Morgunblaðið - 23.10.1999, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
|
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FRAM ÚR DÖNUM í
KAUPMÆTTI
SÚ MIKLA kaupmáttaraukning, sem orðið hefur hér á
landi síðustu árin, kemur ljóslega fram í niðurstöðum
könnunar, sem Hagfræðistofnun Háskóla Islands gerði fyrir
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur á ráðstöfunartekjum
starfsfólks í þjónustugreinum í Danmörku og Islandi. I
flestum tilvikum eru ráðstöfunartekjurnar hærri hér á landi,
en því var þveröfugt farið, þegar slík könnun var gerð fyrir
fjórum árum.
Könnunin, sem unnin var af Mörtu G. Skúladóttur og
Eddu Rós Karlsdóttur, sýnir, að þróun almenns kaupmáttar
hefur verið sveiflukennd hér á landi síðustu tvo áratugi, en
kaupmáttur hefur verið jafnari í Danmörku. Þetta kemur
ekki á óvart, því óstöðugleiki í íslenzkum efnahagsmálum
hefur verið vandamál allt fram á síðustu ár. Frá 1995 hefur
kaupmáttur ráðstöfunartekna verið meiri hér en í Dan-
mörku og þessi breyting kemur m.a fram í því, að kaupmátt-
ur ráðstöfunartekna félaga í VR, sem eru á lágmarkslaun-
um, hefur hækkað um 7,4% frá 1996 til 1998 á meðan hækk-
un samsvarandi hóps verzlunarmanna í Danmörku var 3,8%.
Kaupmáttaraukningin hér á landi kemur skýrt fram í
flestum þjónustugreinum, er ráðstöfunartekjur heildarlauna
eru hærri á íslandi en í Danmörku. Hins vegar eru mánað-
arlaun fyrir dagvinnu í öllum tilvikum hærri í Danmörku, en
við mat á ráðstöfunartekjum fyrir dagvinnu eru hóparnir
ýmist betur settir í löndunum tveimur. Mikil breyting hefur
orðið á þeim fjórum árum, sem liðin eru frá því VR stóð síð-
ast fyrir slíkri samanburðarkönnun. Árið 1994 voru dag-
vinnulaun 28% hærri í Danmörku en hér og heildarlaun 4%
hærri. Enn hefur danskt afgreiðslufólk 7,3% meira fyrir
dagvinnu, en heildartekjur íslenzkra starfssystkina eru
8,5% hærri. Islendingar verða hins vegar að leggja á sig
meiri vinnu en Danir til að afla teknanna, því þeir vinna að
meðaltali 49,4 stundir á viku en Danir 38,8 stundir.
Könnunin sýnir, að bætur eru oftar tekjutengdar og
skattlagðar á íslandi, en bótafjárhæðir ýmist hærri eða
lægri. Samanburðurinn sýnir, þegar dæmi er tekið af hjón-
um með tvö börn og greiðslubyrði af þúsnæðislánum, að ráð-
stöfunartekjur eru lítillega hærri á Islandi, þrátt fyrir mun
hærri mánaðartekjur dönsku hjónanna. Ræðst það fyrst og
fremst af miklu hærri tekjuskatti þeirra.
Gunnar Páll Pálsson, forstöðumaður hagdeildar VR, telur
þrjár meginskýringar á þeirri miklu breytingu, sem hefur
orðið á kjarasamanburði við Danmörku. Laun og kaupmátt-
ur hafí hækkað mun meira á Islandi á tímabilinu, gengisþró-
un verið 7% hagstæðari hér á landi og loks, að Danir eru að
byggja upp nýtt lífeyriskerfi og hluti launahækkana hafi
verið lagður til þess.
Lífskjarasamanburður milli landa er flókinn og oft erfíð-
ur, t.d. er neyzla heimilanna talin gefa vísbendingu, en
einkaneyzla á mann er mun meiri á Islandi en í Danmörku
(34% meiri 1998). Hins vegar virðist einkaneyzla íslendinga
hafa verið fjármögnuð í meira mæli með skuldasöfnun en í
Danmörku. En hvað sem því líður sýnir þessi könnun þá
grundvallarbreytingu, sem orðið hefur á lífskjörum á íslandi
á nokkrum síðustu árum.
HEILSA OG MATUR
BEINÞYNNING er vaxandi heilsufarsvandamál meðal
roskinna íslendinga, aðallega meðal kvenna. Þessi sjúk-
dómur gerir ekki boð á undan sér en hefur í för með sér að
sjúklingurinn bognar í baki og smám saman verða bein við-
komandi svo stökk, að beinbrot geta orðið tíð við minnsta
hnjask. Síðari ár hefur tíðni þessa sjúkdóms aukizt mjög og
er hann nú orðinn mikið vandamál á Vesturlöndum.
Á Beinverndardaginn, sem haldinn var í vikunni, var
gerður samstarfssamningur milli Beinverndar og íslensks
mjólkuriðnaðar til þriggja ára. Markmið hans er að vekja at-
hygli á vaxandi vanda vegna beinþynningar. Hrundið verður
af stað kynningarátaki undir yfirskriftinni „hollusta styrkir
bein“.'
Nú er unnið markvisst að rannsóknum á áhrifum næring-
ar á heilsu manna. Nýlega hefur verið undirritaður sam-
starfssamningur um eflingu rannsókna og framhaldsnáms í
næringarfræði mannsins við Háskóla Islands og Rann-
sóknastofu í næringarfræði. Heildarstyrkveiting nemur 7,5
milljónum króna. Að samningnum koma landbúnaðarráðu-
neytið, Landssamband kúabænda og Markaðsnefnd
mjólkuriðnaðarins. Slíkt samstarf til að bæta heilsufar þjóð-
arinnar er fagnaðarefni.
Niðursveiflu spáð í kjölfar
mikils framkvæmdaskeiðs
Fjárfesting atvinnuveganna jókst um 150%
á árunum 1996-1998 en spáð er verulegri
niðursveiflu á næstunni ef ekkert verður
af byggingu álvers á Austfjörðum. Þrátt
fyrir ýmsar stórar verklegar framkvæmdir
á næsta ári óttast margir að samdráttar-
skeið kunni að taka við að ári liðnu. Omar
Friðriksson fjallar um fyrirhugaðar stór-
framkvæmdir á næstu árum.
Morgunblaðið/Golli
Mikill gangur hefur verið í byggingarframkvæmdum að undanförnu,
einkum þó á höfuðborgarsvæðinu.
IKJÖLFAR mikillar uppsveiflu í
fjárfestingu og verklegum stór-
framkvæmdum á seinustu tvem-
ur tU þremur árum gerir Þjóð-
hagsstofnun nú ráð fyrir að draga
muni úr frekari vexti fjárfestingar á
næstu árum. Eru þá undan skilin
áform um byggingu álvers við Reyðar-
fjörð og umfangsmiklar virkjanafram-
kvæmdir í tengslum við nýja stóriðju,
þar sem ekki er séð fyrir endann á
samningum þar um. Skv. tímaáætlun-
um ríkisins og Hydro Aluminium
verður endanleg ákvörðun um álver
tekin 1. júní á næsta ári.
Þrátt fyrir óvissu um áframhaldandi
stóriðjuuppbyggingu eru ýmis stór
verkefni framundan á næsta ári í stór-
iðju, virkjunarframkvæmdum, sam-
göngumálum og við ýmsar stórar
byggingarframkvæmdir. Árið 2001
gætu hins vegar orðið veruleg kafla-
skipti.
Samkvæmt upplýsingum Þjóðhags-
stofnunar óx fjárfesting atvinnuveg-
anna á árunum 1996-1998 um nærfellt
150% eða um 35% á ári að meðaltali.
Hér skiptu sköpum stóriðjufram-
kvæmdir vegna stækkunar ÍSAL,
byggingar álvers Norðuráls á Grund-
artanga, stækkun járnblendiverk-
smiðjunnar, svo og miklar virkjana-
framkvæmdir á vegum Landsvirkjun-
ar.
Á síðasta ári fór fjárfesting í öðrum
atvinnugreinum einnig vaxandi. Þá
nam fjárfesting atvinnuvegannna alls
15% af landsframleiðslu og hafði það
hlutfall tvöfaldast frá 1995. Talsvert
hefur dregið úr þessum vexti á þessu
ári, þó enn sé talsverður vöxtur í
byggingu íbúðarhúsnæðis og verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæðis. Ibúum á
höfuðborgarsvæðinu fjölgar meira en
nokkru sinni, vegna búferlaflutninga
innanlands og mikils aðflutnings fólks
frá útlöndum og er gert ráð fyrir 4.500
manna fjölgun á höfuðborgarsvæðinu
á þessu ári. Hún leiðir aftur af sér eft-
irspurn eftir 1.700-1.800 íbúðum skv.
þjóðhagsáætlun og mun fjárfesting í
íbúðarhúsnæði á landinu aukast um
8% í ár og um 5% á næsta ári. Mikill
gangur hefur því verið í byggingar-
framkvæmdum að undanförnu, að
stærstum hluta á höfuðborgarsvæði.
Auknar framkvæmdir
á íbúðarhúsamarkaði
Eyjólfur Bjarnason, bygginga-
tæknifræðingur hjá Samtökum iðnað-
arins, segir allar spár gera ráð fyrir að
ástandið verði svipað á næsta ári. „Við
teljum að framkvæmdir á íbúðarhúsa-
markaði eigi frekar að aukast miðað
við yfirstandandi ár,“ segir hann en
bendir jafnframt á að verulega óvissa
sé um áætlanir um frekari uppbygg-
ingu stóriðju og orkuframkvæmdir.
