Morgunblaðið - 14.09.1999, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Nútíma
i nn hei mtuaöferðir
VIDSKIPTI
Samningur Flugleiða og UPS um hraðsendingar
intrum \ li justitia
I N K A S S O
V__________________________
Ljósakrónur
Borðstofuhúsgögn
Borðstofuhúsgögn
Ljósakrónur
Nýkomnar vörur frá
Danmörku
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Kennsla í
byrjenda- og
framhalds-
flokkum hefst
dagana 20. til
25. september
nk. 10 vikna
námskeið.
LU
Skákskóli
í S L A N D S
Alþjóðlegir
titilhafar
annast alla
kennslu.
Kennt verður frá kl. 17.00-19.00 virka daga og
frá kl. 11.00-12.30, 12.30-14.00 og 14.00-16.00
um helgar.
Kennslubækur innifaldar í öllum flokkum.
Nánari upplýsingar og skráning alla virka daga frá
kL 10.00-13.00 ísíma 568 9141.
Flogið milli Reykja-
víkur og Englands
FLUGLEIÐIR hf. og United
Parcel Service-hraðsendingafyrir-
tækið (UPS) hafa gert með sér
samning um flug með hraðsend-
ingar milli Reykjavíkurflugvallar
og East Midlands flugvallar í Mið-
löndum Englands. Flogið verður á
virkum dögum frá Reykjavík
klukkan 17, en komutími til
Reykjavíkur verður klukkan 7:45
að morgni, og er íyrsta flug hinn
13. september næstkomandi, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Flugfrakt Flugleiða.
Amgeir Lúðvíksson, forstöðu-
maður Flugfraktar Flugleiða, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
UPS reki flokkunarmiðstöð á East
Midlands-flugvelli, sem tengist
heims hraðsendingar- og afhend-
ingakerfi UPS gegnum tengingu
við Evrópumiðstöð UPS í Köln.
Flugfrakt Flugleiða flaug áður til
Kölnar og voru hraðsendingar
UPS fluttar með því flugi. Nú hef-
ur fraktflug Flugleiða hf. til Köln-
ar verið lagt niður, en í staðinn
kemur áætlunarflug með flugfrakt
sex daga í viku til Liége í Belgíu.
Flugfélag Islands hf. mun ann-
ast fraktflug til East Midlands-
flugvallar fyrir hönd Flugleiða, og
Flugleiðir hf. flytja hraðsendingar UPS til og frá East Midlands flug-
velli með Metro 23 flugvél Flugfélags íslands. Frá vinstri eru Ámi
Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen, Anders Holm, fram-
kvæmdastjóri UPS á Norðurlöndum, og Amgeir Lúðvfksson, forstöðu-
maður Flugfraktar Flugleiða.
verður Metro 23 flugvél félagsins UPS á íslandi er TVG-Zimsen hf.,
notuð í þeim tilgangi. Umboðsaðili segir í fréttatilkynningunni.
VISA
Athugið systkinaafiláttinn
GÓÐIR í LEIKSKÓLANN
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
Mjúkt innlegg
Stamor hrágúmmísóli
Vérð aðeins kr* 1 *995, áður-3r9957-
Franskur rennilás
Litir: Rauðir m/gulu
og grænu eða
gulir m/rauðu
og grænu.
Stærðir: 23-35
Sjóðfélagafundur
Séreignalífeyrissjóðsins
Stjórn Séreignalífeyrissjóðsins boðartil sjóðfélagafundar
21. september 1999 kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn
í Búnaðarbanka íslands að Hafnarstræti 5, 4. hæð.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Fundarsetning
2. Ávarp formanns
3. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
4. Önnur mál
Stjórn Séreignalífeyrissjóðsins vill hvetja sjóðfélaga til
að mæta á fundinn.
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
-byggifátrausti
Sífellt meira reiðufé í umferð þó æ fleiri noti greiðslukort
Reiðufé vísbending
um svört viðskipti
ÞÓ æ fleiri noti greiðslukort í stað
reiðufjár er sífellt meira reiðufé í
umferð, til dæmis í Danmörku og
Svíþjóð. A þessu er engin einhlít
skýring en Friedrich Schneider
prófessor í hagfræði við Johannes
Kepler-háskólann í Linz ályktar
sem svo að það gefi vísbendingu
um umfang svartra viðskipta, það
er viðskipta, sem fara fram utan
sjónmáls skattkerfisins.
Aðferðin er vel þekkt og með
henni kemst Schneider að þeirri
niðurstöðu að umfang skattstolinna
viðskipta í 17 OECD-löndum sé um
fimmtán prósent, sem er mun
hærra en almennt er talið. Niður-
stöður Schneiders hafa vakið mikla
athygli, meðal annars í Svíþjóð og
Danmörku, þó menn séu ekki á
einu máli um hvort þeim sé að
treysta.
