Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
VIKO
IM
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 37
Draumurinn um athygli
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
Draumsýn um boðleiðir vitundar.
MARKAÐSÖFLIN keppast um að
fanga athygli neytenda og beita til
þess öllum mögulegum ráðum.
Athygli vekur hversu ráðandi og
stýrandi þessi öfl eru orðin og
hversu auðvelt þeim virðist ganga í
mótun sinni. Kíki maður inn á
markaðsöfl Draumalandsins til að
kanna þar gang mála snýst keppni
þeirra ekki um kaupendur heldur
um tíma. Hjá mörgum saxast meir
og meir á þann tíma sem fellur
undir svefn og drauma. Umráð
draumsins til að „selja“ vitundinni
vöru sína skerðist vegna ytri
spennu og svefntruflana
dreymenda, tími hvíldar raskast og
tími draumsins skreppur saman.
Þetta birtist í draumum sem
virðast samhengislausir líkt og
stokkið sé írá einu atriði til annars,
án nokkurra sýnilegra tenginga og
í hverju „skoti“ sé þjappað saman
fjölda myndbrota svo útkoman
verður hrærigrautur, óskiljanlegt
rugl. En veruleiki draumsins er
ekki allur þar sem hann er séður.
Þegar málið er skoðað kemst
maður að því að draumurinn er að
vinna sér nýja leið í óreiðunni og
kemur sér upp nýju munstri,
nýjum fasa til að vinna eftir. Það
sem áður þótti gott og gilt er nú
„halló“ og stirðbusalegt, ónýtt og
„out of date“. Draumurinn
endurnýjar uppbyggingu sína líkt
og fruma og athyglin vaknar á ný í
hlaupandi draumi þar sem gemsinn
geltir þá turnklukkan slær.
Sending frá
„September“
Draumur 1.
Er staddur í eða er að horfa á
sjónvarp um undirheimaóöld (þetta
orð kom upp í hugann þegar ég
vaknaði). Byssuógnanir,
stríðsleikir, hernaður og stælar.
Tilfmningalega og að hluta
leiksoppur í. Heyri drunur og finn
íyrir óhug. Skynja að jarðskjálfti sé
í uppsiglingu. Mér finnst ég vera á
efstu hæð háhýsis, jafnvel ofan á
því, það er svo stórt að ég sá aldrei
út um glugga eða fram af þakbrún,
ég var bara eins og í stórri tilveru á
efstu hæð hússins. Endalaus
herbergi, salir, gangar og íbúðir,
heill heimur. Eg rýk í næstu lyftu
og fer niður, mér finnst þetta vera
100-200 hæða hús. Þegar ég er
hálfnaður eða meira fer ég að finna
fyrir því að húsið byrjar að skjálfa,
drunumar eru allnokkrar. Fer út
úr lyftunni, þori ekki að vera í
henni lengur, hálfnaður á leið niður
og hleyp niður stiga hæð eftir hæð.
Þá skynja ég að húsið er byrjað að
hrynja og falla saman. Það byrjar
efst, síðan falla þær hver af annarri
niður eftir húsinu. Eg hleyp í
kapphlaupi við tímann að komast út
á jarðhæð áður en neðstu hæðirnar
falli saman. Ég er kominn
neðarlega í húsið þegar ég finn að
þær hæðir sem falla saman nálgast
óðum, að lokum er ég farinn að
beygja mig því næsta hæð fyrir
ofan fellur um leið og ég kemst á
næstu fyrir neðan. Svo fellur sú
hæð, sem ég er staddur á, saman
meðan ég hleyp niður og verð ég
því að beygja mig og hliðra til fyrir
steypubitum og lofti sem fellur
niður. Loks kemst ég út undir vegg
og slepp með naumindum.
Seinna en í beinu
framhaidi
(í sama svefni)
Þá sé ég að búið er að
endurbyggja húsið, nú er það sex
hæða og fallegt. Það féll ekki meira
saman en svo að hæð þess varð á
við sex hæða hús. Svipað og hús
Sjóvá-Almennra ef sleppt er
útbyggingum, glerhýsum og
svoleiðis, þ.e, kassinn sjálfur hreinn
og slípaður. Sem þakhæð er nú
kominn glæsilegur en látlaus hvítur
gler-gróðurskáli eins og valmaþak í
laginu. Ég fer upp í skálann. Þar er
veitingasalur fullur af fólki sem
situr við borð og talar saman eins
og á kaffihúsi. Finn fyrir kærleik
og gleði, jafnvel trúarlegri lotningu
hjá fólkinu. Fer inn í skálann og sé
kunningja eða vin (í draumnum en
ekki í dagvitundinni). Fer til hans i
gleði og við föðmumst. Lifðirðu
hamfarirnar af, sagði ég eins og
dómsdagur hefði gengið yfir
mannkynið og fáir útvaldir hafi
komist af. í salnum og í mér ríktu
kærleiksríkar tilfinningar
samkenndar og einingarvitundar.
