Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/KVM
Pálmar Einarsson byggingameistari og starfsmenn hans sjá um uppsetningu hússins.
Stækkun hjá Láka ehf.
HÚSNÆÐI fiskvmnslufyrirtaekis-
ins Láka ehf. í Grundarfirði hefur
verið stækkað um helming eða
100%, sé miðað við fyrri stærð.
Vinnsluplássið sjálft hefur verið
stækkað mun meira þar sem kaffí-
stofa, beitningaraðstaða og ýmis-
legt annað er í eldri hlutanum.
Láki ehf. var stofnað fyrir þrem-
ur árum í kringum smábátaútgerð
Ólafs Gíslasonar og sona hans. Ári
síðar tóku þeir að verka saltfisk og
grásleppuhrogn. A síðasta ári
framleiddi fyrirtækið 150 tonn af
saltfiski, en það sem af er þessu ári
eru tonnin orðin 380 svo ekki var
vanþörf á þvi að stækka vinnslu-
rýmið. Starfsmenn fyrirtækisins
eru nú 10. Útlit er fyrir að þeim
muni fjölga ef nægt hráefni fæst.
Fiskverkunarhús Láka ehf. er
framleitt af Límtré hf. Pálmar
Einarsson, byggingameistari í
Grundarfirði, hefur haft umsjón
með uppsetningu hússins, bæði
eldri hlutans og þess nýja. Svo vel
hafa framkvæmdirnar gengið að
hlé á framleiðslunni varð ekki
meira en í þrjár vikur. Að lokum
skal þess getið að fiskurinn sem
Láki ehf. vinnur er ýmist keyptur
af bátum fyrirtækisins eða af
fiskmarkaði.
006-n 'J>l J!I!I J!3*l
‘niuop i^eleuaiq ||i3N.O
Armula 40,
Símar: 553 5320
568 8860.
Iferslumn
AAA
O) T—
" 10—40%
staðgieiðsluafsláttur
FuII buð af ulpum:
Barna - unglinga - fullorðins
Is it zo anorakkur, þrir litir,
kr. 6.980.
Kaupstefna í Nígeríu á vegum
Fiskmiðlunar Norðurlands
Keppinautar
óánægðir með
þátt ráðuneytisins
NOKKUR fyrirtæki hafa haft sam-
band við Viðskiptaþjónustu utan-
ríkisráðuneytisins og lýst yfir
óánægju með að hafa ekld fengið
tækifæri til að vera með í kaup-
stefnu í Nígeríu, sem Fiskmiðlun
Norðurlands hf. efnir til í samvinnu
við Viðskiptaþjónustuna og hófst í
gær. Viðskiptaþjónustan segir að
þó henni hafi ávallt þótt eðlilegt að
önnur fyrirtæki tækju þátt í kaup-
stefnunni hefði það ekki verið í sín-
um verkahring að hafa samband við
þau því Fiskmiðlun Norðurlands
hefði haft framkvæðið að kaup-
stefnunni.
Arni Bjamason, sölustjóri hjá Is-
lensku markaðssölunni, er ekki
ánægður með gang mála. „Það er
sjálfsagt fyrir fyrirtæki að halda
kaupstefnu en ekki með aðstoð ut-
anríkisráðuneytisins nema allir fái
að vera með,“ segir hann. „Eg vissi
að Fiskmiðlun Norðurlands ætlaði
að halda eitthvað en ég hafði ekki
hugmynd um að verið væri að fara
með fulltrúa ráðuneytisins, sem
byðu viðskiptavinum, meðal annars
okkar viðskiptavinum, til kvöld-
verðar í Nígeríu. Við fengum ekki
að vita af þessu fyrr en seint og síð-
ar meir, rúmri viku áður en átti að
fara út, og það eru ekki alveg eðli-
leg vinnubrögð.Við höfum mótmælt
þessu við utanríkisráðuneytið en
ekki fengið nein svör.“
Upplýsingar bárust of seint
Guðmundur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri íslenska-félagsins
hf. í Reykjanesbæ, tekur í sama
streng. „Okkur var ekki tilkynnt
um þessa kaupstefnu og vissum
ekki af henni fyrr en of seint var
fyrir okkur að skipuleggja dagskrá
í Nígeríu og fá vegabréfsáritun,"
segir hann.
I ljósi þess að lítil stjómmálaleg
samskipti hafi verið á milli Islands
og Nígeríu í töluvert langan tíma
segir Guðmundur að umrædd
kaupstefna hafi verið gullið tæki-
færi fyrir þau fáu íslensku fyrir-
tæki sem eru með viðskipti við Níg-
eríu. Hann hefði haft samband við
utanríkisráðuneytið vegna þessa og
fengið þau svör að um væri að ræða
ferð utanríkisráðuneytisins til Níg-
eríu, alveg óháð útflytjandanum
sem væri að fara á sama tíma. „Það
hefði verið gott að vita af þessari
ferð í tíma til að hugsanlega geta
nýtt sér krafta ráðuneytisins til að-
stoðar á markaðssetningu fyrir
mitt fyrirtæki," segir Guðmundur.
