Morgunblaðið - 30.10.1999, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 30.10.1999, Qupperneq 70
70 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand Smáfólk YES, 5IR..l'PLIKETO BUr 50ME 5CHOOL 5UPPLIE5.. MAYBE VOU COULPTRAPE IN LA5T YEAR'5,5EEINö AS HOW THEY’VE HARPLV BEEN U5EP., '4 vou shoulpn't let WEIRP PEOPLE IN YOURSTORE, 5IR 7—' Já herra, ég ætla að fá einhvað til að nota í skólanum. Þú ættir kannski að reyna að skipta skólabókunum frá því í fyrra. Það sór nánast ekkert á þeim. þú ættir ekki að hleypa rugluðu fólki inn í búðina þína, herra. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fyrsti fundur norræns ráðs um myasthenia gravis (NRMG) Frá Ólöfu S. Eysteinsdóttur: FYRSTI fundur norræns MG-ráðs (NRMG) var haldinn helgina 14.-16. maí síðastliðinn í Turku í Finnlandi, en norrænt MG- ráð var formlega stofnað 1997. Fulltrúar MG- félags fslands á fundinum voru Ólafur Stephen- sen, Dröfn Jóns- dóttir og Þórdís Jóna Hrafnkels- dóttir læknir (að- stoðarmaður), en auk þeirra sátu fulltrúar frá Finn- landi, Svíþjóð og Noregi fundinn. Fundurinn var að hluta til haldinn á Masku endurhaefmgarstöðinni þar sem yfiriæknir stofnunarinnar hélt áhugavert erindi um starfsemina. Stofnunin í Masku býður upp á að- lögunarþjálfun (adaption traning) fyrir sjúklinga með ýmsa vöðva- og taugasjúkdóma. Markmið þjálfunar- innar er ekki eingöngu að sinna lík- amlegum vandamlaum sjúklinganna, heldur er rík áhersla lögð á fræðslu, félaglega hæfingu og að fá sjúkling- inn til að læra að lifa með sinn sjúk- dóm. Hefðbundin endurhæfing hent- ar ekki MG-sjúklingum sérlega vel en í Masku bjóðast þriggja vikna löng aðlögunar/þjálfunarnámskeið fyrir MG-sjúklinga og styttri nám- skeið þar sem aðstandendum gefst einnig kostur á þátttöku. Talmeinafræðingur stofnunarinn- ar hélt afar gagnlegt erindi um þá erfiðleika tengda talfærunum, sem MG-sjúklingar geta átt við að etja. Hún fjallaði meðal annars um óskýr- mæli (dysartri), veikan raddstyrk (dysfoni) sem getur stafað af kraft- leysi í öndunarfærum og kyngingar- efiðleika (dysfagi). Hún nefndi að þjálfun væri mikilvæg, ekki síst til að auðvelda notkun þeirra vöðva sem fyrir hendi eru og til að minnka hættu á rangri beitingu. Oft er nægilegt að talmeinafræðingur skoði sjúklinginn, gefí upplýsingar og einstaklingsbundin þjálfunar- prógröm. Fram kom á fundinum að upp hafa komið erfiðleikar í Svíþjóð og Noregi með að útvega lyfin mestinon og neostigmin og er það mjög alvarlegt þar sem sjúklingarn- ir eru háðir þessum lyfjum margir hverjir. Almenn ánægja var með fundinn, sem var opinn og gagnleg- ur. Fundarmenn voru sammála um að starf MG-félaganna, ekki síst í formi norræns samstarfs, hafí þeg- ar skilað sér í þágu MG-sjúkra og enn frekari árangurs sé að vænta í framtíðinni. Norsku fulitrúarnir fara með formennsku í NRMG fram að næsta fundi ráðsins sem haldinn verður í Noregi að tveimur árum liðnum. ÓLÖF S. EYSTEINSDÓTTIR, formaður MG-félags íslands. ÓlöfS. Eysteinsdóttir Fjárbændur og þrælahald Opið bréf til landbúnaðarráðherra, Guðna Agústssonar Frá Birni Gíslasyni: JÖRÐUM þar sem stundaður er fjárbúskapur fer fækkandi og fjölgar að sama skapi eyðibýlum og jörðum sem teknar eru undir önnur not. Við- skilnaður margra bænda við býli sín er hörmulegur, hálfhruninn húsa- kostur, og ónýtar gaddavírsgirðing- ar látnar liggja hér og þar, mönnum og skepnum til ama og hættu. Ekk- ert er gert til að færa landið í fyrra horf. Sem betur fer er þetta ekki algilt. Margar eyðijarðir hafa lent í hönd- um afkomenda eða annarra sem leit- ast við að hreinsa til og græða landið skógi eða fegra á annan máta með ærnum tilkostnaði. En um leið lendir sama fólk í ánauð nálægra fjárbænda sem margir hika ekki við að reka fé sitt í lönd sem verið er að rækta upp og fegra. Síðan þegar kemur að hausti krefjast fjárbændur þess að landeig- endur smali lönd sín og komi með fé það sem fjárbændurnir hafa sleppt í heimildarleysi, þangað sem hægt er um vik að sækja það. Ef landeigend- ur mæta ekki þegar fjárbóndanum hentar, skulu þeir greiða allan kostn- að af smölun á fé bóndans, lögum samkvæmt. Með lögum halda fjárbændur bæði fé og mönnum í ánauð og hika ekki við að taka eigur annarra undir eigin atvinnurekstur. Guðni Ágústsson, er ekki tímabært að fjárbændur stundi sinn búskap á eigin spýtur án lögþvingaðrar hjálp- ar, og gerðar verði viðeigandi breyt- ingar á lögum þar að lútandi? Þessi þvingun er löngu úr takt við tíðarand- ann og allar viðteknar hugmyndir um persónufrelsi. Svona rík þegnskyldu- kvöð er jafnvel ekki á almenningi í þágu almannavarna við stóráföll. BJÖRN GÍSLASON, Háagerði 41, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.