Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 f--------------------------- MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Um veiðieftirlit og veiðimál '•* ÉG SEM veiðieftir- litsmaður í Amessýslu get nú ekki lengur orða bundist, þar sem ég hef verið talinn af í opinber- um fjölmiðlum, af hópi manna sem nefbir sig áhugamenn um laxveiði á vatnasvæði Hvítár og Ölfusár. Detta mér helst í hug orð Marks Twain: „Fregnir af and- láti mínu eru stórlega ýktar.“ Hópur þessi hefur staðið að undirskrifta- söfnun á meðal manna þar sem bréfhausinn er eitthvað á þessa leið: „Við undirritaðir mótmælum ólögleg- um og eftirlitslausum netaveiðum á vatnasvæði Ölfusár-Hvítár". Rétt- lætismál ef satt væri og menn skrifa undir í góðri trú. En þar sem for- kólfar undirskriftanna hafa tileinkað sér þá þekktu aðferð að ljúga 100% til að 80% trúi hafa þeir að sjálfsögðu engan áhuga á staðreyndum málsins. Enda um áróðursstríð að ræða gegn þeim sem kjósa að nýta hlunnindi sín til laxveiða á annan hátt en forkólfun- um hugnast Staðreyndimar eru raunar aðrar. 7 Ég er skipaður opinber veiðieftir- litsmaður á vatnasvæði Ölfusár/Hvít- ár ásamt strandlengjunni frá Þjórsá að Selvogi og hef sinnt þessu starfi fiá 1979. Þá þegar var byijað að nota flugvél við veiðieftirlit. Flugvél er einkar hentugt tæki tii slíki-ar vinnu, nánast bylting frá fyrri aðferðum. A einni og hálfri til tveim- •ur klst. get ég skoðað hvem veiðistað og hvert látur á svæðinu ásamt strandlengjunni á mínu svæði. Með fyrri aðferðum, þ.e. að aka á hvem stað, tæki sama ferðalag viku. Að sjálf- sögðu nota ég líka jeppa því ekki er alltaf hægt að fljúga. Þessi gæsla úr lofti hefur í áranna rás gert það að verkum að veiðibrot era orðin fátíð og ólög- leg sjávarveiði fyrir ós- um Ölfusár að heita má Lax Netaveiði hefur minnk- að ár frá ári, segir Þor- finnur Snorrason, og er nú ekki nema 15-17% af því sem áður var. úr sögunni. Aður var algengt að við veiðieftirlitsmenn gerðum upptæka tugi neta á hverju sumri í sjó, en nú er viðburður að finnist net. En fluggæslunni fylgja kostir og gallar. Kostimir mikil yfirferð ásamt sjónarhomi sem nýtist vel til leitar og fyrirvari þess sem brotlegur er lítill sem enginn. Gallamir era m.a. að maður hittir sjaldnast heiðarlegu veiðimennina, sem langar til að hitta veiðivörðinn og fá fréttir af afla- brögðum og jafnvel leiðsögn. Veið- vörðminn hittir nánast eingöngu þá brotlegu, því eftir veiðieftirlitsflug fer maður að sjálfsögðu á þá staði þar sem pottur er brotinn. Þannig að heiðarlegir veiðimenn, sem era jafn- vel vanir að veiða í dýram ám, þar sem veiðivörðurinn er daglegur gest- ur í veiðihúsinu, komast einfaldlega að þeirri niðurstöðu að ekkert veið- ieftirlit sé á svæðinu, því þeir hitta ef til vill aldrei veiðieftirlitsmanninn. Þeir tiltölulega fáu sem hitta hann af gefnu tilefni sakna hans að sjálfsögðu ekki og finnst nóg um refsihörku veiðieftirlitsins. Víkjum næst að fuilyrðingum for- kólfanna títtnefndu. Ég tel mig hafa hrakið þá fyrstu að ekkert veiðieftir- lit sé til staðar. Það er virkt og sér- stök áhersla lögð á að uppræta sjáv- arveiði með góðum árangri. Næstu fullyrðingu, um að ekki sé farið að lögum, vísa ég á bug. En ef að