Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 39 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BREYTINGAR í EVRÓPU HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra greindi frá því á Alþingi í fyrradag að á vegum utanríkisráðuneytisins væri nú verið að vinna að stöðuskýrslu um þróun samrunaferlisins í Evrópu. Að sögn utanríkisráðherra er stefnt að því að skýrslan verði tilbúin á fyrri hluta næsta árs. Evrópumál hafa ekki sett sterkan svip á stjórnmálaumræðuna hér á landi síðustu misseri. Fyrir því eru ýmsar ástæður en ekki síst sú staðreynd að engin knýjandi þörf hefur verið fyrir íslend- inga að taka afstöðu til þess hvort aðild að Evrópusambandinu hentaði hagsmunum okkar. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið náðu íslend- ingar að tryggja mikilvægustu hagsmuni sína í samskiptum við Evrópusambandið, þar á meðal óheftan aðgang sjávarafurða á markaði í Evrópu. EES-samningurinn hefur raunar haft jákvæð áhrif á langtum breiðara sviði. Á vettvangi menntamála, menn- ingar og vísinda hefur Evrópusamstarfíð reynst Islendingum farsælt. Þrátt fyrir að við höfum ítrekað orðið að taka upp nýja löggjöf eða breyta ríkjandi lögum til að laga okkur að þróuninni í Evrópu hefur það enn ekki leitt til alvarlegra pólitískra árekstra. EES-ferlið hefur í stórum dráttum reynst vel. Þróunin innan Evrópusambandsins heldur hins vegar stöðugt áfram og því er nauðsynlegt að Islendingar fylgist vel með því sem þar á sér stað og taki afstöðu til þess á hverjum tíma hvern- ig hagsmunum þjóðarinnar er best borgið. Þar ber ekkert að úti- loka en jafnframt ekki að ganga út frá því sem vísu að einhver ákveðin þróun sé óumflýjanleg. I grófum dráttum má segja að fernt muni á næstu árum hafa rík áhrif á hagsmuni Islands gagnvart Evrópusambandinu. Þar ber fyrst að nefna evruna, hinn sameiginlega gjaldmiðil Evrópusambandsins, sem tekin var upp í byrjun þessa árs. Þótt evran verði ekki að almennum greiðslumiðli í Evrópu fyrr en ár- ið 2002 hefur hún nú þegar mikil áhrif á viðskipti í álfunni. Þau áhrif endurspeglast hér á landi enda er vægi gjaldmiðla ESB í íslensku gengiskörfunni um 60%. Ellefu ríki ESB hafa þegar gerst aðilar að hinni sameiginlegu peningamálastefnu og búast má við að fleiri fylgi í kjölfarið, en Bretar, Danir, Svíar og Grikk- ir standa nú utan evru-samstarfsins. Nýlega greindi danski Jafnaðarmannaflokkurinn frá því að hann hygðist berjast fyrir upptöku evrunnar og harðar deilur eiga sér stað um málið í Sví- þjóð og Bretlandi. Ekki er hægt að útiloka að innan fárra ára hafí öll ríki ESB tekið upp evruna sem gjaldmiðil. Hinn sameig- inlegi gjaldmiðill hefur vakið mikla umræðu hér á landi og færa má rök fyrir því að ekkert annað mál sé jafnlíklegt til að breyta afstöðu Islendinga til ESB-aðildar. Breytingar á sviði varnarmála í Evrópu gætu hins vegar einnig haft veruleg áhrif á íslendinga. Verði Vestur-Evrópusam- bandið formlega innlimað í ESB og gert að eins konar Evrópu- stoð NATO-samstarfsins vakna spurningar um stöðu NATO- ríkja utan ESB á borð við ísland. I þriðja lagi ber að nefna þá umfangsmiklu stækkun Evrópu- sambandsins, sem nú stendur fyrir dyrum. Á síðasta ári var ákveðið að hefja