Morgunblaðið - 05.11.1999, Page 6

Morgunblaðið - 05.11.1999, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999______________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formennskutímabili Islands 1 Evrópuráðinu lokið Rætt um stöðugleikasátt- mála Suðaustur-Evrópu ÞATTTAKA Evrópuráðsins í stöð- ugleikasáttmála fyrir Suðaustur- Evrópu var helsta umræðuefni ut- anríkisráðherrafundar Evrópuráðs- ins, sem haldinn var í Strassborg í Frakklandi í gær. Halldór Asgríms- son utanríkisráðherra og formaður ráðsins stýrði fundinum, sem jafn- framt var síðasti fundurinn á for- mennskutímabili íslands í ráðhen-a- nefnd Evrópuráðsins en eftir fund- inn tók Irland við formennsku í nefndinni. Utanríkisráðherra áréttaði á fundinum mikilvægi Evrópuráðsins við að tryggja varðveislu mannrétt- inda, eflingu lýðræðis og réttarríkis á svæðinu. Að hans mati hefur Evr- ópuráðið mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingarstarfí í Kosovo við eflingu mannréttinda og lýðræðisþróunar í nánu samstarfi við stofnanir á borð við Evrópusam- bandið og Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu, segir í frétt frá ut- anríkisráðuneytinu. Sérstakir samráðsfundir Evrópu- ráðsins með ESB og ÖSE hafí verið haldnir í formennskutíð íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins um samstarf stofnananna. Utanríkisráð- herramir áréttuðu mikilvægi þess að Sambandsríki Júgóslavíu og Hvíta- Rússland virtu grundvaUarreglur mannréttinda, lýðræðis og réttarrík- isins. Umsóknir beggja þessara ríkja Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra fslands og formaður ráðherra- nefndar Evrópuráðsins, stýrði síðasta fundi ráðsins á formennsku- tímabili Islands ásamt David Andrews, utanríkisráðherra Irlands, sem tekinn er við formennskunni. um aðild að Evrópuráðinu hafa veríð lagðar til hliðar vegna stjómmálaá- stands í þeim. A fundinum greindi utanríkisráð- herra frá niðurstöðum óformlegs fundar utanríkisráðherranna með Bemhai'd Kouchner, sérstökum full- trúa Sameinuðu þjóðanna í Kosovo og í lok fundarins ræddu ráðherr- amir um ástandið í Tsjetsjníu. Utanríkisráðherra sat einnig samráðsfund ráðherranefndar Evr- ópuráðsins og Evrópuráðsþingsins, þar sem aðallega var rætt um stöð- ugleikasáttmálann fyrir Suðaustur- Evrópu. A fundinum greindi utan- ríkisráðherra jafnframt frá heim- sókn sinni og Walters Schwimmers, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, til Úkraínu 18.-19. október sl. Þá átti ráðherra einnig tvíhliða fundi með David Andrews, utanríkisráð- herra Irlands, Borys Tarasyuk, ut- anríkisráðherra Úkraínu, og Mihai- Razvan, varautanríkisráðherra Rúmeníu. Forseti íslands flutti fyrirlestur við Brown-háskóla í Bandaríkjunum Samvinna landa á norðursvæðinu mikilvæg ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Islands, flutti í gær hinn ár- lega Odgen-fyrirlestur um al- þjóðamál við Brown-háskólann í Bandaríkjunum og bar fyrirlest- urinn heitið: Norðursvæðin: Ný vídd í alþjóðatengslum. Til norð- ursvæðisins teljast ekki einungis Norðurlöndin heldur einnig Eystrasaltsríkin þrjú, norðvest- urhluti Rússlands og austurfylki Kanada. I fyrirlestrinum lýsti Ólafur Ragnar því m.a. hvaða áhrif lok kalda stríðsins hefðu haft á hið pólitíska og efnahagslega lands- lag norðursvæðisins; hvernig lok kalda strfðsins hefðu fært löndin á norðursvæðinu í lykil stöðu á alþjóðlegum vettvangi og á hvern hátt svæðið gæti átt þátt í að tryggja