Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Gert ráð fyrir að steypuframkvæmd- ir við Smáralind hefjist í vor \ Morgunblaðið/Júlíus Verið er að ljúka við jarðvegsvinnu á lóðinni þar sem verslunarmiðstöðin Smáralind á að rísa. Reiknað er með að steypuframkvæmdir hefjist í vor og miðstöðin verði opnuð haustið 2001. Stefnt að opnun haust- ið 2001 Unnið með einstaklinginn Kópavogur STEYPUFRAMKVÆMDIR við nýja 60.000 fermetra verslunarmiðstöð í Smára- lind munu líklega hefjast næsta vor, en áætlað er að opna miðstöðina haustið 2001. Þetta kom fram í sam- tali Morgunblaðsins við Pálma Kristinsson, fram- kvæmdastjóra Smáralindar ehf. „Það er ekkert sem bendir til annars en að áætlanir muni standast," sagði Pálmi. „Verið er að klára jarðvegs- vinnuna á lóðinni núna og stefnt er að því að hefja steypuframkvæmdir næsta vor og þá verður væntanlega keyrt af fullum krafti allt þar til húsið verður tekið í notkun í september árið 2001.“ Pálmi sagði að í nýju verslunarmiðstöðinni yrðu rúmlega 100 verslanir, sem og ýmiss konar þjónusta og afþreying. Hann sagði að í miðstöðinni yrðu tvær mjög stórar verslanir, sem myndu taka um 40% af verslunar- rýminu og einnig yrði mjög stórt bíó í húsinu. Þess má geta að verslun- armiðstöðin Smáralind verð- ur svipað stór og Kringlan að viðbættu Borgarleikhús- inu, en í Kringlunni eru um 150 verslanir, veitingastaðir og þjónustuíyrirtæki. Að sögn Pálma vinna nú um 40 innlendir og erlendir verkfræðingar og arkitektar að hönnun hússins. Hann sagði að verkefnið væri að mörgu leyti alþjóðlegt þar sem erlendir aðilar kæmu að tækni-, markaðs-, fjár- mögnunar- og verslunar- sviðinu. „Undirbúningur og fram- kvæmdir vegna svona húss taka oft 5 til 10 ár erlends og ekki er óalgengt að 70% af undirbúningstímanum fari í skipulagningu og hönnun en 30% í framkvæmdir á bygg- inarlóð. Sá tími sem hefur farið í þetta hjá okkur er því mjög eðlilegur miðað við það sem gerist í sambærilegum verkefnum erlendis." Pálmi vildi ekki greina frá áætluðum kostnaði vegna byggingarinnar, enda ætti eftir að gera flesta verk- samninga o.þ.h. „Það eina sem ég get sagt er að kostnaðurinn mun hlaupa á milljörðum króna.“ Grafarvogur KORPUSKÓLI er nýjasta viðbótin í grunnskólaflóru Reykjavíkurborgar. En skólastarf hófst nú f haust og er markmið skólastjórn- enda að vinna sem best með hæfíleika hvers og eins nem- anda, sem eru á aldrinum 6- 11 ára. Mikil vinna er framundan hjá stjórnendum Korpu- skóla, þeim Svanhildi Ólafs- dóttur skólastjóra og Auði Stefánsdóttur aðstoðar- skólastjóra, en komandi vet- ur mun að stórum hlut fara í að móta starfsemi skólans. Hugmyndirnar sem skóla- starfið á mótast af eru kenndar við Bandaríkja- manninn Howard Gardner og byggjast á því að greind er skipt í sjö flokka, til að mynda málgreind, rök- greind og stærðfræði- greind. Styrkur hvers einstak- lings er síðan fundinn út frá greindarsviðum einstak- lingsins og í framhaldi reynt að láta hvern og einn þróa sitt greindarsvið. Svanhild- ur nefnir sem dæmi að sum- ir séu með góða rýmis- greind og í þeirra tilfelli eigi að vinna meira út frá rýminu, eins og gert er í arkitektúr eða myndmáli. Þannig geti til dæmis við lestur verið byrjað á að skoða byggingu stafa, áður en farið er að vinna með hljóðin sem þeir tákna. Hafi nemendur si'ðan góða mál- greind þá má eins vinna með hljóðstaflna áður en farið er að vinna með bygg- inguna. „Við erum svo ólík, hvað sem við erum að læra,“ seg- ir Svanhildur. „Það er ekki hægt að notað sömu aðferð- ir við