viðræður við sex ríki, Eistland, Tékkland, Pól- land, Slóveníu, Ungverjaland og Kýpur. Fyrr í vikunni greindi framkvæmdastjórn ESB frá því að hún hygðist mæla með því við ráðherraráðið að viðræður yrðu teknar upp við sex ríki til við- bótar, Lettland, Litháen, Búlgaríu, Rúmeníu, Slóvakíu og Möltu. Enn er óljóst hver verða afdrif aðildarumsóknar Tyrkja en það mun væntanlega skýrast á leiðtogafundi ESB í Finnlandi í des- ember. Aðildarviðræður þessar munu taka mörg ár og leysa verður úr flóknum vandamálum áður en af aðild flestra þessara ríkja verður. Flest bendir hins vegar til að innan áratugar muni aðildarríki ESB verða hátt í þrjátíu. Einu Vestur- og Mið-Evr- ópuríkin sem ekki eiga nú þegar aðild eða steftia á aðild eru Is- land, Noregur og Sviss og í síðastnefndu tveimur ríkjunum eiga sér stað töluverðar umræður um þessi mál. Þetta hlýtur að vera íslendingum umhugsunarefni. Loks má nefna að töluverð breyting hefur átt sér stað á hinni pólitísku umræðu innan Evrópusambandsins. Þær raddir heyr- ast vart lengur að stefna beri að miðstýrðum Bandaríkjum Evr- ópu líkt og mikið var til umræðu á síðasta áratug. Hin evrópska umræða einkennist í auknum mæli af raunsæi og skilningi á því að bandalag allt að 28 ríkja geti ekki byggst á einsleitni og mið- stýringu heldur sveigjanleika og fjölbreytni. f þeim málaflokki sem skiptir íslendinga mestu máli, sjávarút- vegsmálum, hefur hins vegar engin breyting átt sér stað og hin sameiginlega sjávarútvegsstefna er jafn óaðgengileg fyrir okkur og hún var fyrir sjö árum er EES-málin voru til umræðu. Það breytir hins vegar ekki því að við verðum að fylgjast grannt með þróuninni í Evrópu. Stöðumatsskýrsla utanríkisráðuneytisins getur orðið grunnur að upplýstum umræðum um framtíð Islands í Evrópu við upphaf næstu aldar. Vátryggingahópurinn Ibex Motor Policies hjá Lloyd’s hætti að tryggja bfla hér á landi um síðustu mánaða- mót og við hefur tekið nýr vátryggj- endahópur, Octavian Motor Policies. Tafir á frágangi á formsatriðum varðandi skiptin ollu því að lokað var íyrir sölu á bflatryggingum hjá FIB- tryggingu í eina viku. Halldór Sigurðsson, hjá Aiþjóð- legri miðlun, sem rekur FÍB-trygg- ingu, gefur þær skýringar á brott- hvarfi Ibex að hópurinn ætli að ein- beita sér að heimamarkaði. Hann segir að tryggingar af þessu tagi geti skipt um hendur með skömmum fyrirvara. Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, setur spumingamerki við ástæður sem gefnar eru upp fyrir því að Ibex hættir starfsemi hér á landi. „Ibex tapaði miklum fjármunum hér“ Gunnar segir að látið hafí verið að því liggja að Ibex hætti á markaði hérlendis af þeirri ástæðu einni að hópurinn ætli að einbeita sér að heimamarkaði. í ársskýrslu Ibex sl. vor er því hins vegar lýst yfir að vá- tryggjendahópurinn sé þvert á móti að færa út kvíarnar erlendis. „Það væri eðlilegt að spyrja hvers vegna Ibex er að hætta hérlendis ef starf- semi þeirra hefur skilað svo góðum árangri hér. Þessir menn hafa aldrei viðurkennt að það væri nokkuð að afkomunni í greininni. Við höfum linnulaust kvartað undanfarin tvö eða þrjú ár undan henni. Auðvitað liggur það fyrir að Ibex er að hætta hér vegna þess að þeir hafa verið að tapa miklu fjármagni. Er það trú- verðugt að þeir hætti starfsemi hér ef vel hefur gengið?