Morgunblaðið - 14.09.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 59 4ft
KAREL REISZ
FLEST bendir til að Everybody
fVins, (‘90), hafi verið svanasöng-
ur tékklenskættaða leikstjórans
Karels Reiszs. Þar má segja að
hafi farið mikiir hæfileikar fyrir
lítið því hann lauk aðeins við
sléttan tug mynda á 30 ára ferli.
Líkt og margir stéttarbræður
hans á Bretlandi varð hann að
auki að treysta í æ ríkari mæli á
bandaríska framleiðendur til að
koma verkunum á koppinn. Þá
tafði það örugglega fyrir Reisz að
hann átti enga stóraðsóknar-
mynd, líkt og Tom Jones, sem
hleypti nýju blóði í feril vinar
hans, Tony Richardson. Reisz er
hugsandi sköpuður, vandvirkur
gáfumaður, sem þrátt fyrir fáa
titla, skilur eftir sig vel mörkuð
spor í kvikmyndasögunni.
Karel Reisz er fæddur í Súdeta-
héruðunum 1926, sem þá til-
heyrðu Tékkóslóvakíu, nú Tékk-
landi. Hann var aðeins 10 ára
þegar föður hans, lögfræðingi af
gyðingaættum, fannst það ráðleg-
ast að senda strák í snarhasti til
Englands. Þá voru Hitler og hans
nótar komnir yfir landamærin.
Þegar yfir lauk var Karel eini
íjölskyldumeðlimurinn sem lifði
af Helförina. í sínu nýja heima-
landi lauk Reisz síðar námi við
Cambridge, þjónaði herskyldu í
breska flughernum og kenndi í
nokkur ár. Á öndverðum sjötta
áratugnum sneri hann sér að
blaðamennsku, einkum kvik-
myndagagnrýni við Sight and
Sound. Skrifaði lærða bók um
klippingar - áður en hann hafði
nokkru sinni stigið fæti inn í
kvikmyndaver! Áhuginn á kvik-
myndagerð jókst með hveiju ár-
inu. Stofnaði blaðið Sequence,
ásamt Lindsay Anderson, félaga
sínum hjá S&S, og síðar meir
merkum kollega á leikstjórnar-
brautinni. ‘55 gerði liann síðan
heimildarmyndina Mommn Dont
Allow, ásamt öðrum „vini sem átti
eftir að skrá nafn sitt á spjöld
kvikmyndasögunnar, Tony Ric-
hardson. Umfjöllunarefnið var
ungt fólk sem stundaði djassklúbb
í London. Hún var ein nokkurra
mynda Reisz, Richardson, Ander-
son, auk örfárra annarra ungra
leikstjóra, sem mynduðu hreyf-
ingu sem kallaðist „Free Cinema
Movement". Hún hafði að mark-
miði að festa á filmu óbreytt
mannlíf verkamannastéttarinnar í
London. Umfjöllunarefni sem þeir
og fleiri Iistamenn áttu allir eftir
að fást við í kvikmyndum og leik-
ritum, oft kallaðir „Reiðu, ungu
mennirair".
Tveim árum eftir að Reisz lauk
við aðra heimildarmynd sína, We
vhitZnU°S að;I,leikona" hans, Meryi
ð t0kun a The French LieuienS
are the Lambert Boys,
hélt hann til Nottingham, erindið
var að leikstýra sinni fyrstu al-
vöru kvikmynd, Saturday Night
and Sunday Morning, byggðri á
skáldsögu eftir Allan Sillitoe og
vakti óhemju athygli á sínum
tíma, þar sem hún þótti sýna Iíf
láglaunafólks á óvenju hreinskil-
inn hátt. Reisz tókst ekki eins vel
upp með næsta verkefni, Morgan,
A Suitable Case for Treatment,
(‘66). Myndin kom samt David
Warner á kortið í frábærri túlkun
á titilpersónunni og vakti athygli
á ungri og efnilegri leikkonu -
sem átti eftir að pluma sig vel;
Vanessu Redgrave. Resisz var
einnig maðurinn á bak við Isa-
doru, (‘68), fyrsta stórvirki Va-
nessu á kvikmyndasviðinu. Mynd-
in markaði einnig tímamót á ferli
leiksljórans sem í fyrsta sinn fékk
nægt fé til kvikmyndagerðarinn-
Albert Finney
og Rachel Ro-
berts í Saturday
Night and
Sunday Morn-
ing, myndinni
sem ýtti við
stéttaþjóðfélag-
inu við upphaf
hins byltingar-
kennda, sjötta
áratugar.
