Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 4
4 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Melaskóli er nú einsetinn eftir að viðbótarhúsnæði skólans hefur verið tekið í notkun
Nýbygging
reist í stað
stækkunar
NYBYGGING Melaskóla var
formlega tekin í notkun í gær. Þar
með er skólinn orðinn einsetinn, en
í skólanum eru nú um 580 börn í 1.
til 7. bekk. Ákveðið var í upphafí að
hreyfa ekki við eldri húsbyggingu
skólans og því stendur nýja bygg-
ingin sér á skólalóðinni og tengist
gamla húsinu með undirgangi.
Ögmundur Skarphéðinsson,
arkitekt nýja hússins, segir að
gamli Melaskólinn sé ein merkileg-
asta bygging síns tíma og því hafi
ekki þótt rétt að hrófla við húsinu,
heldur byggja nýtt á skólalóðinni.
Ragna Ólafsdóttir skólastjóri segii’
að ákveðið óhagræði fylgi því aíð
nýbyggingin standi sér, en ségir
hana að öðru leyti vel hepþnaðal
Hún segir einsetninguna breyta
miklu og hafa jákvæð áhrif á skóla-
starfið.
Undirbúningur að byggingu
skólans hófst um mitt árið 1997 og
í fyrrahaust voru teknar í notkun
fimm kennslustofur. Húsnæðið var
síðan allt tekið í notkun í síðasta
mánuði. I nýbyggingunni eru 12
heimastofur, raungreinastofa, tvær
sérkennslustofur, aðstaða fyrir
kennara og hópvinnu- og tóm-
stundarými ásamt tengigangi við
eldra húsið. Alls er húsið 1.470 fer-
metrar og áætlaður kostnaður við
bygginguna er um 230 milljónir.
Mikil ögrun að hanna nýja húsið
Farin var sú leið að reisa ný-
byggingu á skólalóðinni í stað
þess að stækka eldra húsnæði
Melaskóla. Ögmundur Skarphéð-
insson arkitekt sagði í samtali við
Morgunblaðið að ákveðið hefði
verið í upphafi að fara þá leið til
að hrófla ekki við stíl eldra húss-
ins. Við hönnun hússins lá síðan
til grundvallar virðing fyrir gamla
húsinu en jafnframt var reynt að
skapa byggingu sem gæti staðið
fyrir sig sjálf. Hann segir að eldri
bygging Melaskóla hafi löngum
verið talin ein merkilegasta bygg-
ing síns tíma og staðið sig vel sem
skólahús. Það hafi verið vandað
vel til þess í upphafi og svo virðist
sem nemendur Melaskóla hafi
tengst byggingunni sterkum hug-
renningatengslum. Ögmundur
segir að það verði spennandi að
vita hver viðbrögðin verði gagn-
vart nýja húsinu þegar fram líða
stundir.
Annar útgangspunktur í þessari
hönnun, að sögn Ögmundar, var að
hverfið er byggt á gömlu skipulagi
frá þvi um 1940. Gamli Melaskólinn
er bogadreginn og radíuspunktur
hans er í miðju Hagatorginu. Nýja
byggingin fylgir sömu skipulags-
hugmynd og var í gangi fyrir tæp-
lega 60 árum, sem er frekar óvana-
legt í grónu hverfi.
Ögmundur segir að því haft iylgt
mikil ögnm að hanna þetta nýja
hús. „Það seinasta sem við vifdum
lenda f var'Áð hanna einhyers, kpn- ■"
ar kópíu af 'gamla húsinu. Re.vnt
var að láta. nýbygginguna hálda.
sjálfstæði sínu gagnvart . .gamla
húsinu en-samt sem áður’áS vh-ða
það sem best þykir þar.“
Hann segir að skiptar skoðanir
hafi verið um það hvort byggja
ætti nýtt hús. Það sé hins vegar
ánægjulegt að sjá hve íbúar í
hverfinu hafi tekið þessum fram-
kvæmdum vel. Fólki hafi í upphafi
litist misjafnlega á að fá nýbygg-
ingu inn í mitt hverfið, en viðbrögð
íbúanna meðan á framkvæmdum
stóð hafi verið ákveðin meðmæli
með því að þetta hafi nú ekki verið
röng ákvörðun í upphafi. „En hvort
vel hafi til tekist kemur ekki í ljós
fyrr en farið verður að nota húsið
og eini raunhæfi mælikvarðinn er
sá hvort þetta verður gott skólahús
eða ekki. Það skiptir mestu máli,“
segir Ögmundur.
Einsetning hefur jákvæð
áhrif á skólastarfíð
Ragna Ólafsdóttir skólastjóri
segir að nemendum hafi heldur
fækkað undanfarin ár þrátt fyrir
að fæðingartölur í hverfinu hafi
bent til að heldur ætti að fjölga.
