Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jóla-
vertíðin
hafin
NÚ ÞEGAR fyrsti vetrardagur
nálgast óðfluga og um tveir mán-
uðir eru til jóia telja sumir kaup-
menn túnabært að fara að huga
að jólunum. I ár ríður versiunin
IKEA á vaðið og í gær gátu gest-
ir verslunarinnar fest kaup á
jólaskrauti sem er, samkvæmt
fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu, sérstakiega hannað með ár-
þúsundamótin f huga. Að sögn
starfsmanna nutu gestir jólaand-
rúmsloftsins í versluninni í gær
og mikið var að gera.
Rfkisstjornin býðst til að ganga til viðræðna um framtíð Orkubús Vestfjarða
Ríkið kaupi hugsanlega 60%
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum fyrir
skömmu að bjóðast til þess að ganga til við-
ræðna við sveitarfélög á Vestfjörðum um hugs-
anleg kaup ríkisins á 60% hlut þeirra í Orkubúi
Vestfjarða. Ríkið á fyrir 40% hlut í Orkubúinu
en talið er að eigið fé fyrirtækisins nemi um fjór-
um milljörðum króna. Að sögn Finns Ingólfsson-
ar iðnaðarráðherra er gert ráð fyrir því að við-
ræður geti hafist innan skamms.
Spurður um þann vilja ríkisstjórnarinnar að
ganga til viðræðna við sveitarfélögin segir Finn-
ur að í langan tima hafi það legið fyrir að eitt
sveitarfélaganna á Vestfjörðum, Vesturbyggð,
hafi haft áhuga á að selja sinn hlut í Orkubúinu.
„Mjög erfitt er að kaupa hlut eins aðila í Orku-
búinu vegna flókinna reglna um eignarhald á
fyrirtækinu og því fannst okkur mun eðlilegra að
bjóða upp á viðræður um það með hvaða hætti
við gætum gert þetta, þ.e. hvort eitt sveitarfélag
gæti selt sinn hlut eða hvort þau öll væru tilbúin
að selja.“ Finnur bendir þó á að niðurstöður við-
ræðnanna gætu orðið þær að sveitarfélögin
seldu ekki sinn hlut.
Ráðherra gerð grein fyrir
hugmyndum heima í héraði
Umræða um skipan eignarhaldsins á Orkubúi
Vestfjarða hefur staðið yfir í nokkurn tíma með-
al sveitarfélaganna á Vestfjörðum en á fundi
vestfirskra sveitarstjómarmanna í sumar var
ákveðið að óska eftir þvi við Fjórðungssamband
Vestfirðinga að það skipaði nefnd til að skoða
hvaða valkostir stæðu sveitarfélögunum til boða.
Tii dæmis hvort sveitarfélögin ættu að selja sinn
hlut, hvort þau ættu að kaupa hlut ríkisins eða
hvort eignaraðildin ætti að vera óbreytt.
Nefndin var skipuð og í haust ritaði hún iðnað-
arráðherra bréf þar sem hún gerði m.a. grein
fyrir þeim hugmyndum sem væru uppi um hugs-
anlegar breytingar á eignaraðild fyrirtækisins
án þess þó að koma fram með neinar óskir um í
hvaða farveg málið ætti að fara. í framhaldi af
því tók ríkisstjórnin svo fyrrgreinda ákvörðun
um að bjóðast til þess að ganga til viðræðna við
sveitarfélögin.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsfundur Vinstrihreyfíngarinnar - græns framboðs hófst á Akureyri í gær
STEINGRIMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, sagði í setningar-
ræðu sinni á landsfundi flokksins á
Akureyri í gær að mikilvægustu
málefnin og viðfangsefnin um þess-
ar mundir væru umhverfismálin.
Sagði hann að þar væri sérstaða
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs einna skýrust og að sá
málaflokkur væri einn sá stærsti og
afdrifaríkasti sem blasti við Islend-
ingum og reyndar mannkyninu öllu.
