Morgunblaðið - 05.11.1999, Page 8

Morgunblaðið - 05.11.1999, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR 21% hækkun hjá«i forsætisráðherra ^ || Ijan tr lan«- . i . I I fhfWHI ' |jl I Grunaði ekki Gvend, bara verið að þróa nýtt samband við kauða. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Gönguferð í góða veðrinu Á FALLEGUM haustdögum er gaman að fara út að ganga, en það gerðu einmitt börnin á Bangsadeildinni í leikskólanum Heklukoti á Hellu einn góðviðr- isdaginn fyrir stuttu. Þau voru öll þæg og góð þegar fréttarit- ari rakst á þau á förnum vegi, ásamt Guðlaugu Sæmundsdóttur starfsstúlku og Guðbjörgu Is- leifsdóttur leikskólakennara í Heklukoti. Of fáir útskrifast úr leikskólakennaranámi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá foreldra- og starfsmannafélagi leikskólan? Sól- borgar: „Sú staða sem uppi er í starfs- mannamálum í leikskólum í dag er áhyggjuefni. Að leikskólar barnanna séu fullmannaðir menntuðu og reyndu starfsfólki hlýtur að vera kappsmál okkar foreldra og metnað- armál sveitaifélaga sem að rekstri leikskóla standa. Nokkuð hefur verið rætt um að lág laun starfsfólks í leik- skólum fæli fólk fró störfum þar og góðæri í þjóðfélaginu dragi til sín starfsfólkið og á það eflaust við rök að styðjast. Hins vegar er hluti vandamálsins einnig sá að of fáir út- skrifast úr leikskólakennaranámi til að standa undir starfsmannaþörf leikskólanna. Það er að hluta til vegna fjárskorts til reksturs skólans og hið sama á reyndar einnig við um mönnun grunnskólanna og kennara- nám. Því er þetta ekki eingöngu vandamál sveitaifélaga heldur einnig ríkisins. Lengi býr að fyrstu gerð, því skal til hennar vandað. Uppeldi og menntun bama okkar er grundvöllur fyrir því samfélagi sem við viljum sjá í framtíðinni. Foreldrar leikskóla- barna er fjölmennur hópur sem alltof lítið hefur kvatt sér hljóðs. Látum í okkur heyra um þessi mál, styðjum við áralanga baráttu leikskólakenn- ara og annars starfsfólks leikskól- anna fyrir velmenntuðu og reyndu starfsfólki í hverju rúmi - ekkert minna dugar fyrir börnin okkar.“ Nýr rektor við Skálholtsskóla Lifandi tengsl við söguna! ANN 1. nóvember sl. tók dr. Pétur Pétursson, pró- fessor í kennimannlegri guðfræði við Háskóla Is- lands, við starfi rekstors í Skálholti og mun hann gegna því í leyfi séra Kri- stjáns Vals Ingólfssonar til ársloka árið 2000. Skyldu vera einhverjar nýjungar á döfinni í starfsemi Skálholts- skóla? ,;I bígerð er að Háskóli Islands fái fræðimanns- setur í Skálholti þar sem starfsmenn Háskólans geta dvalið við fræða- störf og nýtt þá aðstöðu sem er á staðnum, svo sem tölvukost, bókasafn og það næði sem þar gefst til einbeitingar og endurnýjunar. Ymislegt annað er á döfinni; námskeið um Jobsbók og mann- lega þjáningu, málþing um bók- menntir, þar á meðal um Is- landsklukkuna eftir Halldór Laxness, myndlistarsýningar, námskeið í íkonamálun, þá eru uppi áform um málþing um mannvirki, náttúru, mannvernd og umhverfi. Þess má geta að Skálholtsskóli kemur að mennt- un verðandi presta með starfs- þjálfun og stefnt er að því að efla endurmenntun presta og annars starfsfólks kirkjunnar. - Er hið nýja starf mjög ólíkt stiirfíþínu við Háskóla Islands? „Þetta er nákvæmlega á sama sviði, á sviði praktískrar guð- fræði sem fjallar um tengsl kirkjunnar og kirkjulegi'ar þjónustu við þjóðfélagið, menn- inguna og fólk við hinar ýmsu aðstæður, það má nefna predik- unarfræði, sálgæslu, félagsfræði og