“ segir Gunnar. Hann segir að íslensku trygginga- félögin hafi orðið fyrir gegndarlausri tortryggni og ásökunum fyrir ið- gjaldsákvarðanir sínar. Þau hafi ver- ið borin röngum sökum. Nær væri að beina sjónum að þeim erlendu að- ilum sem koma inn á markaðinn í þrjú ár, setji þessa mikilvægu trygg- ingargrein í uppnám og hlaupist undan merkjum þegar það henti þeim. Tryggingamiðstöðin ætli hins vegar að starfa áfram á íslenskum markaði. „Það er alveg Ijóst í mínum huga að bflatryggingar eru reknar með tapi. Ibex var að taka mun lægri ið- gjöld en við. Hvernig fer það líka saman að þeir séu ánægðir með af- komuna en hætta engu að síður starfseminni?“ segir Gunnar. Ekki gott útlit fyrir 1998 Halldór Sigurðsson hjá Alþjóð- legri miðlun, sem rekur FÍB-trygg- ingu, segir að þegar Ibex hóf hér starfsemi í september 1996 hefðu þeir boðið iðgjöld sem þeir töldu að dygðu. Um áramótin voru ekki komnir nema um 900 bflar í trygg- ingu og ekki hefði þurft nema eitt stórt tjón til að þurrka út hagnað á því ári. 1997 hefði ekki verið tap á ökutækjatryggingum Ibex en um 1998 sé ekki hægt að fullyrða þar sem ekki sé búið að gera árið upp. Halldór segir hins vegar að útlitið sé ekki gott fyrir það ár. Halldór segir að við Ibex taki hóp- ur vátryggjenda og Lloyd’s komi fram fyrir hönd þeirra. „Það er Lloyd’s sem er skráður hér sem vá- tryggjandi og hefur alltaf verið frá upphafi. Lloyd’s vildi koma fram fyr- ir hönd einstakra vátryggjendahópa þegar Ibex kom hér inn á markaðinn 1996 en andstaða hjá þáverandi Vá- tryggingaeftirliti var gegn því,“ seg- ir Halldór. Hann segir að Vátrygg- ingaeftirlitið hafi fengið því fram- gengt að það yrði Ibex Motor Policies at Lloyd’s sem kæmi fram á eigendaskiptablöðum og á skráning- arskírteinum bfla en hvorki Lloyd’s né FÍB-trygging. „Nú hefur Lloyd’s farið formlega fram á það að þeir séu skráðir aðilar að Aiþjóðlegum bifreiðatryggingum á íslandi eins og þeir eru skráðir annars staðar á evrópska efnahags- svæðinu að sambærilegum félögum og Fjármálaeftirlitið hefur gefið út þann úrskurð að þeim sé það heim- ilt,“ segir Halldór. Tafir á frágangi á formsatriðum vegna brotthvarfs Ibex hópsins og Octavian verður leiðandi hðpur vátryggjenda ökutækjatryggingar og hafa áhrif á starfsemi félagsins og þær skuld- bindingar sem á félagið kunna að falla og upplýsa aðildarfélögin um slíkt. Þess háttar upplýsingum hafí verið komið á framfæri við alla vá- ti-yggjendur sem eiga aðild að ABÍ. „Við fengum sérfræðing til að skoða hugsanleg áhrif breytinga á skaða- bótalögum á greiðslu skaðabóta. Að sjálfsögðu sendum við athugun þessa sérfræðings til Ibex rétt eins og til íslensku trygg- ingafélaganna. Ef við hefðum ekki gert það hefðum við bersýni- lega verið að mismuna aðildarfélögum okkar,“ segir Sigmar. Lloyd’s veitt aðild að ABÍ Sigmar segir að 30. september sl. hafi ABÍ fengið símbréf frá Lloyd’s of London. Þar var tilkynnt að Ibex væri að hætta starf- semi á sviði ökutækja- trygginga á íslandi. Jafnframt var því lýst yfir að annar vátryggj- andi innan Lloyd’s hygðist koma inn á markaðinn í stað Ibex en þar sem ekki