Sérfræðingar Þjóðhagsstofnunar
telja að fjárfesting atvinnuveganna
muni dragast saman um 2,5% á næsta
ári ef ekki er reiknað með stækkun ál-
vers Norðuráls úr 60 í 90 þúsund tonn.
Sú framkvæmd hefði hins vegar í för
með sér að heildaríjárfestingin myndi
aukast um 3,2% árið 2000.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagstofnunar, segir að ef litið er
lengra fram í tímann, og hugsanlegt
álver við Reyðarfjörð ekki tekið með í
reikninginn, sé gert ráð fyrir því að
fjárfesting hér á landi muni sveiflast
töluvert. Atvinnuvegafjárfestingin
muni dragast saman um 4,5% árið
2001 en í framhaldi af því verði að
meðaltali um 2% aukning fjárfestingar
til ársins 2004. Áfram er spáð töluvert
mikilli aukningu í íbúðarfjárfesting-
unni á árunum 2000-2001 en svo mun
hægjast um á næstu árum þar á eftir.
Stefnt að því að stækkun
Norðuráls Ijúki á einu ári
Fastlega er búist við að orkusölu-
samningur Landsvirkjunar og Norð-
uráls vegna stækkunar álversins á
Grundartanga úr 60 í 90 þúsund tonn
verði undirritaður á næstu vikum.
Skv. upplýsingum sem fengust hjá
stjórnendum Norðuráls er stefnt að
því að framkvæmdir við stækkun
verksmiðjunnar hefjist fljótlega upp
úr næstu áramótum og gera áætlanir
ráð fyrir að verkinu verði að mestu
lokið á einu ári, þannig að hægt verði
að gangsetja viðbótarbúnað á fyrsta
ársfjórðungi ársins 2001. Kostnaður
við stækkunina er áætlaður minnst 5,5
milljarðar kr. Af samtölum við verk-
taka má ráða að gera megi ráð fyrir að
þörf verði fyrir nálægt 200 manns til
starfa við þessar framkvæmdir.
Stjórnendur Norðuráls hafa einnig
hug á að nýta sér heimild í starfsleyfi
til frekari stækkunar verksmiðjunnar
í 180 þúsund tonn og hafa óskað eftir
viðræðum við Landsvirkjun um orku-
afhendingu vegna þessara áforma.
Þær viðræður eru á upphafsstigi og er
talið ósennilegt að þær framkvæmdir
kæmust í gang innan næstu tveggja til
þriggja ára en það ræðst m.a. af orku-
framboðinu. Eigendur Columbia
Ventures, móðurfélags álversins á
Grundartanga, hafa einnig lýst áhuga
á að reisa álver á Austfjörðum og er sá
áhugi enn til staðar, skv. upplýsingum
blaðsins, þó að málið sé í biðstöðu á
meðan viðræður íslenskra stjórnvalda
við Hydro Aluminium verða leiddar til
lykta.
Falla úr 25 miHjörðum í
200 milljónir á 4 árum
,Árið 1998 námu fjárfestingar í
stóriðju og tengdum orkumannvirkj-
um 24,8 milljörðum króna. Árið 1999
voru fjárfestingarnar í kringum 17
milljarða. Við lok þessa árs er fram-
kvæmdum svo til lokið, vegna þess að
árið 2000 fer fjárfestingin niður í um 4
milljarða. Hún fer svo niður í 900
milljónir árið 2001 og í 200 milljónir
árið 2002. Það má því segja að ef ekk-
ert áframhald verður á þessu sviði
muni fjárfestingin hrynja,“ segir
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
Ekki er tekið tillit til stækkunar
Norðuráls í þessum tölum en ef sú
framkvæmd er talin með gæti heildar-
fjárfestingin í orkuframkvæmdum og
stóriðju á næsta ári numið um 9 millj-
örðum kr., um 4 milljörðum á árinu
2001, 400 milljónum árið 2002 og 200
milljónum árið 2003.
„Það er því ekkert bjart framundan
í þessum efnum ef ekki kemur til eitt-
hvað nýtt,“ segir Finnur og leggur
áherslu á að mikilvægt sé að geta jafn-
að þessar miklu sveiflur. Hann bendir
á að ef framkvæmdir við byggingu ál-
vers á Reyðarfírði og orkumannvirki
þeim tengd gengju eftir væri hins veg-
ar gert ráð fyrir 15-20 milljarða kr.
heildarfjárfestingu á hverju ári fram
til ársins 2004. Finnur telur að miðað
við tímaáætlanir sem miðað er við
varðandi stóriðjuuppbyggingu á Aust-
fjörðum muni þær framkvæmdir falla
mjög vel að þeirri niðursveiflu sem nú
blasi við í orkugeiranum.
