Morgunblaðið - 16.10.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 16.10.1999, Síða 8
Simi; 544 5644 8 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þjóðliagsáætlun fyrir árið 2000 lögð fram Stefnt að því að ná „mjúkri lendingu“ í efnahagslífinu í WÓÐHAGSÁÆTLUN fyrir árið 2000, sem Davlð Oddsson forsætis- ráðherra lagði fram við upphaf Al- Svona, svona, það er óþarfi að fella tár Dóritan mín, fjármálaráðherra lætur mig ekki axlarbrotna. með 20% Kynnigarafslætti á Naten og Aloe Vera Fæðubótarefnið Aloe Vera frá Jason sem fólk talar um! - þú færð ekki betra! Kynning laugardag og sunnudag frá kl.14-18 Styrkur til rannsókna á trjásjúkdómum Ryðsjúkdómar smitast hratt Guðmundur Halldórsson gær var hópi sem starfar að rannsókn- um á ryðsjúkdómum á ösp og gljávíði veittur 500 þúsund króna styrk- ur til þeirra rannsókna úr Skógarsjóði. I hópn- um eru Halldór Sverris- son plöntusjúkdóma- fræðingur á Rannsókna- stofnun landbúnaðarins, Guðríður Gyða Eyjólfs- dóttir sveppafræðingur á Náttúrufræðistofnun Is- lands, Akureyrarsetri, og Guðmundur Halldórs- son skordýrafræðingur hjá Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá. Guðmundur var spurður hvert væri markmið þessara rann- sókna? - Markmiðið er að finna arf- gerðir af ösp og gljávíði sem hafi nægan mótstöðuþrótt gegn þeim ryðsjúkdómum sem hafa skotið hér upp kollinum að und- anfömu. Hvaða ryðsjúkdómar eru það? - Það er annars vegar gljáv- íðiryð sem lýsir sér þannig að rauðgulir flekkir myndast á blöðum gljávíðis og hins vegar asparryð, sem lýsir sér svipað og gljávíðiryð. Eru þetta alvarlegir sjúkdómar? - Reynslan hér á landi af því er ekki mikil enn sem komið er, en gljávíðiryð virðist þó valda mjög verulegum usla. Auk þess er hætta á að aspaeryð verði til verulegra vandræða, einkum í garðrækt. Hvernig fara þessar rannsóknir fram? - Þær eru gerðar í tilraun- areitum á tveimur stöðum á landinu. Þessir tilraunareitir eru nú þegar til hvað öspina varðar en gróðursetja þarf í til- raunareiti af gljávíði. I þessum tilraunareitum verður mismun- andi efniviður af ösp og gljávíði. Þar verður með öðrum orðum safnað saman öllu því sem talið er getað hentað hér á landi. Plönturnar verða síðan smitað- ar af viðkomandi sjúkdómi og fylgst er með þróun sjúkdóms- ins á plöntum af mismunandi arfgerð. Þannig er unnt að sjá hvaða plöntur hafa þann viðnámsþrótt sem nægilegur er. Athuganir sem gerðar voru nú í sumar á ösp benda til þess að viðnáms- þróttur aspa hér á landi gegn asparyði sé verulega mismun- andi. Þar kom fram að einn asp- arklónn stóð sig sérlega vel gegn ryðsjúkdómum, það var svoköll- uð Sælands-ösp. Þannig má gera sér góðar vonir um að hægt sé að fínna efnivið sem standist þessa óværu. Hvaðan kemur þessi óværa? - Hún kemur væntanlega frá Evr- ópu en hins vegar er óvíst hvem- ig hún hefur borist til landsins. Sótti hópurinn um styrk í Skóg- arsjóð? - Nei, sjóðurinn hafði frétt af þessu vandamáli og stjórn hans sá að þarna var vandi á ferð sem brýna nauðsyn bar til að bregð- ast skjótt við. Stjórnin hafði samband við mig og bauð fram styrk til þessarar rannsóknar. Við vorum þá að byrja að leggja drög að umsókn um styrk til Rannís til þessara rannsókna. ►Guðmundur Halldórsson fæddist 1952 á Langanesi í Norður-Þingeyjarsýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamra- hlíð 1973 og líffræðiprófí frá Háskóla íslands 1977. Dokt- orsprófi frá Landbúnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn lauk Guðmundur 1985. Hann starfaði á Rannsóknarstofnun landbúnaðarins fyrsta árið eftir heimkomu frá Dan- mörku, um fjögurra ára skeið vann hann síðan hjá Hollustuvernd ríkisins en hóf störf hjá Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá haustið 1990 og starfar þar enn. Guðmundur er kvæntur Onnu Kristínu Björnsdóttur meinatækni og eiga þau þijá syni. Hins vegar er mikilvægt fyrir okkar að fá þennan styrk nú þegar því nauðsynlegt er að hefja strax söfnun á efnivið ef takast á að hefja rannsóknir strax næsta sumar. Er mikil smithætta af þessum sjúkdómum? - Já, það er mjög mikil smit- hætta og gljávíðiryðið sem við höfum lengri reynslu af hefur borist á fimm árum frá Homa- firði vestur á Reykjanes. Búast má við að þessir sjúkdómar ber- ist á skömmum tíma um land allt. Er hægt að sporna við þessari þróun? - Það er mjög erfitt. Það er hægt að beita sveppaeitri en ár- angur hefur ekki verið fullnægj- andi og þarf að margeitra á hverju sumri. Hvað öspina áhrærir þá er rétt að taka fram að ryðsjúkdómurinn á henni þarf að komast á lerki til að Ijúka lífs- ferli sínum. Því er hægt að rjúfa smithringinn með því að fjarlægja lerki úr nágrenni aspanna. Er sveppaeitrið hættulegt fólki? - Þetta efni þarf að meðhöndla af fullri gát eins og öll eiturefni, auk þess sem það er óæskilegt fyrir umhverf- ið. Hvenær má vænta niðurstöðu úr þessa ri rannsókn ykkar? - Ef allt tekst eins og stefnt er að má búast við fyrstu niður- stöðum úr aspartilraunum strax næsta haust. Fyrstu niðurstöður úr gljávíðitilraunum verða til- búnar haustið 2001. Lokaniður- staða á að hggja fyrir í lok árs 2002. Fyrstu niðurstöður haustið 2000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.