Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 19 Ahugasamir og ánægðir nemendur HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Rúmlega 20 manns sitja nú tölvunámskeiði fyrir eldri borgara í Garðabæ þar sem kennd eru undirstöðuatriði í notkun tölvupósts og Netsins. Hér sjást nokkrir þátttakcnda, en hópurinn leyfði myndatöku á námskeiðinu með því skilyrði að myndin yrði líka birt á Netinu. Garöabær FÉLAG eldri borgara í Garðabæ og Fjölbrauta- skólinn í Garðabæ hafa haldið saman tölvunám- skeið um nokkurt skeið. Nú stendur yfir eitt slíkt þar sem kennd eru undirstöðu- atriði í notkun tölvupósts og Netsins. Námskeið þetta er reyndar framhaldsnám- skeið en þátttakendur hafa þegar farið á námskeið þar sem kennd var almenn tölvunotkun og vinna í Windowsumhverfi. I hverjum hópi eru 20 til 25 þátttakendur og segir Hallgrímur Arnalds kenn- ari á námskeiðinu að nem- endurnir séu virkilega áhugasamir og ánægðir. Þegar blaðamaður og ljós- myndari Morgunblaðsins litu inn á námskeiðið og spurði hópinn hvort það mætti taka af þeim mynd, heyrðist hrópað úr einu sætinu „Já, alveg sjálfsagt, en bara ef hún verður líka birt á Netinu!“ Forvitnin rekur fólk af stað Það ríkir augljóslega skemmtilegur andi á nám- skeiðinu og mikill vilji til að tileinka sér það sem þar er kennt. Ein kona segir for- vitnina hafa rekið sig á námskeiðið. „Maður hefur heyrt svo mikið um alla þá möguleika sem búa í tölv- um og mér hefur fundist þetta hljóma allt svo spenn- andi. Ég hafði samt ekki hugmynd um hvað þetta væri nákvæmlega og fór því á námskeiðið til að fá að kynnast því.“ Onnur kona segir það að læra á tölvur alveg ótrú- lega spennandi en samt svolítið erfitt. „Það er alveg meiriháttar skemmtilegt að fá tækifæri til að kynnast þessu, maður veit ekki al- veg hvað verið er að fara út í, en hefur heyrt að þetta sé eitthvað alveg ótrúlega spennandi. En ég verð þó að viðurkenna að þetta er ekki alltaf auðvelt og mað- ur verður stundum alveg sveittur við þetta." Eins og ófleygir hrafnsungar Einn maður segir að þar sem svo margar stofnanir og fyrirtæki séu búin að færa þjónustu sína að miklu leyti yfir á Netið, væri nauðsyn- Iegt að kuima undirstöðuat- riði í notkun þess og segir hann gaman að geta náð svona í skottið á tölvubylt- ingunni. Sessunautur hans tekur undir það og sagðist hafa gripið þetta tækifæri til að læra á tölvur fegins hendi. „Ég hafði lengi gert mér grein fyrir því að mað- ur væri lengst aftur í öldum með því að kunna ekki á tölvur og að það væri í raun nauðsynlegt til að geta fylgst með því sem er að gerast í nútímanum. Fólk sem ekkert kann á tölvur er hreinlega eins og ófleygir hrafnsungar." Að vera í sambandi við börnin Annar maður segir að dóttir hans hafi bent hon- um á námskeiðið. „Ég hafði nú ekki mikinn áhuga fyrst þegar dóttir mín sagði mér frá þessu en við nánari um- hugsun leist mér betur á hugmyndina og nú sé ég al- deilis ekki eftir að hafa far- ið.“ Enn annar maður seg- ist hafa farið til að ná betra sambandi við barnabörnin sín. „Ég kom meðal annars til að geta fylgst betur með því sem barnabörnin nu'n eru að gera. Þau eru farin að tala sérstakt tungumál og með því að læra aðeins inn á tölvur get ég vonandi skilið þau betur." Þó nokkrir af þátttak- endunum segjast vilja læra að senda tölvupóst til að geta verið í sambandi við börn sín og barnabörn sem búa í útlöndum. Þau segja börn þeirra sem séu í námi erlendis vera með tölvupóst og að þau séu margoft búin að segja þeim hvað sé snið- ugt og auðvelt að vera í góðu sambandi með þeim hætti. Eins eiga sumir vini erlendis og segist einn maður nýlega hafa endur- nýjað kynni við gamla vini í Bandaríkjunum. „Þeir senda mér alltaf jólakort og undanfarin ár hafa þeir skrifað netfang undir nafn- ið sitt og eftir að ég lærði á tölvupóstinn er ég kominn í samband við þá aftur.“ Mikilvægt að gefast ekki upp Þátttakendur virðast sammála um að erfiðast sé að byrja. Það geti til dæmis verið vandi að ná tökum á því að hreyfa músina rétt og átta sig á því hvernig skjámyndin er uppbyggð og hvaða áhrif það hafi að smella hér og þar á skján- um. En um leið og búið sé að ná tökum á þessum und- irstöðuatriðum sé þetta fljótt að koma. Þau brýna því hversu mikilvægt það sé að gefast ekki upp þó að þetta reynist erfitt í fyrstu, það geti tekið nokkurn túria að átta sig á þessu, en að það sé svo sannarlega þess virði þegar af stað sé farið því á Netinu sé að finna ótrúlega uppsprettu möguleika og fróðleiks að ekki sé minnst á tækifæri til samskipta. OPID HUSIDAG! HSSSsnfl* » * ituM'iMjgr jg,, í&m ‘ r'm ” . Reykjaneshöllin er opin í dag frá kl. 16:00 til 18:00. í tilefni þess að hið nýja fjölnota íþróttahús í Reykjanesbæ, Reykjaneshöllin við Krossmóa, er fokhelt verða íslenskir aðalverktakar með opið hús í dag þar sem öllum er boðið að koma og skoða þetta glæsilega íþróttamannvirki. Vaskir einstaklingar reyna með sér í litríkri vítaspyrnukeppni kl. 16:15. Hoppikastali fyrir börnin. Dixielandbandið leikur fyrir gesti. ÍSLENSKIR AÐALVERKTAKAR HF. Ú i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.