Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landssíminn leggur ljósleiðara úr landi til Vestmannaeyja
Morgunblaðið/Jóhann Öm Guðmundsson
Sæstrengnr var lagður frá Bakkafjöru á Landeyjasandi til Vestmannaeyja á sunnudag.
Samband
við næstu
lönd órofíð
HÉÐAN í frá verður ljósleiðarasamband milli
stjómstöðvar Landssímans og meginlands Evr-
ópu og Ameríku órofið, því Landssíminn lagði á
sunnudag Ijósleiðara til Vestmannaeyja. Þaðan
liggur svo Cantat-strengurinn sem tengir Island
við Bretiand og Danmörku annars vegar og
Kanada hins vegar. Gert er ráð fyrir að tengingin
verði tekin í notkun innan fáeinna vikna.
Lagt var af stað frá Bakkafjöru á Landeyja-
sandi klukkan 18 og var komið til Vestmannaeyja
um klukkan 22. Að sögn Ólafs Stephensen, for-
stöðumanns upplýsinga- og kynningarmála
Landssímans, gekk sé erfitt hafsvæði til sæ-
strenglagna vegna mikilla strauma og erfiðra
veðurskilyrða.
Sæstrengurinn er 12,5 kílómetrar að lengd og
vegur um 20 tonn og var dreginn bæði með
pramma og þyrlu. Hann er um 2,5 sentimetra
breiður en meirihluti þess ummáls er kápa og
stálvírar sem styrkja hann en glerþráðurinn
sjálfur er ekki nema einn hundraðasti úr milli-
metra á breidd.
Ólafur segir að þó þurfí talsvert átak til að
strengur sem þessi slitni en það gerist helst ef að
skip fari með veiðarfæri yfir hann. Landssíminn
beini því til sjófarenda að sýna fyllstu varúð á
veiðum þama í kring; kort verði útbúið með ná-
kvæmri staðsetningu strengsins og auk þess
megi finna upplýsingar um legu bæði jarð- og sæ-
strengja á heimasíðu Landssímans.
Aukið öryggi og aukin flutningsgeta
Ljósleiðarinn hefur bæði í för með sér örugg-
ara símsamband Vestmannaeyinga og betra sam-
band íslands við útlönd. Hingað til hefur sam-
band lands og Vestmannaeyja verið örbylgjusam-
band en þessi örbylgja var að verða fullnýtt. Ólaf-
ur segir að nýi ljósleiðarinn hafi í för með sér
aukið öryggi fyrir millilandatenginguna, því ör-
bylgjutengingin verði nú notuð sem varatenging.
Annar kostur við ljósleiðarann sé að nú verði
hægt að fullnýta þá flutningsgetu sem Landssím-
inn eigi í Cantat-strengnum.
Gert er ráð fyrir því að flutningsgeta Cantat-
strengsins endist í nokkur ár, en Olafur segir að
byrjað sé að svipast um eftir nýjum leiðum til að
auka flutningsgetu ennfrekar, því eftirspurn eftir
henni aukist stöðugt. Nýr strengur verði líklega
lagður einhvemtíma á fyrsta áratug nýrrar aldar
til að tryggja samband við útlönd í framtíðinni.
Der Spiegel fjallar
um tollrannsókn á
hestaútflutningi
Peninga-
þvætti einnig
til athugunar
ÞÝSKA vikuritið Der Spiegel
greindi í síðustu viku frá því að toll-
yfirvöld í Þýskalandi rannsökuðu nú
einnig hvort viðskipti með íslensk
hross hefðu einnig verið notuð til
peningaþvættis þar í landi.
I stuttri frétt um málið segir að
maður, sem auðkenndur er sem
norður-þýskur sælkeri, hafi með því
að kaupa hesta á hinu opinbera sýnd-
arverði og selja síðan fyrir raunveru-
legt andvirði „þvegið“ illa fengið fé.
í fréttinni segir að þýski tollurinn
beini nú sjónum að rúmlega þúsund
eigendum innfluttra íslenskra hesta
vegna gmns um svik og vangoldins
skatts. Þeir hafi gefið upp of lágt
kaupverð, um 1.000 mörk eða tæp-
lega 40 þúsund krónur, og greitt
18% innflutningsgjöld og 7% virðis-
aukaskatt af þeirri upphæð. Mark-
aðsvirðið sé hins vegar milli 5.000
og 250 þúsund marka (tæplega 200
þúsund og tæplega tiu milljóna
króna). Þannig hafi skattyfirvöld
orðið af nokkmm milljónum marka.
I frétt Der Spiegel segir að inn-
flytjandi frá NienburgAVeser og ís-
lenskur kaupmaður hafi falsað
reikningana og þannig blekkt toll-
inn við innflutning hrossanna.
Kví Keikós mikið skemmd eftir straumþunga
Morgunblaðið/Sigurgeir
Kví Keikós kubbaðist í sundur á þremur stöðum.
Matvörur hafa
hækkað um 6%
síðasta árið
Verður
minnkuð
um 30%
SJÓKVI háhymingsins Keikós
sem brotnaði undan miklum
straumþunga aðfaranótt laugar-
dags er mikið skemmd og verður
minnkuð um á að giska 30%, að
sögn Halls Hallssonar. Bráða-
birgðaviðgerðir eru hafnar en
þessa stundina er ekki vitað
hvenær endanlegum viðgerðum
Iýkur. Þá er stefnt að því að girða
Klettsvíkina af með neti fyrir vet-
urinn.