væri ljóst hver sá vátryggj- andi væri gæti Lloyd’s ekki nefnt hann að svo stöddu. Jafnframt óskaði Lloyd’s eftir að- ild að ABI og bað um upplýsingar um slíka aðild. hálfu ABÍ var málinu strax komið í farveg. Fundur var haldinn í stjórn ABÍ þann sama dag og bréfið barst. í bréfi til Lloyd’s strax daginn eftir voru umbeðnar upplýsingar sendar," segir Sigmar. Hann segir að Lloyd’s sé ekki vá- tryggjandi heldur samtök vátryggj- enda, eða svonefndra „syndicates", eins og tekið væri fram í gögnum Lloyd’s. Þar með bæri Lloyd’s ekki ábyrgð á starfsemi einstakra vá- tryggjenda. Þegar Ibex hóf starf- semi hér á landi 1996 hefði öllum að- ilum, jafnt Ibex sem Vátrygginga- eftirhtinu, forvera núverandi fjár- málaeftirlits, þótt það hinn eðlilegi framgangsmáti að vátryggjandinn sjálfur, þ.e.a.s. Ibex, en ekki samtök- in Lloyd’s of London, yrði aðih að ABÍ. Sigmar segir að ABÍ hafi ráðg- ast við fjármálaeftirlitið um þetta mál og hafi Lloyd’s verið greint frá því. Fjármálaráðuneytið tók máhð upp við bresk stjómvöld. innkomu nýs vátryggjendahóps ollu því að lokað var fyrir sölu á bfla- tryggingum FÍB-tryggingar í eina viku. Runólfur Olafsson, fram- kvæmdastjóri FÍB, gagnrýnir fram- göngu Alþjóðlegar bifreiðatrygging- ar á íslandi, ABÍ, í þessu máli. Hann bendir á að ABI sé vistað hjá sam- keppnisaðilum FIB-tryggingar en víðast hvar annars staðar séu sam- bærileg félög vistuð hjá hálfopinber- um stofnunum. Hann segir að í stjóm ABÍ sitji for- svarsmenn samkeppn- isaðila FIB-trygging- ar. Runólfur segir jafnframt að Samband íslenskra tryggingafé- laga, SÍT, hafi leynt og ljóst reynt að leggja stein í götu fyrirtækis- ins með því að taka að sér upplýsingagjöf til breskra vátryggjenda um íslenska bifreiða- tryggingamarkaðinn og mála hann dekkri htum en ástæða sé til. Þetta hafi m.a. leitt til þess að Ibex hafi ákveðið að hætta starf- semi hérlendis. Hann segir að út frá samkeppnislögum hafi hvorki SÍT né ABÍ með slíkar úttektir að gera enda séu það fyr- irtæki á samkeppnis- markaði sem myndi þessi samtök. Runólfur segir að SIT hafi notað ABI til þess að hafa áhrif á aðila á sam- keppnismarkaði. Það hafí að sjálfsögðu tölu- vert vægi þegar Al- þjóðlegar bifreiða- tryggingar á íslandi sendi frá sér úttekt af þessu tagi, „sem reyndar varð síðar gmndvöllur að því að íslensku tryggingafélögin hækkuðu sín ið- gjöld um 40-50% 1. júní sl. Þetta leiddi einnig til þess, eftir því sem við höfum fregnað, að Ibex ákvað að hætta starfsemi hérlendis og ein- beita sér að sínum heimamarkaði,“ segir Runólfur. Hann segir að hækkun iðgjalda hafi eðlilega valdið félaginu von- brigðum en á móti komi að það hafi reynt að bjóða hér upp á valkost þar sem byðust ódýrari tryggingar. „Við vitum að samstarfsfélag FIB er enn sem iyrr að bjóða upp á langódýr- ustu bflatryggingamar á markaðn- um. Segja má að það hafi tekist þrátt fyrir ótrúleg bolabrögð sam- keppnisaðila á markaði og samtaka þeima til þess að reyna að brjóta þessa samkeppni á bak aftur. Þessi saga öll hefur styrkt þær fullyrðing- ar sem hafa komið fram nýverið í ummælum forsætisráðhema og í leiðara Morgunblaðsins um þann fá- keppnismarkað sem hér er og hve htla möguleika íslenskir neytendur