Morgunblaðið - 30.10.1999, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Khatami í ræðu við lok heimsóknar sinnar til Frakklands
„Alþjóðavæðingin
ógriar heimsfriðnum“
Reuters
„Khatami er hryðjuverkamaður!“ hrópaði þessi kona fyrir utan höfuðstöðvar UNESCO í París í gær.
Liechtenstein
braut Mannrétt-
indasáttmálann
Furstan-
umlrkaði i
ekki
við lög-
spekina
París. AP, AFP.
MOHAMMAD Khatami, forseti
írans, hvatti í gær þjóðir heims til
að slíðra sverðin á næstu öld og
leitast við að efla skilning millj
samfélaga og menningarheima. I
ræðu sem haldin var í höfuðstöðv-
um Menningarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO, í París
sagði Khatami að samskipti
heimshluta á næstu öld verði að
vera án valdabaráttu og megi
ekki einkennast af því að eitt land
reyni að þvinga sínu siðgæðis-
mati, stjómkerfi eða trúarbrögð-
um upp á heimsbyggðina.
Hann sagði einnig að alþjóða-
væðingin væri ógn við heimsfrið-
inn. A fréttamannafundi síðar um
daginn sagði Khatami að Banda-
ríkin yrðu að breyta stefnu sinni á
alþjóðavettvangi til að stuðla að
friðsamlegri sambúð meðal ríkja
og heimshluta.
Khatami sagði við fréttamenn
að útilokað væri að koma á friði
fyrir botni Miðjarðarhafs án þess
að Palestínumenn fái fulla og al-
gera sjálfstjórn. Hann hefur hafn-
að kröfum Vesturlanda um að 13
gyðingar, sem handteknir voru í
Iran fyrir skömmu vegna gruns
um hafa njósnað fyrir ísraela,
verði látnir lausir. Forsetinn hef-
ur hins vegar heitið því að menn-
Bandaríkin og
allsheijarþingið
Geta misst
sætið
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
RICHARD Holbrooke, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, Bandaríkjaþing fyrr í vikunni
tU að tryggja að umtalsverður hluti
skulda ríkisins við samtökin yrði
strax greiddur. Þjóðarhagsmunir
væru í húfi vegna þess að Banda-
ríkjamenn ættu á hættu að missa at-
kvæðisrétt á allsherjarþinginu
vegna skuldanna. Hann sagði að Bill
Clinton forseti hefði gert rétt er
hann neitaði að samþykkja tillögu
þar sem ekki var gert ráð fyrir
greiðslu skuldanna.
Holbrooke sagði að nokkrir þing-
menn hefðu á síðustu stundu komið í
gegn breytingatillögu sem gert hefði
fjárlagatillögu um rekstur ráðuneyt-
is viðskipta, dómsmála og utanríkis-
mála óviðunandi. Er Clinton rökst-
uddi höfnunina sagði hann að.
tímasetning greiðslna í tillögunni
gerði ókleift að greiða af skuldunum
hjá SÞ fyrir árslok.
Að sögn fulltrúa SÞ skulda
Bandaríkjamenn nú um 1,8 millj-
arða dollara eða yfir 130 þúsund
milljónir króna. Greiði þeir ekki að
minnsta kosti 350 milljónir dollara
fyrir árslok geta þeir misst sætið á
allsherjarþinginu en haldafastasæti
sínu í öryggisráðinu.
Bandaríkjamenn hafa að undan-
fomu m.a. samþykkt tillögur hjá SÞ
um friðargæslu á Austur-Tímor og í
Sierra Leone en mikill kostnaður
fylgir slíku starfi. Þingið hefur árum
saman neitað að greiða skuldimar
nema SÞ dragi úr ýmsum kostnaði
og geri umbætur á rekstrinum.
„Við verðum að taka saman hönd-
um þvert á flokkabönd til að veijast
litlum hópi fólks sem vill skaða þjóð-
arhagsmuni Bandaríkjanna og valda
Sameinuðu þjóðunum óbætanlegu
tjóni,“ sagði Holbrooke sendiherra.