Unnið hefur verið að viðgerð-
um alla helgina og í gærdag var
búið að flytja 40% af kvínni til
hafnar, að sögn Halls. Verið er að
skoða með hvaða hætti sé best að
lagfæra sjálfa kvína. „Á þessu
stigi sýnist mér augljóst að kvíin
verður minnkuð frá því sem var.
Þannig að hún verður kannski
70% af upprunalegri stærð.
Við munum leggja alla áherslu á
að koma upp neti til þess að girða
af Klettsvíkina þannig að hægt
verði að sleppa Keikó út í víkina ef
aðstæður kreQast. Við stefnum að
því að þetta net verði sett upp fyr-
ir veturinn,“ segir Hallur. Gangi
þessar áætlanir eftir verður net
strengt frá Klettsnesinu og yfír í
Heimaklett, að sögn Halls, eða um
280 m vegalengd.
Hallur segir að kvfin hafi kubb-
ast sundur á þremur stöðum og
að tveir 36 tommu bitar sem
binda kvína hafi gefið sig. Veðrið
hafi þó ekki verið með versta
móti heldur afar straumþungt
eins og vill verða í suðvestanátt.
Ljóst er að tjónið á kvínni er um-
talsvert. „Það mun kosta mikla
peninga að setja þetta upp að
nýju. Milljónir," segir Hallur.
Aukin eftirspurn
eftir banönum
Veldur verð-
hækkun hér
VÍSITALA neysluverðs mældi 11%
hækkun á verði ávaxta milli júlí- og
ágústmánaðar og samkvæmt upplýs-
ingum Sölufélags garðyrkjumanna á
40% verðhækkun á banönum sinn
þátt í þeirri hækkun.
Að sögn Pálma Haraldssonar,
framkvæmdastjóra Sölufélagsins,
hefur verð á banönum, sem er sú
tegund ávaxta sem mest er flutt inn
af, hækkað mikið í verði í Evrópu frá
því í vor. Sé það bæði vegna minna
framboðs og þeirrar auknu eftir-
spurnar sem geri yfirleitt vart við
sig þar á þessum árstíma. Þegar
hlýjast sé í veðri seljist minna af
banönum en en þegar kólna tekur
aukist sala til muna. Eins aukist sala
á þeim mikið á haustin þegar skólar
byrji því algengt sé að böm fái þá
með sér í nesti.
MATVARA hefur hækkað að með-
altali um 6% síðustu tólf mánuði
samkvæmt mælingum vísitölu
neysluverðs, sem Hagstofa íslands
reiknar út. Hækkunin er um einu
prósentustigi meiri en nemur
hækkun vísitölunnar á sama tíma-
bili og aðeins húsnæðisliður vísitöl-
unnar og bensín hafa hækkað meira
en matvaran síðustu tólf mánuði.
Hækkunin er aðeins minni ef óá-
fengir drykkir eru einnig teknir
með eða sem nemur 5,3% að meðal-
tali.
Síðustu tólf mánuði eða frá því í
september í fyrra hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 4,9% að
meðaltali. 17,3% hækkun bensíns
og olíu og 12,8% hækkun húsnæðis
á undanfömum mánuðum hafa ráð-
ið mestu um þessa hækkun vísitöl-
unnar, en samanlagt má rekja 2,2
prósentustig af hækkun hennar til
þessara tveggja liða. Þar á eftir
koma matvörur, en þær vega 14,9%
í grunni vísitölu neysluverðs og
17% þegar drykkjarvörur eru
einnig teknar með.
Samanlagt hefur matvöruliður-
inn hækkað vísitöluna um 0,9 pró-
sentustig síðasta árið. Af einstök-
um liðum hefur grænmeti hækkað
mest frá því í september í fyrra eða
um 8,7%, innfluttar mat- og drykkj-
arvörur hafa hækkað um 6,6%, inn-
lendar mat- og drykkjarvörur aðr-
ar en búvörur og grænmeti hafa
hækkað um 5,6% og búvörur hafa
hækkað um 3,9%.
Aðrir liðir
hækka minna
Aðrir liðir vísitölunnar hafa
hækkað minna en matvöruliðurinn
í heild á síðustu tólf mánuðum.
Liðurinn önnur þjónusta hefur
hækkað um 4,6% og opinber þjón-
usta um 4%. Aðrar innlendar vör-
ur en matvörur hafa hækkað um
2,2% og innfluttar vörur aðrar en
matvörur og bíll og bensín eru
óbreyttar í verði frá því fyrir tólf
mánuðum. Bílar hafa hækkað um
1,4% í verði að meðaltali og áfengi
og tóbak hefur hækkað um 1,5%
frá því fyrir ári.
gslóio
Kanarí um jólin
20. - 30. desember
Jólaferö til Kanaríeyja sem
gerir þér kleift að njóta
sólarinnar í dimmasta
skammdeginu en ná þó Samvinnuferðir
aldamótagleðinni heima. Landsýn
Á verði fyrir þigl
Breytingar á vísitölu matvöru í vísitölu neysluverðs
september 1998 til september 1999, mars 1997=100