eiga til þess að ná hagstæðasta vöm- verði á hverjum tíma. Það er því mikill sigur fyrir félagið í viðleitni sinni við að halda niðri vátrygginga- verði hér á landi að búið er að ná samningum við Lloyd’s um vátrygg- ingar félagsmanna," segir Runólfur. Sams konar skipan ABÍ og erlendis Sigmar Armannssonj fram- kvæmdastjóri SÍT og ABI, segir að samkvæmt lögum sem gilda alstaðar á Evrópska efnahagssvæðinu er vá- tryggjendum á sviði lögmæltra öku- tækjatrygginga skylt, hvort sem þeim líkar það betur eða vem, að eiga aðild að sambærilegum samtök- um og ABÍ. Hlutverk þeirra er að bera ábyrgð á akstri íslenskra öku- tækja erlendis, gera upp tjón sem erlend ökutæki valda hérlendis og að gera upp tjón sem óþekkt og óvá- tryggð ökutæki valda hér í umferð- inni. Hann segir að íslensku vá- tryggingafélögin hafi enga hags- muni af því að halda erlendum vá- tryggjanda á íslenskum markaði ut- an við ABÍ. Sigmar segir að stjómir sams konar samtaka erlendis, t.d. á öllum Norðurlöndunum, séu skipaðar full- trúum bifreiðatryggingafélaga eins og hátti til hér á landi. Jafnframt falli það undir verksvið ABÍ að halda utan um lög og reglur sem varða Ibex hefur hætt tryggingastarfsemi hérlendis og í þess stað verður Qctavian leiðandi hópur í bílatryggingum Alþjóðlegr- ------------------------ j--------------- ar miðlunar, sem rekur FIB-tryggingu. Guðjón Guðmundsson rekur aðdrag- andann að þessu máli. Svæðisframkvæmdastjóri alþjóðadeildar Lloyd’s Ibex kýs ekki að starfa á Islandi JAMES Walmsley, svæðisfram- kvæmdasljóri hjá alþjóðadeild Lloyd’s Insurance í London, segir að Lloyd’s hafi haft heimild til vá- tryggingastarfsemi hér á landi síð- an 1996, m.ö.o. verið skráður vá- tryggjandi hér á landi. Ökutækja- tryggingar Lloyd’s á Islandi hafi hins vegar verið í nafni Ibex Motor Policies innan Lloyd’s. j,Ibex kýs ekki lengur að starfa á Islandi og annar vátryggjenda- hópur mun taka við af honum. Við erum í raun að taka til í stjórnun- arlegum skilningi með því að því gera Lloyd’s aðila að Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Islandi í stað Ibex. Það hefur í för með sér að í framtíðinni geta aðrir vá- tryggjendahópar innan Lloyd’s bæst í hópinn,“ segir Walmsley. Walmsley segir að ökutækja- tryggingar Alþjóðlegrar miðlunar verði í nafni Octavian vátryggj- endahópsins hjá Lloyd’s. Hann seg- ir að þessi háttur sé jafnan hafður á hjá Lloyd’s. Tryggingasamning- ar séu ekki gerðir í nafni Lloyd’s. Walmsley segir að Lloyd’s sé ekki kunnugt um að fleiri vátryggj- endahópar hafi lýst yfir áhuga á því að slást í hópinn með Octavian. Það sé þó ekki útilokað að það ger- ist í framtiðinni og þegar og ef það gerist myndi Lloyd’s upplýsa Fjár- málacftirlitið á íslandi um það. Walmsley kvaðst ekki geta upplýst hvaða ástæður lægju að baki því að Ibex hættir starfsemi hérlendis. Hann gfæti heldur ekki tjáð sig um hvaða augum vátryggjendahópar innan Lloyd’s litu markað á Islandi fyrir ökutækjatryggingar. „Við hjá alþjóðadeild Lloyd’s sinnum einkum málarekstri sem lýtur að reglugerðum til að tryggja að vátryggjendahópar hafi heimild til að reka sína starf- semi. Við gerum ekki athuganir á arðsemi starfseminnar," segir Walmsley. Hann