Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLADIÐ
Marteinn H. Friðriksson stjórnar kór Menntaskólans í Reykjavík. Morgunbiaðið/Porkeii
larpeysa
Spennandi tilboð á Kringlukasti
Peysur
Fóðraðir flauelsjakkar
Vafningspeysur
KRINGLUNNI S: 553 3536
Nýjar
geislaplötur
• ÞIÐ stúdentsárín æskuglöð er
með söng Kórs Menntaskólans í
Reykjavík. Kórinn syngur íslensk
þjóðlög, gamla stúdentasöngva,
ættjarðarlög, madrigala og sálma.
Ragnheiður Torfadóttir segir í
bæklingi sem fylgir plötunni: „Kór-
söngur í Menntaskólanum í Reykja-
vík á sér langa sögu, enda var söng-
kennsla aðallega fólgin í því að iðka
margraddaðan söng. A þessari öld
hafa tónskáldin Sigfús Einai’sson,
Hallgrímur Helgason og Atli Heim-
ir Sveinsson verið meðal söngkenn-
ara og kórstjóra við skólann. En
söngur vék fyrir nýjum námsgrein-
um og erfiðara varð fyrir skólann að
halda uppi samfelldu kórstarfi, þó
að ekki skorti tónmenntaða, sönggl-
aða nemendur. Haustið 1995 bauðst
Marteinn H. Friðriksson til að end-
urvekja kórsöng í skólanum og náði
miklum árangri á ótrúlega skömm-
um tíma. Söngur kórsins hefur veitt
skólanum og gestum hans mikla
gleði á hátíðarstundum, allt frá
skólasetningu til skólaslita."
Kórinn hefur sungið nokkrum
sinnum á ári við messu í Dóm-
kirkjunni og haldið opinbera tón-
leika á hveiju vori.
Kórínn gefur sjálfur út plötuna.
Stjórn upptöku sá Sigurður Rúnar
Jónsson um. Auglýsingastofan Rita
sá um hönnun bæklings, en Tocano
íDanmörku sá um vinnslu ogprent-
un. Platan er til sölu hjá kórfélögum
og á skrifstofu Menntaskólans í
Reykjavík.
♦ ♦ ♦
Námskeiði Is-
epps lýkur með
tónleikum
NÁMSKEIÐ á vegum Söngskól-
ans í Reykjavík hefur staðið yfir
undanfarnar vikur. Martin Isepp,
píanóleikari og stjórnandi, hefur
þar leiðbeint söngvurum og píanó-
leikurum við túlkun á söngljóðum
og aríum. Námskeiðinu lýkur á
morgun með tónleikum í Tónleika-
sal Söngskólans, Smára, við Veg-
húsastíg sem hefjast kl. 17.
Allir þátttakendur námskeiðsins
koma fram og flytja úrval af þeim
sönglögum og aríum sem þeir hafa
unnið á námskeiðinu, en þeir eru:
Arndís Fannberg, mezzósópran,
Auður Guðjohnsen, mezzósópran,
Bryndís Jónsdóttir, sópran, Ingi-
björg Aldís Ólafsdóttir, sópran,
Jónas Guðmundsson, tenór, Kristín
R. Sigurðardóttir, sópran, Krist-
veig Sigurðardóttir, sópran, Lovísa
Sigfúsdóttir, sópran, Margrét
Árnadóttir, sópran, Nanna Helga-
dóttir, mezzósópran, Nanna María
Cortes, mezzósópran, Ólína Gyða
Ómarr, sópran, Ragnheiður Haf-
stein, mezzósópran, Sigurlaug Jóna
Hannesdóttir, sópran, Svana
Berglind Karlsdóttir, sópran, Þóra
S. Guðmannsdóttir, sópran, og
píanóleikararnir Claudio Rizzi, El-
ín Guðmundsdóttir, Hólmfríður
Sigurðardóttir, Iwona Jagla, Kol-
brún Sæmundsdóttir, Lára Rafns-
dóttir og Ólafur Vignir Albertsson.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir.