Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 78

Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 78
78 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 3-------------------------- MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM Algjört rugl að búa í stórborg- Hljómsveitin Sigur Rós er nýkomin úr vík- ing til Danmerkur og Englands þar sem er- lend tónlistarblöð halda vart vatni yfír nýj- ustu uppgötvuninni frá Islandi. Dóra Osk Morgunblaðið/Ásdís Halldórsdóttir gómaði Jón Þór Birgisson söngvara sveitarinnar og fékk að heyra ým- islegt um bakaðar baunir, heimilistæki og lítið vé á Vestfjörðum. SIGUR RÓS, Low og Immen- se munu spila fyrir Reykvík- inga í Háskólabíói í kvöld, en í gærkvöldi sóttu þeir Akureyringa heim. Sigur Rós er nýkomin frá út- löndum þar sem sveitin var að spila og taka upp lög í Lundúnum. Jón Þór Birgisson sem flestir þekkja sem Jónsa er beðinn um ferðasög- una. i „Við fórum til Danmerkur og spiluðum fjóra tónleika í Vording- borg, Lyngby, Kaupmannahöfn og Arósum og var vel tekið. A fyrsta staðnum gekk það mjög vel, bara fullorðnir Danir að drekka bjórinn sinn. Annars var fullt af íslending- um þegar við spiluðum í Vega í Kaupmannahöfn og mikil barbar- astemmning." - Er meiri hamagangvr ílandan- um en íþeim dönsku? „Jahá, það vantar allan brodd í þessa Dani, fínnst mér. Mér fínnst þeir eiginlega vera of afslappaðir. Eg hugsa að það væri ekki gott að skapa tónlist í þessu umhverfí, það vantar eitthvert fjör í þessa þjóðar- sál. Svo er vatnið afleitt þama - 'íálfgert sundlaugarvatn." - En svo fóruðþið til Englands? „ Já við fórum þangað í stúdíó þar sem heitir Jacob’s Studio og tókum upp „demó“ af þremur lögum með Ken Thomas sem tók upp Ágætis byrjun. Lögin sem við tókum upp í London eru bara fyrir okkur, ekk- ert á leiðinni á plötu alveg strax,“ segir Jónsi hógvær. „Við vorum þarna í Lundúnum í fjóra daga í góðu yfirlæti, fórum á hestbak, í tennis og í sund.“ Paul Weller í eldhúsinu - Alltaf ííþróttunum ? „Já,“ segir Jónsi og hlær þegar A’ifjuð eru upp glímutök og aðrar þjóðlegar íþróttir sem sveitin stundaði í ferð sinni um landið síð- asta sumar. „Já, við lifðum mjög heilbrigðu lífi þarna í Lundúnum og það eina sem setti blett á þá reynslu var að við hittum þarna Paul Weller [úr Jam] sem var að taka upp einhver lög þarna við hlið- ina á okkur. Það var alltaf rosalegt partí hjá honum og mikil drykkju- læti. Eg hitti hann þama fyrsta kvöldið þegar mér varð á að fara inn í eldhúsið og blasir þar ekki við f-;ér Paul Weller sem var að úða í ig bökuðum baunum upp úr dós og stóð varla í lappimar." - Ekkert verið spenntur fyrir því partíi? „Nei, svo var okkur heldur ekk- ert boðið. En hann fannst á eldhús- gólfinu daginn eftir svo þessi kvöldmáltíð hefur farið eitthvað "^þyert í hann.“ -Svo segja menn að bakaðar baunir séu hollar. „Já, svona líka. Eg ætlaði fyrst að gefa honum plötuna okkar, en hætti við af því að hann stal frá okkur þremur rauðvínsflöskum." - Notuðuð þið ekki tækifærið til að fá ykkur indverskan mat í heimsborginni? „Jú, það var eitt fyrirtæki sem bauð okkur í mat, en það er algjört leyndó.“ - Nú ert þú grænmetisæta? „Já, að mestu leyti. Borða ekkert rautt kjöt. Kjarri er líka lítill kjöt- maður.“ - Eru þetta áhrif frá Morrissey sem sagði kjötát jafngilda morði? „Nei, þetta er bara eitthvað sem hefur æxlast svona. Mér finnst kjöt ekkert gott og líður ekki vel af því. En ég er ekki grænmetisæta af trúarástæðum." Dýrið í sveitinni - En að öðru. Hefur nýi maður- inn í sveitinni ekki breytt ein- hverju? „Hann kemur með dýrið í sveit- ina. Hann heitir sko Orri Páll Dýrason sem er frábært nafn á trommara. Eins og Dýri í Prúðu- leikurunum." -Hvort semjið þið lögin fyrst eða textana? „Lögin koma nú yfirleitt alltaf fyrst. Sumir eiga auðveldara með að semja texta heldur en lög, en mér fínnst lögin renna betur í gegn hjá mér. Orðin geta stundum staðið aðeins í rnanni." - Textinn í Flugufrelsaranum virðist svolítið minningakenndur? „Flugufrelsarinn er æskuminn- ing Gústa fyrrverandi trommuleik- ara okkar. Hann var í sveit þegar hann var lítill og var alltaf að bjarga flugum úr bæjarlæknum. Þetta er eiginlega minning hans.“ - Nú ert þú mjög áberandi í sveitinni og margir sjá fyrir sér strákinn með toppinn, gítaiinn og fíðlubogann hefja upp englaraust sína þegar minnst er á Sigur Rós. Hvernigfínnst þér það? „Ég veit það ekki. Það hefur bara þróast þannig og er allt í lagi á sviðinu, en mér finnst það erfiðara í fjölmiðlum ef verið er að draga mann fram sem einhvern aðalmann í hljómsveitinni því við erum fjórir í þessari hljómsveit. Það getur verið erfitt bæði fyrir mig og aðra í hljómsveitinni af því að við reynum að gera allt saman.“ Endurborinn Paganini - Ég lofa að vera betri næst. En á tónleikum ert þú mikið í sviðsljós- inu þegar hinir geta haldið sig meira til hlés. „Á sviðinu finnst mér allt í lagi að vera í sviðsljósinu. Þá er maður bara í sínum heimi að syngja og spila tónlistina. Þá hugsar maður ekkert um neitt annað.“ - Hvemig varð hugmyndin til að nota fíðlubogann ágítarinn? Jónsi er ekkert of hress með að svara spurningum sem hann hefur greinilega fengið áður. „Ja, ég byrjaði að nota bogann einu ári eftir að við byrjuðum. Ágúst, fyrrverandi trommuleikarí, fékk fiðluboga í jólagjöf ogvið próf- uðum að nota hann á bassann, sem gekk ekki nógu vel en hann virkaði miklu betur á gítarinn." - Blundar íþér Paganini? _ „Já, örugglega. Kannski "er ég hann endurborinn og þróaðist frá fiðlunni í gítarinn. Én það er kannski ekki jafn mikill hamagang- ur í mér og Paganini og ég þarf ekki að sanna mig jafn mikið og hann. Er til dæmis ekkert að taka sóló út í eitt.“ -En englasöngurinn, falsettan, sem er einkenni þitt. Hefur þér alltaflegið svona hátt rómur? „Nei, eða jú kannski bara. í byrj- un söng ég ekki svona hátt en hef farið ofar æ síðan. Svo er ég kannski núna bara á niðurleið.“ - Nú eru þið samrýnd sveit. Hef- ur sú hugmynd eitthvað komið upp að vinna með öðrum? „Já, já. Við unnum með fleira fólki á síðustu plötu, sinfóníunni og blásturshljóðfæramönnum, sem var mjög gaman. Við erum opnir fyrir öllu og aldrei að vita hvað ger- ist.“ Leyndardómar heimilistækja -Er einhver tónlist sem býr í þér sem á ekki samleið með Sigur Rós? „Við vinnum allt okkar efni sam- an, en við allir höfum verið að vinna eitthvað sjálfír líka. Kjarri var til dæmis að semja tónlist fyrir Nem- endaleikhúsið. Síðan er maður oft að dunda eitthvað sjálfur. Ég er að fara að taka upp hljóðið í þvottavél núna.“ - Fyrir húsmæður í þvottahug? „Á ég að segja þér hvernig það virkar? Ég tek upp hljóðið frá því að þvottavélin byrjar að þvo og þangað til hún hættir. Síðan ætla ég að syngja með drengjakórs- röddum yfír þeytinginn, en í sama tóni.“ - Verður það platan „Jónsi og heimiiistækin - tónlist heimil- anna“? „Já, það gæti vel verið. Annars þarf samt eiginlega að fínna orð yf- ir þessi hljóð sem eru á öllum heim- ilum. Þessa tónlist, meina ég.