Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ríkissaksóknari krefst þyngri refsingar í Hæstarétti í málverkafölsunarmáli
Frá upphafi málflutnings í hinu svokallaða málverkafölsunarmáli í Hæstarétti í gær.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Telur háttsemi ákærða
skipulagða brotastarfsemi
ÁFRÝJAÐ sakamál ákæruvaldsins
gegn Pétri Pór Gunnarssyni, eig-
anda Gallerís Borgar, var lagt í dóm
að loknum málílutningi í Hæstarétti
í gær.
Ákærði Pétur Þór áfrýjaði hálfs
árs fangelsisdómi Héraðsdóms
Reykjavíkur, sem kveðinn var upp
hinn 5. mars síðastliðinn, en þá var
hann sakfelldur fyrir fjársvik og
skjalafals með því að hafa blekkt
þrjá viðskiptavini gallerísins til að
kaupa sitt falsaða málverkið hvem
með höfundamafni Jóns Stefáns-
sonar listmálara.
Á lægra dómstigi í vetur sótti Jón
H. Snorrason, saksóknari hjá ríkis-
lögreglustjóra, málið, en fyrir
Hæstarétti í gær sótti Bogi Nilsson
rikissaksóknari málið. Til vamar
var skipaður verjandi ákærða,
Björgvin Þorsteinsson hæstaréttar-
lögmaður.
Sækjandi krafðist þyngingar
refsingar í Hæstarétti og skírskot-
aði til list- og tæknilegrar grein-
ingar á rannsóknargögnum, þ.e.
málverkunum þremur sem seld
vom í Galleríi Borg fyrir samtals
869 þúsund krónur. Leiddu rann-
sóknimar í ljós að málverkin væm
ekki eftir Jón Stefánsson heldur
danska málarann Wilhelm Wils,
hvers verk era mun ódýrari en
verk Jóns.
Málsmeðferð í héraði
leiði til ómerkingar dómsins
Sagði sækjandi að í málinu væri
um að ræða skipulagða brotastarf-
semi og hefði brotavilji ákærða
verið afar einbeittur. Hefði sala
málverkanna verið brot gegn
menningarsögu þjóðarinnar auk
þess sem brotið hefði verið gegn
trausti því sem er á milli viðskipta-
aðila á listaverkamarkaði. Yrði al-
menningur að geta treyst því að
fram færi lögleg sala á listayerk-
um, en ákærði hefði sýht skeýting-
arleysi gagnvart þeirri nauðsyn.
I vamarræðu sinni færði veijand-
inn Björgvin Þorsteinsson hrl. m.a.
að því rök að málsmeðferð á lægra
dómstigi ætti að leiða til ómerkíng-
ar á hinum áfrýjaða dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Taldi verjandi
ennfremur að þeir rannsóknaraðilar
sem komu að rannsókn málsins
væm vanhæfir og tiltók ýmsa galla,
sem hann taldi vera á rannsókninni.
Þannig hefði t.d. ekki verið gerður
samanburður á undirskrift Jóns
Stefánssonar á rannsóknartilvikun-
um og öðmm þekktum verkum eftir
listamanninn og ekki hefði verið
leitað til erlendra sérfræðinga við
greiningu á verkunum.
Veijandi taldi frágangi skjala og
endurritun yfirheyrslna í héraði
ábótavant en þar hefði vantað mikil-
væg skjöl. Vitnaði veijandi til laga
; um ipeðferð opinberra mála þar
sem kveðið væri á um að skrifa ætti
upp það sem hljóðritað hefði verið
ef máli væri skotið til æðra dóms.
Taldi verjandi ótækt að endurrit yf-
irheyrslna væri ekki í samræmi við
framburð vitna, en þar hefðu m.a.
spumíngar verið umorðaðar og svör
vitna ekki tilgreind í endurriti.