alla nemendur. Það má notað svipaðar aðferðir við flesta nemendur, en það eru alltaf einhverjir sem skera sig úr - annaðhvort eru það getumiklir eða getulitlir nemendur." I Korpuskóla er reynt að miða námsefnið við getu nemenda, sem geta þannig verið með svipað námsefni, en mislangt á veg komnir. Krakkar sem eru duglegir í lestri fá þannig t.d. aðrar lestarbækur en þeir sem eru að byrja. „Hugmyndin var að vera með samkennslu hér f upp- hafi. Árgangarnir eru hins vegar það stórir að það reyndist ekki unnt í byrjun," segir Svanhildur. „En hug- myndin er að vera með sam- kennslu." Að sögn Auðar er því vonast til að börnin í eldri deildunum geti þannig með samkennslunni unnið sér í haginn. „Að þau séu ekki endilega með námsefni síns aldurs ef þau hafa getu til að takast á við eitthvað meira, þannig geti þau unn- ið sér í haginn fyrir næstu ár og þar með sé einhver til- gangur með því að vinna meira.“ Jákvæð og uppbyggjandi kennsla „Við höfum sett okkur það takmark að efla ábyrgð þeirra og sjálfstæði og kenna þeim að vinna sam- an,“ segir Svanhildur. En annað atriði sem ekki er síð- ur mikilvægt í skólastarfinu er jákvæði, þ.e. að nemend- ur læri á uppbyggjandi og jákvæðan hátt. En jákvæðið felst m.a. í að reglur byggj- ast upp á þvi' sem má, en ekki því sem má ekki. „Við reynum að byggja kennsl- una iíka upp á þvi' að þau læri út frá því sem er rétt, til dæmis í stafsetningu. Að þau læri hana út frá réttum texta f stað þess að leitast sé við að fella þau,“ segir Auð- ur og kveður jákvæðið þó ekki síður vera mikilvægt í umgengni nemendanna sjálfra. Að sögn Svanhildar hefur skólastarf í Korpuskóla far- ið vel af stað. Hún segir þó mikla vinnu vera framundan því skólastarfið sé í mótun. Fyrsta árið muni t.d. að stórum hlut fara í að finna eiginleika hvers barns þannig að unnt verði að vinna með þá. Nemendum Korpuskóla verður þá einnig boðið upp á ákveðið val í verkefna- vinnu, þ.e. þegar þeir hafa Iokið við verkefni dagsins. „Þetta krefst náttúrulega mikillar skipulagningar og við vinnum að sjálfsögðu samkvæmt aðalnámskrá," segir Svanhildur og kveð- ur mikilvægt að kenna börnunum þessi vinnu- brögð. „Því ég held að þetta vinnufyrirkomulag efli sjálfstæði þeirra og ábyrgð á vinnunni. En það krefst Iíka mikillar skipu- lagningar af hendi kennar- anna.“ Fartölvukennsla í framtíðinni? Allir nemendur Korpu- skóla eru í tölvunámi, en skólinn er í samvinnu við Framtíðarbörn um tölvu- kennslu. Auður segir skól- ann þannig vilja leggja áherslu á að bömin læri bæði að vinna á tölvumar og með þær, en þannig geti þau nýtt sér tölvur sjálfstætt í starfi. Tölvukennslan hef- ur líka gengið vel, enda em bömin áhugasöm og finnst námið skemmtilegt. I skólastarfinu er þó horft lengra fram í tímann því Auður nefnir sem einn af framtíðardraumum stjóm- enda að hægt verði að bjóða upp á fartölvukennslu í framtíðinni. „Að það verði til bekkjarsett af fartölvum sem hægt verði að fara með á milli bekkja og vinna á,“ segir hún og kveður slíkt góða viðbót við aðrar náms- greinar. Einn af öðmm þáttum í' starfi Korpuskóla er síðan hin svo kallaða samvera. En börnin koma öll saman einu sinni í viku og þá flytur einn bekkur atriði fyrir hin börn- in. Samveran er ætluð til að þroska bömin í að vera sam- an og koma fram hvert fyrir annað og mælist þetta að sögn Auðar vel fyrir hjá flestum. „Elstu krakkarnir vom að vísu svolítið nei- kvæðir í fyrstu, en mér heyrist hugarfar þeirra breytast eftir því sem nær dregur að þeir komi fram sjálfir,“ segir Auður. „Ann- ars