“ -En ef við snúum okkur frá heimilistónunum og yfír í framtíð Sigur Rósar. Hvernig tilfínning er það að vita að hljómsveitin stendur á tímamótum með þessum aukna áhuga erlendis frá? „Þetta er svolítið skrítið. Við spilum til dæmis yfirleitt alltaf nýtt efni á tónleikum, erum svona einu skrefí á undan. Þegar við gáfum út fyrstu plötuna fylgdum við henni eftir með tónleikum þar sem við spiluðum lögin af Ágætis byrjun. Núna erum við að spila efni af næstu plötu og kannski óvanalegt fyrir áheyrendur að heyra alltaf eitthvað nýtt. En mér fínnst það sjálfum hljóta að vera forvitnilegt.“ Á eigin forsendum - En þegar þið eruð að kynna ykkur erlendis, er ekki nauðsyn- legt að spila lögin af Ágætis byrj- un? „Jú, það er það eflaust, en við förum ekkert eftir svona hefð- bundnum stöðlum. Þegar við vor- um úti spiluðum við aðeins eitt lag af plötunni og svo nýtt efni. Fólk verður bara að taka því að svona erum við bara. Við gerum okkar hluti og annað hvort líkar fólki það eða ekki.“ - Hvað um peninga? „Æi, ég veit það ekki. Við erum nú búnir að vera að semja tónlist í sex ár, gert allt sjálfir, og alltaf verið blankir. Ef við fáum ein- hverja peninga verður það fínt og við mjög heppnir ef fólk sýnir okk- ur þann áhuga. Þá værum við að fá einhverja uppskeru af því sem við erum búnir að vera að sá. En auð- vitað er þetta stundum erfítt, þegar allir eru að tala við okkur núna. En þegar það kemst regla á þau mál verður þetta fínt.“ Mannfýla og heiladauði -Flytjast til útlanda? „Ég held að það komi ekki til greina. Við höfum ekkert farið oft til útlanda en í þessari síðustu ferð fann ég ótrúlega mikla íslan- dskennd í mér og fannst frábært að koma heim. Við vorum að vonast til að það tæki á móti okkur stormur og slabb, en það var bara ljúft veð- ur. Ég held ég gæti aldrei búið í London eða einhverri stórborg. Mér finnst _það eiginlega bara al- gjört rugl. Ég hugsa að maður yrði heiladauður að ferðast með þessum neðanjarðarlestum, finna þessa mannafýlu og verða fyrir stöðugu áreiti eins og er í stórborgum." - Betra að vera heima? „Já, hafa þessa víðáttu og geta andað að sér hreinu lofti. Það er allt annað." - Er einhver kvíði íykkur vegna þessa áhuga erlendis frá? „Já, að vissu leyti er þetta svolít- ið ógnvænlegt. En við erum mjög heppnir að vera komnir í samstarf með Fat Cat því þeir eru á sömu bylgjulengd og við sem ég held að sé frekar óvenjulegt í þessum bransa þar sem allt snýst um pen- inga og stjórnendur fyrii’tækjanna eru harðir viðskiptamenn. Þeir í Fat Cat eru miklir tónlistarvinir og eru heiðarlegir. Það hentar mér illa að vera of mikið að spá í viðskipti því þau eru svo mikil orkusuga." Vé á Vestljörðum - Nú frétti ég að það stæði til að taka upp lag í rafmagnslausum bragga á Vestfjörðum. Erþað ekki tóm della? „Já, heyrðirðu það einhvers stað- ar,“ segir Jónsi og hlær. „Við eig- um okkur draum, en það er bara draumur, um að taka upp lag í Fljótavík. Þegar við vorum í ferða- laginu í sumar vorum við þar í tvo daga og vorum að veiða og höggva niður rekavið í eldinn eins og sann- ir villimenn. Hinum megin við fjörðinn er fja.ll og yfirgefnar her- stöðvarbyggingar og okkur langar rosalega til að fara þangað og taka upp. Slá upp tjaldbúðum á fjallinu og vera þarna í svolítinn tíma. En þá þyrfti að flytja ansi marga hluti með þyrlu, svo þetta gæti orðið erf- itt.“ Jónsi bætir við að þeir hafí fund- ið það í stúdíóinu í London að að- stæðurnar áttu ekki við þá. „Maður nær ekki alveg andanum þarna. Við þurfum stærra rými og meiri víðáttu." - Og framtíðin? „Hún kemur bara í ljós.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.