ar, lit, og alþjóðlegar
stjörnur (James Fox,
Jason Robards). Ágæt
mynd um athyglisverða
konu sem bauð heimin-
um byrginn á meðan
karlar rembdust enn við
að halda konum bundn-
um við barneignir og
húsverk. Því miður rú-
staði dreifingaraðilinn
(Universal), myndinni
með eigin hugmyndum
um endanlegt útlit.
Sex ár liðu uns Reisz komst aft-
ur í gang. Fyrir valinu varð The
Gambler, (‘74), um háskólapró-
fessor sem einnig er forfallinn,
vonlaus íjárhættuspilafíkill.
James Caan ber myndina uppi í
traustri túlkun á örvingluðum
manni sem fórnar öllu fyrir fíkn-
ina. Næst varð Who’ll Stop the
Rain, (‘78), báðar gerðar í Banda-
ríkjunum, einsog sú næsta, The
French Lieutenant’s Woman,
(‘81). Sweet Dreams, (‘85), var allt
annars eðlis, og sýndi vel fjöl-
hæfni leikstjórans. Fjallaði um
stutta og stormasama ævi kántrí-
söngkonunnar Patsy Kline, sem
Jessica Lange lék eftirminnilega
vel í vel lukkaðri mynd. Fimm ár-
um síðar kom svo síðasta mynd
leikstjórans (til þessa, allavega),
hin gjörsamlega mislukkaða
SIGILD MYNDBOND
SATURDAY NIGHT AND
SUNDAY MORNING (‘60)
Glæsilegt byrjendaverk sem kom
heldur betur við kaunin á ráðamönn-
um og almenningi á sínum tíma í
óvæginni, ofurraunsærri lýsingu á lífi
og störfum verkamanna, sem var
nánast óþekkt kvikmyndaefni um
miðja öldina. Ekkert var verið að fín-
pússa hlutina, enda skóp myndin
nýja stefnu og varð fyrirmynd
margra, ungra kvikmyndargerðar-
manna á þessum tíma. Álbert Finney
leikur ógleymanlega verkamann sem
heldur við konu (Rachel Roberts)
vinnufélaga síns (Bryan Pringle).
Hún verður ólétt, allt kemst upp og
Finney kynnist annarri. Dregin er
upp Ijóslifandi mynd af takmörkum
og innibyrgðri reiði verkamannasam-
félagsins og olli myndin straumhvörf-
um og upphlaupi hjá láglaunastéttun-
um. Róttæk þjóðfélagsgagnrýni
einsog hún gerist best. Vel skrifiið,
leikin og hugsuð. Aivarleg en engu að
síður úrvalsskemmtun.
WHO’LL STOP THE RAIN (‘78)
★★★%
Víetnamsríðsfélagarnir Nick Nol-
te og Michael Moriarty eru á heim-
leið, sá síðarnefndi ætlar sér
nokkurn bónus fyrir þjónustu við
föðurlandið. Tvö kíló af heróíni, sem
Nolte tekst að smygla með sér.
Brátt kemur í ljós að það er meira
en þeir ráða við. Forvitnileg,
stíldjörf mynd um einstaklinga sem
eru utanveltu í þjóðfélaginu. Allir á
eftir ameríska draumnum, allir von-
lausir sigurvegarar; draumórafólk,
afglapar, erkibófar. Heldur góðum
dampi framan af en lokauppgjörið
hefur elst til óþæginda. Drifin áfram
af hörkuleik Noltes, aðrir, ekki síst
Tuesday Weld, standa fyrir sínu.
Moriarty er Moriarty sem
endranær. Afþreying gerð af meiri
hugsun og meiningu en flestar aðr-
ar. (Sumir fræðingar vilja meina að
myndin hefði hlotið metaðsókn ef
hún hefði ekki heitið þessu álappa-
lega, fráhrindandi nafni, fengnu frá
rokklagi CCR).
