Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 8
8 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skoðanakönnun DV um leiðtogaeöii Samfylkingarinnar:
Yfirburðir Margrétar
- Jóhanna hrapar en Ingibjörg Sólrún hækkar. JólasVeÍnnÍnH Og MlkkÍ IXIÚS nefildÍT
Magga kemur alltaf meira og meira á óvart.
Ifei
Nýr
gámu
te,
Bergflétta
feít 1149«*
feiKí 449#/j
Jólastjama
feTA
fem>
bléíMUCil
Fasteignir á Netinu
Málþing um kynlífsiðnað á íslandi
Við erum öll
að læra
IDAG verður í Safn-
aðarheimili Laugar-
neskirkju málþing
um kynlífsiðnað á Islandi
og hefst þingið klukkan
14.00. Þátttaka kostar
þúsund krónur. Fundar-
stjórar eru séra Bjarni
Karlsson, séra Jóna
Hrönn Bolladóttir og
Hróbjartur Árnason guð-
fræðingur. Séra Bjarni
var spurður hvers vegna
þetta málþing væri haldið
nú?
„Það er einfaldlega
vegna þess að við finnum
það öll að kynlífsiðnaðin-
um hefur vaxið ásmegin í
þjóðfélaginu. Það er hóp-
ur fólks sem á afkomu
sína undir þessari starf-
semi og hundruð kvenna
eru fluttar hingað erlend-
is frá til þess að þjóna þessu
málefni, ef svo má segja.“
- Hafíð þið eitthvað nýtt fram
að færa inn í þær umræður sem
þegar hafa átt sér stað um þetta
málefni?
„Það má segja að það sé nýtt
að standa fyrir opinberri og
skynsamlegri umræðu um þetta
mál, ég hef ekki orðið var við að
slíkt hafi farið fram áður. Upp-
hafið að þessu málþingi er um-
ræður sem hér hafa átt sér stað
í fullorðinsfræðslu kirkjunnar,
þar sem hópur fólks kemur
reglulega saman til þess að
ræða um lífsgildi og kristna trú.
Við erum sannfærð um að
hleypidómar og flumbrugangur
skaðar þetta málefni eins og öll
önnur og þess vegna höfum við
leitað samráðs við trausta aðila
til þess að fá sem gleggsta sýn á
þann veruleika sem þarna er á
ferðinni.“
- Hafið þið gert ykkur ferð til
þess að athuga hvað fer fram á
þessum stöðum?
„Sumir í hópnum hafa komið
á þessa staði og vita því af eigin
raun hvað þar fer fram. Kynlífs-
iðnaðurinn er þó fjölbreyttari en
það sem fram fer á svona hús-
um, nefna má auglýsingar um
símaþjónustu sem blasa við aug-
um landsmanna á síðum sumra
dagblaða. Netið er einnig áber-
andi vettvangur í þessum efnum
eins og allir vita. Ég tel að það
sé ábyrgð okkar sem íslending-
ar að horfast í augu við stað-
reyndir kynlífsiðnaðarins og
leita leiða til að lágmarka skað-
ann sem hann veldur."
- Hverjir munu tala á mál-
þinginu í Safnaðarheimili Laug-
arneskirkju í dag?
„Fyrstur mun stíga í pontu
Karl Steinar Valsson yfirlög-
regluþjónn, hann mun tala um
það hvernig kynlífsiðnaður
landsmanna horfir við _________
lögreglu og yfirvöld-
um. Þá mun Ingólfur
Gíslason frá Skrif-
stofu jafnréttismála
tala um hverjir kaupa
kynlífsþjónustu á íslandi. Að
loknu kaffihléi mun Rósa Erl-
ingsdóttir fjalla um rannsóknir
sem hún hefur gert á vændi í
kjölfar stjómarfarsbreytinga í
Austur-Evrópu. Eftir það verða
dansatriði frá íslenska dans-
flokknum. Að því búnu mun
Nanna Sigurðardóttir félags-
ráðgjafi ræða um áhrif kynlífs-
iðnaðar á börn og unglinga.
Hildur Fjóla Antonsdóttir, full-
trúi Bríetar félags ungra
Bjarni Karlsson
►Bjarni Karlsson fæddist 6.
ágúst 1963. Hann lauk stúd-
entsprófi 1983 frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð.
Hann lauk guðfræðiprófi frá
Háskóla íslands haustið 1990
og var vígður til starfa sem
aðstoðarmaður fangaprests
og aðstoðarprestur við Laug-
arneskirkju sama ár, þeim
störfum gegndi hann í eitt ár
þangað til hann fór ásamt eig-
inkonu sinni séra Jónu Hrönn
Bolladóttur til starfa í Vest-
mannaeyjum. Nú er Bjarni
pestur í Laugarneskirkju og
hefur starfað þar í rösklega
hálft annað ár. Þau hjón eiga
þrjú börn
Grundvöllurinn
er ást og
ábyrgð
femínista, mun segja frá því
hvað ungum konum finnst um
klámvæðinguna. Eftir tónlistar-
atriði og kaffihlé mun Helgi
Hjörvar, forseti borgarstjórnar,
stíga í pontu og greina frá
stefnu borgaryfirvalda í málefn-
um kynlífsiðnaðarins. Að fyrir-
lestrunum loknum verður gef-
inn kostur á fyrirspurnum úr sal
þar sem framsögumenn sitja á
palli og svara.“
- Hafíð þið prestar orðið varir
við í ykkar störfum afleiðingar
af þessum kynlífsiðnaði?
„Sannarlega, ég leyfi mér að
fullyrða að ungt og ómótað fólk
sem er að ganga út í lífið hefur
margt hvert meðtekið rangar og
misvísandi upplýsingar um eðli
kynlífs vegna kynlífsiðnaðarins.
Það er eðli kynlífsiðnaðar að
slíta kynlíf úr tengslum við
raunverulegt líf því ást og
ábyrgð liggur raunverulegu lífi
til grundvallar. An ástar og
ábyrgðar er ekkert líf - heldur
ekki kynlíf. Þess vegna er
blekking kynlífsiðnaðarins
háskaleg. Afstaða okkar er sú
_________ að nálgast þetta við-
fangsefni og það fólk
sem að því starfar af
virðingu og hluttekn-
_^___ ingu en við virðum
ekki ranglætið og
blekkinguna sem kynlífsiðnað-
urinn virðist grundvallast á.
Viðleitni okkar er sú að eignast
haldbæra þekkingu á þeim
veruleika sem hér er á ferðinni í
því skyni að geta bent sjálfum
okkur og öðrum í réttar áttir.
Verkefni kristinnar kirkju er
það að varðveita lífið og leita
hamingjunnar með heiðarlegum
og skynsamlegum hætti. Við er-
um öll á leiðinni - við erum öll
að læra!“