Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Hagnaður Búnaðarbankans 1.164 milljónir króna fyrir skatta fyrstu níu mánuði ársins Hagnaðurinn meiri en allt árið í fyrra REKSTRARHAGNAÐUR Búnað- arbanka íslands hf. fyrstu níu mán- uði ársins 1999 var, samkvæmt óendurskoðuðu árshlutauppgjöri, 1.164 milljónir króna fyrir skatta. Petta er meiri hagnaður en allt síð- astliðið ár, en þá var hagnaður bankans fyrir skatta 876 milljónir króna. Hagnaður fyrir skatta fyrstu níu mánuði síðastliðins árs var 675 milljónir króna og er aukningin því 489 milljónir, eða 72% miðað við sama tíma í fyrra. Reiknaðir skattar á tímabilinu voru 313 m. kr. og nam hagnaður eftir skatta því 851 m. kr. Raunarðsemi eigin fjár fyrir skatta vai- 25,5%, en 18,5% að teknu tilliti til reiknaðs tekjuskatts. I tilkynningu frá Búnaðarbank- anum kemur fram að rekstraráætl- un gerði ráð fyrir að hagnaður bankans fyrir skatta yrði um 1.067 milljónir króna eftir þriðja ársfjórð- ung og um 1.200 milljónir fyrir árið í heild. Þessi rekstrarniðurstaða er því um 100 milljónum króna betri en áætlun bankans gerði ráð fyrir. Hins vegar er bent á að rétt sé að hafa í huga að hagnaður af fjár- málastarfsemi sé háður sveiflum á fjármagnsmarkaði hverju sinni. í tilkynningunni segir að góða af- komu bankans það sem af er ársins megi fyrst og fremst rekja til auk- inna umsvifa og hagstæðra ytri skil- yrða, en bankinn hafl náð að nýta markaðstækifærin í góðærinu vel og margir sterkir viðskiptamenn hafi gengið til liðs við bankann. Gengishagnaður 712 milljónir króna Hreinar vaxtatekjur Búnaðar- bankans voru 2.737 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins en vaxta- munur, þ.e. vaxtatekjur að frá- dregnum vaxtagjöldum í hlutfalli af meðalstöðu heOdarfjármagns, hélst nánast óbreyttur og var 3,75%. Aðr- ar rekstrartekjur námu 1.924 millj- ónum króna og hækkuðu um 603 milljónir milli ára, eða 46%. Fram kemur í tilkynningu bankans að aukningin hafi orðið á öllum helstu tekjustofnum, en mestu hafi munað um 363 milljóna króna hækkun á gengishagnaði, sem var 712 milljón- ir króna til samanburðar við 349 milljónir fyrstu níu mánuði síðast- liðins árs. Hreinar rekstrartekjur bankans voru 4.661 milljón og juk- ust um 1.122 milljónir. Rekstrar- gjöld hækkuðu hlutfallslega minna en tekjur, eða um 446 milljónir króna og námu alls 2.906 milljónum til samanburðar við 2.460 milljónir árið áður. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af tekjum lækkaði því tals- vert milli ára og var 62,3% af tekj- um til samanburðar við 68,5% 1998. Varúðarframlag í afskrifta- reikning vegna mikillar stækkunar AIls var færð 591 milljón króna á afskriftareikning útlána, þar af 140 milljónir sem almennt varúðarfram- lag vegna stækkunar bankans. Sem hlutfall af heildarútlánum í lok tímabils var framlagið 1,05%. Bent er á það í tilkynningu bankans að framlag í afskriftareikning endur- spegli ekki endanlega töpuð útlán, heldur sé um að ræða fjárhæð sem lögð er til hliðar til að mæta hugs- anlegum útlánatöpum. I lok sept- ember hafði Búnaðarbankinn lagt með þessum hætti um 2.050 milljón- ir króna tii hliðar, eða sem nemur 2,7% af heildarútlánum bankans. Endanlega töpuð útlán námu 191 m.kr. á tímabilinu. Umsvífin tvöfaldast á þremur árum Niðurstöðutala efnahagsreiknings Búnaðarbankans var 105,7 milljarð- ar, en var 88,5 milljarðar í árslok 1998. Þetta er 19% stækkun og hef- ur heildarfjármagn bankans nú tvö- faldast á þremur árum, en þessi mikla stækkun endurspeglar veru- lega aukin umsvif á öllum sviðum. Innlán námu 57,6 milljörðum og hækkuðu um rúm 26% frá áramót- um, eða um 11,8 milljarða. í tilkynn- ingu bankans segir að þetta sé mun meiri innlánaaukning en hjá sam- keppnisaðilum og samkvæmt bráða- birgðatölum frá Seðlabanka Islands myndaðist þriðjungur allrar inn- lánaaukningar bankakerfisins hjá Búnaðarbankanum og jókst mark- aðshlutdeild hans til samræmis úr 21% í 22%. Talsverð aukning varð einnig á erlendum langtímalántök- um bankans, en bankinn gekk frá tveimur erlendum langtímalánveit- ingum á tímabilinu. Erlendar lán- tökur bankans námu um 28 milljörð- um í lok september síðastliðinn. Útlán í lok september voru 75 milljarðar og hækkuðu um 10,6 milljarða frá áramótum. Hækkunin frá miðju ári er hins vegar aðeins 1,5 milljarðar, sem er í samræmi við stefnu bankans og rekstraráætlun. Langstærsti hluti útlánaaukningar