Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 10

Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 10
10 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999____________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda um nýjan búvörusamning Bændur setja sig tæp- lega á móti uppkaupum FORMAÐUR Landsamtaka sauð- fjárbænda, Aðalsteinn Jónsson, gerir ekki ráð fyrir að sauðfjár- bændur setji sig upp á móti kaupum ríkis á greiðslumarki við gerð næstu búvörusamninga, en formaður land- búnaðamefndar Alþingis, Hjálmar Jónsson, hvetur til að við gerð næstu samninga verði uppkaup greiðslumarks reynd á nýjan leik. Núverandi samningur rennur út í árslok 2000 og segir Aðalsteinn til- boð um uppkaup verða að vera þess eðlis að þeir sem vilja hætta hljóti sanngjarna greiðslu fyrir. Aukið fjármagn nauðsynlegt Að mati Aðalsteins þýðir þetta að auka verður fjármagn vegna bú- vörusamningsins og segir Aðal- steinn þetta enn frekar eiga við ef til standi að styrkja jaðarbyggðir umfram aðra staði. „Við getum ekki skert þá beingreiðslu sem er í dag og flutt það fjármagn yfir á jaðar- byggðarsvæði," segir Aðalsteinn. En hann býst ekki við að bændur myndu samþykkja slíka samninga í almennri atkvæðagreiðslu. Hvað varðar hugmynd Hjálmars um að hliðsjón verði höfð af ástandi beitilands við úthlutun innleysts greiðslumarks segir Aðalsteinn að slíkt sé vart gerlegt í dag. Litlar upplýsingar um ástand beitilands séu til staðar þótt vinna standi nú yfir við mat á gróðurástandi allra jarða í landinu. Þetta er þó 5-10 ára verkefni, en um er að ræða sam- starfsverkefni Landgræðslunnar, Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins og Bændasamtakanna. „Þegar niðurstöður þessa verk- efnis liggja fyrir þá getum við fyrst farið að vinna skipulega að því að aðstoða þá sem búa á jörðum sem sannanlega þola ekki beit. En ég held að ef sátt á að nást þá verði nytjalandsverkefnið að ganga yfir áður en hægt verður að deila út greiðslumarki eftir gróðurástandi jarða. Beingreiðsluhafar of margir Viðræður vegna nýs búvöru- samnings eru hafnar, en landbúnað- arráðherra, Guðni Agústsson, vill ekki tjá sig um útfærslu samnings- ins á þessu stigi málsins. Hann seg- ir þó flesta gera sér grein fyi’ir að beingreiðsluhafar séu of margir, þeir hafi of lítið og einhverjir þeirra vilji e.t.v. hætta. „Það getur auðvit- að vel komið til greina að einhver uppkaup fari fram,“ segir ráðherra og kveður mesta ágreiningsefnið vera hvemig færa megi greiðslu- mark milli sauðfjárbænda. Enda sé þetta sá þáttur sem erfiðast sé að finna lausn á. Ráðherra segir ekki enn liggja fyrir hvaða fjármagn verði veitt tO nýs búvörusamnings. En samninga- viðræður séu í fullum gangi og það séu ríkisstjórn og Alþingi sem svara munu hvaða fjánnagn verði til stað- ar. Mikið fjármagn liggi hins vegar í fyrri samningi. Ekki er hætta á ofbeit við núver- andi aðstæður, að mati ráðherra, enda hafi sauðfé fækkað mikið. Hann segir þó nauðsynlegt að hugsa um landið. „Þannig að ég veit ekki hvort þessi umræða getur snú- ist mikið út í það að taka sauðfjár- réttinn af einhverjum svæðum og færa hann í annað. I mínum huga er mikilvægast að atvinnugreinin fái að þróast almennt. Að þetta verði samningur sem verði opinn og almennur og atvinnugreinin geti þróast, en þetta snúist ekki um átök á múli byggðarlaga og bænda.