Morgunblaðið - 14.09.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 21
Jafnaðarmenn í Þýskalandi bíða mikinn ósigur í kosningum í Thíiringen
Schröder ítrekar
niðurskurðinn
Minni
frjó-
semi
ísbj arna
Gæti stefnt stofn-
inum í hættu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NÝJAR danskar rannsóknir
benda til að þrávirk efni safnist
saman í grænlenskum ísbjörnum
og dragi úr viðgangi stofnsins.
Christian Sonne-Hansen, dýra-
læknir hjá „Danmarks Miljound-
ersagelser", DMU, segir í samtali
við Morgunblaðið að rannsóknin
sé enn skammt á veg komin, en
vísbendingarnar séu skuggalegar.
I rannsókninni verða athugaðir
um hundrað ísbirnir, sem veiði-
menn í Scoresbysund, Ittoqqor-
toormiit, munu í ár og á næsta ári
veiða og láta vísindamenn á DMU
hafa sýni úr þeim. í fyrstu sýnun-
um, sem eru úr fjórum dýrum,
eru vísbendingar um að eitt dýr-
anna sé með vansköpuð kynfæri
er bendi til að dýrið sé tvíkynja.
Þar sem slíkt er mjög sjaldgæft
og áður hafa fúndist vísbendingar
í þessa átt eru vísindamennirnir
er að rannsókninni standa ugg-
andi um að tvíkynun fari vaxandi
vegna mengunar þrávirkra efna.
Það hefur verið vitað um
nokkra hríð að þrávirk efni safn-
ast fyrir í miklu magni á heim-
skautssvæðunum. Christian
Sonne-Hansen segir að rannsókn-
in nú beinist að ísbjörnum, en um
fiskistofna sé erfíðara að segja og
áhrif á þá séu ekki metin í þessari
rannsókn.
ísbirnir á Austur-Grænlandi og
á Svalbarða hafa að sögn Berl-
ingske Tidende heimsmet í inni-
haldi PCB, þrávirks efnis, sem
dregur úr mótstöðuafli og frjó-
semi. Þar sem ísbirnir eru ofar-
lega í fæðukeðjunni og lifa á stór-
um dýrum eins og sel, sem hefur í
sér mikið af þrávirkum efnum, fá
ísbirnir óhjákvæmilega mikið í sig
af þessum efnum. Efnin sitja í
fitulagi dýranna. Ef áhrif efnanna
eru í þá átt að draga úr frjósemi
geta langtímaáhrif verið þau að
ísbjarnarstofninum verði hætt við
útrýmingu. Á Grænlandi er talið
að séu á milli fimm og tíu þúsund
ísbirnir, en á öllu Norðurheim-
skautinu er giskað á að séu allt að
100 þúsund ísbirnir.
Vetror- og
sumordekk
Berlín. AFP, Reuters.
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, hét því í gær að halda
niðurskurðaráformum ríkisstjómar
sinnar til streitu, þrátt fyrir hrak-
farir jafnaðarmanna í sambands-
landakosningum upp á síðkastið.
„Við munum ekki bregðast þeirri
skyldu okkar að draga úr opinber-
um skuldum," sagði Schröder við
blaðamenn í gær. Jafnaðarmenn
biðu mikinn ósigur í kosningum í
sambandslandinu Thiiringen á
sunnudag og sömuleiðis í sveitar-
stjórnarkosningum í Nordrhein-
Westphalen.
Einungis er vika liðin frá því að
flokkur Schröders galt afhroð í
kosningum í Saarlandi og Branden-
burg og var kosninganna í Thiir-
ingen því beðið með nokkurri eftir-
væntingu. Jafnaðarmenn höfðu set-
ið þar í stjóm ásamt kristilegum
demókrötum (CDU) en niðurstaða
kosninganna varð sú að CDU náði
hreinum meirihluta. Urðu jafnaðar-
menn að sætta sig við að verða
þriðji stærsti flokkur Thiiringen
þar sem vinstriflokkurinn PDS
hlaut fleiri atkvæði.
Hans Eichel, fjármálai’áðherra
Þýskalands, sagði jafnaðai-menn
geta sjálfum sér um kennt. Hávær
ágreiningur innan flokksins um rík-
isfjármál og niðurskurð hefði fælt
kjósendur frá. Stjórn Schröders
stefnir að því að skera niður ríkisút-
gjöld um 30 milljarða marka á
næstu árum, m.a. með því að frysta
lífeyrisgreiðslur og skerða atvinnu-
leysisbætur.
Hefur vinstri vængur flokksins
sett sig upp á móti þessum áform-
um. Eichel sagði að þótt niður-
skurðurinn væri sái’saukafullur þá
væri hann eigi að síður nauðsynleg-
ur. Taldi hann jafnaðamienn ekki
hafa komið því nægilega skýrt á
framfæri við kjósendur hvers vegna
ráðast yrði í slíkar aðgerðir.
Um næstu helgi verður kosið í
Sachsen og 10. október í Berlín.
Kristilegir demókratar hafa fyrst
og fremst notið góðs af óvinsældum
stjórnar Schröders og bætt stöðu
sína verulega í Sambandsráðinu,
efri deild þýska þingsins. Hyggst
CDU nýta sér að jafnaðarmenn hafi
þar ekki lengur hreinan meirihluta
til að hafa áhrif á sparnaðaráform
stjórnai’innar.