Hann hefur undanfama daga reynt
að telja þingmenn á að breyta tillög-
unni og sjá til þess að borgaðar verði
minnst 900 milljónir dollara af skuld-
unum.
irnir muni fá sanngjörn réttar-
höld.
Khatami hefur nú lokið þriggja
daga opinberri heimsókn til
Frakklands. Hann er fyrstur ír-
anskra þjóðarleiðtoga til að heim-
sækja landið síðan byltingin í ír-
an var gerð árið 1979. Mikil
öryggisgæsla hefur verið vegna
heimsóknarinnar og nokkuð hefur
borið á mótmælum. Kona af ír-
önskum uppmna var í gær hand-
tekin fyrir utan höfuðstöðvar
Menningarstofnunar SÞ en hún
hafði hrópað ókvæðisorð að for-
setanum og kastað smáhlutum að
honum. Hún kallaði forsetann
hryðjuverkamann.
Strassborg. Morgunblaðið.
SMÁRÍKIÐ Liechtenstein var á
fimmtudag dæmt brotlegt við 10.
gr. Mannréttindasáttmála Evrópu,
sem verndar tjáningarfrelsi. Þar
með fékk kunnur lögspekingur þar
í landi uppreisn æru. Hafði hann
ekki hlotið skipun á ný í embætti
dómara vegna þess að þjóðhöfð-
ingjanum líkuðu ekki alls kostar
skoðanir hans á valdmörkum
æðstu stofnana ríkisins.
Málavextir voru þeir að kær-
andi, Herbert Wille að nafni, hélt
fyrirlestur árið 1995 um lögfræði-
leg efni þar sem hann lét þá skoð-
un í ljósi að ef þjóðhöfðingjann og ■
þingið greindi á um túlkun stjórn-
arskrárinnar þá skæri stjórnlaga-
dómstóllinn úr. Frá þessu var
greint í fjölmiðlum,
Nokkru síðar barst Wille bréf
frá furstanum Hans-Adam II. Þar
kvað furstinn stjórnarskrá lands-
ins ótvíræða, stjórnlagadómstóll-
inn skæri ekki úr um ágreining af
þessu tagi. Þar sem hverjum þeim
sem læsi stjórnarskrána mætti
vera þetta ljóst hlyti Wille að telja
sig óbundinn af stjórnarskránni.
Slíkur maður væri í augum furst-
ans ekki hæfur til að gegna opin-
beru starfi.
Vorið 1997 rann út skipunartími
Wille sem forseta stjórnsýsludóm-
stóls landsins. Þingið lagði til við
furstann að hann yrði endurskip-
aður í embættið. Því hafnaði furst-
inn hins vegar í samræmi við fyrri
orð sín.
Aðgangur að
opinberu starfí
Wille bar þá fram kæru við
Mannréttindadómstól Evrópu og
taldi meðal annars að tjáninga-
frelsi sitt hefði verið brotið. Tals-
menn Liechtensteins héldu því
hins vegar fram að mál þetta sner-
ist fyrst og fremst um aðgang að
opinberum störfum. Mannrétt-
indasáttmálinn mælti ekki fyrir
um slíkan rétt.
I dómi dómstólsins segir að bréf
furstans á sínum tíma hafi falið í
sér íhlutun í tjáningarfrelsi kær-
anda. Sú umvöndun hafi verið lík-
leg til að draga kjark úr kæranda
að fella ummæli af þessu tagi í
framtíðinni.
Dómstóllinn kveður þessi um-
mæli vissulega hafa haft pólitíska
þýðingu því þau fólu í sér að furst-
inn væri ekki undanþeginn valdi
dómstóla. Stjórnlagafræði væri
hins vegar alltaf öðrum þræði póli-
tísk. Það eitt gæti ekki leitt til þess
að kærandi mætti ekki tjá sig.
Hafa bæri í huga að margir deildu
skoðunum hans um þetta efni. Það
væri því engan veginn hægt að
halda því fram að um óverjandi
viðhorf væri að ræða.
Viðbrögð úr
hófí fram
Loks sagði dómstóllinn að ekk-
ert hefði komið fram sem benti til
þess að viðhorf kæranda hefðu haft
áhrif á störf hans við stjórnsýslu-
dómstólinn. Viðbrögð furstans
hefðu því verið úr hófi, þau gætu
ekki talist „nauðsynleg í lýðræðis-
ríki“ og því hefði 10 gr. sáttmálans
verið brotin. Voru kæranda dæmd-
ir 10.000 svissneskir frankar í
miskabætur.
