Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 16

Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 16
16 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hugmyndir um sameiningu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu Nýtt leiðakerfí í athugun HUGMYNDIR hafa komið upp inn- an starfshóps meirihluta borgar- stjórnar um almenningssamgöngur að rétt gæti verið að sameina al- menningssamgöngur á höfuðborg- arsvæðinu. Þetta þýðir að allar al- menningssamgöngur yrðu boðnar út og um eitt leiðakerfi yrði að ræða. Helgi Pétursson, formaður stjómar SVR, segir að markmið starfshópsins sem meirihlutinn hef- ur sett á laggirnar sé fyrst og fremst sameiginlegt leiðakerfi. „Þessi mál eru í skoðun þessa starfshóps og ljóst að mikill vilji er til að búa til sameiginlegt leiðak'erfi. I dag greiðir borgin um 500 milljón- ir kr. með rekstri SVR en tekjur SVR standa undir um 62% af rekstrinum. Þetta mál er ekki kom- ið það langt að hægt sé að sjá fyrir spamað af þessu leiðakerfi en vissu- lega gerum við okkur vonir um það enda hafa svipaðar breytingar á Norðurlöndunum leitt af sér spam- að sem hefur byrjað í 25% en endað í 10% spamaði af rekstri. Víða er- lendis fá almenningssamgöngur for- gang í umferð sem hefur í för með sér styttri ferðatíma," segir Helgi. Engin umræða hefur farið fram um útboð, gjaldskrá eða starfs- mannahald heldur segir stjómar- formaður SVR að einblínt sé á leiða- kerfið sem slíkt. Allar tæknilegar útfærslur bíði seinni tíma. „Við höf- um að vísu verið að velta fyrir okk- ur hlut ríkisins í þessum rekstri. í dag er SVR að greiða til ríkisins um 140 milljónir kr. í hinum ýmsu gjöldum. Ríkið hefur skrifað upp á ýmsa samninga tO að draga úr mengun og það má öllum vera Ijóst að með aukinni notkun á almenn- ingssamgöngum minnkar mengun og því hér um sameiginlegt hags- munamál að ræða,“ segir Helgi Pét- ursson. Kjartani Magnússyni, fulltrúi sjálfstæðismanna í stjóm SVR, leist vel á fyrirhugað samstarf og sagði meðal annars þegar álits hans var leitað: „Það er nauðsynlegt að sam- ræma leiðakerfið, með því veitum við mun betri þjónustu og náum niður kostnaði. Sameining þessara fyrirtækja hljómar mjög spennandi í mínum eyrum. Mér líst aftur á móti illa á alla ríkisstyrki i sam- göngutækjum hvar sem það er á landinu. Það er mjög mikilvægt í þessari vinnu að kjör og réttindi starfsmanna verði ekki lakari og helst betri eftir breytingar.“ Uppbyggingarátak, raunhæfur valkostur Laufey Jóhannsdóttir, formaður stjómar Almenningsvagna, segir að stjóm AV hafi í mörg ár verið mjög hlynnt samstarfi við SVR um leiða- 06141. Hún vekur athygli á því að margvíslegt samstarf sé nú þegar fyrir hendi, m.a. „græna kortið". „Við lítum fyrst og fremst á þetta sam- starf sem uppbyggingarstarf og við viljum gera almenningssamgöngur að raunhæfari valkosti en þær eru. Með auknum íbúafjölda verður að taka tillit til almenningssamgangna og það er verið að því í tengslum við mótun svæðisskipulags höfuðborgar- svæðisins. í dag kemur það oft fyrir að vagnar frá okkur og SVR aka nið- ur í bæ hvor á eftir öðrum og báðir hálftómir eða að það tekur 40-50 mínútur að komast niður í bæ. Sveit- arfélögin borga 52-53% af rekstrin- um beint og því er mikilvægt að skoða þessi mál. Þá má ekki gleyma umhverfisþættinum og vaxandi íbúð- arbyggð á þessu svæði. Þetta er mik- ið álag á gatnakerfið, slit á malbiki og mengun og við væntum þess að ríkið sýni á sér samningsfleti því þetta málefni er alh-a hagur. Við sjáum reyndar ekki íyrir okkur endilega sameiningu þessara aðila en málin eru einfaldlega ekki komin það langt. Reyndar viljum við horfa lengra en bara á höfuðborgarsvæðið og líta bæði til Selfoss og Keflavíkur," segir Laufey. Sótt um all- ar stöður héraðsdýra- lækna MIKLAR breytingar verða á dýra- læknaþjónustu eftir að farið verður að vinna eftir nýjum lögum um dýralækna og heöbrigðisþjónustu við dýr, sem samþykkt voru á síð- asta þingi. Var öllum starfandi hér- aðsdýralæknum á landinu sagt upp og embættin auglýst til umsóknar samkvæmt nýjum lögum þar um. Að sögn Halldórs Runólfssonar yf- irdýralæknis hafa umsóknir borist um allar stöður héraðsdýralækna á landinu. Halldór Runólfsson yfirdýra- læknh’ sagði að unnið hefði verið að þessum breytingum síðan 1995 en ferlið hefði hafist að ósk Dýra- læknafélagsins. Mest breyting verð- ur hjá embættum héraðsdýi’alækna í Gullbringu- og Kjósarumdæmi, Suðurlandsumdæmi