Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ í DAG Árnað heilla QA ÁRA afmæli. í dag, O V/ laugardaginn 16. október, verður áttræð Guð- dís Sigurðardóttir, Reyni- mel 72, Reykjavík. Hún dvelur á heimili dóttur sinn- ar og tengdasonar á afmæl- isdaginn. BRIDS llinsjún (iuðniiindur l'áll Arnarson VIÐ höldum áfram að skoða spil frá sex þjóða sýningar- keppni alþjóðaólympíunefnd- arinnar, sem fram fór í Laus- anne í síðasta mánuði. Enska heitið á mótinu er „Second Intemational Olympic Comm- ittee Grand Prix“, sem er stórt nafn fyrir stutt mót, en það dugir ekkert minna þeg- ar gera á brids að vetrarí- þrótt á Ólympíuleikunum (hvað segja „sumarbrids“-að- dáendur um það?). Hér eru það grannamir ítalir og Frakkar sem eigast við: Suður gefur; AV á hættu. Norður A D5 V K652 ♦ ÁD42 * D53 Vestur Austur * KG109874 *DG8 ♦ 953 * 63 V Á9743 ♦ 7 *Á9764 Suður *Á2 V 10 ♦ KG1086 * KG1082 Veslur Norður Austur Suður IK' Si.Majn'Angvlini Bompis Sementa - - 2 tíglar 2 spaðar 3 spaðar Pass 4 lauf Pass 4 tígiar Pass 4 spaðar Pass 5 tíglar Dobl Alíir pass Sagnskýringar eru engar í mótsblaðinu, en ef að líkum lætur er opnun suðurs á tveimur tíglum einhvers kon- ar láglitasögn með lágmarks opnunarstyrk. Það er hinn ítalski stfll. Innákoma Fakk- ans De St. Marie á tveimur spöðum er svolítið óhefðbund- in, því hann á engan vamar- styrk og nokkuð dæmigerð hindrunarspil. Flestir hefðu sagt 3A spaða í hans stöðu, en kannski þótti honum það full- djarft á hættunni. Hvað sem því líður þá melda NS eins og þeir séu á leiðinni í slemmu, sem hefði átt að vara Bompis í austur við að dobla, þrátt fyrir ásana tvo. En hann stóðst ekki mátið. Ekki þar fyrir; fimm tíglar fara rakleið- is niður ef út kemur hjarta UPP á ás og lauf til baka. Sú vöm er hins vegar ekki auð- ftindin og í reynd kom vestur ut með spaðafjarkann í við- leitni til að koma makker inn °g vísa um leið á laufið. En það skot geigaði. Sementa stakk upp drottningunni, tók trompin og lagði upp. Spilið er spennandi með hjartadrottningunni út. Lík- lega fær hún að eiga slaginn °g ef vestur heldur áfram með hjai-ta trompar suður, tekur þrisvar tromp og endar í borði. Austur þarf að henda tvisvai' af sér og þau spil eru þvinguð: eitt hjarta og einn spaði. Sagnhafi spilar svo út hálaufi heimanfrá, sem austur dúkkar, auðvitað. En þá legg- ur suður spaðaásinn niður áð- nr en hann spilar laufi á drottningu. Austur drepur, en verður nú að hjálpa sagnhafa. ÁRA afmæli. Á morgun, sunnudag- inn 17. október, verður átt- ræð Kristín M. Aðalbjörns- dóttir, Vogatungu 57a, Kópavogi. Kristín tekur á móti gestum á afmælisdag- inn frá kl. 15-18 á heimili sonar sína á Digranesvegi 24, Kópavogi. ÁRA afmæli. í dag, laugardaginn 16. október, verður áttræður Hákon Björnsson, rafvirkja- meistari, Ki’ókatúni 3, Akranesi. Eiginkona hans er Sigríður Sigursteinsdóttir. Hjónin taka á móti gestum á heimili sínu, Krókatúni 3, í dag, laugardaginn 16. októ- ber, frá kl. 16. HA ÁRA afmæli. Næst- I Vf komandi mánudag, 18. október, verður sjötug Sesselja Sigurðardóttir, Hellum, Vatnsleysuströnd. í tilefni af því munu Sesselja og eiginmaður hennar, Brynjólfur G. Brynjólfsson, taka á móti gestum sunnudaginn 17. október, frá kl. 15, í félags- heimilinu Glaðheimum í Vogum á Vatnsleysuströnd. ÁRA afmæli. Á O U morgun, sunnudag- inn 17. október, verður fimmtug Bergþóra Ólafs- dóttir, Seljabraut 36. Hún og maður hennar Siguijón Jóhannsson, taka af því til- efni á móti gestum á Veit- ingahúsinu A. Hansen, Hafnarfirði, frá kl. 17-19 á afmælisdaginn. Með morgunkaffinu Ast er... ... að vera góður við mömmu hennar. TM R«g U.S. Pat. Otf. — all ríghu maomd (c) 1899 Los Angalei Tn« Syndicale Horfðu á björtu hliðarnar. Eg vann 500 kall á einn skafmiðann. Ég skil ekki af hveiju fólk er á móti kvíða- stillandi lyfjum. Ég er alveg orðin laus við alla hræðslu. YNGISMEY Ég stend fyrir spegli og strýk mitt hár, sem stormurinn lék um í fjórtán ár. Ó, yrði hver dropi, hvert daggartár, að djásnum og óskasteinum. Það er eitthvað, sem hefur að mér sótt, líkt og ilmur frá skógargreinum ... Ég vakti í nótt, - ég veit það er ljótt og vil ekki segja það neinum. Er móðirin blessar börnin smá og blómin fræjum í jörðu sá, þá vaknar hjá mér hin villta þrá ... Óll veröldin fer að kalla. Ég þori ekki að segja neinum neitt. En nóttin, hún skilur alla. Um allt, sem er þreytt og þráir heitt, vefst þögn hinna bláu fjalla. Davíð Stefánsson STJÖRIVUSPA eftir Frances Drake VOG Afmælisbarn dagsins: Þú ert til forystu fæddur og átt auðvelt með að fylkja öðrum til samstarfs, sem uppsker árangur. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Það er aldrei að vita, hvemig rætist úr tilviljanakenndum samböndum. Leyfðu málum bara að hafa sinn gang og njóttu lífsins með bros á vör. Naut (20. apríl - 20. maí) Reyndu að nálgast málin með jákvæðu hugarfari. Tíndu fyrst til kostina og láttu þá ráða ferðinni, því þannig verða ókostirnir auð- veldlega yfirunnir. Tvíburar (21. maí - 20. júní) oA Oft leiða erfiðleikar vinina í Ijós og kann þá heldur að fækka í kunningjahópnum! En slík hreinsun er góð því þá veiztu hveijum er að treysta. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Reyndu að halda að þér hönd- um, þótt gylliboðin glymji. Þú missir ekki af neinu, heldur getur hlaupið til, þegar raun- verulegur hagnaður býðst. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þér leggst eitt og annað til í peningamálum. Láttu samt stundargróða ekki villa þér sýn, heldur leitaðu ráða þar sem þau eru gefin á fagleg- um grunni. Meyja (23. ágúst - 22. september) <B Fátt er skemmtilegra en góð- ar stundir í faðmi fjölskyld- unnar. Gefðu þér tíma til þess að njóta shkra stunda, þótt þér finnist annað liggja við. Vog (23. sept. - 22. október) Ekki gefast upp, þótt þér finn- ist öll spjót standa á þér þessa dagana. Þolinmæði þrautir vinnur allar og þinn tími mun koma, þótt síðar verði. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Gleymdu ekki að segja þeim hug þinn, sem þér þykir vænt um. Það þarf ekki mörg orð né mikla tilburði, heldur aðeins að láta vita af tilfinn- ingum þínum. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) flkí Það verður lítið úr framtíðar- draumunum, ef ekkert er gert til þess að þeir rætist. Hristu af þér slenið, brettu upp ermamar og taktu til hendinni! Steingeit (22. des. -19. janúar) Sjálfsagt er að sýna skoðun- um annarra virðingu, þótt þær fari ekki saman við okkar eigið álit. Sú breytni er undir- staða sátta og samkomulags. Vatnsberi , - (20. janúar -18. febrúar) Þér finnst erfitt að átta þig á framkomu vinafólks þíns. Vertu rólegur; ástæðanna er ekki að leita hjá þér og þú getur ekki leyst vandamál þeirra. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Sjáðu bara til; þér er óhætt að hefjast handa við áætlun þína, því hún mun vinna sér bæði fylgismenn og meira framkvæmdafé þegar til kastanna kemur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 65 /r Antik og gjafavörur Skrifborö af ýmsum gerðum. Ljósakrónur, lampar og speglar í úrvali. Gjörið svo vel 03 lítið inn. Næg bílastæði á baklóð. Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. kl. 11-17 og sun. kl. 13-17 ^^^jSrensásveglJþ4j^sftTii5686076 Bipflex segulmeðferð hefur slegið í gegn í Danmörku og er nú fáanleg á íslandi. Um er að ræða segulþynnur 1 5 stærðum sem festar eru á líkamann með húðvænum plástri. Kynning á BlOflex segulþynnum í dag og á morgun sunnudag frá kl. 12-16 SCANDtNAVlA Dæmi þar sem BlOflex segulþynnan hefur sýnt fraoær áhrif ® Höfuðverkur t, Liðaverkir • Hnakki # Þursabit • Axlir # Hné • Tennisolnbogi * Æðahnútar • Bakverkir ♦ ökkiar Eb LYFJA Lágmúla 5, S. 533 2300 Opið laugardag kl. 10-18 og sunnudag ld.13-17. NÝTT KORTATÍMABIL Kringlunni - Sími 5682221. Vantar þigkonnpudót? v/^t-ar þig gamia kápu? \Lntar antikhúsgögn? Vantar þigísiensktgriót? V.ntar hig rúnakertr Vantar s lökunartonlist? Vantar þig ieikfong- Vantar þig góðan mat? Pantið sölubás með fyrirvara! Á þessum tíma órslns þarf að hafa lengri fyrirvara þegar pantaður er sölubás í Kolaportinu. Safnara- dagar ##um næstu helgi Þeir sem hafa áhuga á að selja eða sýna vöru hringi í 5625030.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.