Morgunblaðið - 14.09.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 4^
ings þegar gatan var torförnust. Um
leið og ég kveð með miklum söknuði
góðvin minn og frænda votta ég
þessu öðlingsfólki dýpstu samúð
mína og fjölskyldu minnar.
Páll Magnússon.
Lífið lék Axel Ammendrup grátt.
En jafnan þegar áfollin voru að baki
sá hann eitthvað broslegt við and-
streymið og sló hrakfórum sínum
upp í gráglettu eða ósvikna gaman-
semi. Flestir hlæja að óförum ann-
arra en ekki sínum eigin. Axel var
ekki sú manngerð. Hann var hins
vegar fundvís á skoplegar hliðar til-
verunnar og sá eiginleiki hjálpaði
honum sjálfsagt oft í gegnum brim-
garðinn þegar mestu boðaföllin riðu
yfir. Axel fæddist líkast til ekki und-
ir því sem kallast heillastjarna en
hann fæddist örugglega með bros á
vör og glettnisblik í auga og hlaut í
vöggugjöf lundarfar sem gerði hann
hugljúfan og blíðan. Hvorki lang-
vinnir sjúkdómar né erfiðleikar af
ýmsu tagi buguðu Axel Ammendrup
fyrr en undir það síðasta. Lengst af
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
90LSTEINAK 564 3555
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Blónuistofa
Fríðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tiiefni.
Gjafavörur.
sýndi hann sh'kt æðruleysi að bæði
undrun og aðdáun vakti. En þar kom
að hann gat ekki lengur glaðst yfir
neinu, engin tilhlökkun að líta nýjan
dag, lítil von um bata. Lífslöngunin
þvarr. Lífið fjaraði út. Löngu fyrir
aldur fram var hann allur.
Við Axel kynntumst á Vísi sáluga
fyrir tuttugu árum. Það átti að
halda upp á tvítugsafmæli
Frakkalafsins í haust en þann fé-
lagsskap stofnuðum við Axel og Páll
Magnússon. Við vorum allir ný-
komnir á Vísi sem blaðamenn og
tókum upp á því seint á föstudögum
þegar helgarblaðið var komið niður
í prentsmiðju að fá okkur rauð-
vínstár með frönsku langbrauði
meðan við leystum þrætuepli stórra
þjóða og smárra. Sendum út álykt-
anir. Okkur kom vel saman og varð
vel til vina. Höfum nánast hist viku-
lega í þessi tuttugu ár, teflt og tekið
púlsinn á þjóðmálunum. Um nokk-
urra ára skeið fórum við saman í
ferðalög og mér eru ógleymanlegir
dagar með Axel í Lundúnum og
Kaupmannahöfn - og Osló þar sem
hann bjó um hríð. Hann kom alkom-
inn heim, sárlasinri og þjáður, fyrir
sjö árum. Hann steig raunar aldrei
upp úr þeim veikindum.
Einhver sagði að fremur ætti að
spyrja hvort það væri líf fyrir dauð-
ann heldur en tönnlast á því hvort
það væri líf eftir dauðann. Þegar
þessa kaldhæðnislegu spurningu
ber á góma hvarflar hugurinn til
Axels Ammendrups. Hann hafði svo
margt til að bera og hæfileika á svo
ótal mörgum sviðum sem hefði get-
að fært honum lífshamingjuna ef
honum hefði gefist þess kostur að
taka á móti henni. En þótt heilladís-
irnar færu lengstum á svig við Axel
Animendrup var gæfa hans að eiga
fjölskyldu sem var honum stoð og
stytta í blíðu og stríðu. Kærleiksrík-
ari og samheldnari fjölskylda er
vandfundin og hún var lífsakkeri
Axels alla tíð. Við Ragnheiður send-
um Marsý, Mæju og Óla, Palla
bróður og öðrum skyldmönnum
okkar dýpstu samúðarkveðjur. Góð-
ur vinur er genginn en eftir lifa
hlýjar minningar sem ylja um
ókomna tíð.