Ráðning
Draumurinn lýsir á sinn hátt
baráttu draumsins að ná athygli
eða leið vitundarinnar að höndla
þann skyndilega hraða og þau
margföldu áreiti sem komin eru inn
í líf nútímamannsins. Þetta breytta
munstur er manninum ekki tamt og
þvi þarf hann að aðlaga sig því
allsnögglega eða stökkva ella af
hringekjunni. Fyrri hluti
draumsins er um þetta ferli,
hvernig húsið (félagsleg vitund)
hrynur skipulega svo að vitundin
(þú og við) vinni sér tíma og finni
réttu leiðina undan hrynjandi
hæðunum (hraðvaxandi áreiti) og
sleppi klakklaust úr háskanum.
Seinni hlutinn lýsir svo
vitundinni þegar hún hefur náð
fyrir endann á nútímanum og
sigrast á kapphlaupinu við tímann
og áreitin. Hvernig hún fágast og
slípast í þessari baráttu og kemur
sér upp stóískri ró þrátt fyrir
mikla hraðaaukningu, þessu fylgir
þétt öryggiskennd og vissa um
andlega velmegun. Þessi draumur
er á vissan hátt boðun um að
brothættur nútími verði heill í
mynd framtíðar.
Draumur 2.
Fresta komu þeirra um þrjú ár.
Egyptaland, ísland. Eitthvað
mikilvægt skeður. Sameinuðu
þjóðirnar skrifa undir samning,
jafnvel nauðug. Einhver nálgaðist
mig svo og ýtti í bakið á mér með
putta svo fast að ég vaknaði. Mér
fannst það vera áhersla á
skilaboðin. Þetta var mjög sterk
upplifun. Augnablik fannst mér
eins og verið væri að þrýsta mér út
úr líkamanum en ég vaknaði.
Ráðning
Seinni draumurinn er svo af allt
öðrum toga þótt hann virðist fela í
sér boðskap líkt og fyrri draumur,
en hann má sjá í hillingum sem
vísbendingu um endurkomu guða
þótt ekki sé á hreinu hver oti fingri
sínum og þrýsti á þá vitneskju,
skaparinn eða sá sem skapaður
var.
•Þeir lesendur sem viljn fá
drauma sína birta og ráðna sendi
þá með fullu nafui, fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og dul-
nefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaði
Kringlunni 1
103 Reykjavík.
Náttúrulegt
C-vítamín
eilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi
HeilræOi viku 43
Hvað eru
unglingabólur?
Unglingabólur koma fram þegar sýking
myndast í húðkirtlum sem umlykja fínni
hárin f andlitinu og á efri hluta líkam-
ans. Vandamálið er oftast mest hjá fólki
á aldrinum 17-19 ára. Húðkirtlarnir þrengj-
ast þegar framleiðsla á karlhormónum
kallar á aukna framleiðslu húðfitu. Undir
liggja úrgangsefnin sem ekki ná að skila
sér út og sýking myndast 1 kirtlunum.
Til að losna við unglingabólur verður m.a.
að gæta hreinlætis og nota mildar sápur.
Einnig má nefna að halda hári frá and-
litinu og drekka mikið vatn.
Leitið frekari ráða hjá lyfjafræðingum okkar.
Lyf&heilsa
Kynnum nýju
vetrartískuna
frá OROBLll
ídag kl. 12-16
20%
kynningar-
afsláttur af öllum
OROBLU
sokkabuxum.
LYFJA
Lágmúla 5,
sími 533 2300
SKÓLAVÖRÐUSTÍGöRR
3 LISTHÚS REKIN AF
15 LISTAMÖNNUM
INGA ELIN
ÓFEIGUR
MEISTARIJAK0B
tédt
Líföndun
Að anda er að lifa
Guðrún Arnalds verður með námskeið í líföndun
helgina 6. og 7. nóvember
„Tíminn er líf. Og lífið býr í hjartanu. Því meira sem fólkið
sparaði því minna átti það.“ (Úr Mómó eftir M. Ende)
Gefur þú þér tíma til að lifa?
Guðré.n Arjialds, $»inar 551 8439 og 896.2396