Morgunblaðið - 23.10.1999, Side 6

Morgunblaðið - 23.10.1999, Side 6
6 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 r MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR A * Framkvæmdastjóri ASI um dóm Félagsdóms vegna leikskólakennara í Arborg Sérlögum gefið mikið vægi miðað við allsherjarlöggjöf Fyrsti sop- inn úr vatnspósti INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir vígði vatnspóst hjá Grímsstaða- vör við Ægisíðu í gær. Vatns- pósturinn er sá fyrsti af mörgum sem Vatnsveita Reykjavíkur mun setja upp víðs vegar í borginni á næstu árum. Kristinn E. Hrafns- son hannaði vatnspóstinn. Verkið er byggt á upprúllaðri garðslöngu steyptri í brons. Slangan er sett á steinsteyptan stöpul og á honum er áletrað nafn póstsins, en hann nefnist Vatn - Vatn. ARI Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýðusambands íslands, segir að niðurstaða Félagsdóms varðandi fjöldauppsagnir leikskólakennara í Árborg sé mjög undarleg og honum finnist dómurinn gefa sérlögum mikið vægi miðað við allsherjarlöggjöfina. Það sé auðvitað fráleitt ef ekki gildi sömu reglur alls staðar á vinnumarkaðnum. Ögmundur Jón- asson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, segir að niður- staða Félagsdóms sé eðlileg, félag sé sýknað af því að bera ábyrgð á atburðum sem það hafi ekki staðið fyrir. Morgunblaðið/Kristinn Lokuðum fundi um kampýlobakter-sýkingar lauk í gær Upplýsingar verða veittar eftir helgi LOKUÐUM haustfundi Hollustu- vemdar lauk síðdegis í gær. Ekki fengust upplýsingar um niðurstöður sem fram kunna að hafa komið í er- indum um kampýlobakter, sem flutt voru á fundinum, en umfjöllun um niðurstöður rannsókna á bakterí- unni og sýkinga af völdum hennar mun vera ástæða þess að ákveðið var að hafa fundinn lokaðan. Her- mann Sveinbjömsson, forstjóri Hollustuvemdar, sagði að upplýs- inga af fundinum væri að vænta fljótlega upp úr helgi. Umhverfísráðherra kom ekki að ákvörðun um að loka fundi A fundinum í gær vora flutt a.m.k. fjögur erindi sem vörðuðu kampýlobakter-sýkingar og/eða sóttvarnii- sérstaídega. Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráð- herra, segir það ekki rétt að ráðu- neyti hennar hafi átt þátt í þeirri ákvörðun að loka haustfundi Holl- ustuvemdar í gær vegna viðkvæmr- ar umræðu um kampýlobakter. „Þama er einhver misskilningur á ferð. Þetta er fundur sem Hollustu- vernd ríkisins heldur ásamt heil- brigðiseftirliti sveitarfélaga og það er algerlega þeirra ákvörðun hvern- ig þeir standa að honum. Ég hef rætt þetta við forstjóra Hollustuvemdar vegna þess sem kom fram í Morgunblaðinu og það er alveg ljóst, að þeirra skýring á því að hafa fundinn lokaðan er sú, að þeir era ennþá með í vinnslu rann- sóknina á útbreiðslu kampylóbakter í matvælum. Þeir hafa ekki enn skil- að niðurstöðum hennar til mín. Holl- ustuvemd ríkisins er með forsvar í þeirri rannsókn en þar koma einnig að landlæknisembættið og yfirdýra- læknisembættið," segir Siv. En vora upplýsingamar þess eðl- is að ráðherra telji lokun fundarins réttlætanlega? „Það get ég ekki metið þar sem ég er ekki búin að fá niðurstöður í hendur. En það er mjög brýnt að það sé opinská um- ræða um útbreiðslu kampýlobakter og fólk geri sér grein fyrir því að það er hægt að koma algerlega í veg fyrir sýkingar með því að elda, t.d. kjúkling, á réttan hátt.