sagði að Lloyd’s hefði átt samskipti við Fjármálaeftirlitið á Islandi og Alþjóðlegar bifreiða- tryggingar á Islandi í tengslum við þetta mál. „Það hefur reynst dálít- ið erfitt að útskýra nákvæmlega fyrir málsaðilum ferli málsins en það hafa þó ekki risið upp af því mikil vandamál. Þetta er það sem gerist oft hjá Lloyd’s um allan heim þegar einn vátryggjendahóp- ur tekur við af öðrum,“ segir Walmsley. Aðspurður hvers vegna íslensk- um stjórnvöldum hefði verið til- kynnt að vátryggjendahópurinn DP Mann tæki við af Ibex hérlend- is segir Walmsley að augsýnilega hafi sú staða komið upp, að þegar fregnir bárust af því að Ibex hygðist hætta starfseminni, hefðu aðrir vátryggjendahópar leitað hófanna á markaði Lloyd’s. DP Mann hefði sýnt málinu áhuga en síðan dregið sig í hlé. Fjölmargar ástæður gætu Iegið að baki ákvörðun DP Mann. Sigmar segir að þrátt fyrir að um- beðin gögn hafi ekki borist fjármála- eftirlitinu frá Bretlandi hafi ABÍ í samráði við Fjármálaeftirlitið 6. október sl. enn tekið upp aðildarmál Lloyd’s. Ákveðið var á fundi stjórnar ABI daginn eftir að veita Lloyd’s að- ild til bráðabirgða og var hún háð því að kröfum stjórnvalda og form- skilyrðum íslenskra laga væri full- nægt en fyrir lá að þau atriði væru enn ekki frágengin. Jafnframt hafi Lloyd’s verið beðið um að gefa út yf- irlýsingu um ábyrgð sína eða hlutað- eigandi vátiyggjenda á skuldbind- ingum sínum hér gagnvart ABI. Gefinn var vikufrestur til þessa. Með bréfi Lloyd’s 12. október sl. greinir Lloyd’s frá því að fyrir liggi hvaða vátryggjandi taki við af Ibex, þ.e.a.s. Octavian Motor Policies at Lloyd’s. „Þetta kom öllum mjög á óvart því fulltrúar Alþjóðlegrar miðlunar höfðu áður gefíð út þá yfírlýsingu að við Ibex tæki DP Mann. Lloyd’s bauðst jafnframt til að gefa út ábyrgðaryfir- lýsingu vegna þessarar starfsemi þar tfl línur skýrðust í þessu efni milli Lloyd’s of London og Octavian Motor Policies. Síðastliðinn miðvikudag kom stjóm ABÍ saman og samþykkti þá lausn sem Lloyd’s stakk upp á. Með bréfi frá ABÍ til Lloyd’s hefur þetta íyrirkomulag verið formlega stað- fest,“ segir Sigmar. Halldór Sigurðsson hjá Alþjóð- legri miðlun segir að skýringuna á því að DP Mann hafi verið nefndur til sögunnar felast í eðli Lloyd’s tryggingamarkaðarins. Þessi skipan hafi þó ekki verið tilkynnt Fjármála- eftirlitinu. „Það sem er undir Lloyd’s er afar hreyfanlegt. Þótt DP Mann hafi ætlað að taka þátt í þessu fyrir þremur vikum þá hefur það breyst á þann veg að þeir hafa hætt við og aðrir tekið við í staðinn. Það er því ekki að ástæðulausu að Lloyd’s vill vera í forsvari fyrir þessa hópa. Ég held ég hafi aðspurð- ur látið það út úr mér að DP Mann væri líklegur til að vera með sem leiðandi „syndicate" en þeir eru nú hættir við það,“ segir HaÍldór. Hann segir að það hafi verið ljóst iyrir þremur vikum að DP Mann yrði ekki með en Lloyd’s, sem sæk- ist eftir aðild að Alþjóðlegum bif- reiðatryggingum, hafi tilkynnt ABI sl. þriðjudag að leiðandi vátrygg- ingahópur yrði Octavian. Sigmar Armannsson segir að ABÍ hafi lagt sig í framkróka við að leysa þetta mál með Fjármálaeftirlitinu. „Lloyd’s hefur beinlínis þakkað þátt okkar í málinu og ég kannast hvorki við óánægju