árangur og stöðug- leika nýrrar Evrópu og sam- skipta Rússlands og Bandarfkj- anna. Ólafur Ragnar benti á að sjálfstæði Eystrasaltslandanna þriggja hefði eftir kalda stríðið skapað mikilvæg tækifæri til aukinnar samvinnu milli Norð- urlandanna annars vegar og Eystrasaltslandanna hins vegar og sagði að öll þessi lönd gætu myndað sterka blokk sem gæti staðið þétt saman á alþjóðlegum vettvangi. Löndin væru ekki aðeins sterk saman vegna hins mikla sam- starfs og trausts sem þau bæru hvert til annars heldur einnig vegna þess að þau væru á víxl í ýmsum ríkjabandalögum. Sum Hæstiréttur dæmir í máli fyrrverandi starfsmanns FBA Fékk 300 þús- und krónur í miskabætur HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Fjárfestingarbanka atvinnulífsins til að gi'eiða fyrrverandi starfs- manni miskabætur í kjölfar starfs- lokasamnings hans hjá bankanum. Hæstiréttur taldi bankann hafa gengið lengra í ávirðingum í garð mannsins en bankanum var stætt á í bréfi til Ríkisendurskoðunar, sem dreift var til nokkurs fjölda manna, þegar þeir fullyrtu að tapið sem varð, væri honum einum að kenna. Maðurinn var starfsmaður Fisk- veiðasjóðs Islands, sem var einn þeirra fjárfestingarlánasjóða sem sameinuðust í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins í ársbyrjun 1998. Eft- ir sameininguna kom í ljós að í gögnum um gjaldeyrisstöðu Fisk- veiðasjóðs voru mistök, sem færð- ust inn í gögn FBA, og tapaði bank- inn talsverðu fé af þeim sökum. Það tap nam um 48 milljónum króna að mati FBA. Launamunur ekki bættur Stjómendur FBA töldu manninn bera ábyrgð á mistökunum og gáfu honum kost á að láta af störfum hjá bankanum með þeim kjörum sem ráðningarsamningur hans tryggði honum. Maðurinn féllst á það, en hélt því fram að í framhaldi af starfslokum hans hefði bankinn dreift röngum ásökunum um að hann hefði gefíð rangar upplýsingar um gjaldeyrisjöfnuð Fiskveiðasjóðs. Þessar ásakanir hefðu gert honum ókleift að fá starf við sitt hæfi. Hæstiréttur segir ósannað að ósk stjómenda FBA um að maðurinn léti þar af störfum hafi valdið hon- um frekari erfiðleikum við að finna sér nýtt starf en hann mátti búast við að því athuguðu að starfslok hans stöfuðu af mistökum sem hann bar a.m.k. að hluta ábyrgð á. Á hinn bóginn telur Hæstiréttur að stjórn- endur bankans hafi gengið lengi'a í ávirðingum í garð mannsins en þeim var stætt á í bréfi til Ríkisend- urskoðunar, sem dreift var til nokk- urs fjölda manna, þegar þeh' full- yrtu að tapið sem varð, væri honum einum að kenna. Maðurinn krafðist þess að fá rúmar 43 milljónir í bætur vegna mismunar þeirra launa, sem hann hefur í núverandi starfi og þeirra sem hann hafði hjá FBA, en Hæsti- réttur telur að vegna gagnkvæmrai' og skiiyrðislausrar heimildar til uppsagnar í ráðningarsamningi hans hafi hann ekki mátt treysta því að geta gegnt áfram störfum hjá stefnda um ókominn tíma. Hins vegar telur Hæstiréttur ástæðu til að greiða manninum miskabætur, en ekki 5 milljónir eins og hann fór fram á. „Með forsendum þessa dóms út af fyrir sig hefur hlutur áfrýjanda verið réttur eftir því, sem efni málsins standa til,“ segir Hæstiréttur og dæmir honum 300 þúsund krónur í miskabætur. væru til dæmis í Atlantshafs- bandalaginu og önnur í Evrópu- sambandinu. í máli Ólafs Ragnars kom auk- inheldur fram hve hann teldi samstarf ríkjanna á Norðursvæð- inu mikilvægt og sagði m.a. að samvinna þeirra á sviði efnahags, vísinda og menningar gæti enn frekar orðið