Opinberum framkvæmdum
frestað
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
fresta framkvæmdum á næsta ári fyr-
ir um einn milljarð kr. og draga
þannig úr fjárfestingum til að sporna
við þenslu í efnahagslífmu. Boðuð er
frestun ýmissa framkvæmda í fjár-
lagafrumvarpi næsta árs og verður
verkefnum frestað í vegamálum fyrir
550 millj. kr. sem skiptast þannig að
fresta verður framkvæmdum fyrir 450
millj. kr. á höfuðborgarsvæðinu og 100
millj. á landsbyggðinni. Þá verður
framkvæmdum fyrir 350 millj. kr. í
hafnamálum frestað og 160 millj. kr.
hjá Endurbótasjóði menningarstofn-
ana.
Þessi ákvörðun hefur þó engin áhrif
á samþykkt ríkisstjórnarinnar um 500
millj. kr. viðbótarframlag til vegamála
á hverju ári á tímabilinu 1999 til 2002
eða alls um 2 milljarða króna. Fram
kemur í fjárlagafrumvarpinu að fyrir-
hugað er að viðbótarframlögin verði
nýtt til að flýta hluta stórverkefna,
sem tilgreind eru í langtímaáætlun í
vegamálum.
Binda vonir við smfði varðskips
Meðal stærstu byggingarfram-
kvæmda sem framundan eru á vegum
ríkisins er stækkun flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar en áætlaður byggingar-
kostnaður flugstöðvarinnar er um eða
yfir 3 milljarðar kr. og á framkvæmd-
um að vera lokið árið 2001.
Fyrirtæki í málmiðnaðinum binda
miklar vonir við að smíði nýja varð-
skipsins fari fram hér á landi. Ingólfur
Sverrisson hjá Samtökum iðnaðarins
segir ekki bjart útlit í málmiðnaðinum.
Fyrirtæki sem tengist skipaiðnaðinum
séu mörg hver að velta fyrir sér að
draga saman seglin. Stjórnvöld gera
ráð fyrir að smiði skipsins verði tilbúin
til útboðs í lok næsta árs en fjárveit-
ing til smíðinnar er um hálfur þriðji
milljarður ki-óna. Eftfrlitsstofnun
EFTA gerði athugasemdir við áfonn
stjórnvalda um smíði skipsins hér inn-
anlands en á vegum utanríkisráðu-
neytisins hefur verið leitað að lausn
málsins að undanförnu. Hverjar sem
lyktir þess verða er talið ósennilegt að
framkvæmdir við smíði skipsins gætu
hafist fyrr en í fyrsta lagi árið 2001.
Niðursveifla í
framkvæmdum Landsvirkjunar?
Landsvirkjun hefur staðið fyrir um-
fangsmiklum framkvæmdum á sein-
ustu árum. Nema fjárfestingar fyrir-
tækisins hálfum ellefta milljarði kr. á
þessu ári en fara svo að öðru óbreyttu
ört lækkandi. Framkvæmdir við Sult-
artangavirkjun eru nú á lokastigi en
fyrirhugað er að virkjunin verði komin
í fullan rekstur í lok janúar á næsta ári.
Framkvæmdir hófust við Vatns-
fellsvirkjun sl. sumar og munu vænt-
anlega standa yfir í um tvö ár, þannig
að virkjunin verði komin í rekstur á
haustmánuðum árið 2001. Stöðin verð-
ur um 90 MW að uppsettu afli. Áætlað
er að vinna við framkvæmdimar á
verkstað nemi um 400 ársverkum, skv.
upplýsingum Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar.
Þá eru í gangi endurbætur á Búr-
fellsstöð og má reikna með einhverj-
um framkvæmdum þar á næsta sumri.
Endurbygging og endurbætur Sogs-
virkjana eru langt komnar og gert ráð
fyrir að þeim framkvæmdum ljúki á
næsta ári og framkvæmdir standa yfir
við endurbætur gasaflstöðvar við
Straumsvík.
Verði ákvörðun tekin um byggingu
álvers við Reyðarfjörð og samningar
nást milli Landsvirkjunar og fjárfesta
um raforkuverð reikna stjórnendur
Landsvirkjunar með að framkvæmdir
gætu hafist á næsta ári vegna bygging-
ar 210 MW virkjunar í Fljótsdal og að
framkvæmdir standi yfir í 3-4 ár en í
fyrsta áfanga er gert ráð fyrir bygg-
ingu 120 þúsund tonna álvers sem tæki
til starfa 2003. Ljóst er að þjóðhagsleg
áhrif þessara framkvæmda yrðu mjög
mikil, skv. nýju mati Þjóðhagsstofhun-
ar á þjóðhagslegum áhrifum álvers á
Reyðarfirði. Heildarfjárfesting við 120
þúsund tonna álver nemur rúmum 60
milljörðum sem samsvarar nærri 50%
af heildarfjárfestingu á landinu í ár og
landsframleiðsla verður tæplega 2%
hærri en ella hefði orðið fyrstu árin eft-
ir að álverið tekur til starfa og útlfutn-
ingur eykst um ríflega 4% til frambúð-
ar, að mati stofnunarinnar.
