Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Ný verðbólfflispá íslandsbanka F&M
Spáir 5,3% verð-
bólgu yfír þetta ár
ÍSLANDSBANKI F&M spáir 5,3%
verðbólgu yfir þetta ár og 3,2% milli
ársmeðaltala 1998 og 1999. Þetta er
nokkuð meiri hækkun yfir árið en
spá Seðlabankans frá 25. október
gerir ráð fyrir. Þar er spáð 4,6%
hækkun yfir árið og 3,3% hækkun á
milli ársmeðaltala.
í verðbólguspá íslandsbanka
F&M segir að munurinn felist í sér-
stökum áhrifum vegna árstíðabund-
inna þátta. Næsta mánuð spáir
íslandsbanki F&M 0,2% hækkun
neysluverðsvísitölunnar. Lækkun
bensíngjalds í október leiðir til róm-
lega 0,1% lækkunar vísitölunnar og
einnig má búast við árstíðabundinni
lækkun á grænmeti. Gert er ráð fyr-
ir einhverri hækkun húsnæðisverðs.
Að auki er gert ráð fyrir að fast-
eignagjöld hækki umtalsvert í jan-
úar á næsta ári.
A næsta ári gerir Islandsbanki
F&M ráð fyrir 3,0% hækkun
neysluverðsvísitölunnar yfir árið og
4,6% hækkun milli ársmeðaltala
1999 og 2000. Seðlabankinn gerir
ráð fyrir 3,7% hækkun frá upphafi
til loka næsta árs og 4,1% hækkun
milli ársmeðaltala 1999 og 2000.
í spánni er gert ráð fyrir óbreyttu
innflutningsgengi og gert er ráð fyr-
ir 2,0% launaskriði á þessu og næsta
ári. Framleiðniaukning er áætluð
2,5% á þessu ári og 2,0% á því
næsta, í samræmi við spá Þjóðhags-
stofnunar.
„I kjölfar væntinga um hækkandi
hrávöruverð er gert ráð fyrir að er-
lent verðlag hækki um 2,5% á þessu
ári. Sérstökum árstíðabundnum
áhrifum er bætt við. Krónan hefur
styrkst nokkuð frá því Seðlabank-
inn hækkaði vexti í september síð-
astliðnum. Sú styrking ætti að skila
sér í lækkun innflutningsverðs. Svo
virðist sem vilji Seðlabanka og
stjómvalda sé á þá leið að stuðla að
sterkri krónu á meðan verðbólgu-
þrýstingur er enn til staðar. Stærsti
óvissuþátturinn varðandi verðlag á
komandi mánuðum er niðurstaða
kjarasamninga í byrjun næsta árs,“
segir í verðbólguspá F&M.
Meira úrval - betrikaup
Erlendar
skuldir 42
Morgunblaöiö/Kristmn
Geir H. Haarde fjármálaráðherra ávarpar þingfulltrúa við setningu
ársþings samtaka evrópskra útflutningsráða.
✓
Arsþing ETPO haldið hár á landi
Nýtt hlutverk í alþjóð-
legu viðskiptaumhverfí
Á ÁRSÞINGI samtaka evrópskra
útflutningsráða, ETPO, sem_ nú er
haldið hér á landi á vegum Útflutn-
ingsráðs Islands, eru meginmálefnin
af þrennum toga. Rætt er um breyt-
ingal• á skipulagi útflutningsráðanna,
áhrif upplýsingatækni á starfsemi
ráðanna og nýtt hlutverk útflutn-
ingsráða í alþjóðlegu viðskiptaum-
hverfi.Samtökln hafa starfað í 40 ár
og vinna að ýmsum framfaramálum
fyrir aðildarfélögin sem eru frá 28
þjóðlöndum og hagsmunagæslu þar
sem við á.
Ársþingið hófst í gærmorgun með
ávarpi Geirs H. Haarde fjármálaráð-
herra, en meðal ræðumanna á þing-
inu eru Sir David Wright, forstjóri
British Trade Intemational, Patrick
Maher, forstjóri Enterprise Ireland,
Gunter Graf, aðstoðarforstjóri
Austrian Federal Economic Cham-
ber of Commerce, og Torger Reve,
rektor Viðskiptaháskólans í Osló.
milljarðar
HEILDARSKULDIR sjávarút-
vegsfyrirtækja sem skráð eru á
Verðbréfaþingi íslands í erlendum
gjaldmiðlum nema um 42 milljörð-
um króna. Af einstökum myntum
eru fyrirtæki skuldsettust í banda-
ríkjadollurum og er hlutfall þeirra af
heildarskuldum um 20%. Evrópum-
yntir em einnig sterkar og er hlut-
fall þeirra um 23% og skuldir í jap-
önskum jenum eru um 18% af
heildarskuldum. Heildarskuldir í
reiknuðum einingum Fiskveiða-
sjóðs/FBA eru um 10,5% af heildar-
skuldum í erlendum myntum. Þetta
kemur fram í nýrri sjávarútvegs-
greiningu Kaupþings hf.
Fram kemur að erlendar skuldir
sjávarútvegsfyrirtækja hafi almennt
lækkað á árinu að undanskildum
skuldum í jenum. Skuldii' í banda-
ríkjadollurum hafa lækkað um nær
400 milljónir króna frá milliuppgjöri
og skuldir í Evrópumyntum hafa
lækkað um 260 milljónir króna.
Skuldir í jenum hafa aftur á móti
hækkað um 800 milljónir króna, en
fremur litlar breytingar hafa orðið á
öðrum gjaldmiðlum.