“ 23% sam- dráttur í laxveiði LAXVEIÐI á stöng síðasta sumar var um 30.800 laxar, sem er um 23% minni afli held- ur en 1998, samkvæmt bráða- birgðatölum frá Veiðimála- stofnun. Þessi veiði er og 13% minni heldur en meðalveiði ár- anna 1974-1998. I fréttum frá Veiðimála- stofnun kemur fram, að frá fyrra ári sé samdráttur í veiði í öllum landshlutum, en þó mis- mikill og mestur á Vestfjörð- um, Norðurlandi og Suðurlandi þar sem hann var 40-60%. Þá segir að athygli veki að fylgni í veiði milli Norður- og Austur- lands sé ekki eins afgerandi nú og oftast áður, á Austurlandi nemi samdráttur í veiði milli ára aðeins 8%. Þá kemur fram, að netaveiði á laxi hafi numið 7.000 löxum og að 11.000 laxar hafi endur- heimst úr hafbeit. Einnig, að bráðabirgðatölur heúdarafla laxa í neta- og stangaveiði hafi verið um 37.800 laxar sem sé um 24% undir meðalveiði ár- anna 1974 til 1998. Hið íslenska biblíufélag gefur út nýja Biblíu í viðhafnarútgáfu á Kristnihátíðarári Forseta Islands afhent fyrsta eintakið Morgunblaðið/Sverrir Biskup íslands, Karl Sigurbjörnsson, afhendir forseta íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrsta eintak Biblí- unnar í viðhafnarbúningi. Aftan við þá má sjá séra Valgeir Ástráðsson, stjórnarmann í HIB, og Jón Pálsson, framkvæmdastjóra félagsins. Kærunefnd úrskurðar í máli Sameinaða lífeyrissjóðsins Ekki sekur um brot á j afnr éttislögum FYRSTA eintak viðhafnarútgáfu Bibhunnar var fært forseta Is- lands, Ólafi Ragnari Grímssyni, að gjöf í gær af fulltrúum útgef- anda, Hins íslenska biblíufélags. Biblían í viðhafnarbúningi er gef- in út í 2.000 tölusettum eintökum og hefur Islensk miðlun á Raufar- höfn tekið að sér að annast söl- una. Biskup Islands, Karl Sigur- björnsson, sem einnig er forseti Hins fslenska biblíufélags, afhenti forseta gjöfina og sagði við það tækifæri að útgáfan væri í tilefni þúsund ára kristni á íslandi. Bók- in er í leðurbandi og í hlífða- röskju. Númer eintaksins er hand- skrifað á titilblaðið og þar er einnig gert ráð fyrir nafni eig- anda. Framan á kápu er keltnesk- ur kross sem biskup sagði að minnti á þá sem fyrstir hefðu stig- ið hér á land. Á saurblöðum er mynd af upphafi 1. Mósebókar úr Sljórn, handriti frá 13. öld og á aukablöðum eru bókarhnútur og mynd úr Guðbrandsbiblíu. „Það sem skiptir hins vegar mestu máli er það sem er milli spjaldanna hér, hinn góði texti hinnar helgu bókar, sem er bók bókanna og orð lífsins," sagði biskup meðal ann- ars og sagði bænir fylgja til handa forseta og fólki hans. Ólafur Ragnar Grímsson þakk- aði góða gjöf og sagði Biblíuna ekki aðeins vera heíga bók kristn- innar heldur og meginrit íslenskr- ar menningar. Kvaðst forseti myndu nota þessa útgáfu strax nú þegar hann væri að undirbúa ræðu á kristnihátíð um helgina í Stykkishólmi og þyrfti að sækja tilvitnanir í Bibhuna; þá hefði hann nýjustu útgáfuna við hönd- ina. Tölvubiblía barnanna og Biblía fyrir ungt fólk Jón Pálsson, framkvæmdastjóri HÍB, sagði að biblíufélög víða um heim gæfu út sérstakar útgáfur í tilefni aldamótanna. Tvö þúsund ár væru liðin frá fæðingu Krists og væri það öðrum þræði tilefni útgáfunnar hér auk kristnitökuaf- mælisins. Þessi útgáfa hefur sama texta og endurskoðaða útgáfan sem út kom árið 1981, en þá voru guðspjöllin og Postulasagan end- urskoðuð. Áfram er unnið að end- urskoðun á Gamla testamentinu og síðar verður ráðist í að endur- skoða bréfin í Nýja testamentinu og Opinberunarbókina og sagði Jón enn talsvert verk fyrir hönd- um. Væri hugsanlegt að ný útgáfa kæmist út á næstu þremur til fimm árum. Jón taidi ekki vandkvæðum bundið að selja eintökin tvö þús- und, en verðið er 14.900 krónur, og sagði að öðrum þræði myndi hún afla félaginu tekna til frekara