menn telja að svo sé, því kæra fyrmefndir aðÖar ekki ólögleg veiðitæki eins og aðrir borgarar sem verða vitni að lög- brotum! Það er hveijum manni frjálst og skylt. Eða era menn ekki vissir í sinni sök. Tilvísun sú í laxveiði- lög um að netalagnir eigi að vera bundnar við land, og sem um leið er rökstuðningur hópsins fyrir því að eftirliti sé ekki framfylgt, er röng. I lögum um lax- og silungsveiði nr. 76/1970 með síðari breytdngum segir í 29. grein: „Lagnet og króknet skulu liggja írá bakka eða garði, er gengur þvert á straum út frá bakka, beint út í straum eða forstreymis. Leiðara má Þorfinnur Snorrason hafa niður frá krók og telst hann hluti veiðivélar.“ 13. mgr. 35. greinar segir svo: „Til lengdar fastrar veiðivélai- samkvæmt 1. málsgr. þessarar grein- ar telst fjarlægð hennar frá bakka straumvatns, hvort sem girt er yfir allt það svæði eða eigi.“ Tilvitnun lýk- ur. Að framansögðu má sjá að löggja- finn telur ekki skylt að girða alla leið að fastii veiðivél. Enda mælist lengd veiðivélaiinnar alltaf frá bakka og sé ytri endi lagnar langt frá bakka hefúr það þau áhrif að lengra verður í næstu lögn hvort sem hún er á sama eða andstæðum bakka, þar sem vegalengd milli lagna miðast við fimmfalda lengd lagnanna. Víkjum nú að áhriíúm netaveiða á stangveiði á svæðinu. Netaveiði hefur minnkað ár frá ári og er nú ekki nema 15-17% frá því sem áður var. Einnig hefur friðun verið aukin frá fyrri tíð þannig að nú era netin uppi hálfa vikuna. En hvaða áhrif hefur þessi stórminnkandi sókn netaveiði haft á stangveiði á svæðinu? Lítum á línurit nr. 1, það skýrir sig sjálft! Lítum næst á veiðitölur sumarsins. Sogið með um 500 laxa. Metveiði mið- að við 10 undanfarin ár. Þrátt fyrir jökulhlaupið og „svokölluð sjóræn- ingjanet" hafa nokkrar „pöddur“ eins og einn forkólfur stangveiðimanna kaliar konung fiskanna komist upp „þvergirta 01fusá“. Auk þess má geta þess að klakveiði hefur gengið vel í haust bæði í Sogi og Stóra-Laxá og eins og einn veiðibóndinn í Stóra- Laxá orðaði það: „fiskur um alla á“. Mörgu er enn ósvarað og mun ég gera það í næstu grein. Höfundur er yeiðieftirlitsmaður á Vatnasvæði Olfusár/Hvítár. ÍSLEIVSKT MAL Kfristín heitir kona flá, kjaftabeitirnöðrum, sker og reytir mest sem má mannorðsfeiti af öðrum. Með þessa mögnuðu hring- hendu kom kona að Leirá í Borg- arfirði að hitta Jón Thoroddsen sem þar var sýslumaður 1861- 1868. Kvað hún vísuna vera orta um sig og væri henni fullkunnur höfundurinn. Ætti hún það erindi til sýslumanns og kæra höfund- inn til sektar fyrir níðyrði og það því fremur sem níðið væri í bundnu máli. Jón Thoroddsen fékk orð fyrir að vera meira skáld en sýslumað- ur. Hann velti nú lengi fyrir sér vísunni og reykti pípu sína gólf- síða. Konan beið í ofvæni. Loks mælti sýslumaður: „Vel er að vísu kveðið, en þó þætti mér betra að hafa ,jlær og reytir“ en „sker og reytir". Var nú lokið þeim málaferlum. ★ Sagnmyndin flær, sú sem sýslumaður kaus, er nútíð að sögninni að flá. Hún beygðist fyirmeir eftir 6. hljóðskiptaröð: flá - fló, flógum - fleginn. Nútíð framsöguháttar: ég flæ; þátíð við- tengingarháttar: þótt ég flægi. Sögnin beygðist nákvæmlega eins og systir hennar að slá gerir enn þann dag í dag. Svokallaðar