þaðan né heldur frá Ibex. Það er ekki við okkur að sakast ef í ljós kemur að þeir aðilar sem hafa átt að ganga frá lögform- legum kröfum hafa ekki gert það eða ekki með þeim hætti sem íslenskum stjómvöldum er þóknanlegt. Það er ekki heldur við okkar að sakast hafi aðilar þjófstartað og fengið bágt fyr- ir það hjá íslenskum stjómvöldum," segir Sigmar. Innra skipulag Lloyd’s óskýrt í hugum íslendinga Helgi Þórsson, hjá Fjármálaeftir- litinu, segir að eftirlitið geri engar athugasemdir við þátt ABÍ í þessu máli. Hann segir að í meginatriðum hafi málið gengið eðlilega íyrir sig. Þó hafi verið mikill flýtir viðhafður í málinu öllu sem geri það dálítið sér- stakt. „Það fylgir því óvissa að innra skipulag Lloyd’s er ekki sérstaklega skýrt í huga íslendinga. Annars veg- ar þurfti að breyta tilkynningum frá 1996 og þær em á leiðinni og hins vegar þarf að kljást við spumingar um hver geti skuldbundið hvem. Beðið var um skýringar á þessu og þær em einnig á leiðinni að því ég best fæ séð,“ segir Helgi. Helgi segir algengara hjá Lloyd’s en öðmm að stuðst sé við svokallaða samtryggingu sem virkar þannig að vátryggjendur dreifa á sig áhætt- unni í ákveðnum hlutfollum. Ibex hafi á hinn bóginn einn staðið að sinni ábyrgð. „Það sem skiptir mestu máli í þessu tilviki er að Lloyd’s tekur að sér að vera í fyrir- svari fyrir þessa vátryggjendur, hverjir sem þeir eru, varðandi aðild- ina að Alþjóðlegum bifreiðatrygg- ingum á íslandi," segir Helgi. Munur milli hverfa í vímu- efnaneyslu HVERFASKIPTING áfeng- is- og vímuefnaneyslu hef- ur undanfarið verið kynnt fyrir fulltrúum skóla og tómstundastarfs í Reykjavik. Niður- stöður benda til að meiri sveiflur séu í neyslu milli ára en byggðahverfa. Rannsóknin Þróun vímuefnaneyslu íslenskra unglinga var kynnt fyiT í sumar. Hún var unnin af félagsfræð- ingunum Ingu Dóra Sigfúsdóttur og Þóroddi Bjamasyni og er hluti af evr- ópskri könnun (ESPAD) sem fram- kvæmd er í 30 löndum og nær til 15-16 ára barna. Á íslandi var það Áfengis- og vímuvamarráð sem stóð að rannsókninni. Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar um afbrota- og fíkniefnavarnir (SAF) og ýmis sveit- arfélög hafa í framhaldi látið kanna áfengis- og vímuefnaneyslu á sínu svæði. Náin tengsl við landsmeðaltal Rannsóknarmiðstöðin Rannsóknir og greining, sem Inga Dóra starfar hjá, hefur kynnt niðurstöðurnar fyrir skólastjómm, námsráðgjöfum, full- trúum félagsþjónustunnar, fuUtrúum ÍTR og fulltrúum foreldra í Reykja- vík. Er borginni þar skipt upp í fjögur svæði, vesturbæ/miðbæ, austurbæ, Breiðholt/Árbæ og Grafarvog. Niðurstöðumar sýna að ekki em miklar breytingar á áfengis- og vímu- efnaneyslu unglinga milli hverfa og að náin tengsl em við landsmeðaltal. „Það er sama á hvaða vímuefni við h't- um, áfengi, reykingar eða sterkari efni, neyslan virðist svipuð hvar sem er í borginni,“ segir Inga Dóra og kveður neyslusveiflur meiri milh ára en hverfa. Nokkur munur er þó sjáanlegur milU hverfa. Landsmeðaltal þeirra sem neytt höfðu áfengis innan við 30 dögum áður en könnunin var gerð var 43,5%. Sé Reykjavík skoðuð út frá þeim tölum sést að flestir unghngar í Breiðholti og Árbæ, eða 49,4%,ýiöfðu neytt áfengis á þessu