Verjandi vék einnig að framkomu
saksóknara og dómsformanns í hér-
aði við yfirheyrslur vitna og taldi
framkomu þeirra gagnvart vitninu
Patriciu Aagren, sem kom frá Dan-
mörku til að bera vitni, hafa verið
líkasta þeirri eins og um glæpa-
mann hefði verið að ræða.
I niðurstöðu héraðsdóms frá 5.
mars kom fram að Patricia hefði
borið að hún hefði selt ákærða eitt
málverkanna þriggja á flóamarkaði
en hvorki ákærði né vitnið gátu sýnt
fram á þau viðskipti með viðeigandi
greiðslugögnum.
Samningar undirritaðir um meðferðarheimili á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal
Starfsemi hefst
upp úr áramótum
Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið.
SAMNINGAR hafa verið undirrit-
aðir milli sveitarstjómar Norður-
Héraðs og Barnavemdarstofu um
rekstur meðferðarheimilis á
Skjöldólfstöðum á Jökuldal.
Áð sögn Braga Guðbranssonar,
framkvæmdastjóra Barnavemdar-
stofu, flytja forstöðumenn þessa
meðferðarheimilis á Skjöldólfsstaði
uppúr næstu áramótum. Fyrstu
skjólstæðingamir munu koma
þangað í febrúar og það muni taka
mánuð að fylla húsið af vistmönn-
um. Reiknað er með að þama verði
6 vistmenn til að byrja með.
Skólahúsin á Skjöldólfsstöðum
hafa staðið ónotuð frá í haust
þegar skólahald var aflagt þar og
sameinað skólahaldi í Brúarás-
skóla. Eftir að ljóst var að skóla-
mannvirki á Skjöldólfsstöðum
mundu standa ónotuð var farið að
leita leiða til að fá þangað ein-
hverja starfsemi, fljótlega komu
upp hugmyndir um að hægt væri
að nota aðstöðuna til meðferðar-
starfs fyrir unglinga. Sveitar-
stjórnin bauð í framhaldi af því
húsnæðið til Barnaverndarstofu
til þeirrar starfsemi og var ásamt
átta öðrum stöðum á landinu til
athugunar til meðferðarstarfsemi
fyrir unglinga.
Það var síðan á haustdögum sem
ákveðið var að hálfu Bamavernd-
arstofu að leita samninga við
sveitastjórn Norður-Héraðs um að
þetta meðferðarheimili yrði stað-
sett á Skjöldólfsstöðum. í fram-
haldi af því fóm fram samningavið-
ræður þar sem fram kom að ná-
grannar meðferðarheimilisins vom
ekki ánægðir með þetta sambýli.
Samkomulag náðist við nágrann-
ana um að reyna rekstur meðferð-
arheimilisins í eitt ár en þá á að
endurskoða reksturinn með tilliti
til reynslunnar í fullu samráði við
nágrannana.
Gripu
þjóf glóð-
volgan
MIKILL hamagangur varð í
öskjunni í verslun Heimilis-
tækja við Sætún síðdegis í
gær. Ungur maður reyndi að
hlaupa á brott með stolinn
vaming úr búðinni en var að
lokum yfirbugaður af starfs-
manni verslunarinnar.
Glöggur afgreiðslumaður
hafði tekið eftir manninum í
búðinni og þótt hann gmn-
samlegur. Þegar hann var í
þann mund að segja verslun-
arstjóranum frá gmnsemdum
sínum tóku þeir eftir mannin-
um er hann var á hlaupum út
úr búðinni með DVD-drif. St-
arfsmenn verslunarinnar eltu
manninn út á bílastæði þar
sem hann komst í bíl þar sem
félagar hans biðu. Þjófarnir
keyrðu af stað en annar
starfsmaðurinn hékk nokkum
spöl á bílnum og tókst loks að
hándsama þjófinn eftir nokk-
ur átöíc, en félagar hans tveir
hlupu á brott. Á meðan starfs-
maðurinn hékk í bílnum
keyrði ökumaður hans
glannalega um og keyrði með-
al annars á kyrrstæðan bíl.
Að sögn starfsmanna sótti
hokkur kvíði að mönnum á
meðan hildarleiknum stóð og
mátti litlu muna að slys yrðu á
mönnum.
Forsætis-
ráðherra
á fundi
í London
FORSÆTISRÁÐHERRA,
Davíð Oddsson, verður ræðu-
maður á hádegisverðarfundi
Bresk-ís-
lenska versl-
unarráðsins í
London mið-
vikudaginn
27. október
nk.
Mun hann
fjalla um við-
skiptatengsl
landanna en
Bretland er
stærsta ein-
staka viðskiptaland Islands.
Fundurinn verður á
Churchill Inter-Continental
Hotel, Portman Square, og
hefst kl. 12.15.
Davíð
Oddsson
Fegursta íslandsbókin
Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson
jarðfræðing og formáli eftirfrú Vigdísi Finnbogadóttur.
Fæstáíslensku, ensku,
þýsku, frönsku og sænsku.
Tveir dæmdir fyrir gá-
leysi við framúrakstur
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
rúmlega fertugan mann til þriggja
mánaða fangelsisvistar, skilorðs-
bundið til tveggja ára, vegna gá-
leysis við framúrakstur sem olli al-
varlegu slysi árið 1997. Þá var mað-
urinn dæmdur til greiðslu 150 þús-
und króna sektar og sviptur öku-
réttindum í tvö ár.
I júní 1997 olli maðurinn árekstri
á Vesturlandsvegi skammt vestan
við Hvammsvík. Hann var á leið til
Reykjavíkur og ók fram úr tveimur
bifreiðum í senn, að mati Hæsta-
réttar án þess að gæta nægilega að
umferð á móti og á stað, þar sem
vegsýn var skert vegna hæðar.
Maðurinn ók í veg fyrir bifreið, sem
kom úr gagnstæðri átt. Við árekst-
urinn hlutu ökumaður þeirrar bif-
reiðar og farþegar í báðum bifreið-
unum stórfelld meiðsl. Við mat sitt
á refsingu leit Hæstiréttur til þess,
að ökumaður hins bílsins hlaut opið
nefbrot og djúpan skurð á nefi, brot
í augntóftarbotni, mar undir auga
og opið hnéskeljarbrot og eigin-
kona hans, sem var farþegi í þeirri
bifreið, hlaut slæmt viðbeinsbrot,
úlnliðsbrot á báðum höndum, lær-
leggsbrot inn í hné, ökklabrot, háls-
tognun, fjölmörg sár, glerbrot í lík-
ama, m.a. andlitið, og höggáverka
víða. Rétturinn leit hins vegar
einnig til þess, að móðir mannsins,
sem var farþegi í bíl hans, hlaut
mjög alvarlegan heilaskaða í slys-
inu.
Ók yfír óbrotna línu
Hæstiréttur dæmdi einnig í
máli 19 ára manns, sem olli slysi
þegar hann ók framúr á Reykja-
nesbraut. Hann ók yfir heila
óbrotna línu er bannar framúr-
akstur og yfir á rangan vegar-
helming, með þeim aíleiðingum að
árekstur varð með bifreið hans og
annarri sem á móti kom. Við slysið
fékk ökumaður hinnar bifreiðar-
innar m.a. heilahristing og missti
meðvitund, en farþegi sömu bif-
reiðar viðbeinsbrotnaði, fingur-
brotnaði, brotnaði á bringubeim
og marðist víða, auk þess sem
vökvi kom í fleiðurhol og vinstra
lunga féll saman.
Hæstiréttur staðfesti dóm hér-
aðsdóms um fangelsisvist í einn
mánuð, skilorðsbundið til þriggja
ára, greiðslu 80 þúsund króna
sektar og sviptingu ökuréttinda i
tvö ár.