Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 59 KIRKJUSTARF Dómkirkjan í Reylgavík. Safnaðarstarf Æðruleysis- messa Dóm- kirkjunnar ÆÐRULEYSISMESSA verður sunnudagskvöldið 24. október kl. 21. Æðruleysismessurnar einkenn- ast af nálægð, einfaldleika og ein- lægni. Þrátt fyrir að þessar messur séu tileinkaðar fólki í leit að bata eftir tólfsporakerfinu eru allir vel- komnir, vegna þess að öll höfum við þörf fyrir andlega næringu og nálægð við Guð. Sr. Karl V. Matthíasson prédik- ar °g þjónar í athöfninni ásamt Ragnheiði Sverrisdóttur djákna og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur. Anna Sigríður Helgadóttir syngur við undirleik Bræðrabandsins. Reynslusaga verður flutt auk þess sem verður boðið upp á fyrir- bæn og smurningu. Allir velkomn- ir. Kristileg skóla- samtök hjá KFUM & K FJÖLSKYLDUSAMKOMA verð- ur á morgun kl. 17 í aðalstöðvum KFUM og KFUK við Holtaveg. Dagskrá verður í umsjá ungs fólks í Rristilegum skólasamtökum (KSS). KSS-kórinn syngur, vitnis- burðir verða fluttir og mikill og líf- legur almennur söngur verður á meðal þess sem samkomugestir fá að njóta að þessu sinni. Boðið verður upp á sérstakai’ barnastundir hluta samkomunnar og fá þá allir eitthvað við sitt hæfi því skipt verður í hópa eftir aldri. Ljúffeng máltíð verður seld gegn fjölskylduvænu gjaldi að lokinni samkomunni. Allir eru hjartanlega velkomnir að koma og taka þátt í samkom- unni og upplifa hvað heilbrigð ís- lensk ungmenni hafa fram að færa og hvað guð hefur fram að færa í gegnum þau. Allir eru velkomnir og upplagt er að bjóða með sér ungum gestum á öllum aldri. Sigurbjörn Þorkelsson, framkvæmdastjóri KFUM og K í Reykjavík. Kvöldvaka í Fríkirkjunni í Hafnarfirði KVÖLDVAKA verður í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði sunnudagskvöld- ið 24. október og hefst hún kl. 20. Tónlistarfólkið Aðalheiður Þor- steinsdóttir og Örn Arnarson leiða söng og tónlist og kynna nýja trú- arlega söngva. Hanna Björk Guð- jónsdóttir söngkona syngur ein- söng. I tilefni af alþjóðlegum bar- áttudegi kvenna mun sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir koma í heimsókn og flytja hugleiðingu. Þá mun Laura Sch. Thorsteinsson leiða bænastund í lok kvöldvökunnar. Slíkar kvöldvökur eru haldnar einu sinni í mánuði í kirkjunni fram á vormánuði nýs árþúsunds í tilefni af kristnitökuafmæli. Allir eru hjartanlega velkomnir. Einar Eyjólfsson. Biblían, kirkjan og samkyn- hneigðir EINS og alþjóð veit hefur átt sér stað mikil umræða í fjölmiðlum landsins að undanförnu um stöðu samkynhneigðra innan þjóðkirkj- unnar. í þeirri umræðu hafa menn oftar en ekki notað breiðu spjótin í stað þess að ræða málin og hlusta á skoðanir þeirra sem e.t.v. eru á öndverðum meiði. Af því tilefni og tO þess að skapa málefnalegan vettvang verður haldið málþing í safnaðarheimili Hafnarfjarðar- kirkju hinn 15. nóvember næst- komandi undir yfirskriftinni „Biblí- an, kirkjan og samkynhneigðir“. Munu fulltrúar mismunandi skoð- ana og hópa flytja framsöguerindi og að erindum loknum verður opn- að fyrir almennar umræður. Málþingið verður kynnt nánar þegar nær dregur. En tO að opna umræðuna er guðsþjónusta næst- komandi sunnudags, sem er 24. október, helguð þema málþings- ins. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Prestur er sr. Þórhallur Heimis- son. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Neskirkja. Félagsstarf aldraðra í dag kl. 13. Samverustund í safnað- arheimilinu. Danshópur sýnir og kennir létta hringdansa fyrir aldr- aða undir stjórn Elisabetar Hann- esdóttur íþróttakennara. Kaffiveit- ingar. Allir velkomnir. Sr. Fí-ank M. Halldórsson. Fríkirkjan Vegurinn: Samkoma kl. 20. Lofgjörð, prédikun og fyrir- bæn. Allir hjartanlega velkomnir. KEFAS, Dalvegi 24. Laugardagur: Samkoma kl. 14. Ræðumaður Helga R. Armannsdóttir. Mán.: Kvennabænastund kl. 20.30. Þri.: Bænastund kl. 20. Fræðsla kl. 20.30 Helga R. Armannsdóttir. Mið.: Samverustund unglinga kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn. Laugardags- skóli kl. 13 fyrir krakka. Hvammstangakirkja. Sunnudaga- skóli kl. 11. Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11. TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Stjórnandi Elín Jóhannsdóttir. Unglingakórinn: Æfing í safnaðar- heimilinu Vinaminni kl. 14. Stjórn- andi Hannes Baldursson. Fundur um íslenska utan- landsverslun 900-2002 AÐ UNDANFÖRNU hefur starfað sex manna vinnuhópur á vegum Sagnfræðistofnunar að undirbúningi tvegga binda rit- verks um sögu íslenskrar utan- landsverslunar 900-2002. Hóp- urinn hefur notið forverkefnis- styrks frá Rannís og mun kynna hugmyndir sínar á sérstökum vinnu- og kynningarfundi í Nor- ræna húsinu í dag, laugardaginn 23. október, frá kl. 13.30. Fund- urinn er öllum opinn. Fræðileg umræða verður frá kl. 13.30-16.15 og taka þá til máls: dr. Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og við- skiptanefndar og framkvæmda- stjóri Verslunarráðs Islands, Helgi Þorláksson prófessor, for- stöðumaður Sagnfræðistofnun- ar, Halldór Bjarnason cand.mag., Þórólfur G. Matthí- asson dósent, Gísli Gunnarsson prófessor, Sigm-ður Gylfi Magn- ússon Ph.D., Bjarni Bragi Jóns- son, hagfræðingur, Anna Agn- arsdóttir dósent, Þorlákur Axel Jónsson sagnfræðingur, menntaskólakennari á Akur- eyri, Guðmundur Jónsson lektor og Gunnar Helgi Kristinsson prófessor. Áætlun og verkefnið verða kynnt kl. 16.35-17.30. og taka þá til máls: Atli Freyr Guð- mundsson, skrifstofustjóri við- skiptaráðuneytis, Helgi Þor- láksson og Þráinn Eggertsson prófessor. Almennar fyiirspurnir, at- hugasemdir og umræður verða á eftir hverjum dagskrárlið. HÁTÍÐ í FELAGSHEIMILI KÓPAVOGS LAUGARDAGINN 6. NÓV. 1999 Kópavogsbúar núverandi og fyrrverandi, nú er okkar tækifæri að rifja upp gamla tíma og gleðjast með gömlu félögunum. Sýnum að við erum ennþá ung í anda og mætum í Félags- heimilið og eigum góða stund saman. Forsala aðgöngumiða hefst 30. okt. í kaffihúsinu Rive Gauche (Hamraborg 10) Miðaverð aðeins 1.250.- kr. Takið makana með - húsið opnar klukkan 20.00 Sjáumst 6. nóv. í hátíðarskapi Hátíðarsetning: Ólína Sveinsdóttir og Jóhann H. Jónsson Hátíðarstjóri: Sigurður Grétar Guðmundsson Sungin lög Sigfúsar Halldórssonar: Hólmfríður Friðjónsdóttir sópran Helgi E. Kristjánsson undirleikari Miðnætubiti í boði Byko, Jöfurs, Ora og Toyota Steinþór Jóhannsson ljóðskáld flytur ljóð sitt um Kópavog hinn gamla Gömlu slagaramir, söngur og dans með Skafta Ólafssyni og Gunnari Páli Ingólfssyni „Dúettinn Knái" Helgi E. Kristjánsson og Erla Stefánsdóttir leika fyrir dunandi dansi fram á nótt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.