til þess að bæta skilning mannsins á mikilvægum hnattrænum vandamálum á borð við loftslagsbreytingar. í dag hefst í Brown-háskólan- um íslensk-baltnesk tónlistarhá- tíð, þar sem Baltneska fflharm- ónían mun undir stjórn Guð- mundar Emilssonar fiytja þrjú ís- lensk verk og verður forseti Is- lands viðstaddur tónleika hátíð- arinnar í kvöld. Athugasemd skólameistara FB Ekki um fjár- drátt að ræða SKÓLAMEISTARI Fjölbrauta- skólans í Breiðholti, Kristín Arn- alds, hefur sent frá sér athuga- semd vegna fréttar í Morgun- blaðinu í gær um athugasemdir Ríkisendurskoðunar varðandi írágang bókhalds Fjölbrauta- skólans í Breiðholti. „Komið hefur í ljós óreiða í bókhaldi Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem rakin er til starfa fyrrverandi fjármálastjóra skól- ans. Honum var gefinn kostur á að segja upp störfum sem hann og gerði. Ekki hefur komið fram að um fjárdrátt hafi verið að ræða. Núverandi fjármálastjóri vinnur nú í góðri samvinnu við Ríkisendurskoðun að því að greiða úr bókhaldi skólans og er stefnt að því að niðurstöður liggi fyrir sem fyrst.“ MAKING FACES KEVYN AUCOIN Frábær bók um andlits- förðun. Nýjar og spenn- andi teiðir tit aó líta enn betur út. 2.595 íkr. Ævisaga Einars The Conran Octopus Benediktssonar, Decorating Book II. bindi Nýjar erlendar bækur daglega Þegar Suðurland sökk Breskur kafbátur missti hlustunarkapal w Eyniundsson Austurstræti • Kringlunni TÆPUM 13 árum eftir að flutn- ingaskipið Suðurland fórst 290 sjó- mílur norðaustur af íslandi hefur breska vamarmálaráðuneytið stað- fest að sökkvandi íslenskt skip hafi orðið til þess árið 1986 að einn af kaf- bátum breska sjóhersins missti hlustunarkapal sinn í Atlantshafið. Þetta kemur m.a. fram í nýrri bók Óttars Sveinssonar, Útkall í Atlants- hafi ájólanótt. Fram kemur að í frétt breska blaðsins The Mail on Sunday í byij- un árs 1987 hafi verið sagt frá því að breskur kjamorkukafbátur, sem hafi flækt kapal sinn í Suðurlandi hafi heitið Splendid. í svari yfirlautinants hjá breska vamarmálaráðuneytinu til Óttars um það hvort frétt The Mail on Sunday frá því í byijun árs 1987 hafi verið rétt segir: „Sagan er eins og hún var prentuð í þessu dag- blaði. Við ræðum hins vegar ekki að- gerðir kafbáta, hvorki í fortíð, nútíð né framtíð, af öryggisástæðum. En það varð atburður á þessum slóðum á þessum tíma þar sem einn kafbáta okkar var staddur og íslenskt flutn- ingaskip var að sökkva. Þetta varð svo til þess að hlustunarkapall kaf- bátsins glataðist. í blaðagreininni var farið rétt með staðreyndir. En ég get ekki rætt hvers vegna kafbát- urinn var á þessum stað þótt hann hafi tekið þátt í aðgerðum þarna. Það gerist ekki oft að kafbátar missi hlustunarkapal. En slíkir atburðir eiga sér þó stað.“ Leikskóla- gjöld í Reykjavík hækka ÚTLIT er fyrir að leikskólagjöld í Reykjavík hækki um ellefu prósent ef tillaga, sem lögð var fram utan dagskrár á fundi borgarráðs á þriðjudag, nær fram að ganga. Til- lögunni var frestað þar en kom til umræðu á borgarstjómarfundi í gærkvöldi. Kristín Blöndal, formaður leik- skólaráðs, segir að starfsáætlun leikskóla Reykjavíkur fyrir næsta ár geri ráð fyrir 3,5 prósenta hækk- un leikskólagjalda en ljóst sé að til þess að ná fram þeirri 70 milljóna króna aukningu á rekstrarfé leik- skólanna sem tillagan er lögð var fyrir borgarráð gerir ráð fyrir þurfí að hækka gjöldin um 7,5 prósent til viðbótar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.