Morgunblaðið - 14.09.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
207. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
A.m.k. 76 fórust þegar sprengja jafnaði átta hæða fjölbýlishús í Moskvu við jörðu
Mikill ótti grípur um
sig meðal íbúa Moskvu
Borís Jeltsín segir hryðjuverkamenn hafa lýst yfír stríði á hendur rúss-
nesku þjóðinni og heitir skjotum og öruggum viðbrögðum stjórnvalda
Moskvu. Rcuters, AFP.
Reuters
Rússneskir björgnnarmenn að störfum á vettvangi sprengjutilræðisins í Moskvu í gær en sprengjan var svo
gífurlega öflug að hún jafnaði átta hæða fjöibýlishús nánast við jörðu.
AÐ MINNSTA kosti sjötíu og sex
fórust í sprengjutilræði í Moskvu,
höfuðborg Rússlands, í gær en
sprengjan var svo öflug að hún jafn-
aði stórt fjölbýlishús við jörðu.
Tveir menn voru handteknir í gær,
grunaðir um aðúd að ódæðinu, en
þetta er í annað skipti á fimm dög-
um sem öflug sprengja springur í
Moskvu með hræðilegum afleiðing-
um. Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, tilkynnti í gær að öryggis-
gæsla yrði aukin til muna í landinu
og kvaðst hann telja að Rússland
ætti nú í stríði við harðsvíraða
hryðjuverkamenn.
Sprengjan sprakk um klukkan
eitt í fyrrinótt að íslenskum tíma,
þegar íbúar átta hæða fjölbýlishúss-
ins í suðurhluta Moskvuborgar,
voru í fastasvefni. Um eitt hundrað
og fimmtíu manns bjuggu í húsinu
og voru nokkrir dregnir úr rústum
þess á lífi skömmu eftir að sprengj-
an sprakk en er leið á daginn var
talið ólíklegt að fleiri fyndust á lífi.
Lögregla kom í veg fyrir
aðra sprengingu
Jeltsín fyrirskipaði auknar ör-
yggisráðstafanir í öllu Rússlandi, en
þó einkanlega í Moskvu. „Hryðju-
verkamennimir hafa lýst yfir stríði
á hendur okkur, rússnesku þjóð-
inni,“ sagði Jeltsín í sjónvarps-
ávarpi í gær. „Við búum nú við sí-
vaxandi ógn vegna hryðjuverka.
Þetta þýðir að við verðum að sam-
eina krafta þjóðarinnar og stjóm-
valda og svæla óvininn út úr bæli
sínu.“
Mikill ótti hefur gripið um sig
meðal íbúa Moskvu enda kemur at-
burðurinn í gær í kjölfar svipaðs
sprengjutilræðis síðastliðinn
fimmtudag, þar sem níutíu og fjórir
fómst og þetta er jafnframt fjórða
sprengjutilræðið í Rússlandi á
þremur vikum. Jeltsín hvatti þjóð
sina hins vegar til að halda ró sinni,
vera á varðbergi og hann hét því að
ódæðismennimir fengju makleg
málagjöld. „Illmenni þessi hafa
skorað okkur á hólm,“ sagði Jeltsín.
„Yfirvöld munu svara fýrir sig
skjótt og örugglega.“
Fréttir, sem bárust í gærkvöldi,
um að lögreglan í Moskvu hefði
komið í veg fyrir annað sprengjutil-
ræði, er hún fann öfluga sprengju
annars staðar í borginni, jók þó á
ótta fólks um að fleiri tilræði verði
gerð á næstu dögum og seint í gær-
kvöldi rýmdi lögreglan fjölbýlishús í
suðurhluta Moskvu af ótta við að
þar hefði verið komið fyrir
sprengju.
Vladímír Pútín forsætisráðherra,
sem var staddur á fundi Efnahags-
samvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafs-
ríkja (APEC) á Nýja Sjálandi, sagði
hins vegar að rússneska þjóðin gæti
ekki sætt sig við að hryðjuverka-
menn héldu henni í heljargreipum.
„Það er eiginlega ekki nóg að kalla
þessa menn skepnur," sagði Pútín.
„Ef þeir era skepnur þá era þeir
líka trylltar skepnur, og koma þarf
fram við þá með tilhlýðilegum
hætti.“
Enginn hefur enn lýst ábyrgð á
ódæðinu á hendur sér og óvíst er
hver stóð á bak við sprenginguna
síðastliðinn fimmtudag. Margir
rússneskir stjómmálamenn kenndu
stríðsherrum í hinum stríðshrjáðu
héraðum Tsjetsjeníu og Dagestan
umsvifalaust um ódæðisverkin en
einn þeirra, Khattab, hafði á sínum
tíma hótað slíkri sprengjuherferð í
Rússlandi. Einn helsti stríðsherr-
ann, Shamil Basajev, kvaðst hins
vegar hvergi hafa komið nærri
sprengjutilræðunum.
■ Bera/26
AP
I Flórída búa menn sig undir
hamfarir, t.d. með því að setja
fyrir alla glugga í húsum.
Fellibylurinn Floyd
Búist við
hinu
versta
Miami. AFP.