Þessum áætlunum tengjast einnig
áform um framkvæmdir við 40 MW
jarðgufuvirkjun við Bjarnarflag í Mý-
vatnssveit og einnig er í undirbúningi
að ráðast í endurbætur eða tvöföldun
byggðalínunnar frá Kröflu til Austur-
lands. Bjarnarflagsvirkjun og breyt-
ingar eða lagning nýrrar háspennu-
línu eru háðar því að fram fari mat á
umhverfisáhrifum áður en unnt verð-
ur að ráðast í framkvæmdir. Ekki
liggur ljóst fyrir hvenær þessar fram-
kvæmdir gætu hafist en það verður
tæplega fyrr en á árinu 2001, skv.
upplýsingum Þorsteins. Áætlað er að
500-700 ársverk verði bundin við þess-
ar orkuframkvæmdir næstu árin, ef af
þeim verður, skv. upplýsingum sem
fengust hjá Agnari Olsen, fram-
kvæmdastjóra verkfræði- og fram-
kvæmdasviðs Landsvirkjunar.
Litlar líkur eru taldar á að samning-
ar náist um önnur stóriðjuverkefni en
hér hafa verið talin á næstu 2-3 árum.
Erfíðlega hefur gengið að komast að
niðurstöðu varðandi mögulega bygg-
ingu pólýól-verksmiðju og vonir
manna um að reist verði magnesíum-
verksmiðja á íslandi á allra næstu ár-
um hafa einnig dofnað talsvert að und-
anförnu, skv. upplýsingum Garðars
Ingvarssonar hjá Fjárfestingarstofu.
Sagði hann varla raunsætt að gera ráð
fyrir að slík verksmiðja gæti risið hér
á landi fyrr en í fyrsta lagi árið 2005.
Borgin frestar ekki
einsetningu grunnskóla
„Ef eingöngu er litið til þeirra verk-
efna sem við erum í núna, þá sé ég
ekki fram á að á næstu tveimur til
þremur árum muni draga úr fram-
kvæmdaþörf,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri.
Helstu stórframkvæmdfr á vegum
borgarinnar á næstunni eru annars
vegar framkvæmdir við skólahúsnæði
vegna einsetningar grunnskólanna og
hins vegar að ljúka fráveituverkefnum
vegna hreinsunar strandlengjunnar.
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 39
Fjarfestingar - áætlun 1999 og spá 2000 1999 áætlun 2000 spá Breyt. milla ára
Fjárfestingar alls milljónir króna 127.424 133.698 2,1%
Atvinnuvegir 86.064 90.798 3,2%
Landbúnaður 3.400 3.300 -5,3%
Fiskveiðar 3.100 10.350 226,7%
Vinnsla sjávarafurða 4.500 5.000 8,3%
Ál- og kísiljárnframleiðsla 4.800 5.000 1,6%
Annar iðnaður 10.100 10.500 1,5%
Rafvirkjanir og rafveitur 15.000 7.500 -51,3%
Hitaveitur 2.000 2.000 -2,9%
Vatnsveitur 800 800 -2,9%
Byggingarstarfsemi o.fl. 5.000 5.000 -1,9%
Verslunarhúsnæði, skrifstofur o.fl. 10.000 10.300 0,0%
Samgöngur 13.064 14.548 10,4%
Póstur og sími, útvarp og sjónvarp 5.300 6.000 10,4%
Tölvu- og skrifstofubúnaður 9.000 10.500 14,4%
íbúðarhús 21.860 23.800 5,0%
Starfsemi hins opinbera 19.500 19.100 -4,9%
Vegir og brýr 4.500 4.500 -2,9%
Götur og holræsi 4.100 4.300 1,9%
Byggingar hins opinbera 10.900 10.300 -8,2%
Heimild: Þjóðhagstofnun
Ahrif álvers á i , i Reyðarfirði flJÉ Dæmi 2 Álver á Reyðarfirði byggt í tveimur áföngum, 120.000 tonn árið 2003 og 240.000 til viðbótar árið 2008
Dæmi 1 Álver á Reyðarfirði sem tæki til starfa árið 2003
— F--V—i
^ j Dæmi 1 Dæmi 2
Framkvæmdartími 2000-2003 2000-2008
Fjárfesting á framkvæmdartíma
Bein fjárfesting 11,7% 13,7%
Heildarfjárfesting 15,5% 21,0%
Ársverk
á framkvæmdatíma 730 900
til frambúðar 270 570
Útflutninasverðmæti álframleiðslu
árið 2000 0,0% 0,0%
árið 2004 47,0% 47,0%
árið 2009 47,0% 140,9%
Þjóðarframleiðsla
á framkvæmdatíma 1,5% 2,6%
til frambúðar 1,2% 3,0%
Landsframleiðsla
á framkvæmdatíma 1,6% 3,0%
til frambúðar 1,4% 4,0%
Heimild: Þjóðhagstofnun
Virkjana áætlanir og stóriðja
Sultartangi-2 60MW
12 þúsund GWh/a Sultartangi-1 60MW-|
Svartsengi 28 MW -]
Nesjavellir-2 30MW -j
10 Nesjavellir-130MW
Hágöngumiðlun
Kraflast. 15 MWn
8 — Búrfell st. 60 MW
Kvíslaveita
Krafla st. 15 MW
Stækkun
6 “Blöndulóns
Fljótdalsvirkjun 210 MW
Bjamarflag 40MW
Vatnsfell 90MW
NORAL
NORÐURÁL
-30.000 t/a stækkun
ISAL 3. KERSKALI
~RT. .IANBLENIÁ-
Núverandi almennur markaður og stóriðja (1997)
—I------1----j----1----1----1----1——I------1—
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
„Þetta er eitthvað sem við verðum að
gera á næstu árum, en þegar þessum
verkefnum lýkur sjáum við fyrir
ákveðið hlé hvað varðar stór verkefni
á borð við þessi,“ bætir hún við.