Rýnt í hagtölur með
augum leynilögreglu
Það liggur í hlutarins eðli að þar
sem svarta hagkerfið liggur utan
eftirlits eru engar áreiðanlegar töl-
ur um veltuna þar. Bæði í Dan-
mörku og í Svíþjóð hefur einkum
verið byggt á viðtalsupplýsingum,
þar sem fólk er með aðferðum
skoðanakannana spurt út í við-
skipti utan skattkerfisins. í þess-
um tveimur löndum hefur verið
giskað á að umfang svarta hagkerf-
isins sé 3-6 prósent.
Schneider fer allt öðru vísi að, þó
hann beiti reyndar einnig viðtölum.
Hans skilgreining er að um svarta
hagkerfið fari öll virðisskapandi
vinna, sem opinberar hagtölur nái
ekki til, hvort sem um er að ræða
iðnaðarmanninn, sem ekki gefur
vinnuna upp eða glæpsamlegt at-
hæfi. Heimilisstörf unnin af heimil-
isfólki og sjálfboðavinna telst ekki
til svarta hagkerfisins.
í svarta hagkerfinu gerir
Schneider ráð fyrir að fyrst og
Ný en umdeild rann-
sókn á umfangi skatt-
stolinnar vinnu sýnir að
í háskattalöndum er
miklu stolið undan, seg-
ir Sigrún Davíðsdóttir.
Niðurstöðurnar benda
til að umfang slíks
sé um 15% í 17
OECD-löndum.
fremst sé greitt í reiðufé, svo hann
kannar reiðufé í umferð, dregur frá
þekktar stærðir úr hagtölum og
það sem þá er umfram af reiðufé
ályktar hann að tilheyri svarta
hagkerfinu. í hagkerfum þróunar-
landa gilda aðrar aðstæður og þar
beitir hann öðrum aðferðum.
Umdeildar niðurstöður - vax-
andi vilji til að vinna svart
í hópi 17 OECD-landa, þar sem
ísland er því miður ekki á blaði,
kemur í ljós að löndin, sem
Schneider álítur hafa stærstu
svörtu hagkerfin, eru Grikkland
með tæp 30 prósent og Ítalía,
Spánn og Belgía á bilinu 22-27 pró-
sent. í 5., 6. og 7. sæti koma Sví-
þjóð, Noregur og Danmörk, þar
sem umfangið í Svíþjóð er metið 20
prósent af þjóðarframleiðslu og 18
prósent í Danmörku.
Þessar tölur eru miklu hærri en
danskar og sænskar rannsóknir
hafa sýnt. Sumir hagfræðingar
segja muninn meiri en svo að nið-
urstöður Schneiders séu trúverð-
ugar, en aðrir að aðferð hans sé í
raun góð og gild. Það hefur líka
komið í ljós í þessum löndum að
viljinn til að vinna svart eykst,
yngra fólk er viijugra til að vinna
svart og fólk er óragara en áður við
að viðurkenna að það noti svarta
vinnu eða vinni sjálft svart.
Þegjandi samþykki
stjórnmálamanna
I samtali við Svenska Dagbladet
segir Schneider að svört vinna sé
orðin nokkurs konar þjóðaríþrótt.
Það séu ekki bara nokkrir atvinnu-
leysingjar, stöku óheiðarleg íyrir-
tæki og ólöglegir innflytjendur,
heldur líka venjulegt fólk, sem nýti
svarta möguleika til að vinna sér
inn fyrir sumarfríi, nýjum bíl eða
öðrum gæðum.
Einmitt sökum þess hve margir
nýta sér svarta vinnu segir
Schneider að stjórnmálamenn
hiki við að taka á málinu, en líka
vegna þess að um 2/3 hlutar
svarta ágóðans skili sér inn í opin-
bera hagkerfið og haldi uppi eftir-
spurn þar. Svört vinna sé þegj-
andi andóf almennings sem geti
ekki nýtt sér löglegar undan-
komuleiðir skattkerfísins eins og
þeir vel stæðu. Um leið verði
svört vinna nokkurs konar óopin-
ber skattaafsláttur.
í huga Schneiders eru það
grundvallarmistök að skattleggja
vinnu jafn hátt og raun ber vitni í
háskattalöndum. Þó ekki sé hægt
að hugsa sé að leysa mætti vanda
20 milljóna atvinnulausra í Evrópu
með því að svört vinna yrði hvít sé
það freistandi að álykta að breytt
skattastefna gæti dregið úr at-
vinnuleysi og svartri vinnu.
En hvað með Schneider sjálfan,
vinnur hann svart? Hann segir svo
ekki vera, enda væri það bíræfið
að vinna svart og stunda rann-
sóknir á svarta hagkerfínu. Hins
vegar segist hann ekki heilagri en
aðrir landar hans og hefur því hús-
hjálp, sem hann greiðir óopinber-
lega fyrir.