Morgunblaðið - 14.09.1999, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fráfarandi formaður íbúasamtaka Þingeyrar gagnrýnir atvinnumál í byggðarlaginu
Stefnt að því
að gera Fjölni
að öflugu
fyrirtæki
Á fjölmennum borgarafundi á Þingeyri á
sunnudag var gerð grein fyrir þeim áform-
um sem uppi eru um atvinnuuppbyggingu
á staðnum. Gagnrýni kom fram á fundinum
á stöðu mála.
HARALDUR Líndal Haraldsson,
ráðgjafi um atvinnuuppbyggingu á
Þingeyri, kvaðst á almennum íbúa-
fundi á Þingeyri á sunnudag telja að
fiskvinnslufyrirtækið Fjölnir væri
traust og til þess fallið að stuðla að
atvinnuöryggi á staðnum. „Eg er
sammála sparisjóðsstjóranum á
Þingeyri um að innan skamms tíma
verði þetta með öflugri fyrirtækjum
á Vestfjörðum,“ segir Haraldur. Á
fundinum sagði Ragnheiður Ólafs-
dóttir af sér formennsku í stjórn og
úr stjórn íbúasamtakanna Átaks á
Þingeyri. Hún gagnrýndi einnig
harðlega sölu Sléttanessins, hvernig
staðið var að stofnun Fjölnis og
þingmenn kjördæmisins fyrir vinnu-
brögð í því sambandi.
„Eg gagnrýndi öll þau vinnubrögð
sem viðhöfð hafa verið til þessa dags
gagnvart atvinnumálum hér, bæði
frá bæjarstjórn, þingmönnum og
ráðgjafa um atvinnuuppbyggingu á
Þingeyri. Það hefur ekkert samráð
verið haft við stjórn íbúasamtakanna
um þau mál sem við lögðum til í upp-
hafi þessarar vinnu,“ segir Ragn-
heiður.
Vart svaraverð gagnrýni
Haraldur kveðst vart vita hvernig
bregðast eigi við ræðu Ragnheiðar á
fundinum, hún sé tæpast svaraverð.
Hann hafi átt í ágætum samskiptum
við hana fram til þessa og því hafi
málflutningur hennar komið sér
mjög á óvart.
„Ræðan var alls ekki í samræmi
við fundinn, sem var að öðru leyti já-
kvæður að mínu mati. Eg held raun-
ar að ræðan hafi komið mjög illa við
alla fundargesti og fólk hefur komið
að máli við mig eftir fundinn og
beðist velvirðingar á því sem fram
kom í hennar máli. Ragnheiður
gagnrýndi það m.a. að fyrirtæki sem
var stofnað fyrir mánuði sé ekki
komið af stað. Hún verður að gera
sér grein fyrir að fyrirtækið mun
hefja störf innan þriggja vikna og ég
held að það sé eðlilegur tími að fyrir-
tæki af þessu tagi hafi einn til tvo
mánuði til undirbúnings áður en
starfsemi hefst. I tvígang hafa helstu
fyrirtæki á Þingeyri farið í greiðslu-
þrot og gjaldþrot, og þar af leiðir að
mjög mikilvægt er að okkar mati að
byggja upp fyrirtæki sem byggist á
traustum grunni. Það má segja að
flokka megi fyrirtæki í tvennt, ann-
ars vegar þau sem byggjast upp á
þrautseigju og seiglu, og hins vegar
fyrirtæki, sem verða stór strax en
með veikan fjárhag. Eg held að
Rauðsíða flokkist undir seinni skil-
greininguna, og það var mat okkar
að ekki væri rétt að fara af stað með
•ö-wsæ-.uuD
WKCBVSI
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
RAGNHEIÐUR Olafsdóttir, fráfarandi formaður íbúasamtakanna Átaks, steig í pontu og átaldi harðlega
þingmenn Vestfirðinga, bæjarstjórn og ýmsa aðra sem komið hafa að atvinnuuppbyggingu þar.
slíkt fyrirtæki, heldur byrja fremur
með minni einingu en styrkari stöðu.
Sú leið var farin við stofnun Fjölnis,"
segir Haraldur.
Halldór Halldórsson bæjarstjóri
segir að Ragnheiður hafi brotið
fundasköp á íúndinum á Þingeyri, þar
sem hún hafi talað undir liðnum „önn-
ur mál“ og eftir að hún hefði lokið sér
af hefði mælandaskrá verið lokað og
hún slitið fundið. „Hún þverbraut öll
fundasköp og það var mjög óheiðar-
lega staðið að þessari gagnrýni að
mínu mati. Efnislega er hins vegar
ekki hægt að tjá sig um það sem
Ragnheiður sagði, því að það ein-
kenndist af skítkasti og sundurlausu
þvaðri,“ segir Halldór og kveðst ekki
vilja efna til orðskaks við Ragnheiði.
