Morgunblaðið - 30.10.1999, Side 50

Morgunblaðið - 30.10.1999, Side 50
Jð (ttíill IJðÖflTMO >()Ö 50 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 i> 11 ... UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Fleiri staðreyndir um framkvæmdasjóð fatlaðra PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra skrifar grein í Morg- unblaðið föstudaginn 22. október undir fyrirsögninni „Stað- reyndir um fram- kvæmdasjóð fatl- - aðra“. Ráðherra byrjar grein sína á því að greina frá því að Landssamtökin Þroskahjálp hafi með ályktun á fundi mótmælt skerðingu á fé til framkvæmda- sjóðs fatlaðra. Reyndar var um landsþing sam- takanna að ræða eins og ráherr- anum ætti að vera kunnugt, þar sem hann var beðinn um að flytja ávarp við setningu þess. Því miður kom hann því ekki við vegna anna. I grein sinni velur Páll þá leið ,að stunda pólitíska sagnfræði, ber eigin gjörðir sem ráðherra við gjörðir fyrirrennara sinna og ber saman tölur frá mismunandi tímabilum. Eitt og annað má ef- laust út á þá framsetningu setja án þess að það sé gert hér. Fé- lagsmálaráðherra tíundar, að því virðist til að réttlæta niður- skurðinn á framkvæmdasjóð, að uppbygging þjónustu við fatlaða hafi kallað á aukinn rekstur. Var þingmanninum Páli Péturssyni og þingheimi þetta ekki ljóst " þegar samþykkt voru lög um tekjur framkvæmdasjóðs 1992? Ráherra lýkur grein sinni á því að lýsa því yfír að það séu öf- ugmæli að tala um að málefni fatlaðra hafi orðið fyrir skerðingu í hans tíð og því til staðfestingar leggur hann saman hækk- anir sem orðið hafa í rekstri þessa mála- flokks í hans stjórn- artíð. Allur þessi talna- leikur hefur ekkert að gera með ályktun landsþings Þroska- hjálpar. Það sem ályktað var um þar var sú staðreynd að þrátt fyrir ákvæði laga sem Alþingi samþykkti 1992 um að allar áætlaðar tekjur af erfðafjársk- atti skuli renna til framkvæmda- sjóðs fatlaðra munu skv. fjárlag- afrumvarpinu fyrir árið 2000 aðeins 235 milljónir af 575 mi- ljónum, eða 40% af áætluðum tekjum hans, renna til fram- kvæmdasjóðs fatlaðra. Afgan- gurinn rennur í ríkissjóð. Þessum staðreyndum um framkvæmdasjóð fatlaðra var mótmælt í umræddri ályktun landsþings Landssamtakanna Þroskahjálpar. Æskilegt væri að umræðan snerist um þessar staðreyndir málsins. í grein sinni getur Páll þess réttilega að erfðafjárskattur sé sveiflukenndur tekjustofn, sem út af fyrir sig er rétt. Hinsvegar er það svo að sveiflurnar á síð- asta áratug hafa nánast alltaf verið á þann veginn að tekjurnar hafa verið meiri en áætlað var og munar þar samtals hundruðum milljóna króna. Þroskahjálp Vonbrigðin eru ennþá meiri nú, segir Fríðrik Sigurðsson, þegar í ljós kemur að árið 2000 er ekki gert ráð fyrir því fjármagni sem þarf til að standa við áætlun nefndarinnar. í ár eru t.d. rauntekjur 95 milljónum kr. hærri en áætlaðar tekjur. Fyrir stjórnartíð Páls rann þessi mismunur í fram- kvæmdasjóð fatlaðra og þaðan að hluta til í rekstur, en rennur nú beint í ríkissjóð. Rétt er einnig að benda á að skv. lögum um málefni fatlaðra er gert ráð fyrir að tekjur fram- kvæmdasjóðs séu, auk „óskertra tekna erfðafjársjóðs“, „framlag ríkissjóðs skv. ákvörðun Alþingis í