Að sögn borgarstjóra þarf að fjár-
festa fyrir 5 milljarða til að ljúka ein-
setningu í grunnskólum borgarinnar
og 2,7 milljarða þarf til að ljúka frá-
veituframkvæmdunum. Skv. frum-
varpi sem menntamálaráðherra hefur
lagt fram á Alþingi er gert ráð fyrir að
heimilt verði að fresta einsetningu
grunnskóla um 2 ár frá því sem áður
var ætlað. Aðspurð segir Ingibjörg
Sólrún útilokað að fresta einsetningu
grunnskóla í Reykjavík. „Við höldum
okkur við það að reyna að einsetja
skólana fyrir árið 2002,“ segir hún. Nú
þegar séu 75% grunnskólanna ein-
setnir og sagði hún að þeir sem eftir
sitji myndu ekki sætta sig að þurfa að
búa við skerta þjónustu. „Við verðum
því að leita allra leiða til þess að ein-
setja alla þessa skóla en við erum að
skoða hvort við getum dreift sjálfum
byggingarframkvæmdunum og reynt
að leysa málin eftir einhverjum öðrum
leiðum,“ sagði hún.“
Umfangsmiklar gatnaframkvæmdir
standa einnig fyrir dyrum í borginni.
Uthluta á lóðum í Grafarholti þannig
að þær verði byggingarhæfar á næsta
ári og þarf m.a. að ráðast í verulegar
gatnaframkvæmdir í tengslum við
það. Þá eru fjölmörg verkefni í gatna-
kerfi borgarinnar sem ráðast þarf í
sem fjármögnuð eru af vegafé.
„Við erum að vinna að gerð fjár-
hagsáætlunar og erum auðvitað að
leita leiða til þess að verða við þessari
ósk um að draga úr framkvæmdum til
að slá á þensluna. Við teljum að það sé
ákveðinn hagur af því fyrir okkur,
vegna þess að ef mikil þensla er á
markaðinum þá rýkur kostnaðurinn
upp,“ segir Ingibjörg Sólrún.
3,3 milljarða vegaframkvæmdir
Framkvæmdir við Reykjavíkurflug-
völl vega þyngra en flest önnur verk-
efni í höfuðborginni á næstu tveimur
til þremur árum ef áætlanir ganga eft-
ir. Gengið hefur verið frá samningum
við verktaka og framkvæmdir hafnar.
Heildarkostnaður verksins ásamt end-
urnýjun búnaðar er áætlaður tæpir
1,5 milljarðar króna. Reiknað með
þriggja ára verktíma. Upphaflega var
gert ráð fyrir að framkvæmt yrði á
næsta ári fyrir 340 millj. kr. en nú hef-
ur verið ákveðið að fresta 100 millj. af
upphaflegri áætlun og miðast fram-
kvæmdir við það.
Samkvæmt langtímaáætlun í vega-
málum verða helstu stórframkvæmdir
á því sviði á landsbyggðinni á árunum
1999-2002 eftirfarandi: Bygging nýrr-
ar brúar yfir Þjórsá (áætlaður kostn-
aður 402 milljónir). Lokið verði við
miklar vegabætur á Búlandshöfða
(486 millj.). Miklar vegaframkvæmdir
við Isafjarðardjúp (548 millj.). Veg-
tenging með bundnu slitlagi milli
Norðurlands og Austurlands verði
lokið á árunum 2000-2001 (785 millj.
kr.) Miklar vegaframkvæmdir milli
Húsavíkur og Þórshafnar (526 millj.
kr.) Framkvæmdir hefjast svo hugs-
anlega á árinu 2001 við breikkun
Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar
og Reykjanesbæjar (228 millj. á tíma-
bilinu 1999-2002).