Þá gagnrýndi Steingrímur
harkalega í ræðu sinni stefnu
Framsóknarflokksins í umhverfis-
og stóriðjumálum og sagði m.a. að
fomeskjan í umhverfismálum birt-
ist okkur í líki helstu talsmanna
Stóriðjustefna
Framsóknar-
flokks gagnrýnd
ríkisstjórnarflokkanna. „Einkum
og sér í lagi er þó forneskjan hold-
gerð í ráðherrum Framsóknar-
flokksins sem hafa bersýnilega
misst úr nokkra áratugi í umræð-
unni. Dugir ekki einu sinni til þótt
umhverfisráðherra sé kornung
manneskja á mótorhjóli því dapur-
legastur af öllu er hennar hlutur
eða hennar hlutskipti. Mér hefur
stundum orðið hugsað til þess á
undanförnum dögum þegar
byggðavandi á Austfjörðum er not-
aður til þess að réttlæta fórnir á
sviði umhverfismála sem menn
myndu væntanlega ekki reyna að
verja eða réttlæta ella,“ sagði
Steingrímur.
Högni Hoydal gestur
landsfundarins
í gærkvöldi voru almennar
stjómmálaumræður á dagskrá.
Fundarstörfum verður framhaldið
í dag. Síðdegis heldur Högni Hoy-
dal, ráðherra sjálfstæðismála í
Færeyjum, erindi, en hann er sér-
stakur gestur landsfundarins.
Fundinum lýkur síðdegis á morgun
með afgreiðslu mála og kosningu
stjórnar.
■ Fomeskjan/10
Stöð 2 kemst yfír
sovésk gögn
Sósíalista-
flokkur-
inn fékk
30 millj.
SAMEININGARFLOKKUR
alþýðu - Sósíalistaflokkurinn,
sem síðar varð hluti Alþýðu-
bandalagsins, fékk tæplega
þrjátíu milljóna króna fjár-
hagsstuðning frá sovéska
kommúnistaflokknum á árun-
um 1956-1966. Þetta kemur
fram í gögnum miðstjórnar
kommúnistaflokksins sem
fréttastofa Stöðvar 2 hefur
undir höndum og sagði frá í
fréttatíma í gærkvöldi.
I fréttinni kom jafnframt
fram að greiðslurnar hafí ver-
ið inntar af hendi á árunum
1956, 1959, 1963 og 1966. Jón
Ólafsson heimspekingur, sem
hefur rannsakað gögn um
tengsl íslenskra sósíalista og
Sovétríkjanna, segir í samtali
við Morgunblaðið að upplýs-
ingarnar, séu þær réttar, komi
ekki sérstaklega á óvart.
Hann segir að Einar Olgeirs-
son, formaður Sósíalista-
flokksins, hafi verið á ferð í
Sovétríkjunum á árunum 1956
og 1959 og hafi þá átt í viðræð-
um við miðstjórn flokksins.
KGB hafði milligöngu um
að koma fénu til flokksins
Samkvæmt frétt Stöðvar 2
fékk Sósíalistaflokkurinn 20
þúsund dollara, eða um 4,8
milljónir króna að núvirði, frá
Sovétmönnum árið 1956, 30
þúsund dollara, eða um 6,4
milljónir króna að núvirði árið
1959, 25 þúsund dollara, eða
um 10,5 milljónir dollara að
núvirði árið 1963 og 25 þús-
und dollara, eða um 7,5 millj-
ónir króna að núvirði árið
1966.
Samkvæmt fréttinni hafði
sovéska leyniþjónustan KGB
milligöngu um að koma fénu
til Sósíalistaflokksins.
Sérblöð í dag
20SÍDUR
ÁLAUGARDÖGUM
1
UjöDOii
MEÐ Morgun-
blaðinu
í dag er dreift
biaði frá
íslenska sjón-
varpsfélaginu,
„Skjá einum“
S>
www.mbl.is
Pétur og Willum Þór koma til
greina sem þjálfarar KR / B1
Kaupverð á Ríkharði Daðasyni
hækkar um helming / B4