Gunnar Salvarsson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
FRIÐRIK HJALTASON,
síðast til heimílis
í Dísarási 6,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 12. sept-
ember.
Jarðsett verður frá Jósepskirkju, Jófríðar-
stöðum, Hafnarfirði, fimmtudaginn 16. september kl. 13.30
Sigurbjörg Þorvarðardóttir, ísleifur Valtýsson,
Sigurgeir Friðriksson, Guðbjörg Ríkharðsdóttir,
Ásta Friðriksdóttir, Sturla Geirsson,
Ólafur Þór Gunnarsson, Elínborg Bárðardóttír
og barnabörn.
t
Elskulegur bróðir okkar,
RAGNARS.GUÐMUNDSSON
fyrrv. birgðastjóri
hjá Lyfjaverslun ríkisins,
Spítalastíg 2,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Landakoti,
föstudaginn 10. september.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðríður Stella Guðmundsdóttir,
Þorvarður Guðmundsson,
Þorbjörn Guðmundsson.
+
Ástkær móðir okkar,
HULDA A. SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Sogavegi 105,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum föstudaginn
10. september.
Kolbrún S. Einarsdóttir,
Sveinbjörg L. Einarsdóttir,
Vignir Þór Einarsson.
LEGSTEINAR
I rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410
+
Móðir mín og systir okkar,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Fálkagötu 12,
Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans
fimmtudaginn 9. september.
Guðmundur K. Jónsson,
Inga Guðmundsdóttir, Örn Sigurjónsson,
Sigurbjörn Guðmundsson, Hanna S. Antoníusdóttir,
Ásdís Guðmundsdóttir,
Kristján Guðmundsson,
Guðmundur Guðmundsson, Eygló Halla Ingvarsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Þorlákur L. Hannesson,
Steinunn Guðmundsdóttir.
+
Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNÍNA SELMA JÓNSDÓTTIR
frá Kistu,
til heimilis á Melavegi 17,
Hvammstanga,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 8. september.
Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 17. september
kl. 13.30.
Jarðsett verður í kirkjugarðinum á Melstað síðar sama dag.
Eggert Konráðsson,
Agnes Magnúsdóttir, Gunnar Konráðsson,
Konráð Eggertsson, Jakobína Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Eggertsdóttir, Jóhannes Erlendsson,
Valdimar Eggertsson, Heidi Fly,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir og amma,
VIOLA PÁLSDÓTTIR,
Hlíðarvegi 44,
Siglufirði,
lést á heimili sínu laugardaginn 11. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristinn Rögnvaldsson,
Eivor Jónsson,
Guðrún Sonja Kristinsdóttir, Baldur Benonýsson,
Margrét Ragna Kristinsdóttir, Sigurður Már Sigmarsson,
Katrín Kristinsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar,
UNNUR FJÓLA JÓHANNESDÓTTIR,
Framnesvegi 63
í Reykjavík,
lést á Landspítalanum að morgni laugar-
dagsins 11. september sl.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 17. september kl. 3 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda,
Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir,
Jóhannes Þorsteinsson,
Þorgeir Þorsteinsson.
+
Ástkær dóttir mín, eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGVELDUR GUÐRÍÐUR
KJARTANSDÓTTIR,
Kambaseli 29,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju á morgun,
miðvikudaginn 15. september, kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á heimahlynningu
Krabbameinsfélags íslands.
Þorgerður Einarsdóttir
Sigurður Á. Jónsson
Þórdís Gerður Sigurðardóttir, Björn Snorrason,
Sigrún Sigurðardóttir, Jónatan Ólafsson,
Jón Sigurðarson, Margrét Thorsteinson,
Kjartan Sigurðsson, Gyða Ólafsdóttir,
Vilborg Þ. Sigurðardóttir, Heimir Einarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
■r