Á höfuðborgarsvæðinu eru ýmsar
stórframkvæmdir á vegaáætlun eða
samtals fyrir um 3,3 milljarða kr. á ár-
unum 2000-2002. Gert var ráð fyrir að
framkvæmt yrði fyrir rúmlega einn
milljarð kr. á næsta ári en þar sem
ákveðið hefur verið að fresta fram-
kvæmdum fyrir 450 millj. kr. verður
sú fjárhæð færð yfir á árið 2001 og
bætist við þau framkvæmdaáform
sem þá eru fyrirhuguð, skv. upplýs-
ingum Jónasar Snæbjömssonar, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar. Þetta
mun því væntanlega ekki breyta áætl-
unum um einstök verkefni þó verklok-
um þeirra seinki af þessum sökum.
Framkvæmdir við Reykjanesbraut
eru stærsta verkefnið á tímabilinu og
er áætlað að verja 1.760 millj. kr. til
þess á árunum 1999-2002. Að sögn
Jónasar verða gatnamót við Breið-
holtsbraut boðin út næsta haust,
(áætlaður kostnaður 712 millj.).
Einnig er stefnt að færslu Reykjanes-
brautar við Hvammabraut í Hafnar-
firði og að endurbætur á gatnamótum
Lækjargötu verði boðnar út á síðari
hluta næsta árs, (320 millj.).
Meðal annarra stórverkefna eru
svokallaður hringvegur, þ.e. fram-
kvæmdir á Suðurlandsvegi/Víkurvegi
og gatnamót við Nesbraut o.fl. (444
millj. kr). Framkvæmdir við færslu
Hringbrautar o.fl. verkefni á Hring-
braut/Miklubraut hefjast hugsanlega
á næsta ári en munu aðallega standa
yfir á árunum 2001 og 2002, skv. áætl-
un Vegagerðarinnar (450 millj.).
Einnig má nefna að unnið verður að
undirbúningi vegna Sundabrautar á
tímabilinu 1999-2002 en til umræðu er
að bjóða fyrsta áfanga út innan
tveggja ára. Heildarkostnaður þessa
stórverkefnis á langtímaáætlun fram
til ársins 2010 er rúmlega 2 milljarðar.
Skólabyggingnm haldið
áfram í Hafnarfirði
Verulegar framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar í Hafnarffrði á næstu fimm
árum, að sögn Halldórs Árnasonar,
bæjarritara. Haldið verður áfram
framkvæmdum við grunnskóla og
leikskóla með gerð samninga um
einkaframkvæmd. Áætlað er að fjár-
festingar bæjarins á næsta ári nemi
800 milljónum króna. Nýtt íbúðar-
hverfi í Áslandi mun rísa á næstu ár-
um með tilheyrandi gatnafram-
kvæmdum og uppi eru áform af hálfu
bæjarins um byggingu nýs grunnskóla
og leikskóla í því hverfi, sem taki til
starfa árið 2001. í undirbúningi er
bygging nýs skóla sem á að leysa
Lækjarskóla af hólmi sem tekinn
verði í notkun 2001 og 2002 og fram-
kvæmdir standa yfir við byggingu
íþróttamiðstöðvar á íþróttasvæði
Hauka sem á að vera lokið 2001, svo
nokkur helstu verkefni séu nefnd.
Tillaga að nýju miðbæjarskipulagi
verður kynnt í Hafnarfirði á næstu
dögum en þar er gert ráð fyrir mikl-
um byggingarframkvæmdum þar sem
svæðið verði skipulagt fyrir blandaða
byggð íbúða og menningarstarfsemi.
Halldór er þeirrar skoðunar að ekki
verði stórvægilegar breytingar á
mannaflaþörf vegna framkvæmda í
bænum á næstu árum frá því sem ver-
ið hefur.
60 þúsund fermetra verslunar-
miðstöð í Smáralind
Umtalsverðar framkvæmdir eru
einnig fyrirsjáanlegar í Kópavogi en
endanlegar ákvarðnir bíða afgreiðslu
fjárhagsáætlunar næsta árs. Meðal
stærstu verkefna á vegum bæjarins er
áframhaldandi bygging Lindaskóla
sem á að vera lokið á næstu 2-3 árum.
Líklegt er að hafnar verði fram-
kvæmdir við Salarskóla sem er nýr
grunnskóli ofan Lindahverfis og að
fyrsti áfangi hans verði tekinn í notk-
un 2001. Mikil íbúðaruppbygging á sér
stað í hverfmu þar sem munu búa ná-
lægt 3.000 manns. Þá er m.a. reiknað
með að byggður verði leikskóli á
næsta ári á homi Urðarbrautar og 7
Kópavogsbrautar og era uppi áform
um byggingu fleiri leikskóla á næstu
árum, skv. upplýsingum sem fengust
hjá Þórarni Hjaltasyni, verkfræðingi
hjá Kópavogsbæ.
