Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 17
Fólk
•TRAUSTI Valdimarsson varði
1. október sl. doktorsritgerð sína:
„Bone in Coeliac Disease" við há-
skólann í
Linköping í Sví-
þjóð. Andmæl-
andi var Pekka
Collin, dósent
við Háskólann í
Tampere, Finn-
landi.
Ritgerðin
greinir frá rann-
sóknum á beingisnun (osteoporos-
is) hjá sjúklingum með garnamein
af völdum glútena (coeliac disea-
se). Glúten er eggjahvítuefni í
korntegundum, aðallega í hveiti,
sem t.d. gefur brauðdeigi góða
bökunareiginleika. Hjá sjúklingum
með glútenóþol veldur glúten í
fæðunni bólgu í slímhúð smáþarma
og þarmatoturnar skaddast.
Þannig verður truflun á eðlilegu
frásogi á mörgum vítamínum og
steinefnum, m.a. á kalki. Margs
kyns einkenni geta skýrst af glút-
enóþoli; langvarandi kviðverkir,
niðurgangur, megrun, þreyta,
slappleiki og jafnvel þunglyndi. Oft
eru einkennin svo óljós að mörg ár
líða áður en rétt sjúkdómsgreining
fæst. Meðferðin felst í að sneiða
hjá fæðu sem inniheldur glúten.
Við það lagast bólgan í þarmaslím-
húðinni og einkennin hverfa.
Rannsóknir Trausta hafa sýnt
að án meðferðar verður truflun á
efnaskiptum kalks og hormóna-
jafnvægi í blóði. Af 121 sjúklingi,
sem voru 18-86 ára þegar sjúk-
dómurinn greindist, höfðu 60
óeðlilega lága beinþéttni (bein-
gisnun) fyrir meðferð. Jafnvel
sjúklingar með væg einkenni frá
meltingarfærum höfðu beingisnun.
Þegar meðferð með fæðu án glút-
ens var hafin jókst beinþéttnin
fljótt og vel og varð eðlileg hjá
flestum innan þriggja ára, jafnvel
hjá sjúklingum sem voru eldri en
65 ára við sjúkdómsgreiningu.
Rannsóknir á 76 sjúklingum með
þekkt glútenóþol í 4-14 ár sýndu
að þeir sjúklingar sem höfðu verið
duglegir að forðast alla fæðu með
glúteni voru með eðlilega bein-
þéttni meðan þeir sem höfðu verið
minna nákvæmir með fæðuvalið
voru oftast með beingisnun.
Þannig er mjög mikilvægt að allir
sjúklingar með glútenóþol fái
rétta sjúkdómsgreiningu og með-
ferð, ekki aðeins til að bæta sjúk-
dómseinkennin, heldur einnig til
að minnka hættu á beinbrotum í
framtíðinni. Og þegar sjúklingur
greinist með beingisnun af óljós-
um toga er mikilvægt að rannsaka
hvort garnamein af völdum glút-
ena geti verið orsökin.
Trausti fæddist 1. nóvember
1957, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Tjörnina
1977, embættisprófi í læknisfræði
frá Háskóla íslands árið 1984 og í
lyflækningum og meltingarfæra-
sjúkdómum í Linköping árið 1992.
Hann hefur búið í Svíþjóð við nám
og störf síðan 1986 en er nú ný-
fluttur heim til Reykjavíkur. Eig-
inkona Trausta er Herdís Guðjóns-
dóttir, matvælafræðingur og
starfsmaður hjá Islenskri erfða-
greiningu og eiga þau þrjú börn,
Guðjón Karl, Erlu Þórdísi og
Árna Guðmund. Móðir Trausta
var Erla Þórdís Jónsdóttir, kenn-
ari (d. 1987). Faðir hans er Valdi-
mar Ólafsson, fyrrverandi flugum-
ferðarstjóri.
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið árval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sindri Sindrason, framkvæmdastjóri Pharmaco, Jóhann Ágúst Sigurðsson, forseti læknadeildar, Páll Skúiason, rektor Háskóla Isiands
og Sigurbjörg Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Isaga, skrifa undir samkomulagið.
HÁSKÓLI íslands, Pharmaco
hf. og ísaga efh./AGA, hafa
skrifað undir samkomulag þess
efnis að fyrirtækin fjármagni
nýtt starf prófessors í svæfinga-
og gjörgæslulækningum við
læknadeild Háskólans næstu
þrjú ár.
Stefnt er að því að staðan
tengist starfi forstöðulæknis á
Staða prófessors fjár-
mögnuð af fyrirtækjum
Landspítalanum og er markmið-
ið með starfinu að efla rann-
sóknir og kennslu í svæfinga- og
gjörgæslulækningum. En að
mati samningsaðila er slíkt mik-
ilvægt fyrir frekari þróun á
sviði svæfínga- og gjörgæslu-
lækninga sem stefnt er að að
verði í hæsta gæðaflokki.
Pharmaco og ísaga munu íjár-
magna stöðu prófessorsins næstu
þrjú árin, en að þeim tíma liðnum
mun læknadeild taka á sig kostn-
að vegna starfsins.
Staða prófessors í svæfinga- og
gjörgæslulækningum verður
fljótlega auglýst laus til umsókn-
ar.
Senn gengur veturinn ígarð og þá þarf
að hlífa gólfunum og verja gegn vætu.
/ verslunum okkar
fínnurðu ettirtaldar
vörur í únali
GÚMMÍDREGLAR
V ÍOO sm. breiðir
V Góð gólfvörn
GÚMMÍMOTTUR^
V Þykkar mottur
V Notist utanhúss
SLABB-MOTTUR
V Vatnsgleypandi
V Henta vel í anddyri
V Feluiitir
MOTTUR í IJRVALI
V Failegar
V Margar stærðir
V Margar gerðir
SLABB-DREGLAR
v/ Fæst í metravís
V Fyrir ganga og anddyri
4Stofuteppi 4 Gólfmálning
'ÍBorðstofuteppi 'JParket
iDúkar ^eggiamálning
_______ ^FIísar I
-- --- - ; .
SLITSTERKÍR W
DREGLAR \
V Falicgir
V 80 sm. br.
V Fjölbreytt úrval
r »\
....
KÓKOSDREGLAR
V 80 og 120 sm. br.
Allt verö mlðast rlð
staðgrelðslu. _
SKIPADREGLAR
PLASTDREGLAR
V til hlífðar «sgÉ
Suðurlandsbraut 26 s: 568 1950
Grensásvegi 18 s: 581 2444