Morgunblaðið - 05.11.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 25
Umhverfisráðstefna í Gæðaviku Gæðastjórnunarfélags Islands
Markaðsöflin
drifkraftur um-
hverfísstarfs
MARKMIÐ umhverfis-
ráðstefnu sem haldin
verður 10. nóvember
er að vekja athygli ís-
lenskra fyrirtækja á þeim marg-
víslega ávinningi sem felst í mark-
vissu umhverfisstarfi, að sögn
Birnu Helgadóttur, fulltrúa Flögu
í samráðshópi um undirbúning
ráðstefnunnar.
Ráðstefnan er haldin á vegum
Gæðastjórnunarfélags íslands í
Gæðaviku sem stendur frá 9. til 12.
nóvember nk% Auk fulltrúa frá
Flögu og GSFI eru í hópnum full-
trúar frá Landvernd, Iðntækni-
stofnun, Staðlaráði Islands og Um-
hverfísverndarsamtökum íslands.
ímynd batnar við markvisst
umhverfisstarf
5-6 árum á eftir fyrirtækjum ím-
örgum Evrópulöndum," segir
Birna. „En það er mikið að gerast
hér, áhuginn er mikill. Island hef-
ur þá ímynd að vera umhverfis-
vænt. Möguleikar íslenskra fyrir-
tækja til að nýta sér
umhverfisstarf sitt í markaðssetn-
ingu eru þess vegna meiri en ann-
arra fyrirtækja."
Hvað varðar umhverfisstarf hjá
Flögu segir Birna umhverfismálin
alltaf hafa verið mikilvæg fyrir
Flögu. „En nú viljum við fara að
vinna markvissar með þessi mál en
við höfum hingað til gert. Þess
vegna er ætlunin að taka upp um-
hverfisstjórnunarkerfi sem verður
samhæft gæðakerfi okkar. Við vilj-
Morgunblaöið/Golli
Bima Helgadóttir, umhverfisráðgjafi Flögu hf. „Umhverfisstarf er ekki bara góðgerðarstarfsemi heldur fel-
ast í því nýir markaðslegir möguleikar"
um hafa umhverfismálin í lagi eins að geta veitt viðskiptavinum og umhverfismálum og tryggja að
og annað í fyrirtækinu," segir eftirlitsaðilum upplýsingar um þá fyrirtækið uppfylli lög og reglur
Birna. Hún segir einnig mikilvægt þætti starfseminnar sem snúa að þar að lútandi.
Birna er umhverfisfræðingur
frá Gautaborgarháskóla. Hún hef-
ur starfað við umhverfisráðgjöf í
Svíþjóð en vinnur nú tímabundið
hjá Flögu hf., m.a. við að búa fyrir-
tækið undir að taka upp umhverf-
isstaðalinn ISO 14001. Birna segir
mikið að gerast í umhverfismálum
erlendis. „Fjöldi fyrirtækja sem
taka upp vottað umhverfisstjórn-
unarkerfi samkvæmt ISO 14001
vex mjög ört og hefur margfaldast
á milli ára síðan staðallinn kom ár-
ið 1996. Astæða þess er m.a. að fyr-
irtæki hafa séð viðskiptalegan áv-
inning af því að vinna markvisst í
umhverfismálum. Imynd þeirra
batnar út á við og í mörgum tilvik-
um hefur þetta styrkt samkeppnis-
stöðu þeirra," segir Birna. Hún
nefnir einnig að viðhorf almenn-
ings til umhverfismála hafi breyst
mikið að undanförnu og endur-
speglist í auknum væntingum og
kröfum viðskiptavina og fjárfesta.
„Einnig má nefna að bankar og
tryggingafélög eru farin að taka
mið af umhverfisstarfi fyrirtækja
við mat á lánstrausti og iðgjöld-
um,“ segir Birna.
Sem dæmi um sparnað fyrir-
tækja af umhverfisstarfi nefnir
Birna SAS-flugfélagið sem sparaði
einn milljarð á þremur árum við
það að minnka efnanotkun, minnka
vatnsnotkun og flokka sorp betur.
„Umhverfisstarf er því ekki
lengur bara góðgerðarstarfsemi
heldur felast í því nýir markað-
slegir möguleikar," segir Birna.
Hreinn gróði: Umhverfis
stjórnun fyrirtækja
Umhverfisráðstefnan hinn 10.
nóvember ber yfirskriftina Hreinn
gróði: Umhverfisstjórnun fyrir-
tækja.
Meðal annarra mun sænskur
markaðs- og umhverfisráðgjafi,
Magnus Ruberg, halda erindi um
markaðsöfl sem drifkraft umhverf-
isstarfs hjá fyrirtækjum. „Magnus
hefur mikla reynslu á þessu sviði
og mun nefna mörg dæmi úr starfi
sínu um það hvernig umhverfis-
starf getur styrkt markaðsstöðu
og leitt til sparnaðar hjá fyrirtækj-
um. Þess má geta að Magnus hefur
óvenjulegan bakgrunn þar sem
hann vann í 15 ár við markaðsmál
og auglýsingagerð. áður en hann
sneri sér að markaðs- og umhverf-
isráðgjöf," segir Birna.
Fulltrúar nokkurra íslenskra
fyrirtækja munu halda erindi og
lýsa reynslu sinni af umhverfis-
starfi. Einnig mun fulltrúi frá um-
hverfisráðuneyti fjalla um hlut-
verk stjórnvalda í umhverfisstarfi
og auknar kröfur frá öðrum lönd-
um.
„Miðað við önnur lönd er um-
hverfisstarf íslenskra fyrirtækja
INNLaUSN
í dag er innlausn
Ecu-tengdra
spariskírteina í
1.FL.D 1994-5 ár.
Lokagjalddagi Ecu-tengdra spariskírteiiia ríkissjóðs í í .fl.D 1994-
5 ár (RS99-1105/KX) er idagfostudaginn5. nóvemberi999.
Eigendum þessara skírteina er boðið að innleysa skírteinin
hjá Lánasýslu ríkisins. Innlausnarverð er áætlað 134.000 kr.
fyrir 100.000 kr. skárteini að nafnverði.
Atímabilinu 5.-19. nóvember er einstaklingom sem eiga
þessi skírteini boðið að skipta þeimyfir i ný ríkisverðbréf.
Vaxtakjör taka mið af daglegum markaðskjörum.
Afgreiðsla spariskírteina og ríkisvíxla með skiptikjörum fer
aðeins fram hjá Lánasýslu rikisins en áskilinn er réttur til að
takmarka hámarksfjárhæð á skiptum fyrir hvem einstakan aðila.
Starfsfólk Lánasýslunnar er reiðubúið að aðstoða á allan hátt
við innlausn þessara spariskírteina.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 6040 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is