sterkar sagnir eru margar hveijar erfiðari í tali manna en veikai-. Dæmi: flá - fló, flógum - fleginn o.s.frv. er vandasamari en tala - talaði - talað. Því er það að margar sterkar sagnir hafa veikst og sumar alvarlega. Ein af þeim er sögnin að flá. Hún er nú orðið eiginlega bæði veik og sterk. Flestir segja þó líklega flá - fláði - fláð, en margir þó flegið, því að lýsingarháttur þátíðar af sterk- um sögnum er stöðugri en ýmsar aðrar myndir sagnarinnar. En þátíðin fló er nú horfin að kalla, Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1029. þáttur og hefúr ekki bætt um fyrir henni að samskonar mynd_ er til af sögninni að fljúga. Eg ímynda mér að flestir sláturhúsamenn segi nú fláði fremur en fló. Þann- ig breytist mál okkar, og við það verður tíðum ekki ráðið. ★ I úrskui-ði Jóns Thoroddsens sýslumanns á Leirá kemui- skýrt fram að hann beygði sögnina að flá sterkt, eftir gömlum og góð- um hætti: Kristín flær, ekki ?flá- ir. En af hverju valdi hann þá sögn fremur en skera? Kannski vegna þess að búið var að fullyrða að Kristín væri kona flá. Óskar Þór Kristinsson (Sailor) hefúr beðið mig að hyggja að orðunum flár og flærð. En þar er ekki feit- an gölt að flá. Ásgefr Bl. Magnús- son segir að flár merki „slægur, falskur, ótrúr.“ Nefnir hann af þessu ýmsar samsetningar. En honum virðist lýsingarorðið ekki eiga sér samsvörun í skyldum málum, en öðru máli gegnir um nafnorðið flærð. Finnur hann orð í skyldum málum sem merkja flaður og smjaður, en líka óhrein- lyndi og jafnvel fjandskap. ★ Vilfríður vestan kvað: Er Þuríður þrammaði grundu, þjórar á básunum drundu kvótlausir veiddu, kerlingarbeiddu og KverkQöll í sjó niður hrundu. ★ Og þá tekur til máls Jóhann Már Guðmundsson í Reykjavík: „Rætt hefur verið um orðið vonarpeningur og sumar merk- ingar þess ærið undarlegar. Helgi Seljan vitnar í Orðabókina [Menningai'sjóðs] að það merki eitthvað sem lítils er að vænta af, eitthvað sem brugðið getur til beggja vona. Og Víkingur Guð- mundsson segir þetta búpening á vonarvöl sem ekki var setjandi á vetur. í Landnámu stendur: „í þann tíma kom út skip í Kolbeinsárósi, hlaðið kvikfé, en þeim hvarf í Brimnesskógum unghrvssi eitt, en Þórir dúfunef keypti vonina og fann síðan; það var allra hrossa skjótast og var kölluð Fluga.“ (Landnáma, útg. 1909 bls. 142 til 143.) Samkvæmt Landnámu er von- arpeningur búpeningur sem hef- ur tapast, en von var að mundi finnast og keyptu menn þá stund- um vonina fyrir lítið.“ Umsjónarmaður þakkar Jó- hanni fyrir að minna sig á þetta. Vonarpeningur þýddi eitthvað sem von var um, t.d. búpeningur, sem kynni að braggast. En síðan hefur merkingin víkkað og stund- um orðið óeiginleg. Umsjónar- maður hefur þá tilfinningu að þetta sé búpeningur (e.t.v. mað- ur) sem vonast er til að skáni, þó líkumar séu heldur minni en meiri. Allir höfum við Víkingur, Ámi Böðvarsson, Jóhann og ég, sýnist mér, svipaða málkennd að þessu leyti. Hitt er miklu verra, og það við- urkennum við ekki, að vonarpen- ingui' merki sá sem menn gera sér góðar vonfr um, t.d. þegar til- tekinn maður sé nefndur vonar- peningur einhvers flokks, þar færi betur að nota orðið vonar- sljarna. ^ Bamsaugu, vöknuð við sólskin og söng á glugga, og