“ Áskrifendaferð til Washington DC MORGUNBLAÐIÐ í samstarfí við Flugleiðir stend- ur fyrir fjórðu áskrifendaferðinni til útlanda á næstunni. Að þessu sinni er boðið upp á ferð til Washington DC í Bandaríkjunum. Aður hafa verið farnar ferðir til Minncapolis og Parísar. Karl Blöndal, blaðamaður á Morgunblaðinu, verður fararstjóri í ferðinni en hann er sérfróður um bandarísk stjórnmál. Hann starfaði í sjö ár sem fréttaritari Morgunblaðsins í Bandarikjunum og þekkir vel til staðhátta. Flogið er til Baltimore síð- degis miðvikudaginn 17. nóvember og tekin rúta til Washington sem tekur um 40 mínútur. Flogið er heim að kvöldi sunnudagsins 21. nóvember. Gist er á ferðamannahótelinu Howard Johnson Hotel & Suites í íjórar nætur og er verðið 39.300 kr. á mann í tvíbýli. Hvíta húsið í Washington. Áskrifendur sem vilja nýta sér þetta tilboð geta haft samband við söluskrifstoíú Flugleiða í Kringl- unni í dag kl. 10-16 en sætafjöldi er takmarkaður. Karl verður á skrifstofu Flugleiða í Kringlunni milli kl. 10-12 í dag til að svara fyrirspurnum. í dómi Félagsdóms er komist að jieirri niðurstöðu að uppsagnir leik- skólakennaranna séu ekki ólöglegar, en Launanefnd sveitarfélaga höfðaði málið gegn Félagi íslenskra leik- skólakennara. Ari sagði að sér fynd- ist að það lægi í dómsorðinu, þótt það væri ekki sagt beinum orðum, að ef þessi aðgerð hefði verið fram- kvæmd á almennum vinnumarkaði þá hefði lagabreytingin á vinnulög- gjöfinni frá árinu 1996 gilt og að- gerðin þá verið ólögleg. I dóminum segir oi'ðrétt: „I 4. gr. laga nr. 75/1996 sem breyttu 1. nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnu- deilur segir svo: „Vinnustöðvanir í skilningi laga þessara era verkbönn atvinnurekenda og verkföll þegar launamenn leggja niður venjuleg störf sín að einhveiju eða öllu leyti í því skyni að ná tilteknu sameigin- legu markmiði. Sama gildir um aðr- ar sambærilegar aðgerðir af hálfu atvinnurekenda eða launamanna sem jafna má til vinnustöðvunar." Engin sambærileg breyting hefur verið gerð á ákvæðum laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opin- beraa starfsmanna. Þrátt fyrir að gögn málsins beri með sér að um fjöldauppsagnir hafi verið að ræða hjá leikskólakennurum í Árborg verður þeim uppsögnum, án skýrra lagaákvæða, ekki jafnað til aðgerða sem jafna megi til vinnustöðvunar og brots á friðarskyldu." Aii sagði að hann væri mikið á móti því að nota aðferðir eins og þessar og hefði skrifað um það. Hann teldi aðferðirnar ólöglegar og að þær kæmu í bakið á launafólki fyrr eða seinna. Hann hefði áhyggj- ur af því að löggjafinn færi í það í framhaldi af þessum dómi að laga reglurnar að sínum vilja og það yrði ekki bara staldrað við ríkisstarfs- menn heldur farið yfir allan markað- inn og gerðar breytingar á uppsagn- arreglum hjá fólki sem aldrei hefði beitt svona aðgerðum og ætti aldrei möguleika á því. Ari bætti því við aðspurður að það væri alveg ljóst að þetta mál yrði skoðað nánar innan Alþýðusam- bandsins. Eðlileg niðurstaða Á vef Alþýðusambandsins segir Ástráður Haraldsson hæstaréttar- lögmaður að dómurinn afhjúpi nauð- syn þess að afnema með öllu lögin um kjarasamninga opinberra starfs- manna. Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sagði að niðurstaða Félags- dóms væri eðlileg, félag væri sýknað af því að bera ábyrgð á atburðum sem það stóð ekki fyrir. Spurður um þau sjónarmið að það beri að afnema lög um kjarasamn- inga opinberra stai'fsmanna, sagði Ögmundur að það væri ýmislegt í lögum um opinbera starfsmenn sem hann vildi breyta til góðs fyrir starfsmenn og í samráði við samtök þeirra. „Hvað varðar ábyrgð á hóp- uppsögnum þá era ákvæði um það efni í lögum. Ég tel þau vera full- nægjandi, en ef einhverra breytinga er þörf verður það aðeins gert í sam- vinnu og samráði við viðkomandi samtök," sagði Ögmundur. Hann sagði að varðandi hópupp- sagnir, sem hann hefði löngum var- að við og hvatt til að menn færu mjög varlega með sem tæki í kjara- baráttu af ótta við að það kæmi launafólki í koll þegar til lengri tíma væri litið, væri það allt önnur um- ræða og ætti að taka í allt öðra sam- hengi en þessu. Lög og reglur sem vinnumarkaðurinn starfaði sam- kvæmt þyrftu að byggjast á gagn- kvæmri virðingu beggja aðila og því yrði ekki breytt með valdboði. Kortasala þrefaldast MIKILL áhugi er á að- gangskortum hjá Leikfélagi Akureyrar og hefur salan þre- faldast frá síðasta leikári, sam- kvæmt upplýsingum frá LA. Kortin gilda á þrjár sýning- ar, Klukkustrengi eftir Jökul Jakobsson, Blessuð jólin eftir Arnmund Backman og Tó- bakströð eftir Erskine Cald- well. Nokkrar samstaiíssýn- ingai' verða einnig í boði og fá kortagestir afslátt af miðaverði á þær sýningar. Kortasala hjá LA hefur ekki gengið jafn vel í mörg ár og er greinilegt að fólk kann vel að meta verkefnin sem í boði verða þetta leikárið, segir ennfremur í fréttatilkynningu írá LA. Andlát JON ODDSSON JÓN Oddsson hæsta- réttarlögmaður lést í gær, 58 ára að aldri. Jón fæddist 5. janúar árið 1941 í Reykjavík. Hann var sonur hjónanna Odds Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Mjólkur- félags Reykjavíkur, og Eyvarar Ingibjargar Þorsteinsdóttur hús- freyju. Jón lauk prófi í ensku og verslunarfræðum frá Wilson CoUege í Lund- únum árið 1957, stúd- entsprófi frá Verzlunar- skóla íslands árið 1961 og lögfræði- prófi frá Háskóla íslands árið 1968. Hæstaréttarlögmaður varð hann árið 1972. Jón gegndi ýmsum störfum á námsáram sínum, svo sem frétta- mennsku við Ríkisútvarpið, en að loknu lagaprófi hóf hann rekstur málflutningsskrifstofu í Reykjavík og síðar í Garðabæ eða árið 1986. Einnig rak hann fasteignasöluna Eignagarð sf. frá 1977 til 1986. Þá var hann ráð- gefandi lögfræðingur Ríkisútvarps- ins frá 1. júlí 1968 til 1. janúar 1974 og fasteignasölunnar Eigna sf. í Reykjavík 1971 til 1972. Jón hefur í gegnum tíðina gegnt ýmsum fé- lags- og trúnaðarstörf- um og á námsárum sín- um var hann m.a. vara- formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands og full- trúi ráðsins í Háskóla- ráði 1964-65. Hann var auk þess ritstjóri Stúd- entablaðsins 1. desem- ber 1963 og Áramóta- blaðs stúdenta árið 1964 og síðar formaður Orators eða 1965-66. Jón var m.a. í landskjörstjórn á ár- unum 1987-90 og í stjómskipaðri nefnd til að semja lagafrumvarp að áfengisvörnum og öðrum vímuefna- vörnum 1990 til 1992. Að auki vai' hann einn af stofnendum Heima- stjórnarsamtakanna vorið 1991 og skipaði efsta sæti framboðslista sam- takanna í Reykjaneskjördæmi við al- þingiskosningarnar í apríl 1991. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Val- gerður Bára Guðmundsdóttir. Hann lætur eftir sig uppkomin börn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.