Haraldur sagði að við val á sam-
starfsaðila hafi verið horft til þess
að hann hefði yfir nægum kvóta að
ráða, væri fjárhagslega sterkur og
hægt væri að bera traust til hans og
væntanlegir fjárfestar væru tilbúnir
að veðja á með því að að leggja fram
áhættufé. „Þegar við vorum búnir
að fara í gegnum þá þætti sem
skiptu mestu máli, komumst við að
þeirri niðurstöðu að Vísir væri
heppilegasti kosturinn. Reynslan
hefur sýnt okkur að mínu mati að
það mat var rétt,“ segir Haraldur.
„Síðasta aftakan"
Ragnheiður kvaðst telja byggðar-
lagið hafa lent í margvíslegum
hremmingum en „síðasta aftakan"
hafi farið fram síðastliðinn laugardag,
þegar Sléttanesið sigldi frá Þingeyri.
„Eg stóð á bryggjunni og grét yfir því
ranglæti sem við erum beitt, ekki
bara skipverjar og fjölskyldur þeirra,
heldur og allt það atvinnulausa fólk
sem vann í Rauðsíðu og Unni ehf. og
vegna uppsagna starfsfólks Sand-
fells,“ sagði Ragnheiður á fundinum.
„Það er oft gott að fá nýtt blóð í
byggðarlög, en það þarf ekki að slátra
heimafólki fyrir því. Það hefur verið
logið að okkui- hjónum af bæjarstjóra
sem handsalaði við mig á heimili sínu,
að Sléttanesið og kvóti yrðu aldrei
seld út úr fjórðungnum. Þá var hann
einnig varaformaður Básafells og sat
því beggja megin borðs og hlaut að
vita um sölu Sléttaness. Hann þóttist
ekki einu sinni vita um sölu kvóta
skipsins."
Á fundinum kvaðst hún einnig
telja óþef af því að fimm aðilar sem
hún sagði tengda bæjarstjórn hefðu
keypt hlutabréf í hinu nýja fyrirtæki,
Fjölni, sem fékk sk. byggðakvóta til
ráðstöfunar.
Haraldur nefnir það einnig að aðild
að Fjölni eigi opinberir aðilar á borð
við Byggðastofnun og einkaaðilar á
borð við Burðarás og Vísi, auk
margra einstaklinga. „Ég held að
þetta sé mjög skemmtileg blanda af
einkaaðilum og opinberum aðilum
sem taka höndum saman í byggðar-
málum og ég vildi sjá meira af slíku
samstarfi. Eg held að það hljóti að
vera byggðarlagi eins og Þingeyri til
framdráttar og raunar Vestfjörðum
öllum, þegar hálfur milljarður króna
er lagður inn í byggðarlagið til fjár-
festingar í kvóta eins og stefnt er að,“
segir Haraldur.
Um fimm milljónir Eþíópíumanna horfast í augu við hungur
Neyðarhjálp
berst frá Islandi
„ Morgunblaðið/Hjálparstarf kirkjunnar
Islendingar hafa starfað að þróunar- og kristniboðsstarfi í suðurhluta
Eþíópíu í nærri hálfa öld og lagt lið þegar hungursneyð ríkir.
FORRÁÐAMENN Hjálparstarfs
kirkjunnar hafa ákveðið að senda
tvær milljónir króna til Eþíópíu
vegna þurrka og hungursneyðar sem
þar geisar. Alþjóðlegar hjálparstofn-
anir telja að yfir 5 milljónir manna
séu í neyð. „Ég óttast að nú sé að
endurtaka sig sama sagan og árin
1984 til 1986 þegar um ein milljón
manna varð hungursneyð að bráð
vegna þess að viðbrögð umheimsins
við ákalli um aðstoð voru alltof hæg,“
sagði Jónas Þórisson, framkvæmda-
stjóri Hjálparstarfsins, í samtali við
Morgunblaðið.
Framlagi Hjálparstarfs kirkjunn-
ar verður varið til kaupa á korni og
munu starfsmenn ACT, alþjóðlegrar
neyðarhjálpar kirkna, sjá um dreif-
ingu þess. Jónas segir að aðildarlönd
ACT muni verja kringum 1,5 millj-
örðum króna til kaupa á komi,
greiða kostnað við flutninga og dreif-
ingu og ýmsan annan kostnað við
hjálparstarfið. Árin 1974 til 1976 og
aftur 1984 til 1986 ríkti hungursneyð
í Eþíópíu og er talið að á fyrra tíma-
bilinu hafi nokkur hundruð þúsunda
manna látist og kringum ein milljón
á því síðara.
„Stór hluti íbúa Eþíópíu reiðir sig
á landbúnaðinn sér til framfæris.