síðan tekur við ævin - í dauðans skugga. Því söm eru allra örlög. Vér fæðumst feig. Hve fyllir oss snemma sú vitneskja hroUköldumgeig. Vér skelfumst það stríð, sem öllum ber hinzt að heyja. En hvað er við því að segja, ef dauðinn einn læknar ótta manns við að deyja? (Tómas Guðmundsson: Mannsævi). Vanstilltur fræðimaður SÚ HÆTTA vofir yfir fræðimönnum sem kafa djúpt í fræði sín að þeir fari að halda að þeir séu einir í heimin- um. Sambúðin við heimildimai' verður svo yfirþyrmandi. I Viðhorfs-pistli sl. fimmtudag gerði ég al- menna athugasemd um andvaraleysi fræði- manna. Þá hafði komið fram í fréttum að upp- lýsingar um skjalfestar heimildir um beinan fjárstuðning Sovét- manna til íslenskra sós- Fræðimennska Tvískinnungurinn blasir við, segir Jakob F. Ás- geirsson. Jón hefur samúð með íslenskum sósíalistum en ekki með þeim sem hafa skömm á framferði þeirra. Það er í hnotskurn hans „vand- aða“ fræðimennska. íalista höfðu verið gerðar opinberar fyi'ir allmörgum áram en enginn ís- lenskur fræðimaður haft rænu á að kanna þær heimildir. í grein í Morg- unblaðinu í gær tekur Jón Ólafsson þessa almennu athugasemd til sín sérstaklega og segir með nokkrum þótta að hingað til hafl nægt að vísa til sín í eintölu! Þótt Jón Ólafsson líti stórt á sig er það alls ekki svo að hann sé eini fræðimaðurinn í landinu sem kannað hefur rússnesk skjöl eða fjallað um sögu sósíalista á Islandi. Það er meira að segja væntanleg núna á jólabókamarkað bók eftir Amór Hannibalsson sem byggð er á rannsókn hans í sovéskum skjala- söfnum. Sú hætta vofir líka yfir þaulsætnum fræði- mönnum að þeir hafi rýnt svo lengi í texta að þeir fari að lesa á milli línanna og ímynda sér eitt og annað um tóninn í því sem þeir lesa Þykja það vond fræði þegar slíkir fræðimenn kveðjasérhljóðs. Jón Ólafsson segist svara grein minni ekki vegna þess sem þar stendur berum orðum heldur vegna dylgna og ofsa sem gjósi „á milli lína“, eins og hann kemst að orði. Enn- fremur sé tónninn í mínum skrifum honum ekki að skapi. Tónninn í skrif- um manna lætur misjafnlega í eyrum þeirra sem lesa - eftir innræti þeirra sjálfra, lesningu og smekk. Og það sem menn þykjast lesa á milli lína í texta er sjaldan byggt á öðra en hug- lægu mati þeirra sjálfra og misfjör- ugu ímyndunarafli. Þetta hefði mað- ur haldið að starfsmaður „hugvísindastofnunar“ gerði sér ljóst. Jón Ólafsson vill sýna ýtrustu að- gát við túlkun á heimildum um sam- band íslenskra sósíalista við harð- stjómina í Moskvu, fúllyrða ekkert nema heimildir taki af allan vafa og slá alla hugsanlega vamagla. Honum finnst hins vegar sjálfsagt að gera mér upp skoðanir, lesa frjálslega „á milli lína“ í mínum texta, leggja tón- inn í mínum skrifum út á hinn versta veg og saka mig á þeim forsendum um „pólitísk trúarbrögð“. Tvískinnungurinn blasir við. Jón hefur samúð með íslenskum sósíal- istum en ekki með þeim sem hafa skömm á framferði þeirra. Það er í hnotskum hans „vandaða" fi'æði- mennska. Fróðlegt verður að skoða væntan- lega bók Jóns Ólafssonar í ljósi þeirr- ai' pólitísku vanstillingar sem hann sýnii- í blaðaskrifum sínum. Höfundur er rithöfundur og blaða- maður. Jakob F. Asgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.