THE FRENCH LIEUTEN-
ANT’S WOMAN, (‘81)
iHrkV.2
Vel heppnuð kvikmyndagerð á ill-
myndanlegri sögu Johns Fowles,
gerist á tveimur ólíkum tímaskeiðum
og heppnast ágætlega þrátt fyrir að
það taki nokkurn tíma að venjast því.
Segir frá ástum átjándu aldar aðals-
manns og konu með slæmt orðspor
en í annan stað frá sambandi leikar-
anna sem leika þau í bíómynti sem
verið er að kvikmynda. Þjóðfélags-
rýni og rómantík falla vel saman og
Meryl Streep og Jeremu Irons sýna
stórgóðan leik með handrit Harolds
Pinters að vopni. Fantagóð kvik-
myndataka í kaupbæti.
Sæbjörn Valdimarsson
Nick Nolte sem ráðvilltur, fyrr-
verandi Víetnamstríðsmaður í
vondum málum eftir heimkom-
una í Who’ll Stop the Rain.
Everybody Wins. Hún hafði þó
margt með sér: Gæðaleiksljóra,
toppleikara (Nick Nolte, Debru
Winger, Will Patton, Jack War-
den), og fyrsta handrit stór-
skáldsins Arthurs Millers, síðan
hann lauk við The Misfíts, ‘60.
Allt kom fyrir ekki, þau töpuðu
öll. Hluti erfiðleika myndarinnar
var tvímælalaust vandræðaleg
meðhöndlun dreifiaðilans, Orion,
sem þá var kominn að fótum
fram. Þaraa lauk því að öllum lík-
indum glæstum ferli sem maður
hefur á tilfinningunni að hafi
aldrei komist á það flug sem
Reisz hefði náð með betri umönn-
un, efnisvali og hagstæðari að-
stæðum.
Einn sá
stærsti
FRANSKA leikkonan Sopie
Marceau sést á myndinni
halda á einum stærsta dem-
anti veraldar en hann er
203 karöt og upprunninn í
Kongó. Hann verður til sýn-
is í ÁrþúsundsliöIIinni í
London 1. janúar árið 2000
ásamt ellefu öðrum risa-
demöntum. En þeir sem
meiri áhuga hafa á leikkon-
unni en demantinum geta
séð hana í næstu James
Bond mynd, The World is
Not Enough.
Eiim hinna vondu Blue Meanies bauð farþega Bítlalestarinnar vel-
komna um borð.
Bítlalestin farin af stað
LESTARFYRIRTÆKIÐ Eurostar
setti á teinana síðastliðinn miðviku-
dag Bítla-hraðlest í tilefni endurút-
gáfu myndarinnai- The Yellow Sub-
marine á myndbandi og tónlistar-
innar úr myndinni á geisladisk.
Lestin lagði af stað í jómfrúarferð
sína frá Waterloo lestarstöðinni í
London áleiðis tO Parísar. Allir
átján lestarvagnarnir eru skreyttir
myndum úr kvikmyndinni vinsælu
en í henni ferðuðust Bítlarnir I
töfrakafbát til Piparlands og
frelsuðu landið undan tónlistarand-
stæðingunum Blue Meanies.
„Mér finnst hún alveg stórkost-
leg,“ sagði rúmlega fimmtug móðir
sem steig um borð í lestina ásamt
dóttur sinni. „Við bókuðum ferð til
Parísar í fyrradag en við höfðum
ekki hugmynd um að við færum
með Bítlalestinni.“
Bítillinn Paul McCartney sagði
farþega lestarinnar vel geta átt von
á að sjá hann þar einn daginn. „Ég
verð ekki viðstaddur vígsluna,"
sagði hann. „Ég mun bara birtast
þar einn góðan veðurdag."
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
® KARATC 2)
KARATeoellD rVtKIS
Þjálfari Halldór Svavarsson 3. dan
íslandsmeistari í kumite
Byrjendanámskeið eru að hefjast
Uppl. í síma 896 3010 eða 567 6467
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4300-0022-4237
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
V/SA
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000. I