FELLIBYLURINN Floyd nálgað-
ist Bahama-eyjar og Bandaríkin í
gær og þá var búist við, að hann
kæmi inn yfir mitt Flórída á næstu
tveimur sólarhringum. Er stormin-
um lýst sem „afar hættulegum" og
óttast, að hann geti valdið miklu
tjóni. Jeb Bush ríkisstjóri lýsti í
gærkvöldi yfir neyðarástandi í
Flórída og era þjóðvarðliðar nú í
viðbragðsstöðu vegna yfirvofandi
veðurofsa.
Bandaríska veðurfræðistofnunin
varaði í gær við Floyd en haldi hann
sömu stefnu gæti hann komið inn
yfir Flórída snemma á morgun.
Fyrst færi hann þó yfir Bahama-
eyjar en þar er alls staðar mikill
viðbúnaður.
Fyrst varð vart við Floyd í síð-
ustu viku en síðan hefur honum vax-
ið mikið ásmegin. Vantar nú lítið á,
að hann komist í 5. flokk fellibylja,
sem era þeir öflugustu og um leið
þeir hættulegustu. Um helgina
komst vindhraðinn í Floyd í 250 km
á klukkustund og í gær var hann
orðinn miklu meiri um sig og næst-
um jafn öflugur og fellibylurinn
Andrew, sem varð 40 manns að
bana og eyðilagði eða stórskemmdi
160.000 hús í ágúst 1992.
Fulltrúar SÞ vilja að fjölþjóðlegt friðargæslulið haldi til A-Tímor sem fyrst
Ottast hungurs-
neyð á A-Tímor
Bondevik
vinnur á
Ósló. Reuiers.
MIÐFLOKKUR Kjells Magn-
es Bondeviks, forsætisráðherra
Noregs, virtist í gærkvöldi
nokkuð hafa aukið fylgi sitt í
sveitarstjórnarkosningum sem
fram fóra í gær en útgönguspár
TV2 bentu til að flokkurinn
fengi 11,4% en fékk 8,5% árið
1995.
Kosningarnar í gær eru
sagðar gefa vísbendingu um
hvort Bondevik á möguleika á
að halda forsætisráðherraemb-
ættinu í næstu þingkosningum,
sem fram eiga að fara 2002.
Fyrstu tölur sýndu að Verka-
mannaflokkur Torbjörns Jag-
lands fær ekki nema 29,6% en
það yrði versta útkoma flokks-
ins síðan á þriðja áratugnum.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evr-
ópusambandsríkjanna ákváðu í gær
að banna alla vopnasölu til Indónesíu
í fjóra mánuði í því augnamiði að
þrýsta á indónesísk stjórnvöld að
virða niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslu í Austur-Tímor sem fram
fór fyrir skömmu, en hún leiddi í ljós
að mikill meirihluti íbúa eyjarinnar
kýs sjálfstæði frá Indónesíu. Fyrr í
gær sagðist Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
staðráðinn í að tryggja að fjölþjóð-
legt friðargæslulið færi til Austur-
Tímor eins fljótt og auðið væri og að
vera þess þar yrði ekki háð neinum
skilyrðum.
Vargöldin á A-Tímor hélt áfram í
gær þrátt íyrir ákvörðun Indónesíu-
stjómar á sunnudag að verða við kröf-
um umheimsins um að friðargæslu-
sveitum yrði leyft að koma til A-
Tímor. Bárast fréttir af því að dauða-
sveitir andstæðinga sjálfstæðis A-
Tímor brenndu hús sjálfstæðissinna
og hrektu þá frá heimilum sínum.
Starfsmenn SÞ á A-Tímor fullyrða
að hungursneyð blasi við á eyjunni
berist íbúum hennar ekki aðstoð hið
fyrsta. Talið er að helmingur þeirra
átta hundruð þúsund manna, sem
búa á A-Tímor, hafi flúið heimili sín
af ótta við dauðasveitirnar sem
gengið hafa berserksgang, og m.a.
hafa margir flúið til fjalla. Þetta fólk
hefur nánast ekkert að bíta og
brenna og var í gær rætt um að flug-
vélar á vegum SÞ myndu varpa mat-
arbirgðum til jarðar úr lofti, til að
koma fólkinu til aðstoðar.
„Við eram staðráðin í að senda
friðargæslulið eins fljótt og hægt er
og án allra skilyrða," sagði Annan
við fréttamenn í New York. Annan
hefur þegar ákveðið að Astralar fari
fyrir friðargæslusveitunum en þing
Indónesíu lýsti hörðum mótmælum
sínum við því í gær og sagði að allir
vissu að Astralar, Portúgalar eða
Ný-Sjálendingar væra ekki hlutlaus-
ir þegar kæmi að málefnum A-
Tímor.
Indónesar setja
engin skilyrði
Ali Alatas, utanríkisráðherra
Indónesíu, sagði hins vegar við kom-
una til New York í gærkvöld, þar
sem hann hugðist eiga fund með
Annan um komu fjölþjóðlegu friðar-
gæslusveitanna til A-Tímor, að
Indónesar myndu engin skilyrði
setja um hverrar þjóðar liðsmenn
sveitanna yrðu.
Ian Martin, æðsti yfirmaður SÞ á
A-Tímor, sagði mikilvægt að viðræð-
ur þeirra yrðu ekki til að draga mál
enn frekar á langinn. „Þessar friðar-
gæslusveitir verða að vera komnar
til A-Tímor afar skjótt eigi að takast
að koma í veg fyrir meiriháttar
hannleik."