Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 76
iM 1 tími í mat, 2x20 mínútur í kaffi og 2 timar í bið á dag? Það er dýrt að láta starfsfólkið bíða! Tölvukerfi sem virkar 563 3000 Netþjónar og tölvur COMPAOL MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Loðna fínnst ■ vestanvið Kolbeinsey Víkingur AK með 900 tonn SVEINN ísaksson, skipstjóri á Víkingi AK, vonaðist til að fylla skipið af loðnu í nótt en í gær hafði hann fengið 900 tonn rétt vestan við Kolbeinsey. Örn KE var á svip- uðum slóðum aðfaranótt fímmtu- ■^dags og fékk um 200 tonn í tveimur köstum en varð að fara í land vegna bilunar. Þá var Guðrún Þor- kelsdóttir SU komin á miðin í gær. „Það er rólegt hjá okkur núna,“ sagði Sveinn við Morgunblaðið í gær. „Við látum reka á daginn og það er lítið að sjá. Þetta eru voða- lega litlar torfur og mikið kastað, 50 til 100 tonn í kasti, en við höfum fengið 900 tonn á tveimur sólar- hringum. Þetta er þokkaleg loðna, 14 til 15 sentimetra löng, sem er k-9 gott á þessu svæði, en ef um stærri loðnu er að ræða er hún yfirleitt austar, við Langanes og þar um slóðir.“ Víkingur hafði verið að reyna við síld fyrir austan en illa gekk að ná henni og því var farið á loðnuna. „Við reyndum í töluvert marga daga en ekkert var að hafa, ekkert nema grjót og vitleysa." Mikil loðna á Kögurgrunni Sveinn sagði að Öm KE hefði verið heldur vestar og kastað tvisvar aðfaranótt fímmtudags. Það hefði hins vegar verið lélegt ^^^síli og ekki gerandi að veiða það. í^rQm landaði í Bolungarvík eftir að gírinn bilaði og hélt skipið síðan til Reykjavíkur til viðgerðar. „Það er svolítið af dreifðri loðnu hérna en við reynum að velja skástu punkt- ana úr. Sjórinn er aðeins að kólna og því höfum við ákveðna von um að það fari að bætast í þetta. Við höfum frétt af mikilli loðnu á Kög- urgmnni fyrir vestan og höfum verið að gera því skóna að hún færi sig héma austar." Að sögn Sveins er mjög gott veð- ur á miðunum og sagðist hann ætla að nota góða veðrið í nótt sem leið og sigla svo til Akraness, en sigl- ingin þangað tekur tæpan sólar- hring. „Hann er að spá norðaustan átt og það er gott að fá hret á þetta héma.“ Bensínverð lækkar um 2,50 kr. OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu verð bensínlítra um 2,50 krónur í gær í kjölfar laga sem Alþingi setti í vikunni. Lögin kváðu á um að bensín- gjaldi yrði breytt í fasta krónutölu í stað hlutfalls- gjalds. Lítrinn af 95 oktana bens- íni kostar nú 86,10 krónur og lítrinn af 98 oktana bensíni kostar 90,80 krónur. Nemur því lækkunin um 2,8%. Þegar Morgunblaðið hafði samband við olíufélögin í gær voru þau í óða önn að senda út skeyti með tilmælum um lækkunina. Töldu flestir að verðlækkunin yrði komin til framkvæmda um allt land í gærkvöldi. Morgunblað/RAX Nýtt mat á þjóðhagslegum áhrifum 120 og 360 þús. tonna álvers á Reyðarfírði Islands- klukka úr steini 180 milljarða króna fjárfesting á níu árum HEILDARFJÁRFESTING við byggingu 120 þúsunda tonna álvers á Reyðarfirði, sem tæki til starfa ár- ið 2003, nemur rúmum 60 milljörðum kr. og landsframleiðsla yrði tæplega 2% meiri en ella hefði orðið fyrstu árin eftir að álverið tæki til starfa. Ef álverið verður stækkað um 240 þúsund