Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 4

Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 4
4 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Brosandi rúllur ÞÆR brosa flestar framan í heiminn, heyrúllurnar í Hvítár- dal í Hrunamannahreppi, þótt greina megi eina dapra í hópn- um. Svipur hennar vitnar um óhamingju, kannski vegna óbæri- legra þrengsla, sem leggjast þyngra á hana en systur hennar. Listamaðurinn sem gæddi rúll- urnar lífí er Þórbjörg Hugrún Grímsdóttir ábúandi í Hvítárdal. Hún hefur ekki einasta hleypt listagyðjunni á flug úti á túni innan um rúllurnar því hún legg- ur ennfremur stund á skraut- skrift og hefur skapað ýmsa Iist- muni aðra. Ekki er allt upptalið því einnig hefur hún skreytt hlöðugaflinn á bænum til að lífga upp á hvunndaginn. Hæstiréttur svknar Heilsustofnun Nátt- Forstjóri Þjóðhagsstofnunar á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga Sveitarfélögin taki þátt í að vinna bug á þenslu ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn- únar, lagði á það áherslu í ræðu sem hann hélt á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga í gær að sveitarfélögin þyrftu að leggja sín lóð á vogar- skálanw ffl að spoma við þenslu í efhahagslífinu og hægja á hagkerfinu. Sagði hann að þótt ríkið bæri ábyrgð á hagstjóminni þá væru sveitarfé- lögin hluti af hinu opinbera og að vægi þeirra hefði aukist mjög á þeim vettvangi undanfarin ár. Þórður rakti í máli sínu forsendur þess góð- æris sem ríkt hefði á íslandi undanfarin ár og sagði hann langt hagvaxtarskeið hér á landi byggt á breiðum grunni og þannig væri t.a.m. öll umgjörð hagstæð, sem væri forsenda áfram- haldandi velgéngni. Hins vegar kom fram hjá Þórði að varla væri raunhæft að gera ráð fyrir jafn miklum hagvexti á næstu árum, og verið hefði síðustu misseri. Varaði hann við því að blikur væru á loftí, ótvíræð þenslumerki væm fyrir hendi í efnahagslífinu. Þórður sagði að tvö erfið verkefni blöstu við ætluðu menn að ná að tryggja jafnvægi og stöð- ugleika í efnahagslífinu, ná hinni „mjúku lend- ingu“ sem rætt hefði verið um. Annað þessara verkefna væri að hægja á hjólum efnahagslífs- ins og vinna bug á þenslunni - og þar sagði Þórður að sveitarfélögin hefðu mikilvægu hlut- verki að gegna - en hitt biði aðila vinnumarkað- arins því mikilvægt væri að samið yrði af skyn- semi í komandi kjarasamningum. Fræðslumálin erfíð fyrir minnstu sveitarfélögin Á ráðstefnunni í gær kynntí Gunnlaugur A. Júlíusson, depdarstjóri hagdeildar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, niðurstöður úr ársreiþning- um sveitarfélaga en í ræðu hans kom fram að halli sveitarfélaganna á árinu 1998 hefði verið 4.253 milljónir króna. Vó þar þyngst 3.500 milljóna út- gjaldaaukning vegna fræðslumála en almennt sýna fjármál sveitarfélaga bæði aukinn tekjuhalla og lánsfjárþörf samanborðið við árið á undan. Gunnlaugur rakti fyrir ráðstefnugestum rekstrargjöld sveitarfélaganna og flokkaði hann 2.721 Loksins Guð hins smáa kom út í fyrrá og seldist upp á svipstundu. „Sagan er listavel samin ...þrungin spennu sem fyllir lesandann þvílíku óþoli að i getur ekki hætt að lesa." Sigriður Albertsdóttir, OV Morgunblaðið/Sverrir Rafmagnsleysi í Reykjavík FORLAGIÐ Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • S(mi 510 2500 BILUN í tveimur háspennu- strengjum í Reykjavík olli raf- magnsleysi milli klukkan 7.19 og 10 í gærmorgun á svæði milli Laugavegs 176 og Skipholts, þ.e. Holta- og Túnahverfum. Rafmagni var komið á aftur með þvf að leggja streng til bráðabirgða ofan jarðar. Á myndinni er Hákon Pálsson, fyr- irtækjaeigandi í Bolholti, að að- stoða starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur við að ganga frá strengnum. HÆSTIRETTUR hefur sýknað Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði af kröfum konu, sem féll á blautu gólfi stofnunarinnar þegar verið var að skúra gólfið. Áður hafði héraðsdómur dæmt konunni rúm- lega eina milljón króna í bætur, auk