Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 57

Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 57 UMRÆÐAN Odincova - búið mál, eða hvað? ÞAÐ ER búið að gera upp við fyrri áhöfn togarans Odincova, eins og flestum er kunnugt. Ahöfnin er farin til síns heima, flestir anda léttar yfir því að málið skuli hafa leyst að þvi er virðist farsællega. Að öllum þessum farsa loknum, í bili að minnsta kosti, viljum við hér í Sjómannafélagi Reykjavíkur fara lauslega yfir nokkra þætti þessa máls. Kom til hafnar í Reykjavík Odincova kom til hafnar í Reykjavík um miðjan febrúar 1999 með bilaða vél. Ekki varð úr að ný vél yrði sett í skipið. I mars fóru nokkrir fulltrúar sjó- mannasamtakanna um borð í skip- ið. Engra kvartana varð vart af hálfu skipverja. ITF-eftirlitsfull- tráinn fór um borð með lesefni á rússnesku undir lok marsmánaðar. SpmT var um líðan mannanna, hvort eitthvað væri áfátt eða hvort menn hefðu einhverjar óskir. Ekk- ert slíkt kom fram. Upphrópanir Nokkrar upphrópanir urðu í fjölmiðlum í lok júní og um mánaða- mótin júní/júlí hafði áhöfnin sam- band við okkur í Sjómannafélagi Reykjavíkur og sagði sínar farir ekki sléttar. Nú var komið annað hljóð í strokkinn. Farið var að kanna stöðu mála við fulltráa sjó- manna í Lettlandi. Það yrði of langt mál upp að telja. Hvorki gekk né rak í málinu, þar sem augljóst var að íslensk löggjöf bauð ekki uppá neinar skjótar lausnir. Að þessu leyti er mikilla breytinga þörf á ís- lenskri löggjöf. Okkur finnst erfitt að búa við það í stéttarfélögunum að vera með vinnu- og aðra löggjöf sem virðist fyrst og fremst miðast við að vernda þá sem stunda óva- Jónas Garðarsson Birgir Hólm Björvinsson Borgþór S. Kjærnested ndaða starfsemi. í lok júlí varð hins vegar ljóst að annað skip fyrirtæk- isins Fanneyjar ehf. að Brjánslæk á Patreksfirði, Erla, væri á leið til hafnar í Kanada. Ahöfnin um borð í Erlunni var tilbúin til að styðja kröfur félaga sinna í Reykjavík með því að neita að afhenda afla Eriunnar fyiT en gert hafði verið upp við Odincovu-menn. Sú aðgerð tókst, en áhöfnin féllst á að láta flytja aflann í frysti- geymslur Eimskips í Argengia. Síðan tóku við mildl átök á bak við tjöldin. Hótanir gengu á víxl. En spurningarnar sitja eftir. Hvers vegna? Hvers vegna voru stór fyrirtæki á borð við Eimskip og Sjóvá-Al- mennar með puttana í þessari út- gerðai-starfsemi? Þátttaka þeirra í þessari starfsemi gerði íslenskum útgerðarmanni kleift að kaupa skip á 400.000 dollara í Lettlandi, ráða tii sín áhöfn á tryggingu sem er tæpar 30.000 kr. á mánuði og veiða kvóta Lettlands á Flæmska hattin- um. Hér er um gróflega ógnun við hagsmuni íslenskra sjómanna að ræða. En betur má ef duga skal. Nú eru uppi tilraunir til að gera ís- lenskum útgerðum auðveldara iyr- ir til að ná sér í skip í fyrrverandi austantjaldsríkjum, ráða til sín ódýrt fólk og undirbjóða íslenskar aðstæður. Nýir eigendur Odincovu héldu eftir einum manni, vélstjór- anum, til að liðsinna sér við viðgerð skipsins. Þessi maðui' afhenti Sjó- mannafélagi Reykjavíkur umboð sitt til að standa vörð um hagsmuni hans. Því verður fylgt eftir. Honum ber að greiða íslensk laun á meðan hann dvelur hér á landi. Hann er löngu búinn með 3 mánaða dvalar- leyfi erlendra sjómanna í íslenskri höfn og nú eru það íslensk laun sem gilda. Við munum ekki heldur horfa á það þegjandi að ráðnir verði raf- virkjar frá Lettlandi til rafmagns- vinnu um borð né aðra vinnu yfír höfuð, þar sem tilgangurinn er ein- ungis að undirbjóða íslenska launa- menn. Við munum leita aðstoðar hjá þeim samtökum launafólks sem vilja vinna með okkur að þessum hagsmunamálum. Og okkur er sama þó að við getum átt það á Launamál Hvers vegna eru stór fyrirtæki á borð við Eimskip og Sjóvá- Almennar, spyrja Jónas Garðarsson, Birgir Hólm Björgvinsson og Borgþór S. Kjærnested, með puttana í þessari