var til atvinnurekstrar, einkum sjáv- arútvegs. Eigið fé í lok tímabOsins nam 6.879 m. kr og eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum var um 9% í lok tímabilsins. Loks segir í til- kynningu Búnaðarbankans að ávöxtun hlutabréfa bankans hafi Samtök fjárfesta almennra hlutabréfa og sparifjáreigenda AÐALFUNDUR íf Fundarstaður Viðskiptaháskólinn, Ofanleiti 2 Þingsalur 101, 1. hœð ^ Fundartími Þriðjudagurinn 2. n ó v e m b e r kl. 17.15 þ D a g s k r á Aðalfundarstörf skv. lögum félagsins Erindi: M a rg e i r P é t u r s s o n framkvœmdastjóri MP verðbréfa Hvað gerir skynsamur fjárfestir um aldamótin? Búnadarbanki Islands Úr reikningum 1999 Úr rekstri 1999 1998 Breyting Vaxtatekjur Milljónir króna 6.821 4.792 +42% Vaxtagjöld 4.084 2.574 +59% Hreinar vaxtatekjur 2.737 2.218 +23% flðrar rekstrartekjur 1.924 1.321 +46% Hreinar rekstrartekjur 4.661 3.539 +32% Önnur rekstrargjöld 2.906 2.460 +18% Framlög í afskriftareikning 591 404 +46% Hagnaður fyrir skatta 1.164 675 +72% Skattar 313 169 +85% Hagnaður tfmabilsins 649 506 +68% Efnahagsreikn. 1999 1998 Breyting | Eignir: | Milljónir króna 30. sept. 31. des. Sjóður, ríkisvíxl. og kröfur á lánast. 8.780 6.623 +33% Útlán 74.982 64.383 +17% Markaðsverðbréf og eignarhl. í fél. 18.520 14.138 +31% flðrar eignir 3.455 3.393 +2% Eignir alls 105.737 88.537 +19% Skuldir og eigið fé: Skuldir við lánastofnanir 4.773 5.810 ■18% Innlán 57.617 45.779 +26% Lántaka 33.436 28.786 +16% flðrar skuldir 1.333 924 +44% Reiknaðar skuldbindingar 348 333 +5% Víkjandi lán 1.351 767 • Eigið fé 6.879 6.138 +12% Skuldir og eigið fé samtals 105.737 88.537 +19% verið með miklum ágætum frá því að þau komu á markað 17. desember 1998. Útboðsgengi bréfanna var 2,15 en markaðsgengi bréfanna er í dag um 4,4 sem er ríflega tvöfóldun á tæpu ári. Hluthafar í dag eru 29.082. í gær hækkaði gengi hlutabréfa í bankanum um 4;4%, úr 4,38 í 4,56, á Verðbréfaþingi Islands en alls námu viðskiptin 19,5 milljónum króna. Islenskir aðalverktakar hf. Starfsemin utan varnar- svæða í eitt félag STJÓRN íslenskra aðalverktaka hf. hefur ákveðið að sameina alla starfsemi utan vamarsvæða í eitt félag sem ber heitið IAV hf. Þau fé- lög sem verða sameinuð eru Ár- mannsfell, Álftárós, Verkafl, Nesafl og Byggingafélagið Úlfarsfell. Forstjóri yfir hinu nýja samein- aða félagi verður Stefán Friðfmns- son sem jafnframt er forstjóri Is- lenskra aðalverktaka hf. Hið sam- Murdoch fær minni hagnað London. Reuters. HAGNAÐUR News Cor- poration, fjölmiðlafyrirtækis Ruperts Murdoch, hefur dalað vegna slæmrar útkomu kvik- myndadeildarinnar 20th Cent- ury Fox. Rekstrai’tekjur á þremur mánuðum til septemberloka námu 395 milljónum dollara miðað við 407 milljónir dollara á sama tíma í fyrra. Hagnaður minnkaði í 165 milljóna dollara úr 196 milljón- um dollara. News kvað lækkkunina stafa að miklu leyti af því að hagnaður 20th Century Fox dróst saman. Deildin naut mikillar velgengni 1998 vegna stórmyndarinnar Titanic. „Allar rótgrónai- deildir okkar skiluðu meira en 10% hagnaði á ársfjórðungnum nema kvik- myndadeildin, sem varð fyrir barðinu á erfiðum samnburði við stórkostlegt ár í fyrra,“ sagði Murdoch og kvaðst ánægður með útkomuna. einaða félag tekur yfir alla starf- semi félaganna frá og með 1. nóv- ember nk. íslenskir aðalverktakar hf. á Keflavíkurflugvelli verða rekn- ir áfram með sama hætti og fyrr. Einnig hefur stjórn Islenskra að- alverktaka hf. ákveðið að stefna að því að sameina alla starfsemi IAV- samstæðunnar, bæði innan og utan varnarsvæða, undir nafni íslenskra aðalverktaka hf. Ellingsen yfírtekur rekstur Olís- búðarinnar ELLINGSEN ehf. á Grandagarði 2 mun yfirtaka Olísbúðina í Ar- múla frá og með 1. nóvember og verður Olísbúðinni þá lokað. Þess- ar breytingar koma í kjölfar kaupa Olís á Ellingsen fyrr á þessu ári. í fréttatilkynningu kemur fram að Ellingsen verður rekið áfram sem sjálfstæð eining innan Olís- samstæðunnar. Vörumerki þau er verið hafa til sölu í Olísbúðinni verða til sölu í Ellingsen og starfs- menn Olísbúðarinnar munu einnig færast yfir til Ellingsen. Olískort munu gilda í Ellingsen og reikn- ingsviðskipti viðskiptavina Olís- búðarinnar munu einnig færast þangað. Olísbúðirnar á Siglufirði, Akur- eyri, Reyðarfirði, Selfossi, Þor- lákshöfn, Grindavík og Njarðvík verða áfram reknar með óbreyttu sniði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.