Þetta er eitt fátækasta ríki jarðar og
þegar rigningar hafa brugðist í
meira en ár eins og nú þá þola þeir
ekki slíkt áfall sem uppskerubrestur
er. Vegna fátæktar og hins veika
efnahagskerfis landsins verður það
að leita aðstoðar frá öðrum löndum,“
segir Jónas. „Orsakirnar eru líka
þær að lítið hefur verið fjárfest í
landbúnaði og framfarir eru hægar
og þess vegna er landið ekki í stakk
búið til að mæta áföllum sem þess-
um.“
Erfítt að ná eyrum umheimsins
Jónas, sem starfaði að kristniboðs-
og hjálparstörfum i Eþíópíu um 14
ára skeið, tók meðal annars þátt í
neyðaraðgerðunum í fyrri hung-
ursneyðunum sem nefndar voru. „í
fyrra skiptið tókst að ná athygli um-
heimsins nokkuð fljótt og matvæli
bárust fljótt, meðal annars frá ís-
lendingum og því tókst að bjarga
miklu. Samt sem áður létust nokkur
hundruð þúsunda manna. í síðara
skiptið barst hjálpin einfaldlega of
seint og því urðu svo margir hungr-
inu að bráð, eða kringum ein milljón
manna. Þá sváfu menn einfaldlega á
verðinum.“ Jónas segir að í kjölfarið
hafi verið komið á eins konar viðvör-
unarkerfi, að leitað yrði eftir hjálp
strax og fyrstu merki um uppskeru-
brest kæmu í ljós. Þetta hefði leitt til
þess að fyrir meira en hálfu ári hefðu
hjálparsamtök vakið athygli á að
hverju stefndi. „En það er erfitt að
ná eyrum umheimsins sem hefur
kannski verið upptekinn af öðrum
heimsmálum og þrátt fyrir að þessar
viðvörunarbjöllur hafi hringt í hálft
ár virðast fáir hafa heyrt þær.
Kirkjuhjálparsamtökin á Norður-
löndum hafa sameinast um að senda
15 þúsund tonna kornskip til Eþíópíu
og ég geri ráð fyrir að það komist af
stað næstu daga.“
Tengsl íslendinga og Eþíópíu-
manna hafa verið mikil að sögn
Jónasar, m.a. gegnum starf Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga í
nærri 50 ár. Þá hefur Hjálparstarf
kirkjunnar oftsinnis í 30 ár stutt við
þróunar- og hjálparstarf í suðurhluta
landsins. Þar hafa verið byggðir skól-
ar, heilsugæslustöðvar, vatnstankar
og fleira. Helgi Hróbjartsson kristni-
boði er nú að störfum í Eþíópíu.
Biskup íslands, Karl Sigurbjörns-
son, vísiteraði eþíópsku Mekane
Jesús-kirkjuna í maí síðastliðnum en
hún er stofnuð fyrir tilverknað
kristniboðs Islendinga. Kirkjan hef-
ur verið samstarfsaðili Hjálparstarfs
kirkjunnar í þróunarstarfinu og seg-
ir Jónas það ekki síst liggja í hvers
konar fræðslu. Segir hann þýðingar-
mikið að fræða foreldra um gagn-
semi menntunar og að fá börn til að
stunda skólann.
Hjálparstarf kirkjunnar sendir
gíróseðla með fréttabréfi sínu til
styrktarmanna næstu daga og segir
Jónas að koma megi framlögum til
Hjálparstarfs kirkjunnar í bönkum
og sparisjóðum á reikning nr. 1150-
26-27 í SPRON.
Samtökin Afl fyrir
Austurland
Fjöldi fé-
lag'smanna
nálgast
2000
EINAR Rafn Haraldsson, formað-
ur samtakanna Afl fyrir Austur-
land, segir að fjöldi þeirra sem hafi
skráð sig í samtökin sé farinn að
nálgast 2000 manns.
A stofnfundinum sem haldinn
var fyrir tveimur vikum skráðu um
1200 manns sig í samtökin og síðan
hafa skráningarlistar legið víða á
Austurlandi. Listarnir verða tekn-
ir saman fljótlega og segist hann
búast við því að nákvæmur fjöldi
félagsmanna liggi fyrir í næstu
viku.
Einar segir að tilgangur sam-
takanna hafi meðal annars verið að
koma á vitrænni umræðu um
virkjunarmálin og finnst honum
hafa miðað nokkuð í þá átt. Sam-
tökin hafi fengið þá athygli sem til
var ætlast og finnst honum að mál-
flutningu þeirra hafi fengið meiri
umfjöllun en áður. Það er hans
mat að stofnun félagsins hafi orðið
til þess sjónarmið félagsins birtist
oftar í fjölmiðlum. Með þeim hætti
megi hafa áhrif á almenningsálitið.