og Skagafjarð- ar- og Eyjafjarðarumdæmi. Þar munu héraðsdýralæknar eingöngu sinna lögbundnum eftirlitsstörfum með því að aðskilin eru hin opinberu eftirlitsstörf dýralækna og almenn dýralæknaþjónusta á þessum svæð- um. I Suðurlandsumdæmi voru 6 starfandi héraðsdýralæknar en eftir þessar breytingar verður hann ein- ungis einn. Eins eru í dag tveir starfandi héraðsdýralæknar í Skagafirði og þrír á Eyjafjarðar- svæðinu en á þessu svæði verður nú aðeins einn héraðsdýralæknir. Eggert Gunnarsson, formaður dýralæknafélagsins, sagði skoðanh’ skiptar meðal dýralækna um þessar breytingar. Hefðu menn gjaman viljað breytingar og einhverjir vildu jafnvel ganga lengra en lögin gera. Hefðu menn viljað að ríkið beitti sér fyi-ir útvíkkun starfa. Einnig að rík- ið kæmi betur inn í að greiða fyrir vaktþjónustu en nú er. Eru sumir dýralæknar frekar uggandi um sinn hag eftir þessar breytingar en hjá öðrum verði litlar breytingar. Allar almennar dýralækningar verða í höndum almennra dýralækna og munu þeir taka allar sínar tekjur samkvæmt gjaldskrá. Vínbilð afhjúpuð í Nýkaupi í Kringlunni Morgunblaðið/Sverrir Bogi og Örvar voru viðstaddir afhjúpun vínbúðar í Nýkaupi í Kringlunni. Mótmæla léttvínssölubanni VINBÚÐ hefur verið afhjúpuð í versluninni Nýkaupi í Kringl- unni. Ekki er þó um að ræða að viðskiptavinir geti nú óhindrað keypt sér léttvín og bjór í mat- vöruverslunum eins og tíðkast í útlöndum, heldur vilja Nýkaups- menn með þessu mótmæla og koma af stað umræðu um áfeng- islöggjöfina á íslandi. Áfengis- búðin er því girt af og úr henni verður ekkert selt. Stutt athöfn var haldin af þessu tilefni í Nýkaupi og kom fram í máli Finns Árnasonar, framkvæmdastjóra Nýkaups, að löngu væri tímabært að breyta áfengislöggjöfínni og samræma hana því sem gerist annars stað- ar. Um þetta yrði þó að setja ströng skilyrði og reglur og ábyrgð verslunareigenda yrði vissulega mikil. Einar Thoroddsen vínfræð- ingur svipti hulunni af vínbúð- inni með því að klippa á borða. Kom fram í máli hans að það ætti að vera sjálfsagt að kaupa allan veislu- og hversdagsmat á einum stað, og vín væri aðeins hluti af góðri máltíð. Helstu vín- og matgæðingar landsins voru einnig viðstaddir afhjúpunina, ásamt þeim Boga og Örvari Arnarhólsmönnum sem hyggj- ast nú fara í mótmælabindindi vegna áfengislöggjafarinnar. Einnig vöktu þeir athygli á að víða úti á landsbyggðinni væri hægt; að kaupa bækur, barnaföt, tölur og nærföt á sama stað og áfengi. Tónlistarkennarar óánægðir með kjörin Mun lægri laun en hjá grunnskólakennurum Morgunblaðið/Jón Svavarsson Mikil óánægja með kjaramál kom fram á fundi tónlistarkennara í Reykjavík. En launin eru ekki það eina sem tónlistarkennarar eru óánægðir með, samkvæmt upplýsingum Ás- dísar, þar kemur fleira til, s.s. kennsluskylda og vinnutími. Kennslutíminn er mældur í 60 mín- útum hjá tónlistarkennurum á meðan hann er 45 mínútur hjá öðr- um kennurum. Um leið og skólarn- ir verða einsetnir færist tónlistar- kennslan og verður meira síðdegis og á kvöldin. Asdís segir að það veiki óneitan- lega stöðu tónlistarkennara að tón- skólarnir eru reknir sem sjálfs- eignarstofnanir, en Reykjavíkur- borg greiðir launin. í vor var sett- ur á fót vinnuhópur sem átti að huga að launamálunum sérstak- lega. Hópurinn leitaði samstarfs við STÍR, Samtök tónlistarskóla í Reykjavík, en þar sitja eingöngu skólastjórar tónskólanna. Skóla- stjórarnir eru yfirmenn kennar- anna og ráða þá til vinnu en hafa ekkert með launin að gera og því neituðu samtökin að reka kjaramál þeirra, en Reykjavíkurborg vill eingöngu ræða við STIR en ekki kennara. Fram kemur hjá Ásdísiað tón- listarkennarar munu leita allra lög- legra leiða til að rétta sinn hlut. ÓÁNÆGJA ríkir meðal tónlistar- kennara í Reykjavík sem telja sig hafa setið eftir í launamálum. Kom það fram á fundi kennaranna á dögunum. Að sögn talsmanns þeirra, Ásdísar Arnardóttur tón- listarkennara við Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar, hafa laun tónlistarkennara staðið í stað á meðan gi’unn- og framhaldsskólar hafa fengið leiðréttingu sinna launa. Byrjunarlaun tónlistakennara eru 77.115 að loknu kennaraprófí frá Tónlistarskóla Reykjavíkur eða að loknu 8. stigi á móti 103.625 hjá grunnskólakennurum eftir 3 ára nám við Kennaraháskóla Islands og 105.934 hjá framhaldsskóla- kennurum. Slæmur vinnutími

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.