HAMARKAÐU ARANGUR OG AVINNING MEÐ AÐFERÐUM OG RAÐUM SEM VIRKA!
NÁMSTEFNUR
FVRIR STJORNENDUR OG STARFSFÓLK
SKRÁNING ER HAFIN • TAKMARKAÐUR FJÖLDI ÞÁTTTAKENDA • SKRÁÐU NG í DAG
OR. PAUL R. TIMM
er prófessor við
Marriott School
of Managment
og hefur skrifað
hátt í 50 bækur
um þjónustu,
árangur og
stjórnun.
Hann er íslend-
ingum að góðu kunnur enda hafa
rúmlega 3.000 manns sótt nám-
stefnur hans hér á landi síðan
1995. Hann er frábær fyrirlesari og
talar skýra ensku sem allir skilja.
Hann notar nýjustu tækni við fram-
setningu og beitir húmor óspart.
DR. SHERRON
BIENVENU
er prófessor við
Emory háskóla
og eftirsóttur
fyrirlesari og
ráðgjafi.
Meðal viðskipta-
vina hennar eru
Lockheed Martin,
AT&T, MCI og
BellSouth. Viðtöl við dr. Bienvenu
birtast reglulega á sjónvarps-
stöðvunum CNN, CBS, ABC, NBC
og CNBC. Hún vakti mikla athygli
hér á landi sl. vor þegar hún var
með sérstaka námstefnu fyrir
konur, sem hún endurtekur nú
vegna fjölda áskorana.
(sem komu fram í námstefnumati)
„Áhugaverðir, fróðlegir og skemmti-
legir fyrirlesarar sem settu efnið
fram á mjög áhugaverðan hátt.“
„Spennandi efni og skemmtilegir
fyrirlesarar sem héldu athyglinni
allan tímann
„Þetta eru námstefnur sem óhætt
er að mæla með við alla sem vilja
gera betur. Mæli með þeim. “
„Frábær frískun. Fyrirlesararnir fá
bæði hæstu einkunnn mína.“
SKRAÐU ÞIG I DAG
í næstu viku býðst þér og samstarfsfólki þfnu að sækja fjórar
frábærar námstefnur, sem færa ykkur hagnýt ráð, aðferðir
og hugmyndir sem hægt er að beita strax til að auka árang-
ur, velgengni og farsæld í starfi. EKKIMISSA AF ÞEIMI
Námstefnumar eru hnitmiðaðar (aðeins 3 klst. hver) og við það miðað að
þú fáir þekkinguna beint í æð! Þú getur skráð þig á hverja þeirra eða skráð
þig á nokkrar og notið sérkjara. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Skráning
er hafin. Skráðu þig og starfsfélagana f dagl Við ábvrgjumst ánægju þfnal
Námstefnumar verða haldnar á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
MIÐVIKUDAGURINN SS. SEPTEMBER
BESTU AÐFERÐIR í ÞJÓNUSTU (VIÐSKIPTATRYGGÐ)
KI. 9 -12 Hvemig á að veita úrvals þjónustu og auka viðskiptatryggð!
Þú lærir grundvallaratriði úrvals þjónustu, hvemig á að fara
framúr væntingum viðskiptavina og byggja upp sigurlið!
FYRIRLESARl: DR. PAUL R. TIMIM
ÁRANGURSRIKAR KYNNINGAR OG FRAMKOMA - NYTT
Aukið öryggi og trúverðugleiki f sölu og kynningum fyrir við-
skiptavini og f samskiptum við starfsfólk og samstarfsaðila!
Framkoma, myndræn framsetning, öryggi og samskiptahæfni.
FYRIRLESARl: DR. SHERRON BIENVENU
RMMTUDAGURINN S3. SEPTEMBER
HÁMARKSÁRANGUR (TÍMASTjÓRNUN, MARKMIÐ OFLR.)
Kl. 9 -12 Markmiðasetning. tímastjómun, árangursstjómun, streita,
hvemig á að fá aðra tii liðs við sig og auka veigengni sfnai
Allt sem þú þarft að vita til að auka afköst þín og framleiðni.
FYRIRLESARl: DR. PAUL R. TIMM
VELGENGNI OG AHRIF FYRIR KONUR I ATVINNULIFINU
KI. 13 -16 Þessi námstefna er aðeins opin konum. Sfðast var uppseltl
Hvemig konur geta hámarkað árangur sinn, tækifæri og vei-
gengni, bætt samskiptin og aukið trúverðugleika sinn í starfi.
FYRIRLESARI: PR. SHERRQN BIENVENU
Námstefnugjald: kr. 12.900 Innifalið: Bók á íslensku, vönduð námstefnugögn
og kaffiveitingar.Hópafslættir: 3+1 FRÍTT (25% afsl.), 7+3 FRÍTT (30% afsl.)
Hægt er að skrá á eina námstefnu og nýta hópafslætti til að skrá á aðrar!
SÍMASKRÁNING:
SKRÁNING MEÐ FAXI: 552-BB3S
TÖLVUPÓSTUR: vegsauki@simnet.is
MEIRI UPPLYSINGAR ER AÐ FINNA A SLDÐINNI
http://www.veqsauki.is
Skráöu þig á póstlistann og fáöu FRÍTT fréttabréf
VEGSAUKl
ÞEKKINGARKLÚBBUR
vitinu meiríl