fjárlögum hvers árs“. Þetta ákvæði bendir til að Al- þingi hafi ætlað að hafa tækifæri til að rétta hag sjóðsins í mögr- um árum erfðafjársjóðs. Slíkt framlag hefur aldrei ver- ið greitt. Ráherrann fjallar í grein sinni um störf nefndar sem gerði til- lögur um hvernig eyða mætti biðlistum eftir búsetu og annarri þjónustu fyrir fatlaða. Undirrit- aður sem sat í þeirri nefnd fyrir hagsmunasamtök fatlaðra hefur marg oft lýst sérstakri ánægju með störf þeirrar nefndar og tel- ur að verði farið að tillögum hennar sé fyrirsjáanleg ákveðin þáttaskil í málefnum fatlaðra á næstunni. Nefndin lagði til að vandann skyldi leysa á næstu 7 árum. Það segir allt sem segja þarf um stærð hans. Ráðherra og fyrir- rennarar hans í því embætti mættu hafa í huga, að ef stjórn- völd hefðu ávallt farið eftir þeim lögum, sem Alþingi setti fyrir 7 árum, væri ekki um neinn 7 ára biðlista að ræða í dag. Rekstraráætlanir félagsmálar- áðuneytisins í fjárlagafrumvarp- inu fyrir árin 1999 og 2000 gefa fyrirheit um að standa eigi að uppbyggingunni eftir áætlun „biðlistanefndarinnar". Hjá hagsmunasamtökum fatlaðra var skilningur á því að ekki tókst að auka fé í framkvæmdasjóð fatl- aðra á árinu 1999 þar sem tillög- ur nefndarinnar lágu ekki fyrir fyrr en 3. desember 1998. Því eru vonbrigðin ennþá meiri nú þegar í ljós kemur að árið 2000 er ekki gert ráð fyrir því fjár- magni sem þarf til að standa við áætlun nefndarinnar. Ráðherra getur þess að í seinni tíð hefur í auknum mæli verið farið inn á þá braut að leiga húsnæði til bússetu fyrir fatlaða, enda sé það skjótvirkari leið. Landssamtökin Þroskahjálp setja sig ekki upp á móti þessari aðferð. Hinsvegar er það svo að samkvæmt tillögu biðlistanefnd- ar átti á árunum 1999 og 2000 að Friðrik Sigurðsson taka á vanda þeirra sem eru í brýnustu þörf fyrir búsetu í Reykjavík og á Reykjaneskjör- dæmi. Þeir sem eru í mestri neyð nú á þessum svæðum eru mikið fatlaðir og oft á tíðum fjölfatlaðir einstaklingar. Undir- ritaður fullyrðir að heppilegt húsnæði fyrir þessa einstaklinga sé vandfundið á leigumarkaði, ef það þá fyrirfinnst. Því er algjör nauðsyn á að framlög til fram- kvæmdasjóðs fatlaðra fyrri hluta 7 ára tímabils sé hátt en gæti hugsanlega lækkað síðar þegar búið verður að leysa vanda þeirra sem þarfnast sértækasta húsnæðisins. Það verður einnig að segjast, að það er nýtt að heyra hve fé- lagsmálaráðherra er áhugasam- ur um húsaleiguleiðina, því Landssamtökin Þroskahjálp sendu ráðherra bréf í marsmán- uði sl. til að kanna hvort áhugi væri í ráðuneyti hans á að gera langtímaleigusamning við sam- tökin um húsnæði fyrir fatlaða sem þau myndu byggja með lán- um úr Ibúðalánasjóði. Þetta bréf var ítrekað með minnismiða í júní. Enn hafa engin svör borist. Landssamtökin Þroskahjálp hafa ávallt viljað eiga sem best samskipti við stjórnvöld. Sam- eiginleg niðurstaða biðlistan- efndar, sem í áttu sæti m.a. nú- verandi sjávarútvegsráðherra og formaður fjárlaganefndar Al- þingis, leiddi í ljós að aðila greinir ekki lengur á um þörfina og nú er komið að því að stjórn- völd og hagsmunasamtök ör- yrkja nái samkomulagi um hvernig eigi að standa að fjár- mögnun framkvæmda á um- ræddu 7 ára tímabili. Landssam- tökin Þroskahjálp lýsa sig reiðubúin til slíkra viðræðna en frábiðja sér að vera dregin inn í pólitískra samanburðarfræði stjórnmálamannana. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar. Fimbul-famb TÖLVUR verða sí- fellt mikilvægari á öllum sviðum þjóð- .lífsins. Þar er Há- skólinn engin undan- tekning og eru tölvur nú orðinn ómissandi þáttur skólastarfs- ins. Því miður hefur tölvukostur Háskól- ans engan veginn verið fullnægjandi undanfarin ár. Fyrir ári hóf Stúdentaráð, í samvinnu við Hollv- inasamök Háskólans, svonefnt Tölvuátak til að bæta úr ásta- Tölvuátak ^ Tölvukostur hefur veru- lega veríð bættur í ýms- um útbyggingum Há- skólans, segir Fanney Karlsdóttir, þótt víða megi enn bæta ástandið. ndinu. Átakið stendur enn yfir en árangur þess hefur þegar litið dagsins ljós innan Háskólans. * Margar veglegar gjafir Það sem ber hæst er að tölvu- kostur hefur verulega verið bætt- ur í ýmsum útbyggingum Há- skólans en þar hafði ástandið víða verið algjörlega óviðunandi. Til dæmis má nefna að komið hefur verið upp nýju tölvuveri í Skóg- ‘‘arhlíð en það er til komið vegna framlags frá Eim- skipafélagi Islands. I haust bárust einnig veglegar gjaf- ir frá ACO hf. og Kjaran tæknibúnaði. ACO gaf nýjar iMac- tölvur sem fara til guðfræðideildar, hugvísindastofnunar og jarð- og landa- fræðiskorar. Kjaran gaf prentara sem fara til tannlækna-, guðfræði- og verk- fræðideildar. Framlög á þriðja tug milljóna Framlög til Tölvuátaksins nema nú vel á þriðja tug milljóna króna. Eitt af markmiðum átaksins er að safna nægu fé til að hægt verði að stofna sjóð sem skal hafa það að markmiði að standa straum af hluta kostnaðar vegna endurnýjunar tölvukosts- ins við Háskólann. Sá tími sem eftir er átaksins verður notaður til að efla þennan sjóð. Átakið stendur enn Átakið stendur yfir til 1. des- ember næstkomandi. Þótt vel hafi gengið má enn víða bæta ástandið. Fyrirtæki eru því hvött til að leggja átakinu lið og stuðla þannig að því að tölvukostur Há- skólans verði sem best úr garði gerður. Slíkt skilar menntaðri einstaklingum sem reynast hæf- ara vinnuafl þegar út á vinnum- arkaðinn er komið. Höfundur situr í háskólaráði og Stúdentaráði fyrir hönd Röskvu. í DAG, miðvikudag- inn 27. október, leggur Morgunblaðið mest- alla miðopnu sína und- ir nýtt íslenzkt vanda- mál: Hríðminnkandi aðsókn í sjávarútvegs- nám. Birt er línurit yf- ir brautskráða skip- stjórnarmenn frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík síðustu tuttugu árin, hroll- vekjandi staðreyndir íyrir fiskveiðiþjóð. Á árunum í kringum 1980 brautskráðust u.þ.b. 150 skipstjórn- armenn á ári á öllum þremur stigum skipstjórnarnáms. Af línuritinu má ráða að þeim hafi fækkað í ár nær 6-falt. Skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík, Guðjón Armann Eyj- ólfsson, segir svo við höfund Morg- unblaðsgreinarinnar: „Við sendum út 400 bréf til allra sem lokið hafa 1. stigs skipstjómarnámi en það bar lítinn árangur, því 6 sóttu um nám á 2. stigi sl. haust.“ Og svo er fimbulfambað fram og aftur í greininni um orsakir þessar- ar háskalegu þróunar fyrir íslenzku fiskveiðiþjóðina. Þar er því m.a. haldið fram að orsökin sé „mjög neikvæð fjölmiðlaumræða um sjáv- arútveg almennt.