útgáfustarfs. Hönnun fór fram hérlendis en prent- vinnsla og bókband fer fram í Þýskalandi hjá prentsmiðju Sa- meinuðu biblíufélaganna sem prentar fyrir mörg biblíufélög víða um heim. „Við stefnum til dæmis að því á næsta ári að gefa út Bibliu í kilju- formi sem er ætluð ungu fólki sérstaklega. Samkvæmt könnun spumingavagns Gallups fyrir fé- lagið eiga um 30% ungs fólks á aldrinum 25-35 ára ekki Bibhu en hins vegar 99% eldra fólks. Við viljum bregðast við því með því að gefa út Biblíu með skýrri fram- setningu sem höfðar til unga fólksins og fengum sex grafíska hönnuði til að selja fram tillögur um útlit. Valin var tillaga eftir Öldu Lóu Steinsdóttur og við stefnum að því að þessi sérstaka útgáfa komi út næsta biblíudag sem er 27. febrúar." Þá sagði Jón Pálsson að í undir- búningi væri útgáfa á svonefndri tölvubiblíu bamanna. „Hún er ætluð þriggja til níu ára börnum og hefur að geyma annars vegar bók með 50 frásögnum og hins vegar geisladisk með 12 söngvum og 12 tölvuleikjum," segir Jón og segir hugsanlegt að selja hana í tvennu lagi einnig, en stefnt er að því að bókin komi út fyrri hiuta næsta árs. KÆRUNEFND jafnréttismála tel- ur ekki að hægt sé að líta svo á að synjun Sameinaða lífeyrissjóðsins á að greiða kvenkyns starfsmanni sín- um sömu laun og karlkyns sam- starfsmanni hennar, B, hafi brotið gegn ákvæðum jafnréttislaga. Segir í úrskurði nefndarinnar að staða Sa- meinaða lífeyrissjóðsins gagnvart kæranda og B hafi ekki verið sam- bærileg og forsendur ákvarðana um laun þeirra því verið ólíkar. Málsatvik eru þau að Sameinaði lífeyrissjóðurinn synjaði árið 1997 beiðni kæranda um að henni yrðu greidd sömu laun og B, en henni hafði þá stuttu áður orðið ljóst að munur var á launum þeirra. Ákvað hún í framhaldinu að vísa málinu til kærunefndar jafnréttismála. Kærandi hafði starfað sem fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bóka- gerðarmanna frá 1989. Árið 1994 var tekin ákvörðun um að sameina hann Sameinaða lífeyrissjóðnum og var Lífeyrissjóður bókagerðar- manna þá í raun lagður niður og eina starfsmanni sjóðsins, kæranda, sagt upp störfum. Henni var hins vegar boðið lægra sett starf í inn- heimtudeúd Sameinaða lífeyris- sjóðsins á lakari launakjörum en áð- ur. Við sameininguna áttu sér einnig stað skipulagsbreytingar hjá Sa- meinaða lífeyrissjóðnum sem m.a. leiddu tú þess að B var fluttur tO í lægra setta og ábyrgðarminni stöðu. Honum var hins vegar boðið að halda óbreyttum launakjörum. Bæði kærandi og B fengu því lægra setta stöðu eftir sameiningu sjóð- anna en launakjör kæranda voru lægri þrátt fyrir að störf þeirra séu sambærúeg og jafn verðmæt. I úrskurði kærunefndar segir að ekki verði framhjá því litið að staðið var að sameiningunni með þeim hætti að Lífeyrissjóður bókagerðar- manna var lagður niður, sem óhjá- kvæmúega leiddi til starfsloka kær- anda, en Sameinaði lífeyrissjóður- inn hins vegar efldur. Staða Sameinaða lífeyrissjóðsins gagnvart B, starfsmanni sjóðsins, og kær- anda hafi því ekki verið sambærileg. „Þótt nefndin telji að sanngimis- rök hafi mælt með því að bjóða kær- anda sömu launakjör og B hafði, er það álit nefndarinnar að forsendur fyrir ákvörðunum um laun þeirra hafi verið svo óhkar að ekld hafi hvflt á sjóðnum skylda til að jafna launakjör þeirra,“ segir m.a. í úr- skurðinum. Þvi sé ekki nægt tilefni tú að líta svo á að Sameinaði lífeyr- issjóðurinn hafi brotið gegn ákvæð- um jafnréttislaga er hann synjaði að greiða kæranda sömu laun og B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.