Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Norski landkönnuðurinn Thor Heyerdahl kynnir nýja bók sína á fundi í Ósl<5 „Við verðum að taka Snorra alvarlegau Thor Heyerdahl kynnti nýju bókina sína í Osló í fyrradag fyrir fullum sal af fólki. I samvinnu við sænska kortasérfræðinginn Per Lillieström hefur hann endurskrifað hina norrænu sögu og hann efast ekki um, að þar muni margt koma á óvart. Tone Myklebost blaðamaður fylgdist með kynningunni, vr: ,a'* - 1 ; í i u h . 1 ii m Scanpix Thor Heyerdahl (t.h.) á kynningarfundinum í fyrradag ásamt sænska kortasérfræðingnum Per Lillieström. „ÞAÐ vakti ekki fyrir okkur að uppgötva einhver ný sannindi, stundum skiptir ekki minna máli að setja það, sem vitað er, í nýtt samhengi," sagði Heyerdahl en hann viðaði meðal annars að sér efni í bókina með því að kanna ýmsar heimildir á Islandi, Portú- gal, Azerbajdsjan og síðast en ekki síst í skjalasöfnum Páfa- garðs. Skýrsla Adams frá Brimum Eitt af því merkilegasta, sem Heyerdahl fann í Páfagarði, var skýrsla frá Adam, biskupi í Brim- um, sem hann sendi í Páfagarð 1070. Þar segir hann frá byggðum norrænna manna við Norður-Atl- antshaf, meðal annars í Grænlandi. Hefur hann þau orð um fólkið þar, að það sé blágrænt eins og sjórinn. Lillieström skaut því að, að sem málari vissi hann, að grænlenskir skuggar hefðu yfir sér ákveðinn bláma. Adam segir einnig, að Grænlendingum svipi til Islend- inga en séu þó hættulegri vegna þess, að þeir hafi ekki tekið við kristni. Nefnir hann einnin eyju, sem fundist hafi og kölluð sé Vín- land vegna þess, að þar vaxi vínvið- ur sjálfsáinn. Segir hann, að þetta séu engar sögusagnir því hann hafi þessar upplýsingar úr áreiðanleg- um, dönskum heimildum. (Adam frá Brimum var ágústínusarmunkur og kennari við dómskólann í Bremen. Skrifaði hann sögu erkibiskupsdæmisins Hamborg-Bremen, sem er mikil- væg heimild um sögu Norður- landa á 10. og 11. öld og norræna goðatrú. Þar er m.a. að finna lýs- ingu Islands, Grænlands og Vín- lands.) Prestur með Leifi Heyerdahl sagði, að slagurinn milli þeirra Leifs Eiríkssonar og Kólumbusar væri í raun átök milli víkingatímans og kristindómsins. Þegar Kólumbus hefði komið til Ameríku 1492 hefði ekki haft neinn prest í föruneyti sínu en það hefði Leifur haft. „Við höfum litið á þetta sem kapphlaup milli Kólumbusar og Leifs og auðvitað hlaut Leifur að sigra. Forskotið hans var 492 ár! Þegar ég kom í Páfagarð spurði ég hvort menn vissu, að Leifur hefði haft með sér prest en Kólumbus ekki. Þá var mér hleypt inn í leynd- ardóminn. Eftir siðaskiptin héldum við ekki nafni Leifs á loft vegna þess, að hann var kaþólskur og fyr- ir kurteisissakir voru kaþólskir menn ekkert að hamra á því. Á Leif var því bara litið sem heið- ingja,“ sagði Heyerdahl. Fornt gjaldeyriskerfi Heyerdahl segist hafa uppgötvað það fyrst á Maldíveyjum í Ind- landshafi, að í fyrndinni hafi verið til eins konar alheimsseðlabanki, gjaldeyriskerfi, sem náði víða um heim. Þegar hann fann fyrstu skeljapeningana var hann í för með norskum fornleifafræðingum, sem gátu frætt hann á því, að skelja- peningar hefðu fundist í fjórum gröfum í Noregi fyrir norðan heim- skautsbaug. Eru þær frá því um 600 e.Kr. Segir Heyerdahl, að þessar skeljar hafi verið lengi í umferð og m.a. fundist í indverskri gröf frá frá 2500 f.Kr. og í Egyptalandi frá því um 502 e.Kr. I arabískum heimildum segi, að Maldíveyjar hafi haft einokun á þessari pen- ingaútgáfu og staðið um hana strangan vörð. Skeljapeningarnir hafi borist frá Bagdad til Kákasus- landa og til Kaspíahafs, þaðan eftir verslunai'leiðunum eða fljótunum til Eystrasaltslandanna og síðan til Norðurlanda. I