Sú byggingarframkvæmd sem þó
ber höfuð og herðar yfir aðrar fram-
kvæmdir sem í undirbúningi eru á
höfuðborgarsvæðinu er án efa fyrir-
huguð bygging 60 þúsund fermetra
verslunarmiðstöðvar í Smáralind í
Kópavogi. Áætlaður heildarkostnaður
hefur ekki verið gefinn upp en ljóst er
að þar er um margra milljarða kr.
verkefni að ræða. Verktími er áætlað-
ur 18 mánuðir og á opnun miðstöðvar-
innar að fara fram haustið 2001.
Nægur mannafli til reiðu
á mestu álagstúnum?
Miklar umræður hafa orðið um áhrif
stórframkvæmda, einkum vegna álvers
á Reyðarfirði, á efnahagsþenslu og
verðbólgu og um heppilega tímasetn-
ingu einstakra framkvæmda til að
jafna sveiflur. Hafa sérfræðingar bent
á að arðsemi einstakra framkvæmda
ráðist að miklu leyti af því hvort ráðist
er í framkvæmdir þegar þensla er mik-
il eða þegar slaki er í hagkerfinu.
Einnig hafa vaknað spumingar um
hvort innlend fyrirtæki geti annað eft-
irspum eftir mannafla vegna stóriðju-
framkvæmda. Nefnd skipuð fulltrúum
stjómvalda, Samtaka iðnaðarins og Sa-
miðnar skilaði skýrslu á seinasta ári
um mannaflaþörf vegna stórðiðjufram-
kvæmda til ársins 2005. Þar kemur
fram að heildarfjöldi starfsmanna í raf-
og málmiðnaði, byggingar- og jarð-
vinnu er um 4.500 á landinu öllu en
rúmlega 3.000 manns á höfuðborgar-
svæðinu. Komst nefndin að þeirri nið-
urstöðu að 2.100-2.600 faglærðir iðnað-
armenn og aðstoðarmenn gætu verið
til reiðu vegna framkvæmda á hverjum
tíma.
Heimildarmaður úr röðum fjárfesta
taldi þó ekki að skortur á sérhæfðum
starfsmönnum yrði vandamál því mun
auðveldara sé í dag að flytja inn er-
lenda starfsmenn en áður var til að
ljúka stómm verkum.
Aðspurður hvort mannafli verði til
reiðu ef áætlanir um stóriðjufram-
kvæmdir verða að vemleika sagði
Eyjólfur Bjamason að miklu máli
skipti hvort framkvæmdum yrði raðað
í tímaröð. Gera mætti þó ráð fyrir
undirmönnun á mestu álagstímum í
byggingariðnaðinum. Því væri mikil-
vægt að dreifa útboðum betur yfir árið
því reynslan hafi verið sú að yfir 50%
allra útboða verklegra framkvæmda
komi fram á tímabilinu apríl til júní.
„Það er mikil óvissa framundan en
menn era reyndar vanir því í þessum
bransa,“ segir Árni Jóhannsson hjá
Samtökum iðnaðarins um verkefni og
horfur í jarðvinnuframkvæmdum.
Ami segir að ekki hafi gætt þenslu í
jarðvinnuverktöku og staðan þar sé
því ekki sambærileg við byggingariðn-
aðinn ef litið sé á verðþróun. Hann
segir að stuttur verktími sé verktök-
um í jarðvinnu sérstaklega erfiður.
„Það sýður á keipum í júlí, ágúst og
september og svo er bara ládauður
sjór þar fyrir utan. Það er stærsta
vandamálið í þessari grein,“ segir
hann. „Verkefnastaðan virðist vera
þolanleg það sem menn sjá fram yfir
áramót en svo tekur við hefðbundinn
vetur og lægð eftir það,“ segir hann.
Árni gagnrýnir ákvörðun stjórn-
valda að fresta framkvæmdum fyi-ir
um einn milljarð á næsta ári. „Við höf-
um litið svo á að ef draga eigi saman í
opinbemm rekstri sé ekki rétt að gera
það í arðbærri fjárfestingu heldur
taka ú rekstrinum sem er viðvarandi
en fjárfestingin skammtímaverkefni,"
segfr hann.
Eyjólfur tekur undir þetta og segir
óljóst hvar boðaður samdráttur eigi að
koma niður. „Við eram ekki alveg sam-
mála því, að þetta sé besta tækið til að
draga úr þenslu,“ segir hann. Eyjólfur
segist líta svo á að eðlilegt ástand hafi
ríkt að undanförnu í byggingarfram-
kvæmdum, þar sem fyrirtæki geti nú
gert áætlanir vegna verkefna nokkra
mánuði fram í tímann sem ekki þyrfti
að leiða til þenslu á launamarkaði. „Það
var óeðlilegt ástandið fyi-ir 2-3 árum
þegar menn sáu aðeins 2-4 vikur fram í
tímann," segir hann.