tímabUi. Áfeng- isneyslan var hins vegar minnst í austurbæ, eða 41,9%. Þegar Utið er síðan á reykingar höfðu flestir unglingar í austurbænum reykt sl. 30 daga fyrir könnunina, eða 32,5% á meðan talan mældist lægst í Grafarvogi eða 28,8%. Þá höfðu flestir ungUngar í vesturbæ reykt hass ein- hvem tímann á ævinni, eða 21,6%, en fæstir í Breiðholtinu, 18%. Minni neysla en undanfarin ár Inga Dóra segir að fundir með for- svarsfólki forvamaraðgerða bendi til að ástæðu þessa mismunar sé ekki hvað síst að finna í því mismunandi forvamarstarfi sem fram fer í hverf- unum. Hún nefnir sem dæmi að lögð sé meiri áhersla á að vinna gegn reyk- ingum í sumum hverfum en öðmm. Mikilvægasta niðurstaða rannsókn- arinnar er þó, að mati Ingu Dóm, sú að í fyrsta skipti síðan 1990 hefur dregið úr neyslu ólöglegra vímuefna, reykingum og áfengisneyslu meðal unglinga. „Þessu ber að fagna," segir Inga Dóra og bendir á að rannsóknir hafi sýnt tengsl milh neyslu í efstu bekkjum grunnskóla og neyslu í framhaldsskólum. Ætla megi því að Morgunblaðið/Golli Inga Dóra Sigfúsdóttir segir öfl- ugt forvarnarstarf nauðsynlegt. neysla mælist áfram minni hjá þess- um árgangi unglinga. Inga Dóra varar þó við að of mikið sé lesið úr rannsókninni og árangri forvarnarstarfs á þessu stigi. Hugsan- legt sé að forvamarstarf undanfar- inna ára sé nú að skila sér, en hægt verði að gera sér nákvæmar grein fyrir stöðu mála þegar niðurstöður ÉSPAD rannsóknarinnar frá öðmm löndum berast. Forvamastarf bæti félagslegt umhverfi ,Af fyrri rannsóknum okkar getum við þó dregið þá ályktun að margir þættir hafi áhrif á vímuefnaneyslu ungs fólks,“ segir Inga Dóra og nefnir sem dæmi jafningjahópinn, frístunda- starf, lífsstíl, tengsl við fjölskyldu og áhrif skólans. Fyrri rannsóknir hafi t.d. sýnt að unglingar sem veija litlum tíma með foreldram eða forsjáraðilum og ung- Ungar sem fá h'tið aðhald og eftirlit heima fyrir séu líklegri til að reykja og neyta vímuefna en þeir sem veija meiri tíma með fjölskyldunni og fá meira aðhald. Einnig segir Inga Dóra vera sjáan- leg tengsl milli þátttöku í skóla og tómstundastarfi. Þeir sem séu utan- veltu í skóla séu þannig líklegri til að reykja og neyta vímuefna, á meðan þeir ungUngar sem taka þátt í íþrótt- um og öðm skdpulögðu æskulýðsstarfi séu ólíklegri til að neyta vímuefna en þeir sem ekki taka þátt í slíku starfi. Inga Dóra segir því mikilvægt að efla nærsamfélagið og draga þannig úr líkum á að einstaklingar séu utan- veltu. Forvamarstarf þurfi þannig að beinast að því að bæta félagslegt um- hverfí ungUnga. Fræðsla um skað- • semi fíkniefna og formlegt taumhald skili ekki árangri eitt sér. „Eigi árangur að nást verða alUr þessir aðilar að ná saman,“ segir Inga Dóra og kveður öflugt forvarnarstarf vera í gangi í mörgum hverfum. „Annað sem skiptir máli er að hafa í huga að forvarnarstarf er grasrótar- starf. Sérfræðingar geta vissulega miðlað upplýsingum og greitt fyrir að árangur náist. En þeir sem líklegastir era til að ná árangri em þeir sem um- gangast unglinga frá degi til dags, foreldrar, kennarar og annað skóla- fólk svo og þeir sem starfa með ung- ^ lingum í tómstundum þeirra.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.