tonn til viðbótar, sem yrði _j!okið árið 2008, nemur heildarfjár- festingin 180 milljörðum króna, sem dreifist á níu ár og landsframleiðsla yrði 5% hærri. Þetta kemur fram í endurskoðuðu mati Þjóðhagsstofn- unar frá 15. október sl. á þjóðhags- legum áhrifum álversins sem unnið var fyrir iðnaðarráðherra. SkV. mati Þjóðhagsstofnunar Bpnyndi útflutningur frá landinu aukast um ríflega 4% til frambúðar og landsframleiðsla aukast varan- lega um 1,4% ef eingöngu er reiknað með starfsemi 120 þúsunda tonna ál- vers. Þá myndu um 270 framtíðar- störf myndast í verksmiðjunni og reiknað er með að alls þyrfti um 1.250 ársverk til byggingarfram- kvæmdanna auk 1.700 ársverka á ár- unum 2000-2003 til nauðsynlegra virkjanaframkvæmda. 10-15% aukinn útflutningur Heildarfjárfesting vegna stækkun- ar álversins í 360 þúsund tonn sam- svarar 140% af allri fjárfestingu árs- ins 1999. Er þá reiknað með að fyrri hluti álversins verði byggður á árun- um 2001-2003, hafíst verði handa við að byggja síðari áfangann árið 2006 og honum verði lokið 2008. ,Á árun- um 2001-2003 má búast við að fjár- festing verði á bilinu 15-25% hærri og 25-50% meiri á árunum 2006-2008 en ef ekki yrði ráðist í framkvæmdir. Reikna má með að landsframleiðsla verði meira en 5% hærri en í saman- burðardæminu þegar mest lætur en ríflega 4% meiri til frambúðar. Var- anleg aukning þjóðarframleiðslu er minni, eða ríflega 3% sem er svipað og hækkun einkaneyslu. Þegar síðari hluti álversins verður kominn í gagnið mun útflutningur verða 10-15% hærri en ella,“ segir í álitsgerð Þjóðhagsstofnunar. Tekið er fram að mat þetta sé háð ýmsum forsendum sem óvissa ríki um og ekki sé lagt mat á rekstrar- lega eða þjóðhagslega arðsemi verk- efnanna. Eru niðurstöðurnar reikn- aðar út frá samanburðardæmi sem byggist á 2% jöfnum hagvexti. Þar sem stór hluti aðfanga til byggingar álvers er innfluttur er talið að framkvæmdir við 360 þús- unda tonna álver myndu hafa nei- kvæð áhrif á viðskiptajöfnuð og er- lendar skuldir myndu aukast um 10% af landsframleiðslu fram til árs- ins 2010. Eftir að síðari áfanginn hefði verið tekinn í notkun mætti þó búast við að erlendar skuldir lækk- uðu smám saman. „Með byggingu álvers á Reyðar- fli’ði má búast við að 570 störf mynd- ist til frambúðar, þar af 270 störf þegar fyrri hluti álversins verður tekinn í notkun," segir einnig. ■ Niðursveiflu spáð/38-39 HALLDÓR Forni Gunnlaugsson, myndhöggvari á Eyrarbakka, ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Hann er að höggva sjálfa Islandsklukkuna úr miklum steini. Halldór segist ávallt krjúpa við hlið steina sinna áður en hann hefst handa við að höggva þá. „Ég loka augunum og reyni að heyra hvað steinninn segir mér. Þegar ég hlustaði á þennan stein heyrði ég fagra hljómkviðu Islandsklukkunnar.“ Halldór stefnir að því að Ijúka við listaverkið um mitt næsta ár. Aðspurður hvar eigi að geyma klukkuna segir hann aðeins einn stað við hæfi fyrir klukku sem þessa. „Auðvitað verður hún að vera á Þingvöllum.“ Ef ósk Hall- dórs rætist geta landsmenn lagt leið sina að hinum forna þingstað og barið augum klukkuna sem eitt sinn var sagt frá í gömlum bókum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.