vaxta frá janúar 1995. Konan varð fyrir áverka á hægra hné í bílslysi árið 1979 og hafði gengist undir margar að- gerðir á hnénu. Hún sagði að eftir aðgerð í júlí 1994 hefði henni liðið tiltölulega vel og í janúar 1995 fór hún á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til frekari styrktaræf- inga og endurhæfingar. Þar varð hún fyrir því að renna á hálu og blautu gólfi Heilsustofnunarinnar, en við það slys hlaut hún blæðing- ar inn á hægra hnéð og rifur á lið- poka. Héraðsdómur Suðurlands taldi að konan hefði sýnt af sér gáleysi og ætti að bera tjón sitt að einum þriðja, en sjúkrastofnunin hefði ekki gert alveg nægar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að slys hlyt- ist af bleytu af völdum skúringa og bæri bótaábyrgð að tyeimur þriðju. Fullfær um að meta slysahættu Hæstiréttur segir í dómi sínum að konan hafi verið fullfær um að meta slysahættu við þær aðstæður, sem blöstu við henni, þegar hún gekk eftir gangi þar sem starfsmað- ur var að skúra. „Hún var veil í hné og hafði því sérstaka ástæðu til að sýna varfæmi, svo sem með því að doka við eða biðja um stuðning yfir þann kafla gangsins, sem unnið var við. Hún hélt hins vegar hiklaust út á blautt gólfið. Hafi hún dregið úr varfærni á þeim stað, er hún féll, í þeirri trú að bleytu gætti þar ekki lengur, gerði hún það á eigin áhættu. Skiptir þá ekki máli hvort gólfið sjálft var þar blautt eða bleyta, sem hún hefur borið á skó- sólum sínum, hefur valdið því að hún ránn til og féll. Er ekki í ljós léitt að nefndur starfsmaður hafi á nokkurn hátt sýnt gáleysi í störfum sínum;“ segir Hæstiréttur og telur ekki við Heilsustofnunina að sakast um hvernig til tókst. sveitarfélögin í þrjá flokka; sveitarfélög með færri en 300 íbúa, sveitarfélög með 300-999 íbúa og sveitarfélög með 1.000 íbúa og fleiri. Kom fram í máli hans að köstnaðúr á hvern íbúa er gjarnan í öfugu samhengi við stærð sveitarfé- lagsins. Meðal annars greindi Gunnlaugur frá því að kostnaður vegna fræðslumála í minnstu sveitar- félögunum væri yfir 80.000 krónur á hvern íbúa og hjá allnokkrum lægi hann vel yfir 100.000 krónum. Minnti Gunnlaugur á í þessu sambandi að meðalútsvar í minnstu sveitarfélögunum væri 103.000 krónur og heildarskatttekjurnar væru að jafnaði 180.000 krónur á hvern íbúa þegar búið væri að telja með framlag úr jöfnun- arsjóði. Eftir því sem sveitarfélögin væru stærri minnkaði hins vegar kostnaður vegna fræðslu- mála á hvern íbúa og lægi á bilinu 60-80.000 krónur í sveitarfélögum með 300-999 íbúa, og á bilinu 50-70.000 krónur í stærstu sveitarfélög- unum. Bráðabirgða- ljósleiðari í Mý- vatni bilar Aftur símasam- bands- laust SÍMASAMBANDSLAUST varð við hluta Mývatnssveitar eftir að bráðabirgðaviðgerð starfsmanna Landssímaíis á Ijósleiðaranum í Mývatni að- Taranótt miðvikdags gaf sig um kl. 11 í gærmorgun. Síma- samband var úr neyðarsíma á pósthúsinu í Reykjahlíð og jafnframt var NMT-farsíma- samband á svæðinu. Símnot- endur sem tengjast símstöð- inni í Reykjahlíð gátu þó haft samband sín á milli. Viðgerð lauk í gærkvöldi Starfsmenn Landssímans voru að störfum í Mývatns- sveit og höfðu ásamt mönnum frá Kísiliðjunni og Björgunar- sveitinm á Húsavík hafið und- irbúning að endanlegri við- gerð á ljósleiðaranum sem liggur um Mývatn þegar bráðabirgðaviðgerðin gaf sig. Hafa þeir til afnota tvo báta frá Kísiliðjunni. Ekki liggur Ijóst fyrir hvað bílaði í strengnum en ekki hafði end- anlega verið lokið viðgerðinni sem unnið var að á þriðju- dagskvöld. Annar bráða- birgðastrengur var lagður í stað þess sem bilaði til að símasamband kæmist á sem fyrst. Var lagningu hans lokið áður en myrkur skall. Erfið- lega gekk hins vegar að tengja strenginn við símkerfið, en tenginu lauk um kl 9:30 og þá komst símasamband á að nýju. Unnið verður að varan- lega viðgerð á símasambandi í Mývatnssveit um helgina. Mikið álag hefur verið á símanum síðan hið hörmu- lega slys varð sl. þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.