emm við með ótal hug- myndir í gangi sem við ætl- um að notfæra okkur við að útfæra skólastarfið." Morgunblaðið/Ámi Sæberg Tölvukennsla í Korpuskóla er í hlöðunni þar sem kennsla 1. og 2. bekk fer einnig fram. Deilur innan bæjarstjórnar um málefni Tónlistarskóla Mosfellsbæjar Minnihlutinn segir nýtt húsnæði ódýrari kost Mosfellsbær DEILUR eru innan bæjar- stjómar Mosfellsbæjar um það hvort ódýrara sé að leigja húsnæðið að Háholti 14 undir starfsemi Tónlist- arskólans eða byggja nýtt hús fyrir skólann. Asta Björg Bjömsdóttir, fulltrúi minnihluta sjálfstæðis- manna, segir að málið sé orðið hápólitískt. Hún segir minnihlutann hafa lagt fram útreikninga, sem byggi á sömu forsendum og út- reikningar bæjarstjóra, sem sýni að ódýrara sé að reisa nýjan skóla. Jafnframt því segir hún að sérhannað skólahúsnæði henti starfinu betur en leiguhúsnæðið og segist sammála því áliti sem fram hefur komið að um- hverfið við Háholt sé óheppilegt fyrir tónlistar- skóla bæjarins. Ásta segir að saman- burðarútreikningur á kostnaði vegna leiguhús- næðis og mánaðarlegum afborgunum lána vegna nýrrar byggingar, sem taka mið af byggingu Tón- listarskólans í Garðabæ, sýni að hagkvæmara sé að ráðast í að byggja nýtt húsnæði. Þar að auki sé bæjarsjóður að skuldbinda sig til að greiða mánaðar- lega leigu í 15 ár og að þeim tíma loknum hafi eng- in eignamyndun átt sér stað. Þá segir Asta það af- stætt hvað eigi að teljast dýrt í þessu samhengi. Nýtt hús sem styrki ímynd bæjarins og sýni að þar sé metnaður í fræðslu- og menningarmálum, hljóti að vera betri kostur en leigu- húsnæði sem ekki henti skólanum nægjanlega vel. Óhentugt húsnæði fyrir tónlistarskóla „Það er löngu þekkt stað- reynd að erfitt er að breyta gömlu húsnæði sem ekki var í upphafi hannað sem tónlistarskóli. Því fylgir töluverð áhætta og arki- tektarnir sem könnuðu hús- næðið að Háholti 14 töldu heppilegri kost að byggja nýtt hús,“ segir Asta. Hún segir að í þarfa- greiningu, sem unnin var af skólastjóra Tónlistarskól- ans, hafi komið fram að hús- næðisþörf skólans, án tón- leikasalar, væri 565 fer- metrar. Með því að leigja húsnæðið við Háholt sé ver- ið að leigja rúmlega 200 fer- metra umfram þörf vegna lélegrar nýtingar á húsnæð- inu, sem auk þess henti ekki til skólastarfs. Asta segist taka undir með þeim foreldrum sem hafi áhyggjur af því um- hverfi sem skólinn verður í á Háholti 14. Þama sé sjoppa og kaffihús með vín- veitingaleyfi, auk þess sem hornið sem húsið standi á sé mikið umferðarhom. Af hveiju þessi asi? „Við viljum fjalla um þetta á málefnalegan hátt, en þeir ætla sér greinilega að leigja húsnæðið hvað sem tautar og raular. Við höfum lagt á það áherslu að málið verði skoðað með hagsmuni allra bæjarbúa að leiðarljósi. Þetta er tónlist- arskóli sem allir eiga að vera sammála um og hafa metnað fyrir. En nú er þetta því miður orðið hápólitískt mál. Maður skil- ur ekki hvaða sjónarmið liggja þarna að baki.“ „Það kom fram í viðtali við bæjarstjóra í Morgun- blaðinu að ýmislegt sé í at- hugun varðandi framtíð tónlistarskólans. Maður spyr sig þess vegna af hverju þessi asi er á meiri- hlutanum að skuldbinda bæjarsjóð til að leigja hús- næði til 15 ára, sem er bæði allt of stórt og samrýmist illa rekstri tónlistarskóla. Eg tek undir það með for- eldrum að meirihlutinn er á villigötum í þessu máli. Og enn hefur minnihlutinn ekki séð hver hin raunverulegu rök eru fyrir því að taka þetta húsnæði á leigu,“ seg- ir Asta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.