útgerðarstarfsemi? hættu að fá sjö milljóna ki'óna sekt fyrir að berjast gegn svínaríi af þessu tagi vegna þess að lögin standa með óhæfunni! Við hjá Sjómannafélagi Reykja- víkur mótmælum eindregið þessari viðleitni islenskra útgerðarmanna til að undirbjóða íslenskar aðstæð•• ur með þessum hætti og tilraunum þeirra til að hiifsa til sín skjótfeng- inn gróða meira eða minna á svörtu. Okkur finnst fara lítið fyrir umræðum á Alþingi um þetta mannsal og þrælahald við bryggjur íslands. Það má ekki verða hlut- skipti íslenskra þingmanna og ís- lenskrar verkalýðshreyfingar að rumska ekki fyrr en vandinn er kominn upp á land, inná búllur og krár miðbæjarins eða vinnustaði fyrir ofan Elliðaár. Svona útgerðar- menn á bara að flytja þama austur og láta þá búa í þessum samfélög- um sjálfa í stað þess að leyfa þeim að rásta íslenskt samfélag með þessum hætti. Þessir örfáu útgerð- armenn eyðileggja fyrir eðlilegri starfsemi hérlendis og þrýsta á kjararýmun íslenskra sjómanna. Það á ekki að bregðast við vandan- um með því að brjóta upp þær fáu hindranir sem í vegi era fyrir því að allir geti stundað svona starfsemi. Hér er átt við þær tilraunir sem gerðar era til að lögleiða möguleika á tvískráningu skipa. Var ekki nóg* að afhenda útgerðinni kvótann fyr- ir ekkert þó ekki verði líka gert mögulegt að fiska hann með lá- glaunafólki úr Eystrasaltslöndun- um? Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur mun leggja fyrir aðal- fund 26. október drög að heild- stæðri stefnu í þessum málum, bæði hvað varðar fiskveiðar og kaupskipasiglingar íslenskra út- gerða. Við væntum þess að geta unnið þessu mikilvæga máli fylgi meðal samtaka annars launafólks í landinu, enda eru drögin byggð á samhljóða viðmiðunum félaga okk- ar í Alþjóðasambandi flutninga- verkafólks, ITF. Jónas er formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, BirgirHólm ergjaldkeri Sjómanna- félags Reykjavíkur og Borgþór er eftirlitsfulltrúi ITF. til útlartda -auðvelt dð mund SÍMINN www.simi.is Parbo sælkerasultur og aldinmauk • Darbo notar aöeins handlesna ávexti. • Darbo notar engan hvítan sykur, aöeins hrásykur og hunang. • Darbo notar engin litarefni, rotvarnarefni eða önnur tilbúin efni. • Darbo sulturnar eru aðeins hitaðar varlega í framleiðslu en ekki soðnar. > Darbo, Ijúffengar gæðasultur og aldinmauk á lágu verði. > Darbo hunang er hreint villiblóma- hunang úr austurrísku ölpunum. Þú kaupir 2 glös og færð þriðja glasið frítt ásamt litlu glasi af hunangi, sem sé allur pakkinn á 396 kr. Kona vertu fersk í vetur Þú sem hugsar um velferð annarra fjöldskyldumeðlima, ekki gleyma sjálfri þér. Ostron: Beinin þurfa að fá sitt, til að vera í lagi allt fram á efri ár. Solus: Allsherjar bætiefnatafla með vítamínum og steinefnum ásamt drottningarhunangi, ‘ -á náttljósarolíu, þara, lestitíni, blómfrjókorni, ginseng og fleiri frábærum næringarefnum fyrir konur. Yogi konute: Blanda af sérvöldum jurtum, til að efla heilbrigða líkamsstarfsemi kvenna. Þessi þrenna kostar 2.219 kr. en á Kringlukasti 1.590 kr. Ertu slappur, þreyttur, gleyminn? Viltu vera hress? Vaknaðu hress og mættu orkuhlaðinn í vinnuna eða skólann. Ginko: Eykur blóðstreymið í fínustu æðarnar, líka til heilans. ABC Plus: Fjölvítamín og steinefni, allt í einni töflu. Rautt Ginseng: Ginseng hjálpar blóðinu að flytja aukið súrefni í frumurnar. Þessi magnaða þrenna kostar 3.983 kr. en á Kringlukasti 2.490 kr. Enrico s Special Ljúffengu Enrico's pastasósurnar kitla bragðlaukana. Þær eru matarmiklar og án allra aukaefna. Jómfrúarólífuolíu (Extra Virgin) gerir góðan mat betri. Heilhveitipastað frá Eunature bindur vel í sig sósur og er auðugt af hollum trefjum. Þú kaupir sósu og ólífuolíu á 469 kr. og færð pastapakka sem kostar 168 kr. frítt með. eilsuhúsið Kringlunni ■ Sími 568 9266

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.