Hún segir að mörg forskólabörn
séu jafnan í hverfinu, en þau skili
sér ekki inn í Melaskólann. Marg-
ir foreldrar ungra barna búa á
stúdentagörðunum og flytja brott
eftir að námi lýkur. Einnig virðist
sem fólk byrji búskap í litlum
íbúðum í hverfinu og fari síðan í
stærri íbúðir í nýrri hverfum.
Ragna telur að þetta sé hluti af
skýringunni, en í dag er því til-
tölulega rúmt um nemendur í
skólanum. Eftir er þó að gera
MANADARIiVIS
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sími 510 2500
Rrixm
2.720,-
Loksins
komin aftur
Guð hins smáa kom út í fyrra
og seldist upp á svipstundu.
„Sagan er listavet samin
...þrungin spennu sem fyllir
lesandann þvílíku óþoli að
hann getur ekki hætt að lesa."
Sigrfður Albertsdóttir, DV
FORLAGIÐ
Morgunblaðið/Golli
Olafur Hérsisson, Anna Margrét Hauksdóttir og Ögmundur Skarphéðinsson sáu um hönnun
á nýbyggingu Melaskólans.
Morgunblaðið/Golli
Ragna Ólafsdóttir skólastjóri heldur á lofti lyklunum að nýbyggingu
Melaskóla sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhenti henni
skömmu áður.
Morgunblaðið/Ásdís
Hjálmtýr Daregard og Tinna Ólafsdóttir eru nemendur í 5. bekk B í
Melaskóla. Tinna hefur alltaf verið í Melaskóla og flutti í nýja stofu í
haust. Henni líst vel á nýju stofuna og segir að þar sé gott pláss. Hjálrn-
týr var í skóla í Svtþjóð í fyrravetur og segir nýju bygginguna vera
flottari en skólinn sem hann kom úr, enda hafi hann verið miklu eldri.
bréytingar ínnanhúss í eldri bygg-
ingunni og fækka stofum. Veruleg
fjölgun nemenda á næstu árum
gæti því leitt til þess að skólinn
lenti í húsnæðisvandræðum, segir
Ragna.
Við einsetninguna lengist skóla-
dagur nemenda. Nú mæta nem-
endur kl. 8.30 og eru búnir á milli
hálftvö og tvö. Ragna segir að ein-
setning breyti miklu fyrir skóla-
starfíð. Það sé betra að byrja dag-
inn á skipulagðri vinnu strax á
morgnana og eiga þá frekar laus-
an tíma seinni partinn. Það sé
reyndar meira álag á morgnana
en á móti komi að meira næði sé
eftir skólatíma. í heildina séð er
einsetningin því jákvæð að mati
Rögnu.
Hún segir að starfsfólki og
nemendum líki vel við nýju bygg-
inguna og að þar séu stórar og
rúmgóðar stofur. „Ég heyri ekki
annað hjá nemendum og kennur-
um en að þetta sé allt mjög gott
mál.“
Ragna segir að nokkurt óhag-
ræði fylgi því skipulagslega fyrir
skólastarfið að nýbyggingin standi
sér. „Mér finnst svolítið löng leið
þarna út og finn það í mínu eigin
tilviki að ég hef minna af eldri
krökkunum að segja en áður, því
mín skrifstofa er hér í eldri bygg-
ingunni. Þá er það sjálfgefið að
maður er meira hér,“ segir Ragna.
Hún segir þó að elstu bekkirnir,
10-12 ára börnin, fái svolítið meira
pláss fyrir sig í nýja húsinu, því
yngstu börnin verða í eldra hús-
inu. Frímínúturnar eru líka tví-
skiptar vegna fjöldans og vegna
þess hve lóðin er lítil.
„En ég er ánægð með bygging-
una og finnst hún í raun og veru
falleg. Nokkuð sérstök en falleg-
Og miðað við aðstæður finnst mér
hafa tekist vel til með hönnun á
byggingunni," segir Ragna.
Fjöldi málstofa á Hugvísindaþingi Háskóla íslands sem lýkur í dag
Umræða
um list-
form smá-
sögunnar
HUGVÍSINDAÞINGI Hugvísinda-
stofnunnar lýkur í dag, en á þinginu
er efnt til fjölda málstofa og fyrir-
lestra þar sem margvísleg málefni
eru rædd.
A dagskrá þingsins í gær var m.a.
umræða um Vestur-íslendinga og
íslenska menningu, farvegi nútíma-
væðingar á Islandi og bændamenn-
ingu nýaldar.
A dagskrá þingsins í dag eru
m.a.: KI. 9.30-11.00 listform smásög-
unnar, heimspeki með bömum og
sannleikur í fræðunum. Kl. 11.30-
13.00 erfðavísindi og mannskilning-
ur, nútímaljóðlist; afdrif módem-
ismans og hvað er nafnfræði?
Kl. 14.00-15.30 verða fyrirlestrar um
hugvísindi frá ólíkum sjónarhorn-
um. Kl. 16.00-17.00 er á dagskrá
málstofunnar virðing á þjóðveldis-
öld, táknfræði og miðaldasaga og
bókmenntir og þjóðemisstefna.