uppeldis- og kennslufræði. Innihaldið er nánast það sama en hér er ég meira við að skipu- leggja þessi tengsl og reyna að móta þau. Enda stendur í lögum um Skálholtsskóla að markmið hans sé að stuðla að sem víð- tækustu áhrifum kristinnar trú- ar og kristinnar menningar í ís- lensku þjóðlífi. Skólinn starfar á grunni fornar skólahefðar í Skálholti og norrænnar lýðhá- skólahefðar og til þess að þess- um markmiðum verði náð verða störf skólans að laga sig að bæði hefðinni og þeim aðstæðum sem eru uppi í nútíma samfélagi. Það er líka mikilvægt að ólíkir hópar og samtök finnist þeir eiga er- indi hingað í Skálholt og finni að þessi sterka hefð og saga sem hér er lifandi tali til þeirra. Það er mjög spennandi fyrir rektor skólans að skapa þessi tengsl og í því sambandi má nefna að skólinn starfar á þremur svið- um, þ.e. fræðslusviði, fræðisviði og kirkju- tónlistarsviði. Starf- semin á tónlistarsvið- inu hefur tekist af- skaplega vel hér í Skálholti með sumar- tónleikunum sem orðinn er hefðbundinn liður í starfi skól- ans. En á guðfræði- og fræðslu- sviðinu blasa verkefnin við vegna þess að þó að við búum við ríka kirkjulega hefð og kristnin sé sterkur liður í ís- lenskri menningu þá er þekk- ingin á kristinni trú og guðfræði mjög ábótavant í dag. Það má nefna að það er mikil vöntun í skólakerfinu að ekki sé sinnt kristnifræði og trúarbragða- ►Pétur Pétursson er fæddur 1950 á Akureyri og þar tók hann stúdentspróf 1970. Hann hefur um árabil starfað sem háskólakennari í Svíþjóð og við Háskóla íslands. Hann er bæði guðfræðingur og fé- lagsfræðingur að mennt og hefur skrifað bækur og fjölda ritgerða einkum á sviði nú- tíma kirkjusögu sem birst hafa hér heima og erlendis. Pétur á tvö börn og tvö fóst- urbörn frá fyrra hjónabandi en unnusta hans er Ragnheið- ur Kr. Þorláksdóttir, starfs- maður Sögufélagsins, og á hún eina dóttur. fræði í framhaldsskólum lands- ins. Þarna þarf að efla starf skólans með námskeiða- og ráð- stefnuhaldi sem er miðað við þarftr hinna ýmsu hópa.“ - Hefur þú komið að svona starfi erlendis? „Eg hef aldrei komið svona beint að stjórnun en tekið þátt í ýmsum rannsóknarverkefnum og stjórn þeirra, ekki síst sam- norrænum rannsóknarverkefn- um. Eg hef verið forseti guð- fræðideildar HÍ í tvö ár og í Sví- þjóð var ég aðstoðarkennari við félagsvísindadeildina og dósent við guðfræðideild Háskólans í Lundi og hef tekið þátt í ráð- stefnum og rannsóknarverkefn- um þar og sjálfur skipulagt nokkrar ráðstefnur á sviði trú- arlífsfélagsfræði og kennimann- legrar guðfræði." - Hvaða munur er á kenni- mannlegri guðfræði og annarri guðfræði? „Kennimannleg guðfræði er ein grein guðfræðinnar og hún sam- anstendur af fjölda undirgreina sem eiga það sameiginlegt að fjalla um starf kirkjunnar í þjóð- félaginu og tengsl hennar. Þar má nefna eins ólíkar greinar og kirkjurétt og sálgæslu sem dæmi.“ - Er starfsemin í Skálholti vinsæl? „Já, hún er það. Hingað kemur fjöldi fólks, bæði ferðahóp- ar og fólk sem sækir ráðstefnur og fundi, helgihald og tónleika. Eg hef ekki orðið var við neinn sem ekki finnur þá sérstöku stemmningu sem hér ríkir. Hér í Skálholti er maður kominn í bein tengsl við söguna sem er afskaplega ríkur þáttur í sam- kennd okkar íslendinga. Hér er einstakt tækifæri til þess að gera þessa merku sögu sem kristnin er á þessu landi lifandi í nútímalegu þjóðfélagi.“ guð- I Skálholti er sérstök stemmning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.