Morgunblaðið - 05.09.1999, Side 31

Morgunblaðið - 05.09.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 B FRÉTTIR Neytendasamtökin mót- mæla bensínhækkun NEYTENDASAMTÖKIN benda á að enn á ný kemur í ljós skortur á verðsamkeppni milli stærstu olíu- félaganna sem hækkuðu verð á bensíni jafnmikið sama dag í byrj- un vikunnar, segir í ályktun frá samtökunum. „Ákveðin hækkun á bensínverði er eðlileg miðað við hækkun á heimsmarkaðsverði. Neytenda- samtökin telja eftir frumathugun á verðbreytingum á heimsmarkaðs- verði bensíns og útsöluverði hér á landi, að neytendur hafi þurft að þola hækkanir á heimsmarkaðs- verði bensíns með fullum þunga um leið og þær hafa átt sér stað. Neytendur hafa hins vegar oft þurft að bíða í langan tíma eftir að lækkun á heimsmarkaðsverði skil- aði sér í lægra bensínverði. Þetta bendir til að samkeppni sé ekki næg á þessum markaði. Bensínverð er orðið alltof hátt og þar ber ríkisvaldið mikla sök. Skattlagning ríkisvaldsins á bensín er komin út fyrir öll eðlileg og við- unandi mörk. Skorað er á ríkis- stjórnina að takmarka vísitöluáhrif síðustu bensínhækkana með því að lækka álögur sínar á bensín, sem nemur hækkuninni nú eða a.m.k,, sem nemur þeirri hækkun sem rík- isvaldið fær vegna hækkunar olíu- félaganna. Fallist ríkisstjórnin á að lækka álögur á bensín þannig að ríkisvaldið verði af tekjuaukningu síðustu bensínhækkunar mundi bensínverð lækka nú þegar um rúmar 3 krónur lítrinn. Neytendasamtökin telja það eina af frumskyldum ríkisstjórnarinnar að tryggja sem mestan stöðugleika í þjóðfélaginu. Lítil verðbólga og aukinn stöðugleiki hefur fært neyt- endum verulegt hagræði. Mikil hækkun á bensíni hækkar vísitölur verulega og hefur m.a. þá þýðingu, að eignir fjármagnseigenda aukast um rúma 4 milljarða á sama tíma og skuldir heimilanna aukast um sömu rúma 4 milljarða. Þetta ger- ist án þess að nokkur sérstök verð- mætaaukning eða verðmætarýrn- un hafi átt sér stað í þjóðfélaginu. Þessi vísitöluleikur sýnir betur en margt annað fram á vissan fárán- leika og svartar hliðar vísitölukerf- isins. Neytendasamtökin hafa ít- rekað krafist að vísitöluviðmiðun lána verði afnumin eða breytt veru- lega. Neytendasamtökin vekja sér- staka athygli á, að allir þeir þættir, sem ollu óðaverðbólgu á sínum tíma eru enn til staðar í þjóðfélag- inu. Það hefur tekist ekki síst vegna skynsamlegra ákvarðana að- ila vinnumarkaðarins að vinna gegn verðbólgu og koma ástandinu hér í viðunandi horf hvað þetta varðar. Verðhækkanahrina nú er til þess fallin að ýta verðbólgunni af stað aftur. Við því verða stjórn- völd að bregðast í dag með því að lækka bensínverð um þá hækkun, sem varð fyrr í vikunni." Barnadansar Unglingadansar Samkvæmisdansar Tjútt Mambó nín Diskó Merengue Dans ársins Mambó no.5 Wild Wild West Kennslustaðir • Bolholt 6, Reykjavík • Fjölnishúsið Dalhúsum 2, Grafarvogi • Akranes • Hveragerði Innritun og upplýsingar 553 6645 og 568 5045 alla daga kl. 12-19. Opið hús sunnudaginn 5. september kl.14-16 að Bolholti 6 og Fjölnishúsinu Dalhúsum 2 ucimsMUSIAMRNIR iarcus & Raren HWton Systkinaaf sláttur Koma í oKtóber Fjölskylduafsláttur <Ö> DANSSKÓII Jóns Péturs og Köru 1989- 1999 mánudaginn þriðjudaginn 6sept ■ frákLK 7sept ■ frá kl. OE 10:00 til 18:00 09:00 til 16:00 á Grand Hótel Reykjavík ^ 10 Sýningin er ætluð m.a. hönnuðum og tæknimönnum fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana, til kynningar á teikni- og hönnunar- kerfum. Boðió verður upp á fjölda fyrirlestra. 10 Á sýningunni AutoCAD EXP02000 munu Snertill og CAD ehf. sýna markaðsleiðandi hönnunarkerfi á Norðurlöndum sem eru til sölu á íslandi. Meðal sýnenda hjá áðurnefndum fyrirtækjum verða aðilar frá CADPOINT, Cadett, Rasterex, Logicad og SPI. sncRTlll HBI CAD ehf. www.snertill.iswww.hugbun.iswww.cad.is w ^ &

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.