum og lög
kórsins hafa verið talsvert leikin í
Utvarpi Færeyja eftir heimsóknina.
Heimismenn fóru allvíða um Fær-
eyjar á fáum dögum, því margt er
auðveldara en að ferðast um Fær-
eyjar hvað þá fyrir 130 manna hóp,%
en það fór ekkert á milli mála að
söngferð Heimis til Færeyja knýtti
enn betur vináttu- og bræðrabönd
Islands og Færeyja, ekki síst vegna
þess að okkur íslendingum er tamt
að staðsetja svolítið af Færeyjum í
hjarta okkar þegar við förum þaðan
heim á ný.
Árni Johnsen fararstjóri og Pétur Pétursson frá Álfta-
gerði leggja á ráðin.
á WM
jy yi ,:i|
! K •
riífí V * ; íj i
»*l ■■■■ jji
Christians-kirkja í Klakksvik er byggð eins og naust.
Heimasæturnar í Öravík sem stýrðu færeysku veislunni.
Frá Klakksvfk. Heimir á tónleikunum á Suðurey.
væru tveir toppstórviðburðir í
Færeyjum.
Það var skemmtilegt að heyra
slíkt..
En Heimismenn eru ekki fyrir að
velja þá einföldii leið að sitja kyrrir
á sama stað. Á fjórða degi heim-
sóknarinnar var haldið til hafnar á
ný og nú um borð í gamla Smyril
sem fór sérstaka ferð með Heimis-
menn til Suðureyjar, en ekki er al-
gengt að fjölmennir kórar fari
þangað í tónleikaferðir. Það var
keyrt svolítið um Suðurey, að mestu
í kjaftsvörtu, en það kom sér vel
fyrir þá lofthræddu þegar ekið var á
brúnum þar sem hundruð metra
voi-u lóðrétt í sjó. Tónleikarnir um
kvöldið í skólanum á Þvereyri voru
glimrandi góðir, húsfyllir og mikil
stemmning með þátttöku heima-
manna sem til að mynda sungu með
í færeyska laginu Fagra blóma sem
Heimismenn sungu á færeysku við
mikinn fögnuð. Þá brá Stefán Gísla-
son kórstjóri á leik og kallaði til
leiks litla stúlku sem hafði setið á
fremsta bekk á tónleikunum og lifað
sig inn í stjórnun kórsins með
handasveiflum. Stefán lét hana
stjórna Heimi í einu lagi og höfðu
heimamenn mikið gaman af. Eftir
tónleikana á Þvereyri kom ein fær-
eysk kona til kórfélaga og sagði: Þið
syngið eins og englar, þið syngið
svo fagurt að ég mun vaka í alla
nótt.
Þetta var sem sagt í besta lagi og
kom ekki á óvart. Að tónleikum
loknum var haldið til færeyskrar
veislu í Öravík með dúndrandi krás-
um, færeyskum dansi, rímnakveð-
skap og söng. Var sá háttur hafður á
fram eftir nóttu uns haldið var til
Vetrarstundaskrá hjá Yoga Studio
Anna
Ásmundur
Ingibjörg
Daníel
Lísa
Tími Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud.
12.10-13.00 Ýmsir Ýmsir Lísa
16.20-17.10 Ingibjörg Ingibjörg
17.00-17.50 Lísa
17:20-18:20 Daníel Ingibjörg Daníel Ingibjörg
17.55-18.20 18.30-19.35 Ásmundur Anna Ásmundur Anna Hugleiðsla Ásmundur
Laugard.
Kl. 10.10
til 11.15
Lísa
Ath! 16.20 tímarnir hefjast 21. september!
Næsta grunnnámskeið:
Yoga - brayttur IRsstfll
hefst 6. september.
Mánud. og miðvikud. kl. 20 (7 skipti).
Leiðbeinandi Daníel Bergmann.
Arskort 25.000,
3 mán. 12.900,
1. mán, 5.800,
hálfur mán. 3.200,
stakur tími 600.
Kortum fylgir aðgangur
að tímum á stundaskrá,
tækjasal og saunu.
YOGA^
STUDIO
(D
Yoga - Tæki - Sauna
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560.
<0
HALUR OG SPRUND ehf.
Sími 544 5560 og 864 1445
BIOTONE nuddvörur, Oshadhi 100% hágœöa
ilmkjamaolíur, nuddbekkir frá Custom Craftworks,
nuddplaköt, slökunartónlist, ilmker, bækur o.m.fl.