B andaríkj amenn
halda áfram að fitna
Atlanta. AP.
OFFITA er nú mun
algengari í Banda-
ríkjunum en fyrir
tæpum tíu árum,
einkum í suðurríkj-
unum þar sem menn
neyta oft fíturíkrar
fæðu og freistast til
að kúra heima hjá
sér í sumarhitunum
fremur en að hreyfa
sig.
Þetta kemur fram í
rannsóknarskýrslu
um offitu sem banda-
ríska stofnunin Mið-
stöð fyrir sjúkdóma-
vamir birti á
þriðjudag. Rann-
sóknin bendir tii þess
að hlutfall þeirra,
sem teljast of feitir
(30% yfir kjörþyngd
eða meira), hafi stór-
hækkað frá árinu
Hópur digurvaxinna Bandarikjamanna tekur þátt í sérstakri offituleikfimi.
1991. Einn af hverjum fímm
Bandarfkjamönnum sé of feitur
en árið 1991 var þetta hlutfall
einn af hveijum átta.
I suðurríkjunum hækkaði of-
fituhlutfallið um 67,2% á þess-
um tima. Hækkunin var mest í
Georgíu, tæp 102%.
Offituhlutfallið var lægst í
Nýja Englandi og í vesturríkj-
unum, þar sem fólk hneigist til
að hreyfa sig meira en ibúar
suðurríkjanna. Of feitu fólki
heldur þó áfram að fjölga á
þessum svæðum.
Of lítil hreyfíng sögð
meginástæðan
Hefðbundinn suðurríkjamat-
ur er oft mjög fituríkur -
steiktir kjúklingar, kartöflu-
salat, matur af útigrilli - en
sérfræðingar segja að lítill
munur sé nú á mataræði suður-
rikjamanna og annarra Banda-
ríkjamanna. Þeir telja skort á
hreyfingu meginástæðu offitu-
vandamálsins f suðurríkjunum.
Ibúar þeirra séu ekki eins lík-
Iegir til að stunda skokk, hjól-
reiðar, göngur eða æfíngar á
heilsuræktarstöðvum og fólk í
öðrum landshlutum.
Sumir kenna veðrinu í suður-
rikjunum um og segja að þar sé
of heitt á sumrin til að fólk geti
hreyft sig úti við. „Ef þeir fara
ekki út á morgnana stunda þeir
engar æfingar," sagði Harry
DuVal, forstöðumaður heiisu-
ræktarstöðvar Georgíu-
háskóla. „Þeir halda sig inni i
loftkældum húsunum."
Borgarskipulaginu
um að kenna?
Aðrir segja að skipulagi út-
hverfanna sé um að kenna þvi
það miðist aðallega við þarfír
ökumanna og miklu siður
þeirra sem vilja ganga eða
hreyfa sig.
Einn skýrsluhöfundanna,
William Dietz, segir að byggðin
umhverfis Atianta sé orðin svo
dreifð að fólk þurfi að dúsa í
bfium sfnum klukkustundum
saman og hafi því ekki nægan
tfma til að stunda æfingar og
freistist til að snæða fituríka
skyndibita.
Ibúum Atlanta og nágrennis
hefur fjölgað stórlega frá 1991.
Þá var offituhlutfallið meðal
fbúanna með því lægsta í
Bandaríkjunum.
17,9% Bandaríkjamanna
of feit
Samkvæmt rannsókninni
voru 17,9% allra Banda-
rfkjamanna of feit á sfðasta ári,
en 12% árið 1991. Að sögn
skýrsluhöfundanna fer of-
fituhlutfallið „stöðugt hækk-
andi“ í öllum ríkjunum og með-
al fólks af báðum kynjum, af
öllum kynþáttum, á öllum aldri,
óháð menntun.
Offituhlutfallið hækkaði mest
meðal ungra karla og kvenna,
fólks með einhverja háskóla-
menntun og fólks af suður-
amerfskum uppruna.