Óþægileg staða
Stefán S. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar-
innar, segir að meðalvegurinn sé
vandrataður þegar opinberar
stofnanir styðja við útflytjendur og
starf þeirra og hann hafi gert at-
hugasemdir við málið. „Sá stuðn-
ingur er allra góðra gjalda verður
en það er mikil óánægja í okkar
röðum með hvernig að þessum mál-
um var staðið," segir hann. „Það
verður að fara með mikilli varfæmi
en því miður virðist þarna hafa ver-
ið farið út fyrir strikið. Vandamálið
í þessu er þegar opinberri þjónustu
er beitt í samkeppninni eins og
§ BYLTl
xV
Þantroll
„Með GLORÍU þontrollinu veiðist mun meiri fiskur en áður, hann fælist síður og
streymir jafnt og þétt aftur I pokann. Það helst miklu betur klárt heldur en hefðbundin
troll, ekki sist þegar togað er I miklum straumi og þegar snúið er með það.
Tæknin felst í því að garnið I tmllinu er réttsnúið og rangsnúið og þegar straumurinn
fer efiir snúningnum á leggjunum myndast krafiur sem þenur út trollið."
■ ■ ák tk Éffbl |*4| Arngrímur Brynjólfsson
skipstjóri á Þorsteini EA
virðist hafa verið þarna. Sam-
kvæmt heimildum okkar tekur ut-
anríkisráðuneytið þátt í dagskránni
með einungis einu fyrirtæki og býð-
ur meðal annars nokkrum fyrir-
tækjum til kvöldverðar, þar á með-
al samkeppnisfyrirtækjum. Þetta
er auðvitað mjög óþægilegt fyrir
þau íslensku fyrirtæki sem eru í
viðskiptum við Nígeríu og eru jafn-
vel með gömul og rótgróin við-
skiptasambönd. Jafnvel hef ég
heyrt að einhverjir þurfi að fara
sérstaklega til Nígeríu til að gæta
viðskiptasambanda sinna. Þó gott
sé að hafa fulltrúa opinberra stofn-
ana með í för þegar verið er að
stofna til viðskiptasambanda á það
sérstaklega við þegar verið er að
stofna til nýrra sambanda, fara inn
á nýja markaði, samanber árang-
ursríkar ferðir utanríkisráðherra á
fjarlæga markaði, eða þegar verið
er að kynna íslenskar vörur með al-
mennum hætti þar sem öllum ís-
lenskum útflytjendum er _ veitt
tækifæri til að vera með. I um-
ræddu tilfelli er verið að vinna með
einu fyrirtæki og svo virðist sem
verið sé að fara inn á samkeppnis-
sviðið, sem er verkefni iyrirtækj-
anna. Hins vegar vil ég árétta að
við erum mjög ánægð með störf
viðskiptaþjónustunnar, en hér hef-
ur eitthvað farið úrskeiðis og er um
stílbrot að ræða miðað við það sem
við höfum áður séð.“
Eðlileg aðstoð
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri, og Benedikt
Höskuldsson, forstöðumaður við-
skiptaþjónustu utanríkisráðuneyt-
isins, eru á kaupstefnunni en
Stefán Haukur Jóhannesson, skrif-
stofustjóri viðskiptaþjónustunnar,
segir að í júlí sem leið hafi borist er-
indi frá Fiskmiðlun Norðurlands
þar sem upplýst hefði verið að íyr-
irtækið ætlaði að vera með kaup-
stefnu í Nígeríu og óskað eftir að
fulltrúi ráðuneytisins kæmi á hana.
„Akveðið var að verða við því, enda
töldum við okkur það bæði ljúft og
skylt, enda er hlutverk ráðu-
neytisins meðal annars að aðstoða
fyrirtæki og sambönd þeirra í við-
skiptum og höfum við gert það í
fjölmörgum tilvikum,“ segir hann.
„Ráðuneytisstjórinn verður með
erindi um viðskipti landanna og við-
skipti almennt á ráðstefnunni og
jafnframt var ákveðið að nota ferð-
ina í þeim tilgangi að ræða sam-
skipti landanna, en hann hittir
ýmsa ráðamenn í Nígeríu."
Stefán segir ekkert athugavert
við framgöngu ráðuneytisins í mál-
inu. „Frá byrjun sögðum við að við
teldum eðlilegt að öðrum yrði boðið
að vera með en Fiskmiðlun Norð-
urlands hafði frumkvæðið að þessu
og þegar óskað er eftir aðstoð frá
okkur getum við ekki staðið í því að
vera að auglýsa það. Við höfum oft
tekið þátt í svona verkefnum sem
einstök fyrirtæki, samtök eða hóp-
ur fyrirtækja hafa staðið fyrir og
töldum ekkert óeðlilegt við það þó
við kæmum að þessu eins og raun
ber vitni.“
Skelvertíð
hafín
SKELVERTÍÐIN er hafm í Grund-
arfirði. Þrír bátar eru á skelveiðum,
tveir iyrir Fiskiðjuna, þeir Farsæll
SH og Haukaberg SH. Þeirra hlutur
er um 1.100 tonn, og svo er það
Grundfirðingur SH fyrir fiskvinnslu
Soffaníasar Ceeilsonar. Að sögn
stjómenda iyrirtækjanna er skortur
á vinnuafli við landvinnsluna.
ÚRVERINU
;
I
I