Information Management aðstoðar fyrirtæki
við upplýsingastj órnun
Nýting á þeim hug-
búnaði sem fyrir er
Morgunblaöiö/Sverrir
Ragnar Bjartmarz, framkvæmdastjóri IM: „Við byggjum ráðgjöf
okkar á að nýta þær upplýsingar sem eru til í fyrirtækjum."
MARKMIÐ nýstofnaðs íslensks
ráðgjafarfyrirtækis, Information
Management, er að aðstoða fyrir-
tæki við að ná utan um upplýsing-
ar í sínu starfsumhverfi með hug-
búnaði sem er fyrir hendi í
fyrirtækjunum. Starfsmenn IM
hafa m.a. hannað svokallað stjórn-
borð þar sem upplýsingar úr
mörgum mismunandi kerfum
verða aðgengilegar á einum stað.
Ragnar Bjartmarz er fram-
kvæmdastjóri IM. Hann hefur
M.Sc.-próf í tölvuverkfræði og hef-
ur unnið innanlands og erlendis við
stjórnun og ráðgjöf frá árinu 1988.
I mars á síðasta ári setti Ragnar á
fót ráðgjafarfyrirtæki og upp úr
því var IM stofnað. Starfsmenn
IM eru nú fjórir en viðræður
standa yfir um ráðningu fjögurra
til viðbótar. Ragnar segir að vænta
megi að innan tveggja ára verði
30-50 manns starfandi hjá fyrir-
tækinu.
„Miðað við þær móttökur sem
við höfum fengið hér á landi og er-
lendis er þörf fyrir þjónustu af
þessu tagi,“ segir Ragnar. IM hef-
ur þegar fengið verkefni erlendis
fyrir um 40 milljónir að sögn
Ragnars en stefnan er að helming-
ur verkefna fyrirtækisins verði er-
lendis og helmingur innanlands.
Hlutfallið er nú 80% verkefna er-
lendis og 20% á íslandi. Um er að
ræða samninga við framleiðslufyr-
irtæki í Danmörku, Þýskalandi og
á Grænlandi.
„Það má segja að við höfum far-
ið aðrar leiðir en flest önnur ís-
lensk fyrirtæki þar sem við byrj-
uðum á að selja þekkingu erlendis
en færum okkur svo til Islands.
Mörg fyrirtæki fara þá leið að
prófa vöru á heimamarkaði og fara
svo að flytja út,“ segir Ragnar.
Markmið IM er vöxtur starfsem-
innar á íslandi á næstunni og að í
framhaldinu verði skrifstofur opn-
aðar í Svíþjóð og Danmörku.
Stjórnborð sem hnýtir
saman upplýsingar
IM leggur áherslu á að nota
þekktan hugbúnað sem er fyrir
hendi í mörgum fyrirtækjum. „Við
notum Office-pakka Microsoft, auk
Outlook, en þetta er hugbúnaður
sem flestir þekkja að einhverju
leyti,“ segir Ragnar. „Einfaldleik-
inn felst í því að nýta þann hug-
búnað sem þegar er til staðar í fyr-
irtækjum og gera upplýsingar sem
fyrir liggja aðgengilegri fyrir alla.“
Ragnar segir starfsmenn IM
byrja á því að greina þarfir fyrir-
tækja og athuga hvað er fyrir
hendi. „Við höfum hannað svokall-
að stjórnborð sem hnýtir saman
upplýsingar sem til eru á mismun-
andi stöðum innan fyrirtækis. Við
skilgreinum þarfir hvers starfs-
manns í samráði við stjórnendur
og hönnum stjórnborð í samræmi
við það. Upplýsingar sem viðkom-
andi leitar koma þá í ljós með ein-
um músarsmelli eða þeim skýtur
einfaldlega upp á skjánum," segir
Ragnar. Hann leggur áherslu á að
með þessu móti verði upplýsinga-
notkun og dagleg starfsemi fyrir-
tækja einfaldari í sniðum. IM veit-
ir einnig ráðgjöf varðandi val og
samþættingu viðskiptakerfa og
Microsoft-hugbúnaðar.
IM er nú í meirihlutaeigu Ragn-
ars en starfsmenn fyrirtækisins,
Heimir Fannar Gunnlaugsson,
Sigurður Hilmarsson og Orn
Kristinsson, eiga einnig hluta af
því. „Þeim starfsmönnum sem
ganga til liðs við okkur verður
einnig boðið að kaupa hlutabréf í
fyrirtækinu á góðum kjörum,“ seg-
ir Ragnar. „IM er þekkingarfyrir-
tæki sem byggist alfarið á starfs-
mönnunum og því að selja
þekkinguna. Ég held að þetta sé
jákvætt fyrir fyrirtækið. Lykill að
okkar velgengni er að við myndum
öflug og traust lið og í áframhald-
andi uppbyggingu fyrirtækisins
mun styrkur liðsheildarinnar
skipta miklu máli.“ I undirbúningi
er að leita til fjárfesta um að koma
inn í fyrirtækið, að sögn Ragnars.
„Það er æskilegt til að við eigum
möguleika á að stækka hraðar. Við
höfum farið mjög rólega af stað á
meðan við höfum verið að byggja
upp sérsvið okkar og fá tilfinningu
fyrir markaðnum og traust á hon-
um. Viðræður við fjárfesta eru í
undirbúningi og ekkert sem liggur
fyrir í þeim efnum,“ segir Ragnar.