“ Hér fer eitthvað milli mála, held- ur betur. Hafa kannski ekki allir fjölmiðlar lokið upp einum munni um ágæti íslenzka fiskveiðistjóm- arkerfisins? Hafa fjölmiðlar nokk- uð dregið af sér í flutningi frétta um að ísland byggi við „fullkomnasta fiskveiðistjórnarkerfi í heirni"? Einmitt í dag er sjö dálka grein í Morgunblaðinu, þar sem sérfræð- ingur blaðsins í framsali veiðiheim- ilda, Hjörtur Gíslason, ræðir við sérfræðing FAO í fisk- veiðistjómun. Sá er nú ekki hjátækur sér í yf- irlýsingum um ágæti íslenzkrar fiskveiði- stjórnar, þar sem „Islendingar hafa náð þjóða lengst í fiskveið- istjórnun" og að „Isl- and sé gott fordæmi fyrir margar aðrar þjóðir“. Þeir, sem hafa í skjóli stjómvalda söls- að undir sig sjávar- auðlindina íslenzku, hafa varið ómældum fjárfúlgum í að lof- syngja kerfið. Og enn stærri fjárhæðum til að halda þeim við völd, sem gripdeildinni stjórna. Ekki er nóg með að fjölmiðlar lofsyngi kerfið heldur kappkosta þeir að fela afleiðingar þess, ef þær eru ekki valdhöfum og sægreifum að skapi. Rétt eins og allt valda- kerfið hamast við að benda á og gera tillögur um lausnir vegna vanda sjávarþorpanna, er varast að nefna einu orði höfuðorsökina, þá að skorið hefir verið á lífæðar sjáv- arbyggðanna með því að banna þeim að sækja eigin sjó að afla fanga, sem þeir hafa erfðarétt á, en óhlutvandir menn af þeim stolið. Sama er uppi á teningnum í opnugrein Morgunblaðsins í dag, þar sem ræddur er vandi sjávar- útvegsins vegna þess að ungir menn era hættir að sækja nám í skipstjórnarfræðum. Flest er þar tínt til, nema það sem aðalmáli skiptir: Endurnýjun í íslenskri út- vegsmannastétt er úr sögunni. Þeim, sem hér heldur á penna, er manna bezt kunnugt um ástæðurn- ar, sem lokkuðu unga menn að sjáv- arútvegi og skipstjórnarfræðum: Það var vonin um að eignast eigið Sjávarútvegsmál Að sjálfsögðu vilja léns- herrarnir einnig sjá um innrætingu leigu- liðanna, segir Sverrir Hermannsson. Peir ráða hvort sem er brátt öllum örlögum þeirra. skip og reka sjálfstæðan útveg. Þeir náðu margir takmarki sínu. Og fyrir þeirra framtak, fyrst og fremst, var það að íslenzk þjóð reis úr öskustó fátæktar og umkomu- leysis til þeirrar hagsældar, sem nú ber raun vitni. Nú era þessir kostir úr sögunni. Nú eiga ungir skipstjórnarmenn þess engan kost að eignast eigin út- gerð. Það er svo sérstakt íhugunar- efni hvert stefnir fyrir atvinnugrein þar sem endurnýjun forystumanna er úr sögunni. Kannski er hjálpin næst þegar neyðin er stærst. Leigupenni Sam- herja á Akureyri upplýsir í fyrr- greindn Morgunblaðsgrein að þeir hjá LIU hafi „til athugunar stofnun sjálfseignarstofnunar um menntun í sjávarútvegi“. Þá höfum við það. Þá verður nám í sjávarátvegsfræð- um vafalaust „mjög heillandi og skemmtilegt" svo vitnað sé orðrétt í vinnumanninn. Að sjálfsögðu vilja lénsherrarnir einnig sjá um innrætingu leigu- liðanna. Þeir ráða hvort sem er brátt öllum örlögum þeirra. Höfundur er alþingismaður og for- maður Fijálslynda flokksins. Röskva fagnar nýjum tölvukosti Fanney Karlsdóttir Sverrir Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.