öllum gröfum frá því fyrir víkingatímann hafi fundist skeljapeningar. Ljóshærðar múmíur og Ynglingasaga Snorra Heyerdahl heldur því fram, að norrænir menn eigi rætur að rekja til Kákasuslanda og nefnir ýmislegt því til stuðnings. Eitt er það, að í Kína fundust múmíur, sem voru ljóshærðar og bláeygar og norræn- ar að öllu yfirliti. í ljós kom, að þær voru 3-4.000 ára gamlar og því ekki komnar frá Norðurlöndum. Heyerdahl segist hafa komist að því, að frá Kákasussvæðinu, sem er á milli Kaspíahafs og Svartahafs, hafi fólk, sem var ljóshært eins og það átti kyn til, verið sent inn í Kína. Annað er Ynglingasaga Snon'a Sturlusonar og Heyerdahl segir, að ekki sé lengur unnt að líta á hana sem einhvern tilbúning, heldur eigi hún sér sögulegar ræt- ur. Thor Heyerdahl er mjög upp- tendraður af íslandsdvölinni og af öllum heimildunum, sem hann fann, í gömlu sögunum. „Lesið sögurnar," sagði hann við áheyrendur. „Það er alveg nýtt fyrir mér hvernig þær lýsa Oðni og efnið er stórkostlegt. Oft varð ég að lesa það hvað eftir annað. Þarna segir frá guðunum, til dæmis Þór, og ég bjóst við að finna Oðin ekki fjarri. Svo var þó ekki,“ sagði Heyerdahl hlæjandi. „Hann var nefnilega í Kákasus.“ „Sögurnar, Heimskringla, lýsa heiminum eins og hann horfir við frá Islandi. Við héldum, að jörðin væri flöt en Snorri vissi, að hún var böllótt, hnattlaga enda talar hann um kringlu heimsins. I Páfagarði má sjá, að þetta vissu menn þegar um árið 1000. Leiðarlýsing Snorra Snorri lýsir ferð um Njörvasund og inn í Miðjarðarhaf, síðan um Hellusund inn í Svartahaf. Þar bjó Óðinn og þaðan og suður um svæði Tyrkja var hans land. Það var ekki á himni eins og við héldum,“ segir Heyerdahl, „heldur í Ásalandi. Þegar Rómverjar hófu að herja á löndin umhverfis tók Óðinn sig upp með æðstuprestana og fór yfir lönd Rússa, Garðaríki, til Óðins- eyjar á Fjóni, Svíþjóðar og Sigtúna þar sem hann settist að. Snorri skrifar, að Óðinn hafi talið Gylfa konungi trú um, að þeir kæmu frá landi guðanna og allir væru þeir guðir. Nú er vitað, að ein^ af elstu þjóðunum í Kákasus er Óðinsfólk- ið, sú fyrsta, sem snerist til krist- innar trúar eða á árunum 2-300 e.Kr. Það má líka minna á, að Friðþjófi Nansen þótti það furðu- legt, að á þessu svæði ganga sams konar goðsagnir og við þekkjum. Hann lýsti því þannig, að ætla mætti, að skyldleiki væri með þeim. Snorri nefnir hvern konunginn af öðrum og Hálfdan svarta síð- astan. Ef við tökum nú upp vasa- tölvuna lítur þetta þannig út: Kyn- slóðin er 25 ár, Snorri nefnir 31 kynslóð og því hlýtur Óðinn að hafa farið frá Kákasus árið 55 e.Ki'. Það var einmitt á þeim tíma, sem Rómverjar skutu upp kollin- um á svæðinu. Allt þetta segir okkur, að við verðum að taka Snorra alvarlega," sagði Heyer- dahl. _ > Talsmaður Náttúruverndarsamtaka Islands um gagnrýni iðnaðarráðherra vegna kæru samtakanna Ráðherra hefur ekki lesið greinargerðina ÁRNI Finnsson, talsmaður Nátt- úruverndarsamtaka íslands, sagði að samkvæmt ummælum Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, í Morgunblaðinu, væri greinilegt að hann hefði ekki lesið greinargerðina sem fylgdi kæru samtakanna á hendur ís- lenskum stjómvöldum vegna Fljótsdalsvirkjunar. í blaðinu sagði Finnur að kæran væri á mis- skilningi byggð og tilgreindi hann m.a. sérstakt ákvæði í tilskipuninni máli sínu til stuðnings, sem og dóma Evrópudómstólsins. Samtökin hafa kært þá ákvörð- un íslenskra stjórnvalda að láta ekki fara fram lögformlegt mat á umhverfisáhrifum vegna Fljóts- dalsvirkjunar, til Eftirlitsstofnun- ar EFTA. Samtökin segja að ákvörðunin brjóti gegn tilskipun EFTA (85/337/EBE), þar sem kveðið er á um að fram skuli fara mat á áhrifum, sem tilteknar fram- kvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunni að hafa á um- hverfið. „Ef maður les tilskipunina þá eru þetta eðlileg viðbrögð ráð- herra, en hann hefur ekki lesið greinargerðina sem fylgdi kærunni," sagði Árni. I 5. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar segir: „Tilskipun þessi tekur þó ekki til framkvæmda sem landslög hafa þegar verið sett um í einstök- um atriðum, þar eð í slíkum tilvik- um hefur markmiðum hennar, þar á meðal upplýsingamiðlun verið náð með lagasetningu." Finnur sagði að samkvæmt þessu væri ljóst að Fljótsdalsvirkjun félli ekki undir tilskipunina, þar sem hún byggði á sérstakri lagaheimild Al- þingis, þ.e. lögum um raforkuver (nr. 60/1981). Skilningl stjórnvalda mótmælt Að sögn Árna er hinsvegar tek- ið á þessu atriði í lögfræðiáliti því sem Náttúruvemdarsamtökin öfl- uðu sér og fylgdi með kærunni og er skilningi stjórnvalda mótmælt. í álitinu segir: „Þegar lög 60/1981 voru samþykkt lá hvorki fyrir endanleg útfærsla á stærð, stað- setningu og fyrirkomulagi virkj- unarframkvæmdar né mat á um- hverfisáhrifum hennar. Um er að ræða undanþágu sem skýra beri þröngt. Ákvæðið tekur auk þess einungis til þeirra tilvika sem lög hafa verið sett um áður en ákvæði tilskipunarinnar voru lögleidd, sbr. orðalagið „... sem landslög hafa þegar verið sett um í einstök- um atriðum." Geta stjórnvöld ekki byggj; á því nú sem heimild til þess að komast hjá lögbundnu mati á umhverfisáhrifum enda ekki gert ráð fyrir neinni slíkri undanþágu í lögum um mat á umhverfisáhrif- um.“ I lögfræðiáliti samtakanna segir ennfremur: „Eina heimild stjórn- valda til að undanþiggja fram- kvæmdir frá mati á umhverfisá- hrifum er að finna í 3. mgr. 2. gr tilskipunarinnar en sú undanþága var ekki tekin upp í lög um mat á umhverfisáhrifum. Er og ljóst að í slíkum tilvikum beri að senda ítar- legar upplýsingar til aðildarríkja EES-samningsins. Það virðist ekki hafa verið gert.“ Ráðherra nefnir enga dóma Finnur benti einnig á að sam- kvæmt dómum Evrópudómstólsins væru framkvæmdir ekki háðar mati á umhverfisáhrifum ef form- leg beiðni um leyfi vegna fram- kvæmda hefði legið fyrir áður en tilskipunin öðlaðist gildi. Finnur sagði að hérlendis lægi ekki aðeins fyrir beiðni, heldur lægju fyrir lög frá Alþingi. Árni sagði slæmt að ráðherra skyldi ekki nefna neina dóma Evr- ópudómstólsins máli sínu til stuðn- ings, en hann sagði að í lögfræðiá- liti samtakanna væri m.a. vísað í dóm (C-131/188), sem styddi kæruna. Málavextir voru þeir að framkvæmdastjórn Evrópubanda- lagsins höfðaði mál gegn þýskum stjórnvöldum fyrir að lögleiða ekki réttilega með lögum, reglugerðum og stjórnvaldsbundnum ákvæðum ákvæði tilskipunar (80/68/EEC) um verndun grunnvatns gegn mengun vegna ákveðinna hættu- legra efna. Náttúruverndarsam- tökin telja að það sama megi segja um lögleiðingu íslenskra stjórn- valda á tilskipun EFTA (85/337/EBE), þ.e. að með því að styðjast við bráðabirgðaákvæði II séu íslensk stjórnvöld að brjóta gegn meginreglunni um lagaskýr- leika, sem staðfest var í dómi C- 131/88. Þá sagði Árni að nýverið, eða þann 16. september síðastliðinn, hefði fallið dómur (C-435/97), sem styddi einnig kæru samtakanna. Árni sagði að í niðurstöðu dómsins, sem fjallaði um leyfisveitingu vegna tiltekinnar framkvæmdar á Ítalíu, kæmi fram að þar sem end- anlegt framkvæmdaleyfi lægi ekki fyrir væri ekki hægt að vísa í sér- lög. Árni sagði að helstu rök ís- lenskra stjórnvalda væru einmitt að vísa í sérlög eins og lög nr. 60/1981 um raforkuver og lög nr. 42/1983 um Landsvirkjun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.